Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NOVEMBER 1988
17
Vegið að innlend-
um lyfjaiðnaði
eftir Ha.uk Ingason
Inngangur
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur á undanförnu ári
gefíð út tvær reglugerðir þar sem
útlendum lyfjum er hyglað á kostn-
að innlendra. Önnur reglugerðin
tekur gildi um næstu áramót. Verð-
ur þá skylt að afhenda ódýrasta
lyfið ef skrifað er upp á samheiti.
Mörg íslensk lyf eru skráð með
samheiti en ekkert útlent. Innflytj-
endur geta þá verðlagt lyf sín þann-
ig að þau verði a.m.k. einni krónu
ódýrari en innlendu lyfín og náð
þannig öllum markaðnum á viðkom-
andi lyfjum. Þar með er fótunum
kippt undan áralangri markaðssókn
innlendra lyfjaframleiðenda á þess-
um lyfjum.
Hin reglugerðin tók gildi um
síðustu áramót og var þá fasta-
gjaldi sjúklinga fyrir lyf breytt
þannig að það varð það sama fyrir
innlend og útlend lyf. Áður borguðu
sjúklingar minna fyrir innlend lyf,
enda eru þau almennt ódýrari en
þau erlendu.
Kostnaður sjúkrasamlaga
Fyrrgreint reglugerðarákvæði
um samheitin er trúlega sett til að
minnka kostnað sjúkrasamlaganna.
Svo virðist sem horft hafí verið á
málið með öðru auganu því gleymst
hefur að meta gjaldeyrisspamað og
tekjur ríkis- og sveitarfélaga af inn-
lendri framleiðslu
Gjaldeyristap og tap ríkis
og- sveitarfélaga
Útlendir lyfjaframleiðendur geta
eftir áramótin náð markaðnum af
þeim innlendu ljrfjum sem bera sam-
heiti með því að vera einni krónu
ódýrari. Þar með ykist viðskipta-
hallinn við útlönd sem mæta þarf
með auknum útflutningi eða með
erlendum lántökum sem fjármagna
má t.d. með útgáfu ríkisskuldabréfa
sem bera nú um 9% raunvexti.
Með því að nota innlend lyf helst
fjármagnið í landinu í stað þess að
flytja það út. Það fjármagn skilar
sér að hluta til ríkis og sveitarfé-
laga í formi beinna og óbeinna
skatta og gjalda af fyrirtækjunum
og þeim einstaklingum sem þar
vinna. Áætla má að yfir 20% af
veltu innlendra fyrirtækja skili sér
þannig til ríkis og sveitarfélaga.
Þó málið sé hér nokkuð einfald-
aðir þá sér það hver maður að ís-
lendingar tapa á því að flytja inn
lyf sem eru nokkrum prósentum
ódýrari en innlend framleiðsla. Þeg-
ar þessir tveir þættir eru hafðir í
huga má ljóst vera að innflutt lyf
verða að vera a.m.k. 25% ódýrari
en innlend til að íslendingar hagn-
ist á því að flytja þau inn.
Fastagjald sjúklinga
fyrir lyf
Þegar fastagjaldinu var breytt
var það réttlætt með því að verið
væri að fara eftir reglum Príversl-
unarbandalagsins.
Fastagjaldið hafði verið lægra
fyrir innlend lyf í 17 ár og höfðum
við verið í Fríverslunarbandalaginu
í allan þann tíma og reglum ekki
verið breytt er varða þessi atriði
svo ég viti til. Því læðist að manni
sá grunur að fastagjaldið hafi verið
hækkað fyrir innlendu lyfin til að
auka hlutdeild sjúklinga í lyfja-
kostnaði, en aðgerðin réttlætt með
ofangreindum rökum. Nú þegar
reynsla er komin á þessi ákvæði tel
ég að hún sé þess valdandi að ný
innlend lyf eru ekki eins fljót að
ná sömu markaðshlutdeild og áður.
Þar sem innlend lyf eru yfirleitt um
20—30% ódýrari en útlend þá hljót-
ast af þessu töluverð aukalyfjaút-
gjöld fyrir sjúkrasamlögin og sjúkl-
ingana. Þar sem fastagjaldið er það
sama fyrir innlend og útlend lyf
borga sjúkrasamlögin hlutfallslega
mun meira af útlendum lyfjum en
innlendum. Meðalverð á fyrra helm-
ingi þessa árs á lyfjaávísunum var
1.053 krónur fyrir innlend lyf, en
1.518 krónur fyrir útlend lyf (Rit
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins 2/1988).
Til þess að sjúkrasamlögin borgi
hlutfallslega jafn mikið af innlend-
um og útlendum lyfjum þyrfti fasta-
gjaldið fyrir innlendu lyfin því að
vera u.þ.b. 2/3 af sjúklingagjaldinu
fyrir útlendu lyfín.
Úrbætur
Mér- þykir tímabært að hugsað
sé um þjóðarhag þegar reglugerðir
eru settar en ekki einblínt á kostn-
að sjúkrasamlaganna eða
skammtíma spamað sem leiðir af
sér aukin útgjöld þegar til lengri
tíma er litið.
Því þyrfti að breyta fastagjaldinu
þannig að sjúkrasamlögin borgi
hlutfallslega jafnmikið af innlend-
um og erlendum lyíjum, en ekki
meira af útlendum lyfjum eins og
nú er.
Einnig þyrfti að breyta væntan-
legu ákvæði um lyf með samheiti
þannig að ef skrifað er upp á sam-
heiti skuli afhenda það lyf sem
hagkvæmast er fyrir þjóðarhag,
Daihatsu Charade var upphaflega hannaður til að
mæta gífurlegri hækkun bensínverðs í orkukreppu
og að draga úr útgjöldum heimilanna.
Nú, þegar kreppir að í íslensku efnahagslífi
og bensínverðshækkun liggur í loftinu, ásamt öðrum
auknum álögum, sannar Charade enn einu sinni
ágæti sitt sem einn albesti kosturinn á markaðnum
þegar hugað er að bílakaupum.
Kynntu þér hönnun, útlit og rekstrargrund-
völl Daihatsu Charade áður en þú velur annað.
Daihatsuþjónustan er svo í kaupbæti, sú
besta sem völ er á.
Við eigum fyrirliggjandi árgerð 1988 á besta
verði sem við höfum nokkrum sinni boðið uppá.
í því eru engar blekkingar um vexti, einfald-
lega lágmarksverð á gæðabíl.
Við bjódum kjör við allra hæfi og erum opnir fyrir alls konar skiptum.
Úrval notaðra bíla.
BRIMBORG HF.
SKEIFUNNI 1 5 - SÍMI 685870.
Daihatsu - Volvo - Viðurkennd gæðamerki
Árgérð 1989 er á leiðinni fyrir
þá sem vilja bíða,
en á töluvert hærra verði.
SQ8I
9ll \plfdi Cimv
Verðfrákr.
Innifalið hágæða útvarps- og segulbandstæki.
þ.e. innlent lyf nema samsvarandi
útlent lyf sé a.m.k. 25% ódýrara.
Höfundur er lyfjaíræðingur.
Haukur Ingason
„Mér þykir tímabært að
hugsað sé um þjóðar-
hag þegar reglugerðir
eru settar en ekki
einblínt á kostnað
sjúkrasamlaganna eða
skammtíma sparnað
sem leiðir af sér aukin
útgjöid þegar til lengri
tíma er litið.“
>\ .
.
ÆTTFRÆÐINAMSKEIÐ
Nú eru að hefjast ný námskeið hjá Ættfræðiþjónustunni í
Reykjavík. Þátttakendur fá fræðslu um ættfræðileg vinnu-
brögð, leitaraðferðir, uppsetningu ættartölu, niðjatals o.s.frv.
Ákjósanleg skilyrði til rannsókna á eigin ættum. Unnið úrfjölda
heimilda m.a. öllum manntölum til 1930, kirkjubókum og öðr-
um verkum. Auk sjö vikna grunnnámskeiðs (18 klst.) er boðið
upp á 12 klst. framhaldsnámskeið. Helgarnámskeið í Borgar-
nesi verður 4.-12. nóvember. Ættfræðiþjónustan tekur einnig
að sér að semja ættartölur fyrir einstaklinga og fjölskyldur
m.a. 4-6 kynslóða ættartré á tilboðsverði.
Allar nánari upplýsingar í síma 27101.
ÆTTFRÆÐIÞJONUSTAN - sími 27101.
TOLVUSKOLIGJJ
Námskeið
Microsoft WINDOWS
25. nóv., kl. 9.00-16.00
Skráning og upplýsingar í síma 641222.
GÍSLI J. JOHNSEN
n 1
Nýbýlavegi 16, Kópavogi Simi 641222