Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
13
ÆTTARSAGAIBOXI
Bökmegintir
Jóhann Hjálmarsson
Þórarinn Eldjárn:
SKUGGABOX. Gullbringa 1988.
Skopstælingu og reyndar hvers
kyns skop er að finna í Skuggaboxi,
skáldsögu Þórarins Eldjárns. Sagan
er að mörgu leyti rökrétt framhald
smásagnanna í Margsaga (1985),
eiginlega má segja að sumir kaflar
hennar minni á smásögur og geti
jafnvel staðið sér sem slíkir.
í Skuggaboxi segir enn frá
Kjögxætt og er söguhetjan þeirrar
ættar, Kort Kjögx, málatferlis-
fræðingur og uppfinningamaður.
Sagan hefst líkt og þjóðlegur fróð-
leikur með því að greina frá að í
Hlíð í Ódal hafí sama ættin búið
frá landnámsöld, „mann fram af
manni" samkvæmt Förunautinum.
En lesandinn áttar sig fljótlega á
því að ekki er um venjulegan fróð-
leik að ræða, til dæmis þegar kem-
ur að eftirfarandi lýsingu: „0g öku-
menn sem leið áttu um þjóðveginn
hægðu ferðina á bílum sínum þegar
þeir fóru fram hjá Hlíð, útflött og
ferðalöng andlitin góndu gegnum
bílrúðumar eins og það ætti allt von
á að landnámsmaður sæti á trakt-
omum eða jafnvel gæti einhvers
staðar að líta mann fram af manni."
Skuggabox gerist ekki nema að
hluta á ættarslóðum Kjögxara, en
frásögnin af því hvemig komið er
í veg fyrir bamleysi í Hlíð er í
meira lagi ævintýraleg og á sér
reyndar hliðstæðu eins og svo
margt annað í sögunni. Uppfínn-
ingahneigð Korts Kjögx veldur því
að hann verður að fara að heiman.
Lesandinn er fljótlega leiddur til
fundar við hann þar sem hann er
Þórarinn Eldjárn
við fræðistörf sín í Haparanda í
Svíþjóð og fær bréf sem veldur því
að hann ákveður að halda heim til
íslands. Þar bíður arfur, hús í
Reykjavík með öllu sem þvf fylgir.
Heimför Korts er gerð að hætti
Sæmundar fróða, en vafasamt að
fullyrða að hann hafí nokkum tíma
náð íslandsströndum. Framvinda
sögunnar ýtir undir þann gmn að
hann hafi í rauninni drekkt sér í
Svíþjóð, heimkoma hans og íslands-
dvöl sé ekki annað en hugarburður.
í jafn fijálslegri sögu og
Skuggaboxi skipta þessi atriði ekki
máli, lesandinn á fyrst og fremst
að lifa sig inn í söguna og trúa
henni sem slíkri. Hann er hvað eft-
Dr. Ebba Þóra Hvannberg
Doktor
í tölv-
unarfræði
EBBA Þóra Hvannberg varði
doktorsritgerð í tölvunarfræði
við Rensselaer Polytechnic Inst-
itute í Troy, New York þann 21.
júní sl.
Titill ritgerðarinnar er „An
Object-Based Parallel Programm-
ing Assistant" og fjallar um hönnun
forritunammhverfís sem auðveldar
hlutbundna (object-based) forritun
samhliða (parallel) tölva.
Ebba Þóra fæddist 16. ágúst
1957 í Reykjavík, dóttir Ebbu og
Gunnars Hvannberg. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1977 og BS-gráðu í
tölvunarfræði frá Háskóla íslands
1981. Haustið 1982 hóf Ebba Þóra
nám við Rensselae Polytechnic Inst-
itute og lauk þaðan MS-prófí vorið
1984.
Ebba Þóra stundar nú rannsókn-
ir við Rensselaer Design Research
Center. Eiginmaður hennar er Helgi
Þorbergsson.
ir annað minntur á skemmtigildi
skáldsögu
Aftur á móti hafði ég meira gam-
an af sögunni þegar höfundurinn
fer slóðir kynja og ævintýra. Skop-
ið hittir að vísu stundum í mark,
en oftar er það af því tagi sem
ekki kemur á óvart og er að verða
eins konar kækur í samfélaginu.
Sundlaugaritgerðin: Atferlis-
táknmálið skýlumerking eftir Kurt
Persson, þ.e.a.s. Kort Kjögx, gegn-
ir að öllum líkindum sínu hlutverki
í sögunni, en er alltof löng, sligar
hana. Sama er að segja um lýsingu
á iúdóspili sem að mörgu leyti er
haglega gerð.
Sagan verður forvitnilegri eftir
því sem ótrúlegri atburðir gerast í
henni. Ég nefni fund þeirra Rósu
og Korts eftir að þau opna kústa-
skápinn þar sem er stigi sem liggur
niður á dimman gang. Einnig að-
draganda ferðar Korts að Hlíð og
komu hans þangað í lok sögunnar.
Andrúm skáldsögunnar minnti
mig stundum á aðra sögu: Kristni-
hald undir Jökli eftir Halldór Lax-
ness. Þórarinn er ekki fjarri þeim
ýkjustíl sem þar er iðkaður með
góðum árangri.
Segja má að Skuggabox sé eins
konar þjóðlífslýsing, frásögn af ein-
kennilegu fólki sem nefnist íslend-
ingar og samskiptum þess við um-
heiminn. Við þekkjum okkur sjálf
og aðra í bókinni, en efnistök eru
víða með þeim hætti að það er eins
og við höfum lesið um þetta áður.
FRY5TIKISTUR- FRY5TISKAFAR
eins og hlutirnir
gerast bestir
GRAM frystikisturnar hafa hraðfrystihólf,
hraðfrystistillingu, körfur sem hægt er að
stafla, Ijós i loki, barnaöryggi á hitastilli-
hnappi, blikkandi öryggisljós við of hátt
hitastig.
GRAM frystiskáparnir hafa jafna kulda-
dreifingu í öllum skápnum, hraðfrysti-
stillingu, öryggisljós fyrir hitastig,
útdraganlegar körfur með vörumerki-
miðum, hægri eða vinstri opnun.
Og auðvitad fylgir hitamælir og ísmola-
form öilum GRAM frystitaekjunum.
Kistur: YTRI MÁLICM. hæð breidd dýpt rýmií lítrum orkunotk. frystiafköst kWsty kg/ sólarhr. sólarhr. VERÐ afborg. st.gr.
HF-234 85,0 x 80,0 x 69,5 234 1.15 17,6 35.450 (33.678)
HF-348 85,0 x 110,0 x 69,5 348 1.30 24,0 41.460 (39.387)
HF-462 85.0 x 130,0 x 69,5 462 1.45 26,8 47.740 (45.353)
H-590 90,0 x 160,0 x 67,5 590 2,85 47.8 59.850 (56.858)
Skápar:
FS-100 71,5 x 55,0 x 60,6 100 1,06 16.3 29.990 (28.491)
FS-175 106,5 x 55,0 x 60,6 175 1.23 24.5 38.200 (36.290)
FS-146 86,5 x 59,5 x 62,1 146 1.21 18,4 36.100 (34.295)
FS-240 126,5 x 59,5 x 62,1 240 1,40 25.3 47.570 (45.192)
FS-330 175,0 x 59,5 x 62,1 330 1.74 -32.2 62.980 (59.831)
3ja Góöir skilmálar Æ=orux
áraábyrgó TraUSt ÞjÓnUSta Hatuni 6A Simi (91) 24420
SAMSKIPTIN VE) AUGLYSENDUR OG FJOLMIÐLA
RÁÐSTEFNA *
haldin á Hótel Sögu fimmtudaginn 3. nóvember 1988.
DAGSKRÁ:
kl. 13.15 Ráðstefnan sett
kl. 13.20 The Role of an Advertising Agency.
Mr. David Wheeler, Director of Institute
of Practitioners in Advertising, England.
kl. 13.50 Efnið frá sjónarhóli auglýsenda:
Bjarni Snæbjöm Jónsson,
framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá
Olíufélaginu Skeljungi hf.
Valur Blomsterberg, markaðsstjóri hjá
Sláturfélagi Suðurlands
kl. 14,10 Efnið frá sjónarhóli fjölmiðla:
Baldvin Jónsson, auglýsingastjóri Morgunblaðsins
Helgi S. Helgason, auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins
kl. 14.30 Efnið frá sjónarhóli auglýsingastofa:
Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri
GBB Auglýsingaþjónustunnar og formaður SÍA
Hallur A. Baldursson, framkvæmdastjóri Yddu hf.
ki. 14.50 Kaffi
kl. 15.05 Unuæður og fyrirspumir til málshefjenda.
kl. 17.00 Ráðstefnulok.
Fundarstjóri: Ólafur Stephensen, ÓSA Auglýsingar-Almeimingstengsl
ÞÁTTTAKA ER ÓKEYPIS
SAMBAND ÍSLENSKRA AUGLÝSINGASTOFA