Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NOVEMBER 1988
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Spasskíj útskýrir möguleika einnar stöðunnar á skákborðinu.
Olympíumótið í skák:
Góður andi mikilvægur
- segir Bóris Spasskíj, sem aðstoðar íslensku ólympíusveitma
Selfossi.
Sovéskir dagar
helgaðir Kirgizíu
„ÞAÐ er þýðingarmest að það
sé góður andi í liðinu og áhugi
fyrir að vinna vel og mikið. Ég
hef góða reynslu sem ég get
miðlað og reyni að ná upp góðu
samstarfi milli allra í liðinu,“
sagði Bóris Spasskíj, sem næstu
daga mun aðstoða íslensku skák-
sveitina við undirbúning undir
Ólympíumótið í Grikklandi um
miðjan mánuðinn. Skáksveitin
verður í æfingabúðum við Alfta-
vatn i Grímsnesi fram eftir vik-
unni vikunni.
Spasskíj sagðist þekkja liðið
nokkuð vel, kvaðst hafa mætt
nokkrum þeirra við skákborðið á
Reykjavíkurmótinu i skák fyrir
þremur árum. „Ég hef áhuga á að
verða þeim að sem mestu liði. Við
munum fara í gegnum skákir frá
nokkrum mótum og einhver kerfi,
allt eftir því hvað hver og einn vill
gera. Þetta verður kannski erfitt
fyrir þá en ekki fyrir mig, ég er
ekki mikið fyrir að erfiða en mun
hjálpa þeim eins og ég get til að
ná því fram sem þeir stefna að,“
sagði Spasskíj.
Hann vildi ekki segja mikið um
möguleika liðsins en sagði það ljóst
að aðrar skáksveitir á mótinu í
Grikklandi yrðu að taka fullt tillit
til styrkleika íslensku skáksveitar-
innar. _ Sig. Jóns.
FÉLAGIÐ MÍR, Menningartengsl
íslands og Ráðstjórnarríkjanna,
efiiir til árlegra Sovéskra daga
í byrjun nóvembermánaðar. Dag-
arnir eru að þessu sinni sérstak-
Seoul:
Arangri
fagnað
AÐALFUNDUR Öijrkja-
bandalags Islands, haldinn 22.
október 1988, sendir sérstak-
ar árnaðaróskir og kveðjur
til fatlaðra iþróttamanna í
Seoul.
í frétt frá Öryrkjabandalagi
Islands segir: „Arangur þeirra
er glæsilegur og öllum sem að
þeim málum standa til mikils
sóma.
Jafnframt lýsir fundurinn yfir
vonbrigðum yfir fremur lítilli
umijöllun fjölmiðla. Sérstaklega
er saknað meiri umíjöllunar af
hálfu ríkissjónvarpsins.
Benda má á að góður árangur
fatlaðra íþróttamanna á alþjóða-
vettvangi er mjög góð land-
kynning auk þess sem flestallir
landsmenn vilja mjög gjaman
fylgjast með viðburðum þar sem
landinn er að fullu samkeppnis-
fær meðal annarra þjóða.“
lega helgaðir einu af Asíulýð-
veldum Sovétríkjanna, Kirgizíu,
og kemur hópur listafólks og
fleiri þaðan til þátttöku í einstök-
um dagskráratriðum.
Sovésku dagamir verða settir í
Félagsheimili Kópavogs miðviku-
dagskvöldið 2. nóvember kl. 20.30.
Verða þar flutt ávörp, en auk þess
skemmta listamennirnir frá
Kirgizíu með hljóðfæraleik, söng,
kvæðaflutningi og dansi. Tónleikar
og danssýningar verða síðan næstu
daga í framhaldsskólum á Akra-
nesi, Borgarfirði, Selfossi og e.t.v.
víðar, og sunnudaginn 6. nóvember
í Þjóðleikhúsinu og Vestmannaeyj-
um 8. nóvember.
í hópi gestanna frá Kirgizíu em
m.a. Kerimzhan Kunakunov fjár-
málaráðherra sovétlýðveldisins og
skáldið Estebes Turtumalijev, sem
ber heiðurstitilinn þjóðlistamaður
Sovétríkjanna og hlotið hefur sov-
ésku ríkisverðlaunin. Skáldið er
fulltrúi sérstæðrar, þjóðlegrar list-
greinar í Kirgizíu, sem byggir á
gamalli hefð — hann er talandi
skáld.
Ymiskonar sýningarefni hefur
borist frá Kirgizíu í tilefni Sovésku
daganna og verður til sýnis í húsa-
kynnum MÍR, Vatnsstíg 10. Sýn-
ingin verður opnuð laugardaginn
5. nóvember kl. 15. Þar verða sýnd-
ir ýmiskonar listmunir, einkum
vefnaður unninn úr ull, en Kirgizar
eru frægir fyrir sín litríku og sér-
stæðu ullarflókateppi. Aðrir list-
munir á sýningunni eru unnir í tré,
leður, stein, málma og bast.
Þj óðarflokkurinn:
Boðið fram í öll-
um kjördæmum
Selfossi.
ÞJÓÐARFLOKKURINN hélt að-
alfiind sinn í Ölfiisborgum
14.—16. október. Flokkurinn
hyggst bjóða fram í öllum kjör-
dæmum við næstu alþingiskosn-
ingar. í stjórnmálaályktun flokks-
ins er meðal annars lögð áhersla
á að millifærsluaðferð stjórn-
valda við lausn efnahagsmála sé
til þess að fela gjaldþrot þjóð-
félagsins.
Á aðalfundinum var kosin aðal-
stjóm, Pétur Valdimarsson Akur-
eyri, formaður flokksins, Hólmfríður
Bjamadóttir frá Blönduósi vara-
formaður og Ámi Steinar Jóhanns-
son úr Eyjafirði þriðji maður í stjóm
flokksins.
Á fundinum var samþykkt stjóm-
málaályktun og segir þar svo meðal
annars:
„I síðustu kosningum barðist
Þjóðarflokkurinn fyrir róttækum
þjóðfélagsbreytingum, með stórauk-
inni valddreifingu. Sjálfstæði lands-
hlutanna er eina leiðin til að auka
ábyrgð og skapa jafnvægi milli
eyðslu og verðmætasköpunar. Getu-
leysi gömlu stjómmálaflokkanna til
að stjóma íslandi hefur komið skýrt
í ljós síðastliðin misseri. Nú er svo
komið, enn einu sinni, að grípa verð-
ur til stórkostlegra millifærslna til
þess að fela gjaldþrot þjóðfélagsins.
Þjóðarflokkurinn vekur athygli á að
hér er eingöngu um að ræða ómark-
viss vinnubrögð, ósjálfráð viðbrögð
ónýts kerfís, til þess að viðhalda
sjálfu sér.“
Sennilegt er að margir munu
gleymast og ekki ólíklegt að pólitísk
spilling ráði því hverjum verður
bjargað. Augljóst er að hrun heimil-
anna og fyrirtækja heldur áfram.
Barátta Þjóðarflokksins fyrir stöð-
ugleika í efnahags- og búsetumálum
hefur aldrei verið brýnni. Efnahags-
legt hrun og búseturöskun á sér stað
jafnvel hraðar en framsýnustu menn
óttuðust.
Óstjóm á öllum þáttum efnahagsl-
ífsins er þvílík að varla er ástæða
til að draga fram einstök dæmi. Þó
verður að tilgreina fáránlega stefnu
í verðbóta-, gengis- og vaxtamálum,
sem hefur valdið gífurlegri tilfærslu
eigna milli landshluta, atvinnugreina
og einstaklinga."
— Sig. Jóns
Niðurskurði riðuflár
í Skagafirði lokið
Sauðárkróki.
LOKIÐ var fyrir skömmu að lóga
um 1.500 fjár hjá sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga firá all-
mörgum bæjum í Skagafirði og
Siglufirði þar sem niðurskurður
fór fram vegna riðuveiki. Eins
og annars staðar þar sem slíkur'
niðurskurður er framkvæmdur,
eru allar afurðir urðaðar með
öðrum sláturúrgangi.
Að sögn sláturhússtjóra Kaup-
félags Skagfírðinga er um 1.500
§ár sem af þessum sökum er lógað
núna. Þannig er skorið niður frá
bæjum í Fljótum, Lýtingsstaða-
hreppi, Seyluhreppi, Staðar- og
Skarðshreppi, auk fjár frá sex aðil-
um í Siglufirði, en þar hafa tveir
aðilar fengið undanþágu frá niður-
skurði til haustsins 1989. Aðeins í
tveimur hreppum í Skagafirði,
Rípur- og Skefilsstaðahreppi, hafa
bændur ennþá sloppið við að riðu-
veiki greindist í búfé þeirra.
- BB
Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson
Albert Geirsson skólastjóri, Guðmundur Sigurgeirsson starfsmaður RARIK á Seyðisfirði og Guðmundur
Gíslason skrifstofustjóri í Landsbankanum skoða rafinagnssýningu RARIK.
Rafljósahátíð á Seyðisfírði:
Fjarðarselsvirkjun 75 ára
Seyðisfírði.
Fjarðarselsvirkjun varð 75 ára
18. október síðastliðinn. Seyðis-
fjarðarbær og RARIK minntust
þessara tímamóta með sérstakri
Rafljósahátíð þann sama dag.
Óllum bæjarbúum var boðið að
skoða virkjunina, en þar hefiir
ýnsum hlutum úr sögu rafveitu
og virkjunar verið haldið til haga
sem vísi að minjasafni. Krisfján
Jónsson rafinagnsveitustjóri og
Þorvaldur Jóhannsson bæjar-
stjóri fluttu þar ávörp. Jón Sig-
urðsson iðnaðarráðherra opnaði
síðan rafinagnssýningu í kyndi-
stöð RARIK á Seyðisfirði. Um
kvöldið bauð síðan bæjarstjórn
til hátíðarkvöldverðar á Hótel
Snæfelli þar sem snæddur var
að hluta til samskonar matur og
var í kvöldverðarboði bæjar-
stjórnarinnar 1918 á Rafljósa-
hátíð sem haldin var þegar virkj-
unin var formlega tekin í notkun.
Fjarðarselsvirkjun er elsta starf-
andi riðstraumsvirkjun fyrir raf-
veitu á íslandi, áður voru komnar
rafveitur í Hafnarfirði, Eskifirði og
Siglufirði en það voru jafnstraums-
veitur. Það var 13. október 1913
sem fyrst var hleypt straumi á veit-
una og þann 18. október sama ár
var haldin mikil Rafljósahátíð á
Seyðisfirði, þar sem rafbirtunni var
fagnað og framkvæmdaraðilum
þakkað starfið.
í tilefni af afmælinu gáfu raf-
veitumar og Seyðisfjarðarbær út
litprentaðan bækling um sögu og
starfsemi Fjarðarselsvirkjunar í
þessi 75 ár og var honum dreift á
öll heimili á Seyðisfirði og víðar.
Ritstjóri bæklingsins var Erling
Garðar Jónasson rafveitustjóri á
Austurlandi. Rafveitustjóri á Seyð-
isfirði er Jón Magnússon.
- Garðar Rúnar
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og Jón Magnússon rafveitusljóri á
Seyðisfirði skoða teikningar í gömlu rafstöðinni.