Morgunblaðið - 01.11.1988, Qupperneq 56
SYKURLAUST FRÁ WRIGLEY’S
ÞRIÐJUDAGUR 1. NOVEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Þnðjungur nauðgun-
arkæra leiðir til dóms
ÞRIÐJUNGI nauðgunarmála, sem kærð voru til lögreglu frá 1.
júlí 1977 til ársloka 1983, hefur lokið með dómi. Á þessum tíma
bárust Rannsóknarlögreglu ríkisins 126 kærur vegna nauðgunar.
I 48 málanna var ákært, og var afgreiðslu dómstóla lokið í 42
tilvikum en í 6 máium var enn ódæmt um mitt ár 1986. Elsta
málið hafði þá verið til meðferðar hjá sakadómi í 6 ár. Þetta
kemur fram í skýrslu Nauðgunarmálanefhdar sem sett var á fót
í júlí 1984 og hefur nú lokið störfum.
Einn nefndarmanna, Sigrún
Júlíusdóttir félagsráðgjafi, kvaðst
telja að allt að 9 af hveijum tíu
nauðgunum væru aldrei kærðar
til lögreglu.
Meðal þess sem nefndin leggur
til er að komið verði á fót sér-
stakri neyðarmóttöku þar sem
fórnarlömbum kynferðisafbrota'
verði veitt samræmd og markviss
þjónust.a og að réttarstöðu fórnar-
lamba verði gert hærra undir
höfði eru nú er, meðal annars
með breytingum á lögum um
meðferð opinberra mála og al-
mennum hegningarlögum. Tillög-
ur nefndarinnar miða ekki að því
að þyngja refsingar. Þá leggur
nefndin til að fræðsla til lögreglu-
manna og starfsmanna heilbrigð-
isstofnana um meðferð nauðgun-
armála verði aukin.
í þeim 42 málum þar sem niður-
staða dómstóls lá fyrir hafði mál-
um tvisvar lokið með dómssátt,
38 sektardómar höfðu verið
kveðnir upp en tvívegis var sýkn-
að. 78 málum hafði ýmist lokið á
stigi lögreglurannsóknar eða með
því ríkissaksóknari taldi ekki
líklegt að ákæra leiddi til sakfell-
ingar.
Sjá nánar á blaðsíðu 31.
EÐALFISKUR hf. í Borgarnesi
hefúr gert samning við aðila í
Frakklandi um sölu á 2 tonnum
af laxi á viku næstu árin.
Ákvæði eru um endurskoðun
verðsins á þriggja mánaða
fresti. Frakkarnir vildu kaupa
mun meira magn eða allt að 8
tonn á viku en ekki er til !ax í
landinu til að fylla upp í slíkan
samning fyrr en á næsta ári.
Það var Magnús Aspelund hjá
Marbakka sem gerði þennan samn-
ing fyrir Eðalfisk en Marbakki er
stærsti hluthafinn í fyrirtækinu.
Jón Gestur Sveinbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Eðalfisks segir að
þeir fái gott verð fyrir laxinn. Mun
varan verða send héðan í gámum
og er um frystan, reyktan og lax
í sneiðum að ræða.
Eðalfiskur hf. var stofnað í
fyrrasumar en markmið fyrirtæk-
isins er fullvinnsla á laxi og sil-
ungi. Jón Gestur segir að ef af
áformum um 8 tonn á viku verð-
ur, eins og allt bendir til, mun fyrir-
tækið þurfa á um 35 starfsmönn-
um að halda.
Vegna samningsins við hina
frönsku aðila mun Eðalfiskur þurfa
að semja um kaup á eldislaxi við
aðila hérlendis. Jón Gestur segir í
þessu sambandi að þeir muni semja
við ísnó um kaup á 400 tonnum.
Mannbjörg
er trilla sökk
MANNBJÖRG varð er trilla sökk
í Reyðarfirði um kl. 20 í gær-
kvöldi. Einn maður var um borð
í trillunni og var honum bjargað
um borð í bátinn Lyngey SF 61
frá Hornafirði.
Maðurinn var að koma úr veiði-
ferð er óhappið átti sér stað. Ekki
var vitað í gærkvöldi um orsakir
þess að trillan sökk en Lyngey
flutti manninn til Eskifjarðar. Hon-
um mun ekki hafa orðið meint af.
Saltsíldarsamningur undirritaður:
Jeppirin
á kaf en
mennirnir
björguðust
FYRIRSJÁNLEGT er að draga verður úr veiði á mörgum af helztu I
nytjafískistofnum okkar. Hafrannsóknastofiiun leggur til samdrátt
í veiðum allra tegunda nema ufsa og ýsu og verði farið að tillögum
hennar er ljóst að útflutningsaverðmæti sjávarafúrða fellur um
nokkra milljarða króna á næsta ári. Ekki er talið að afúrðaverð
hækki á næstunni og að öllu óbreyttu lækka útflutningstekjur okkar
af sjávarafúrðum um 2% á föstu verðlagi. Sjávarútvegsráðherra
telur samdrátt því óumflýjanlegan, en þó ekki í jafiimiklum mæli
og Hafrannsóknastofiiun leggur til, þar sem bágur efhahagur þjóðar-
innar þoli það ekki. Samdráttur á öllum sviðum efhahagslífsins sé
því nauðsynlegur og Islendingar horfist í fyrsta sinn í langan tíma
í augu við það, að til verulegs atvinnuleysis geti komið.
Þetta kom fram við setningu
Fiskiþings í gær, en þar voru af-
komumái sjávarútvegsins í brenni-
depli. Þorsteinn Gíslason, fiskimála-
stjóri, dró upp dökka mynd af stöð-
unni og svo gerðu aðrir þeir, sem
ræddu um afkomuna. Þorsteinn
sagði að síðasta ár hefði sjávarút-
vegurinn verið þjóðinni gjöfull. í
fjórða sinn í röð hefði afli farið yfir
eina og hálfa milljón tonna, alls
orðið 1.625.000 tonn, og gefið af
sér 41,5 milljarða króna í útflutn-
ingsverðmætum eða um 78% af
heildarútflutningi landsmanna. Nú
væru hins vegar dökkar blikur á
lofti og hrun gjöfulustu fiskistofn-
anrta vofði yfir okkur. Því yrði þjóð-
félagið í heild að mæta þeirri skerð-
ingu, sem fælist í því að á næsta
ári yrði ekki veitt meira af þorski
og rækju, en segði í tillögum Haf-
rannsóknastofnunar.
Sjá nánari fregnir af Fiski-
þingi á bls. 54.
Eðalfiskur í Borgarnesi:
Selur 2 tonn af laxi
til Frakklands á viku
Sovétmenn kaupa
150.000 tunnur
Milljarða samdráttur í
útflutningi sjávarafiurða
Til verulegs atvinnuleysis getur komið, segir sjávarútvegsráðherra
Rynkeby
HREINN
APPELSÍNUSAFI
ÁN ALLRA
AUKAEFNA
Síldin nú hausskorin og slógdregin 1
fyrsta sinn í langan tíma
Síldarútvegsnefnd hefúr samið við Sovétmenn um sölu á 150.000
tunnum að saltsild á þessari vertíð. „Með þessum samningi verða
fslendingar áfram stærstu útflytjendur á saltaðri síld í heimin-
um,“ segir Einar Benediktsson, aðstoðarframkvæmdastjóri nefnd-
arinnar. „Við undirritun samnings í fyrra fengust aðeins stað-
festar 150.000 tunnur en síðar fékkst staðfesting á 50.000 tunna
viðbótarkaupum. Fari svo, að nú takist einnig að fá staðfest 50.000
tunna viðbótarkaup, verður andvirði samningsins rúmlega einn
rawiiilljarður íslenzkra króna,“ sagði Einar í samtali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Þorkell
Fiskiþingsfúlltrúar snúa nú bökum saman í baráttunni fyrir bættri
afkomu sjávarútvegsins. Tómas Þorvaldsson og Árni Benediktsson
í forgrunni, í baksýn Halldór Ásgrímsson, Marteinn Friðriksson,
þingforseti og Lúðvík Krisljánsson, fræðimaður.
JEPPI með þremur mönnum fór
út af veginum við Hrauneyjafoss-
virkjun á föstudagskvöld og end-
aði á kafi í vatni'miðlunarskurðar
virkjunarinnar. Mönnunum tókst
að komast út úr bílnum áður en
hann fór í vatnið og sluppu þeir
ómeiddir.
Mennirnir voru á leið í ijallaferð
þegar ökumaður missti stjórn á
bílnum á svellbunka sem þarna var
á veginum. Bíllinn rann út af og
niður brekku í átt að skurðinum.
Nokkru neðar hægði bíllinn skriðinn
á grastó, sem þar stóð upp úr klak-
anum. Þar ákváðu mennirnir að
snara sér út og sem þeir gerðu það
rann bíllinn áfram og á kaf í vatnið.
Á sunnudag tók§t að ná bílnum
upp aftur. I jeppanum, sem er af
gerðinni Nissan Patrol, voru mörg
viðkvæm og dýr fjarskipta- og leið-
sögutæki sem eru ónýt.
eins og oftast í erfiðum samninga-
viðræðum að báðir aðilar hafa orð-
ið að gefa nokkuð eftir af kröfum
sínum. Frá fyrsta degi viðræðn-
anna var það vitað að Sovétmenn-
irnir höfðu aðeins heimild til að
semja um 150.000 tunnur þrátt
fyrir að viðskiptabókun landanna
geri ráð fyrir að lágmarki 200.000
tunna árlegum kaupum. Því miður
tókst ekki að fá í þessari lotu frek-
ari heimildir til kaupa þrátt fyrir
góðan stuðning íslenzkra stjórn-
valda. Samningurinn gerir þó ráð
fyrir mögulegri aukningu um
50.000 tunnur og hafa Sovétmenn
frest til 15. nóvember til að taka
endanlega ákvörðun þar að lút-
andi. Að teknu tilliti til breytinga
á tegundum og stærðarflokkun
tókst að fá Sovétmenn til að fall-
ast á verð, sem tekur mið af verði
sem nýlega var samið um við kaup-
endur í Svíþjóð og Finnlandi
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Undir seglum
SKÚTA þessi Nína II var á
siglingu á Pollinum við Akur-
eyri um helgina. Eigandi
hennar, Haraldur Rögnvalds-
son á Dalvík, var að flytja
hana til Akureyrar til
geymsluyfir vetrarmánuðina.
Skútan er af gerðinni Victoria
34, smiðuð í Suður-Englandi
í ár. Haraldur sigldi henni til
landsins í spetembermánuði
síðastliðnum.
Það sem athyglisverðast er við
þennan samning er að nú tókst að
fá Sovétmenn til að taka allt magn-
ið sem hausskorna, slógdregna síld
en undanfarin ár hafa þeir algjör-
lega hafnað að taka annað en heil-
saltaða síld. Fyrir utan aukna verð-
mætasköpun hefur þessi breyting
í för með sér ýmsa aðra kosti, eink-
um hvað varðar framleiðsluskipu-
lag og geymsluþol síldarinnar. Sem
hráefni upp úr sjó svara þær
150.000 tunnur af hausskorinni
og slógdreginni síld sem nú hafa
verið staðfestar til um 195.000
tunna af heilsaltaðri síld, þannig
að verulega betri nýting fæst á
vaxandi síldarafla okkar íslend-
inga,“ sagði Einar Benediktsson.
„Við erum þokkalega ánægðir
með niðurstöðu samninganna og
fegnir að erfiðri samningalotu sé
nú lokið. Hins vegar er það svo