Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
21
Dúngáll
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Ætli að það sé ekki eitt og
hálft ár síðan Halldór Dungal,
sem tekið hefur sér listamanns-
nafnið Dúngáll vakti nokkra
athygli með sýningu í Gallerí
Svart á hvít.
Nú er þessi ungi maður kom-
inn aftur og að þessu sinni sýnir
hann í hinum litla en notalega
sýningarsal „Undir pilsfaldin-
um“ í Hlaðvarpanum að Vestur-
götu 3.
Um margt virðist Halldór vera
í sömu sporum og á fyrri sýningu
en hefur þó nálgast meira sjálfar
útlínur landslagsins, og það er
einmitt þegar honum tekst best
þar, sem hann nær heillegustum
árangri, svo sem í myndunum
„Gult fjall“ (I) og „Fjallið" (II).
Báðar þær myndir eru einfaldar
en þó mettaðar litrænum krafti.
Litræni krafturinn er þó lang-
samlegast mestur í myndinni
„Fjalladraumur" (7), sem er í
stjömuformi og ég tel athyglis-
verðustu mynd sýningarinnar.
Annars hættir Halldóri full-
mjög til að ofgera myndum með
gull- og silfurbronsi án sjáanlegs
tilgangs og er það mikill mein-
baugur á sýningunni auk þess
sem þær eru oflýstar að mínu
mati. Við það vill liturinn missa
dýpt sína og í þessu tilviki endur-
varpar bronsið honum. Brons er
og mjög vandmeðfarið efni.
Litlu myndimar em margar
skemmtilegpr en þó dálítið kúb-
istískt kjarvalskar - minna á
kúbistíska tímabilið hjá Kjarval,
en það þarf ekki að kom að sök.
Þetta mun vera eins konar
millisýning, sem ekki ber að taka
of hátíðlega og því er farsælast
að bíða með fleiri orð þar til
Dúngáll kynnir átakameiri
hluti...
Kaupfélag
Borgfirðinga
Borgamesi
SAUOÁRKRÓKI
10% KYNNINGAR
AFSLÁTTUR
Gólf-
leikjabók
frá Erni
••
o g Orlygi
ÚT ER komin hjá Erni og Örlygi
allnýstárleg barnabók, sem nefn-
ist Gólfleikjabókin og eins og
nafn hennar gefúr til kynna er
ætlunin að börn leiki sér með
hana á gólfínu eða borði eftir
því sem aðstæður leyfa.
Bókin er prentuð á þykk spjöld
og í henni er klukka með færanleg-
um vísum, dagatal með hreyfan-
legri skífu, þrír leikir, bæjarkort til
bílaleikja, brúðuhús, sögur og vísur
og dansgólf með danssporum.
Höfundar eru Carolien og John
Astrop en þýðingu annaðist Jón
Skaptason.
Fást hjá eftirtöldum aöilum:
Reykjavík:
Bókabúö Jónasar Eggertssonar
Hraunbæ 102
Bókabúöin Kilja Háaleitisbraut 58-60
Hólasport Hólagaröi
Hugborg sf. Grímsbæ
Tómstundahúsið
Úlfarsfell Hagamel 67
Málningabúðin Akranesi
Hólmakjör Stykkishólmi
Kassinn Ólafsvík
Versl. Ara Jónssonar Patreksfirði
Bjarnabúö Tálknafirði
Edinborg hf. Bíldudal
Brauögerðin Flateyri
Suðurver hf. Suðureyri
Verslunin Bimbó ísafirði
Bókhlaðan ísafirði
Einar Guðfinnsson hf. Bolungavík
Kaupfélag ísfirðinga Súðavík
Kaupfélag V-Húnvetninga Hvammstanga
Ósbær Blönduósi
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
Aðalbúðin Siglufirði
Valberg hf. Ólafsfirði
A-B búðin Akureyri
Amaró Akureyri
París hf. Akureyri
Garðarshólmi Húsavík
Verslunin Skógar Egilsstöðum
Bókaverslun Brynjars Júlíussonar
Neskaupstað
Trausti Reyndal Eskifirði
Verslunin Lykill. Reyðarfirði
Versl. Viðars Sigurbjörnssonar
Fáskrúðsfirði
Mosfell sf. Hellu
Vöruhús K.Á. Selfossi
Báran hf. Grindavík
Verslunin Aldan Sandgerði
Reiðhjólaverkstæði M.J. Keflavík
Stapafell hf. Keflavík
Heildsölubirgóir
HEILDVERSLUN
PÉTURS FILIPPUSSONAR HF.
Laugavegi 164, Reykjavík.
Símar 18340 — 18341
Flugleiða-Fokkerinn er kominn í
módel frá Revell, ásamt miklu
0 úrvali af öðrum Revell módelum.
ÁUGLÝSINGADEILD SAMBANDSINS