Morgunblaðið - 01.11.1988, Page 26
~26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Póstur hrannast upp
Reuter
Póstur hrannast nú upp á frönskum pósthúsum
vegna verkfalla opinberra starfsmanna þar í
landi. Meðfylgjandi mynd var tekin á pósthúsi
í bænum Lezennes þar sem póstpokum hefúr
verið staflað í stæður. Þar verða þeir þangað
til afköst póstmanna komast í samt lag aftur.
Fí knieftiaby lgj a
frá Búrma vegna
stjómmálaumróts
Bangkok. International Herald Tribune.
TÆLENSKIR og vestrænir embættismenn, sem kljást við fíkni-
efiiamál, telja líklegt að pólitískt umrót í Búrma muni valda því
að flæði heróíns frá landinu vaxi gífúrlega á næstunni. Verði því
einkum smyglað á markað í Vestur-Evrópu og Bandarikjunum en
einnig til ýmissa Asíulanda. Herforingjastjórn Saws Maungs í
Búrma hefúr nóg að gera við að halda aftur af stjórnarandstæð-
ingum í landinu og þar að auki hafa þeir embættismenn, sem
fengust við fíkniefiiavandann í landinu, nýlega verið reknir úr
starfí. Loks má geta þess að Sameinuðu þjóðirnar og Bandaríkin
hafa stöðvað efnahagsaðstoð við landið, þ.á m. átta milljónir Banda-
ríkjadala (380 milljónir ísl.kr.) sem nota átti til að eyða gróðri á
ópíumsekrum.
Að sögn heimildarmanna sækj-
ast fíkniefnasalar æ meira eftir
heróíni frá Búrma og Laos vegna
þess hve hreint hráefnið er; hrein-
leiki þess er um 97% en aðeins
30% í heróíni frá Vestur-Asíulönd-
um. Megnið af efninu er flutt um
Tæland til ákvörðunarstaðanna en
að undanförnu hafa hafa Indland,
Friðarviðræður heQast á ný í Persaflóastríðinu:
Aðalritari SÞ óttast að
bardagar blossi upp á ný
París, Nikósíu, Genf. Reuter.
JAVIER Perez de Cuellar, aðalrit-
ari Sameinuðu þjóðanna, sagði í
viðtali við franska dagblaðið Le
Figaro í gær að hann óttaðist
mjötr að ófriður kvnni að briótast
út á milli írana og íraka að nýju.
Ný lota friðarviðræðna milli frill-
trúa rikjanna tveggja hófst í gær
í Genf í Sviss en hart hefúr verið
deilt um friðarskilmála frá því
Sérmerkjum
ölglös
Höfðabakki 9
Reykjavík s. 685411
Sérmerkjum ölglös
með skemmtilegum
teikningum eða eftir
ykkartillögum!
viðræðurnar hófúst þann 25.
ágúst síðastliðinn. Lítið hefúr
miðað og almennt virðist ekki
búist við því að þessi lota beri
umtalsverðan árangur.
Javier Perez de Cuellar sagði að
vopnahléið í Persaflóastríðinu gæti
tæpast talist traust og að átök gætu
blossað upp að nýju með litlum fyrir-
vara. Á ákveðnum stöðum væru
aðeins um 20 metrar milli hersveita
ríkjanna og við þær aðstæður gæti
allt gerst.
Aðalritarinn sagði að nokkuð
hefði miðað í viðræðunum en tók
jafnframt fram að þær hefðu enn
ekki skilað marktækum niðurstöð-
um. Tilganginn með viðræðunum nú
kvað hann éinkum vera þann að fá
írani og íraka til að draga hersveit-
ir sínar lengra frá vígstöðvunum. Á
þann hátt væri unnt að treysta
vopnahléið auk þess sem þá mætti
einnig heíja viðræður um skipti á
stríðsföngum sem taldir eru vera um
100.000. de Cuellar sagði á blaða-
mannafundi í Genf í gær að bæði
ríkin hefðu sýnt vilja til að greiða
fyrir fangaskiptum og kvaðst hann
ætla að ræða við fulltrúa Rauða
krossins um fyrirkomulag þeirra. Á
sunnudag bárust fréttir um að hvort
ríkið hefði sleppt 25 særðum
stríðsföngum með milligöngu Rauða
krossins.
Ali Akbar Velayati, utanríkisráð-
herra írans, hélt til Genfar í gær
þar sem hann mun eiga viðræður
við hinn íraska starfsbróður sinn,
Tareq Aziz, með milligöngu de Cue
llars. Velayati sagði í gær að Iranir
væru ekki reiðubúnir til að falla frá
samningi sem ríkin gerðu með sér
í Alsír árið 1975 en samkvæmt hon-
um voru írönum tryggð yfirráð yfír
helmingi Shatt-al-Árab vatnasvæð-
isins við suðurhluta landamæra
ríkjanna tveggja. írakar fullyrða á
hinn bóginn að íranir hafi brotið
gegn ákvæðum samningsins og telja
af þeim sökum gagnslaust að
ákvarða frekari viðræður á grund-
velli hans. Raunar lýsti Saddam
Hussein, forseti íraks, samninginn
dauðan og ómerkan árið 1982 er
hersveitir íraka réðust inn í íran.
íranir segja að einhliða ákvörðun
Husseins dugi ekki til að rifta samn-
ingnum.
írakar hafa og krafist þess að
þegar í stað verði hafist handa við
að hreinsa Shatt-al-Arab fljót, sem
er helsta siglingaleið íraka út á Pers-
aflóa. Vilja þeir að þetta verði geit
undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna.
Botnleðja hefur safnast þar saman
auk þess sem leifar farartækja og
vígtóla torvelda mjög siglingar. íran-
ir kveðast eingöngu vera tilbúnir til
að ræða þetta atriði innan ramma
samþykktar Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna um vopnahlé í Persaf-
lóastríðinu og sagði Tareq Aziz að
hreinsun Shatt-al-Arab myndi drag-
ast mjög á langinn sökum þessa.
maconde
formen
MAOE W BpRTUGAL
Glæsileg herraföt
Vörumerkiðtryggir
gæði og bestu snið
Macondeverksmiðjumar eru meðal stærstu
karlmannafataverksmiðja í Evrópu og stærstar í
Portúgal. Við bjóðum lægsta Evrópu-markaðsverð.
Karlmannaföt kr. 3.995,- til kr. 9.900,-
Jakkar kr. 4.995,-
Terelynefrakkar kuldafóðraðir kr. 4.760,-
Úlpur kr. 2.240,- og 3.400,-
Terelynebuxur kr. 1.195,-1.595,- 1.695,- 1.795,-
og 1.995,-
Skyrtur nýkomnar, mikið úrval.
Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Kína, Malasía og Víetnam einnig
komið við sögu. Bandarísk yfirvöld
álíta að 30% af því heróíni, sem
berst til landsins, komi frá Búrma
og Laos, en á síðasta ári var hlut-
fallið 17%.
Fjárhæðirnar í þessum viðskipt-
um með fíkniefni frá Asíu eru
miklar og áætlað er að um millj-
arða Bandaríkjadala sé að ræða.
Sem dæmi um magnið má nefna
að í febrúar fundu tælensk yfir-
völd 1,26 rúmmetra af heróíni sem
falið var í gúmmísekkjum er senda
átti til New York og mun þetta
vera stærsta heróínsending sem
yfírvöld í nokkru landi hafa kló-
fest. Síðasta ópíumuppskera í
Búrma og Laos nam um 1.400
tonnum og er hægt að vi.nna um
140 tonn af heróíni, sem er mun
sterkara en ópíum, úr því magni.
Chavalit Yodmani, yfirmaður
fíkniefnalögreglunnar í Tælandi,
segir að meira sé selt af heróíni
frá Suð-Austurasíu eftir að
kínversk-ættaðir glæpamenn náðu
undir sig fíkniefnamarkaðnum í
New York úr höndum mafíunnar.
Bretland:
Reykingar
bannaðar í
innanlands-
flugiBA
London. Reuter.
BRESKA flugfélagið British
Airways hefúr bannað reyking-
ar um borð í flugvélum, sem
fljúga innanlands. Gekk bannið
í gildi í gær, mánudag, og segja
talsmenn félagsins, að langf-
lestir farþega hafí fagnað þess-
ari ákvörðun.
„Við höfum varla rekist á nokk-
um, sem er andvígur reykinga-
banninu í flugvélum,“ sagði tals-
maður BA en mælti þá ekki fyrir
munn félaga í samtökunum
„Frelsis- og réttindasamtök þeirra,
sem vilja njóta reykjarins". Þau
hafa hvatt félagsmenn sína til að
ferðast með öðrum flugfélögum
og halda því fram, að reykurinn
hjálpi fólki til að sýna æðruleysi
þrátt fyrir örtröðiná á breskum
flugleiðum.
I innanlandsfluginu í Bretlandi
er flugtíminn sjaldan lengri en
klukkustund og sagði talsmaður
BA, að reykingamenn ættu auð-
veldlega að geta setið á sér í þann
tíma.
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!