Morgunblaðið - 01.11.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Frá afinælishátið Norræna hússins. I firemstu röð sitja frá vinstri: Knut Ödeg-árd, forsljóri Norræna
hússins, forseti íslands firú Vigdís Finnbogadóttir, Hákon Randal, stjórnarformaður Norræna hússins,
frú Ragnhild Randal, Jón Sigurðsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, frú Laufey Þorbjarnardóttir,
frú Sólveig Asgeirsdóttir og biskup Islands herra Pétur Sigurgeirsson.
Afínælishátíð Norræna hússins
bætur fyrir rækju sem framleidd
hefur verið og flutt út frá 1. júní
síðastliðnum og eru bætumar 8%
af cif-verðmæti rækjunnar. Þessar
verðbætur þurfti hins vegar ekki
að taka að láni þar sem inneign var
í rækjudeild Verðjöfnunarsjóðs,"
sagði Olafur Klemensson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Knut Ödegárd forstjóri Norræna hússins og Hákon Randal, stjórnar-
formaður þess, bjóða forseta íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur
velkomna á aftnælishátiðina.
Verðbætur iyrir ireðfískíramleiðslu:
Frystihús hafa fengið
um 250 milljónir króna
„SAMBANDSFRYSTIHÚS og
frystihús sem aðild eiga að Söiu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hafa
fengið greiddar rúmlega 250
milljóna króna verðbætur fyrir
freðfisk sem þau framleiddu á
timabilinu júní til september
síðastliðinn. Alls verða greiddar
260 til 280 milljón króna verð-
bætur fyrir freðfiskframleiðslu
á þessu timabili," sagði Ólafúr
Klemensson hjá Verðjöfiiunar-
sjóði sjávarútvegsins í samtali við
Morgunblaðið.
„Samkvæmt bráðabirgðalögum
nkisstjómarinnar á að greiða 750
milljón króna verðbætur fyrir freð-
fískframleiðslu á tímabilinu l. júní
1988 til 31. maí 1989,“ sagði Olaf-
ur. „Einnig verða, samkvæmt
bráðabirgðalögunum, greiddar 50
milljón króna verðbætur fyrir fram-
leiðslu á hörpuskelfíski á sama
tímabili og hefjast þær greiðslur á
næstu dögum. Þessar verðbætur
eru Ijármagnaðar með innlendum
lántökum.
Einnig hafa verið greiddar verð-
Leigubílaakstur ríkisins:
BSRmeð
lægsta
tilboðið
TILBOÐ í leigubílaakstur fyrir
stjórnarráðið voru opnuð á föstu-
dag. BSR reyndist með lægsta
tjlboðið eða 33% afslátt á taxta.
Önnur tilboð voru frá Kristni L.
Matthíassyni sem bauð 30% af-
slátt, Hreyfill bauð 25,5% afslátt
og Bæjarleiðir 8% afslátt.
Innkaupastofnun ríkisins sá um
útboðið og verður tekin afstaða til
tilboðanna í næstu viku. Talið er
að kostnaður við leigubílaakstur
Stjómarráðsins verði um 7 milljónir
króna á næsta ári. Líklegt er talið
að tilboði BSR verði tekið.
Samkvæmt upplýsingum frá
BSR munu þeir bílstjórar sem aka
fyrir Stjómaráð fá þann akstur
greiddan á fullu verði. Mismunurinn
sem þar er á, 33% afslátturinn,
verður síðan tekinn af stöðvargjöld-
um allra bílstjóranna.
TUTTUGU ára afmælis Norræna
hússins var minnst með sérstakri
hátíðadagskrá laugardaginn 29.
október. Dagskráin var vel sótt
og voru Norræna húsinu fiærðar
gjafir og kveðjur frá hinum
Nor ður löndun um.
Dagskráin hófst með því að Knut
Ödegárd, forstjóri Norræna hússins
bauð gesti velkomna. Síðan lék
Erling Blöndal Bengtsson einleiks-
verk á selló eftir Bach, Jón Sigurðs-
son Samstarfsráðherra Norður-
landa og Hákon Randal, stjómar-
formaður Norræna hússins fluttu
ávörp og norski óbóleikarinn Brynj-
ar Hoff lék á óbó. Hátíðaræðuna
flutti dr. Gylfi Þ. Gíslason og að
henni lokinni frumflutti Hamra-
hlíðarkórinn tvö íslensk verk: „Um-
þenking“ eftir Atla Heimi Sveinsson
og „Ek wiwar“ eftir Þorkel Sigur-
bjömsson.
Síðan færðu fulltrúar frá hinum
Norðurlöndunum Norræna húsinu
kveðjur og gjafir frá sínum heima-
löndum. Tryggvi Gíslason, deildar-
Knut Ödegárd tekur á móti Markúsi Erni Antonssyni, útvarpsstjóra.
stjóri færði húsinu bókagjöf frá
Norrænu ráðherranefndinni, Jörgen
Peter Skælm afhenti bókagjöf frá
danska menntamálaráðuneytinu,
Ann Sandelin afhenti 20.000 finnsk
mörk frá finnska menntanálaráðu-
neytinu til kaupa á finnskum bók-
um, Hákon Randal afhenti húsinu
listaverk eftir Frans Widerberg frá
norska menntamálaráðuneytinu,
Ingegerd Troelsson, varaforseti
sænska þingsins afhenti gjöf og
Gunnar Svensson, ríkisráðsritari
afhenti safn af sænskri músik í
geisladiskaútgáfu frá sænska
ríkinu. Björn Poulsen, varaformað-
ur Norræna hússins í Færeyjum
afhenti úrval nýrra færeyskra bók-
mennta og ræðismaður íslands í
Bergen, Arne Holm upplýsti að
stofnaður hefði verið sjóður til að
efla samskipti íslenskra og norskra
ungmenna og væri stofnféð
170.000 norskar krónur.
Kransæðasjúkdómar á undanhaldi með betri lífsháttum og meðferð:
Há blóðfita einkum talin
hættuleg reykingamönnum
Á TVEIMUR áratugum hefúr dregið úr öllum helstu áhættuþáttum
kransæðasjúkdóma hérlendis. íslendingar reykja minna, há blóðfita
og háþrýstingur angra nú færri en áður.
Það sem öðru fremur eykur hættuna á kransæðasjúkdómum eru
reykingar og skiptir þá ekki máli hvort mikið er reykt eða lítið.
Pípu- og vindlareykingar eru ekki síður varhugaverðar hvað þetta
varðar en sígarettureykingar. Há blóðfíta virðist einkum hættuleg
rey kingamönnum.
Þetta kom fram á fræðslufundi
í Domus Medica síðastliðinn laugar-
dag, þar sem fyrstu niðurstöður 20
ára rannsókna Hjartavemdar á
áhættuþáttum hjarta- og æðasjúk-
dóma voru kynntar.
Fjöldi dauðsfalla af völdum
kransæðasjúkdóma hefur lítið
breyst frá ári til árs eftir 1970, en
fram að því fór dánartíðnin stöðugt
vaxandi. Sérfræðingar Hjarta-
vemdar töldu þó ástæðu til bjart-
sýni, helstu áhættuþættir væru á
undanhaldi og miklar framfarir
hefðu orðið í meðferð sjúkdómanna.
Fimmti og síðasti áfangi rann-
sóknar Hjartavemdar stendur nú
yfír. Um 30.000 manns, fæddir á
árunum 1907-1934, hafa komið til
skoðunar, einu sinni eða oftar. Sem
dæmi um umfang rannsóknarinnar
má nefna að 850 atriði hafa verið
skráð um hvem þátttakanda. Þá
hafa 150 vísindarit og greinar birst
um rannsóknina. Sagði Nikulás
Sigfússon yfírlæknir hjá Hjarta-
vemd að efniviðurinn sem safnast
hefði gæti enst í áratugi.
Reykingfamönnum stafar
meiri hætta af blóðfitu
Fræðslufundurinn á laugardag
hófst með ávarpi Sigurðar Samúels-
sonar, formanns Hjartavemdar. Að
því loknu fjallaði Nikulás Sigfússon
um breytingar á áhættuþáttum
kransæðasjúkdóma síðustu tvo ára-
tugi. Sagði hann meðal annars að
blóðþrýstingur landsmanna hefði
almennt lækkað og flestir sem
hefðu háþrýsting hlytu nú viðun-
andi meðferð. Karlar hefðu minnk-
að reykingar meira en konur, nú
reyktu 38% íslenskra kvenna en
28% karla. Blóðfita hefði lækkað á
síðustu tíu árum, streita virtist hafa
aukist og líkamsþyngd stæði í stað.
Karlar yfír þrítugu eru nú mun iðn-
ari við líkamsþjálfun en við lok sjö-
unda áratugarins. Til dæmis stund-
uðu 20% karla á fímmtugsaldri
líkamsþjálfun árið 1980, en 8% árið
1968.
Guðmundur Þorgeirsson læknir
sagði að vægi áhættuþátta væri
mismunandi milli landa. Magn kól-
esteróls í blóði.-blóðfítu, væri víðast
afgerandi áhættuþáttur og krans-
æðasjúkdómar væru fágætir þar
sem það væri lágt. Japanar gætu
þakkað mataræði sínu lága blóðfítu
og fáir þeirra þyrftu að kvarta
vegna kransæðasjúkdóma, þrátt
fýrir streituþjóðfélag og miklar
reykingar. Kransæðasjúkdómar
væru fjórfalt algengari í Svíþjóð en
Japan, enda blóðfíta næstum tvö-
falt hærri. íslendingar væru á svip-
uðu róli og Svíar, en Finnar, Skotar
og Irar hefðu mestu blóðfituna og
flest tilfelli kransæðasjúkdóma.
Þá sagði Guðmundur að samspil
áhættuþátta skipti miklu, þvi meiri
sem blóðfítan væri því hættulegra
væri að reykja. Háþrýstingur hag-
aði sér með líkum hætti og reyking-
ar í samspili við blóðfitu, en þetta
ætti aðeins við kransæðastíflu, ekki
sjúkdóma eins og hjartabilun og
heilablóðfall.
Gunnar Sigurðsson yfírlæknir
sagði meðal annars að hækkun
blóðfitu gæti stafað af óæskilegri
samsetningu fæðunnar, mikilli
líkamsþyngd og erfðum. Körlum
væri hættara við kransæðasjúk-
dómum en konum, þar sem i blóði
kvenna væri meira af svokölluðu
HDL-kólesteróli. Það safnast síður
á æðaveggina þannig að hættan á
æðastíflu minnkaði. Gunnar ráð-
lagði þeim sem ættu ættingja með
kransæðasjúkdóm eða háa blóðfítu
að láta mæla kólesterólmagn í blóð-
inu. Ef það reyndist óeðlilega hátt
væri reynandi að laga mataræðið
en síðar mætti athuga lyfjagjöf.
Blásningar stóraukast I ár
Uggi Agnarsson hjartasérfræð-
ingur ræddi um meðferð kransæða-
sjúkdóma. Hann sagði að miklar
framfarir hefðu orðið og valkostum
fjölgað. Svonefndar blásningar
væru gerðar æ oftar, þá væri slanga
með blöðru á endanum sett inn í
kransæð þar sem hún er þröng og
reynt að víkka hana með því að
blása upp blöðruna. Sjúklingar
væru fljótari að jafna sig eftir blásn-
ingu en hjartaaðgerð. Lýsisneysla
virtist bæta árangur af blásningu
og almennt lofaði lýsið góðu. Raun-
ar hefði asperín einnig góð áhrif á
kransæðasjúklinga, þar sem blóð-
flögurnar loddu síður saman væri
það tekið reglulega.
Það sem af er árinu hafa 27
blásningar verið gerðar hérlendis
miðað við 12 á síðasta ári. í fyrra
gekkst 101 íslendingur undir
hjartaaðgerð hérlendis og stefnir í
svipaðan fjölda í ár. 83 hjartasjúkl-
ingar fóru utan til aðgerða á síðasta
ári.
Beina þarf firæðslu
að neysluvenjum
Að lokum ræddi Jón Gíslason
næringarfræðingur um neysluvenj-
ur almennings og fræðslu. Hann
nefndi helstu manneldismarkmið
manneldisráðs: Að minnka fitu-
neyslu almennt og nota jurtafitu á
kostnað dýrafitu eða mettaðrar fitu.
Að borða meira af flóknum kolvetn-
um, sem fást úr kornmat, græn-
meti og ávöxtum. Að minnka syk-
ur- og saltneyslu.
Jón sagði að lfklega þyrfti að
beina fræðslu meira að neysluvenj-
unum sjálfum, einstökum matvæl-
um og matreiðsiu. Slík fræðsla í
skólum væri mikilvæg. Stjórnvöld
þyrftu að framfylgja ákveðinni
stefnu í þessum málum og fyrir-
huguð neyslukönnun skipti þar
miklu. Álagning tolla á matvæli
yrði að vera í samræmi við mann-
eldismarkmið.
Ekki sér fyrir endann á úrvinnslu
gagna úr rannsókn Hjartaverndar.
Fyrirhugað er að grein um rann-
sóknina birtist í erlendu læknariti
í vetur og niðurstöður verða kynnt-
ar hérlendis jafn óðum og þær liggja
fyrir. Þó má ljóst vera að þeir sem
forðast vilja kransæðasjúkdóma
ættu að halda sig frá reykingum,
stilla neyslu sykurs og mettaðrar
fitu í hóf og taka lýsi.
ÞÞ