Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
mmmn
Segðu dýralækninum að
sjúklingur sé við hurðina.
Vaknaður maður. — Það
er þjófur kominn inn . . .!
Með
morgunkaffinu
Hvalveiðimálið:
Ofstækisfull
sjónarmið
Heiðraði Velvakandi.
Mikil herferð er nú gerð gegn
okkur íslendingum vegna hvalveiða
okkar.
Það er ofbeldisflokkur, sem nefn-
ist Grænfriðungar, sem stendur
fyrir heiftarlegum áróðri og
skemmdarverkum gegn þjóð vorri,
um mál sem þeir hafa hreint ekk-
ert vit á, eða hafa ekki kynnt sér
í raun.
Fáir þeirra hafa séð lifandi hvali,
nema þá í sjónvarpi. Nú er það vit-
að að þessir sömu menn hafa stofn-
að stórum hópi íbúa norðlægra
landa í mikla hættu með áróðri
sínum gegn selveiðum þeirra, með
því að eyðileggja skinnamarkað
þeirra. Þetta hafa þeir viðurkennt
að hafí verið misvitur aðgerð en
skaðinn verður seint eða aldrei
bættur.
Hvað hugsa stjómvöld, þar sem
þessir aldagömlu lifnaðarhættir eru
enn viðvarandi innan þeirra yfir-
ráðasvæða, að gera ekki kröfur um
skaðabætur handa þessum þjóð-
flokkum sem enn lifa á norðurslóð-
um við forna menningu? Láta þau
eyðingu þeirra sig engu skipta. Vit-
að er að þegar þetta fólk verður
að samlaga sig nýmenningunni er
þess þjóðerni glatað og leiðist það
þá útí ómenningu, vegna þess að
það þekkir ekki vélabrögð menning-
arinnar svokölluðu og Bakkusar.
Talað er um að Halldór Asgríms-
son sé þrjóskur en ég met hann að
meiri fyrir hans þátt í þessum rétt-
lætismálum, sem varða hvalveiðar
okkar. Græningjar eru þrjóskari en
Satan sjálfur, því þeir vita að hval-
veiðarnar eru stundaðar undir
ströngu eftirliti hér og vegna vís-
indarannsókna, hvalatalning starf-
rækt sem kostar mikið og Islending-
ar standa fyrir öðrum fremur. Sama
er að segja um fiskistofnana og
væru nú fiskimið okkar uppurin af
físki ef landhelgisgæslan hefði ekki
staðið fast á rétti sínum að veija
200 mílumar fyrir ágengni útlend-
inga og fylgja eftir vemdunarsjón-
armiðum landstjómar okkar.
Grænfriðungar halda til streitu
ofstækisfullum sjónarmiðum sem
þeir telja að flokkurinn styrkist við,
en gæta ekki sjálfsagðra mannrétt-
inda og réttlætis í framkvæmd bar-
áttumála sinna, sem þeir halda að
óþörfu til streitu hér norður við
Ishaf. Þeir em á mörgum sviðum
öfga-skemmdarverkamenn með of-
beldiskenndum flokksrembingi,
liggur við, þjóðernismorðingjar.
Þeir ættu að hafa í huga að starf
þeirra á að helgast af tillitissemi
og yfirveguðum sannindum og stað-
reyndum, en ekki ósanngirni og
ofstækisfullum árásum á efnahag
heilla þjóða og þjóðarbrota, því það
mun sannast þó síðar verði og er
þegar sannað að vemdunarsjónar-
mið Islendinga eru mörgum öðrum
þjóðum fremri og munu koma þeim
og öðrum þjóðum til góða er fram
líða stundir.
Það gegnir furðu að þjóðir heims
skuli ekki sameinast um að sækja
til saka þau flokksbrot sem stofna
efnahag þjóða að yfirlögðu ráði í
hættu og gegn ofstækissjónarmið-
um með rakalausar staðhæfingar
sem valda efnhagsþvingunum sem
geta varðað jafnvel sjálfstæði þjóð-
ar.
Er ekki athugandi að benda á
að við séum ekkert uppá viðskipti
við þjóðir sem okkur eru óvinveittar
í viðskiptum komnir, við erum
óbundnir ótvírætt þeim þjóðum og
efnahagsbandalögum sem beita
okkur efnahagslegum þvingunum
og tjóni. Við getum framleitt flest
það sem við þörfnumst, eða keypt
af okkar vinsamlegum samstarfs-
löndum.
Verndunar þarf á mörgum svið-
um og við höfum starfað heiðarlega
að verndunarmálum, sem hægt er
að segja að samrýmist umhverfis-
vemd í raun. Það sem háir því
starfi er okkar fámenni og þar af
leiðandi lítil efni. Þessum möguleik-
um em Grænfriðungar að vinna
gegn eins og vart verður á fleiri
sviðum innan samsærishóps þess
sem þykist vinna að verndum
lífríkisins.
Skilningsleysi þessara manna er
svo mikið, að þeir segja samherjum
sínum stríð á hendur og beita efna-
hagslegum þvingunum. Eg veit að
Islendingar geta tekið undir um-
hverfisverndarsjónarmið en alls
ekki aðferð Grænfripunga þessum
málum viðkomandi. Islendingum er
nauðsyn að nýta og vernda öll þau
verðmæti sem eru í lögsagnarum-
dæmi landsins til sjávar og sveita
án íhlutunar annarra þjóða og
þeirra sem hafa tilhneigingu til
íhlutunar um okkar auðlindir og
yfirráðasvæði sem með lögmætum
hætti eru okkar.
Þorleiftir Kr. Guðlaugsson
Víkverji skrifar
HOGNI HREKKVISI
Víkveiji hafði orð á því fyrir
viku, að Skógarhlíðin væri
hættuleg umferðargata vegna þess
að börn og unglingar eru þar mikið
á ferð. Þess vegna væri nauðsyn-
legt að byggja undirgöng undir
götuna fyrir gangandi vegfarendur.
Sl. föstudagskvöld varð Víkveiji
vitni að því, að litlu munaði að tveir
bílar, sem komu hvor úr sinni átt
keyrðu á hjólreiðamann, sem fór
skyndilega út á merkta gangbraut
á Skógarhlíð í slæmu skyggni og
svo óvænt, að bílunum tókst með
naumindum að stöðva. Ef ekki
verða gerðar sérstakar ráðstafanir
á þessari götu verður þar nýtt
dauðaslys, áður en við vitum af.
En þar sem rætt er um hættur
er ekki úr vegi, að benda yfirvöldum
í Reykjavík og Kópavogi á það, að
mikið er af skurðum á hinum um-
deilda svæði í Fossvogsdal, sem
sumir kunnugir menn segja raunar,
að eigi alls ekki að kalla dal, heldur
einungis Fossvog. Sumir þessara
skurða eru fullir af vatni, enda virð-
ist hafa verið komið fyrir stíflu í
þeim. Svo mikið vatn safnast saman
í þessum skurðum, að þeir eru stór-
hættulegir fyrir börn, sem mikið
eru að leik á þessu svæði. Þarna
þarf tafarlaust að gera ráðstafanir
til þess að koma í veg fyrir slys.
XXX
Niðurstaða skoðanakönnunar
um hundahald á áreiðanlega
eftir að valda borgaryfirvöldum
töluverðum erfiðleikum. Auðvitað
var þessi skoðanakönnun ekki bind-
andi og þátttaka var tiltölulega lítil.
Hins vegar má ætla, að þeir, sem
vilja hafa hunda hafi verið áhugas-
amari um þátttöku í könnuninni en
hinir, þannig að í kosningu með
meiri þátttöku gæti munurinn hugs-
anlega verið meiri.
Hundar í Reykjavík og raunar
nágrannabyggðum einnig eru orðn-
ir það margir, að engum dettur í
hug að hægt sé að snúa dæminu
við og banna hundahald og krefjast
þess að dýrunum sé lógað. Skoðana-
könnunin er hins vegar vísbending
um vilja almennings. Eitt af því,
sem áreiðanlega hefur valdið
nokkru um andstöðu við hundahald
er einfaldlega það, að hundaeigend-
___________________________i
ur halda ekki settar reglur. Eins
og vikið hefur verið að í þessum
dálkum er það alltof algengt að
hundar séu lausir á ferð, ekki sízt
á útivistarsvæðum, þrátt fyrir skýr-
ar reglur um hið gagnstæða.
Víkveija sýnist, að fyrstu viðbrögð
við þessari niðurstöðu ættu að verða
þau, að hundaeigendur taki regl-
urnar alvarlega og hafi hundana
ekki lausa úti við. Að öðru leyti
hlýtur það að vera umhugsunarefni
fyrir borgaryfirvöld, hvort hægt er
að koma í veg fyrir, að hundahald
breiðist út frá því, sem nú er - t.d.
með því að hafa hundaskattinn
verulega hærri.
XXX
Fyrir helgina voru fréttir um það
í Morgunblaðinu, að útlending-
ar væru hér á atvinnuleysisskrá.
Það er eitthvað bogið við það að
flytja fólk inn í landið til sérstakra
starfa og halda svo þannig á mál-
um, að það missi atvinnuna og fái
greiddar atvinnuleysisbætur. Er
ekki skynsamlegra að hjálpa þessu
fólki að komast heim til sín aftur?