Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988 MYNDBÖND Á MARKAÐNUM Saebjöm Valdimarsson Fínt hyski og fátækt pakk gamanmynd Flodder ★ ★1/2 Leikstjóri og handritshöfundur Dick Maas. Aðalleikendur Nelly Frijda, Huub Stapel, Taljana Simic. Hollensk. JB 1987.107 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. AFSLÁTTUR af öllum fatnaði til mánaða- móta. Opiðlaugardag. KVENFATAVERSLUN Mosfellsbæ. s! 666676. Ekkert blávatn Dauer léttöl Hin nýja mynd Dick Maas (Lyft- an) minnir talsvert á Elskur (Schatjets) Ruud Van Hemerts, aðra hollenska skopmynd sem Tefli gaf út á sínum tíma. Þær eru gerð- ar af ruddafengnu og óvægu skop- skyni og eru í kímnum ófor- skömmulegheitum sínum á mörkum farsa og ádeilu. Kynslóðabilið var tekið fyrir í Elskum, nú víkur sög- unni að úthafsálunum milli ríkra og snauðra. Flodder fjölskyldan hlýtur að skilgreinast sem ósvikið skítapakk á ytra borðinu, Lifir sælt fyrir líðandi stund í fátækrahverfi. Vegna mengunar verður að flytja þau á brott og sálfræðingur hjá Félagsmálastofnun vill nú hefja nokkra tilraunastarfsemi, flytja rumpulýðinn í lúxushverfi og sjá hvort umhverfisbreytingin geri hon- um ekki gott. Því fer fjarri. Flodderarnir halda sinni línu. Höfuð þeirra og ættmóð- ir heldur ótrauð áfram að brugga, drekka og selja landa, strákamir að stela og stelpan að hleypa uppá, reyndar sér familían sér aukinn hag í því síðastnefnda. Og burgeisamir, nágrannamir, mega vart vatni halda yfir þessari ófélegu umhverf- ismengun og hugsa til hefnda. Það er erfitt að halda jafn fárán- legri fyndni á lofti frá upphafi til enda og hér svífur yfir vötnunum. Enda verður Maas full rosalegur á köflum, einsog í skriðdrekaárás- inni. Á hinn bóginn er Flodder oft- ast makalaus í ósvífnu háði að getu- lausum pempíuskap broddborgar- anna og meðfæddum ræfildómi undirmálsfólksins, sem honum fmnst þó skömminni skárra, sjálfu sér samkvæmara. a.m.k. Það er ástæða til að benda fólki sem vill fá nýstárlegt skemmtiefni á skjáinn á þessa hollensku fruntafyndnis- mynd, hún lúrir á fjölmörgum groddabröndurum og miklum gálgahúmor sem á köflum verður þó að teljast næsta ósmekklegur. Tæpast boðleg undir síðdegistei né sérrístaupi. Tvíbent tilvera drama Júlía og Júlía — Julia And Julia ★ ★ Leikstjóri Peter Del Monte. Handrit Joseph Minion, byggt á sögu eftir Silviu Napolitano. Kvikmyndatökustjóri Giuseppe Rotunno. Aðalleikendur Kathle- en Turner, Gabriel Byrne, Sting, Gabriele Ferzetti. Itölsk sjón- varpsmynd. RAI Radio Televisi- one Italiana 1987. Steinar 1988. 98 mín Bönnuð yngri en 16 ára. Hi-Fi Júlía og Júlía er ein fjölmargra mynda sem gerast á óræðum slóð- um draums og veruleika. Turner leikur konu sem missir mann sinn (Byrne) á brúðkaupsdaginn — að því er virðist, og lifir hún í sorg og seyru í sex ár. Þá er Byrne karlinn skyndilega kominn til skjalanna og sex ára gamall sonur þeirra í bón- us. En það sem verra er, æstur og ógnvekjandi elskhugi (Sting) er líka kominn í spilið. Myndin er jafn mikið í lausu lofti og persónumar. Áhorfandinn á í vandræðum með að ná sambandi við þessar flöktandi mannverur, hvort sem þær em kleifhugar eða ekki. Spursmál hvort það er yfir- leitt hægt, kannski ætlar háfleýgur leikstjórinn okkur annað. Júlía og Júlía er veisla fyrir augað, þökk sé Rotunno, aðalkvikmyndatökustjóra Fellinis í gegnum tíðina, og virki- lega góðum leikhópi. En þetta ágætisfólk nær engan vegin að koma áhorfendum í jarðsamband. Fágað msl. Atvinnumaður fer aftur á kreik spennumynd The Assassination Run ★1/2 Leikstjóri Ken Hannann. Handrit Jack Gerson. Aðalleikendur Mal- colm Stoddard og Mary Tamm. Bresk sjónvarpsmynd. BBC Scot- land 1984. Bergvík 1988. Þýskir hryðjuverkamenn missa fimasta böðul sinn, svo þeir verða að velja annan toppmann í hans stað svo þeir geti lokið áætlun um að myrða þýskan blaðakóng sem er í heimsókn á Spáni. Stoddard, fyrrverandi drápsmaður í leyniþjón- ustu Hennar hátignar, verður fyrir valinu. Ræna hryðjuverkamennirnir eiginkonu hans svo Stoddard taki að sér drápið. Inní söguna fléttast KGB menn og fyrrverandi sam- starfsmenn hans. Hundrað prósent hábreskt efni í anda LeCarré. En er orðið ótrúlega volkað á fáum ámm og hefur lítið til síns ágætis í dag. Myndin fer sómasamlega af stað en snýst síðan í hægagang fram undir lokin. Og þau em náttúrlega svo margsnúin að engu tali tekur, þegar róleg- heitin sem á undan em gengin eru höfð í huga. Vönduð, að hætti BBC, en lítt spennandi. Óvelkomin áhöfn spennumynd Assault On The Wayne ★ ★ Leikstjóri Marvin Chomsky. Handrit Jackson Gillis. Aðalleik- endur Leonard Nimoy, Joseph Cotten, Lloyd Haynes, William Wyndom, Keenan Wynn. Bandarísk sjónvarpsmynd. Par- amount 1970. Háskólabíó 1988. Hi-Fi. 72 mín. Öllum leyfð. | Ýmsir válegir hlutir gerast um ASSAULT m THE WAYNE Samtök íslenskra myndbandaleiga: VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN 1. ( 7) Bestseller .......................... (Skífan) 2. ( 1) The Untouchables ................ (Háskólabíó) 3. ( 4) Spaceballs — TheVideo .......... (J.B. heildsala) 4. ( 2) ET — The Extra Terrestrial .... (Laugarársbíó) 5. (15) TheFlightoftheNavigator ............ (Steinar) 6. ( 6) Stakeout ........................... (Bergvík) 7. ( 5) TheLostBoys ........................ (Steinar) 8. ( 3) Someone to Watch Over Me ............ (Skífan) 9. (12) The Bedroom Window ............. (J.B. Heildsala) 10. (13) Making Mr. Right ................... (Skífan) 11. (10) Predator ......................... (Steinar) 12. ( 8) Body of Evidence ................. (Steinar) 13. ( 9) Nadine ............................ (Steinar) 14. (16) TheBelivers ......................... (Skífan) 15. (—) Juliaand Julía ...................... (Steinar) 16. (11) The Running Man ................. (J.B. heildsala) 17. (—-) DeadlyDreams ........................ (Skífan) 18. (14) NightontheTown ..................... (Bergvík) 19. (—) Hairspray ........................... (Skífan) 20. (—-) Tough Guys Don’t Dance ............. (Myndbox) 21. (18) TheBoat ............................ (Myndbox) 22. (23) NoMan’sLand ..................... (Háskólabíó) 23. (17) ChinaGirl ..................... (J.B. Heildsala) 24. (—-) Flowers in the Attic ............... (Myndbox) 25. (19) MoneyMania .................... (J.B. Heildsala) 26. (—-) Það er enn á lífi .................. (Steinar) 27. (20) Dragnet ........................ (Laugarásbíó) 28. (—) EveryTime WeSay Goodbye ... (J.B. Heildsala) 29. (25) BigTown .......................... (Háskólabíó) 30. (31) The Rosary Murders ............. (Laugarásbíó) í svigunum er það sæti sem myndbandið var í vikunni á undan, (—) merkir að myndbandið er nýtt á listanum og (★) að myndbandið er að koma inn á listan á nýjan leik. borð í kafbátnum Wayne, sem er nýlagður í leynilega útilegu. Um borð eru ný og flókin vísindatæki sem óvinurinn hefur mikla ágirnd á. Skipverjar eru margir nýráðnir og í fyrstu ferð. Skipstjórinn ný- kominn af sjúkrahúsi og fársjúkur verður hann þess var að í áhöfninni eru svikarar sem ætla að komast yfir leynibúnaðinn og tortíma síðan kafbátnum og áhöfninni. Ber þess merki að vera gerð á tímum kalda stríðsins, orðin svolítið þreytuleg. En Chomsky er með vanari mönnum í sjónvarpsmynda- gerð og gerir þessu fátæklega efni eins góð skil og efni standa til. Assault On The Wayne heldur manni því við skjáinn, merkilegt nokk. MSED Oh THE BESTSELLER THAT SHOCKED 40 MILLIOM READERS Óhugnaður hjá ömmu hrollvekja Flowers In The Attic ★ ★ Leikstjóri Jeffrey Bloom. Handrit Bloom, byggt á metsölu- bók V.C. Andrews. Aðalleikedur Victoria Tennant, Kristy Swan- son, Jeb Adams, Louise Fletcher. Bandarísk. New World Pictures - Fries Entertainment 1987. Myndbox 1988. 85 mín. Þegar fjölskyldufaðirinn fellur frá verður Tennant að leita með tvo syni og dætur á náðir foreldra sinna. Þau hafa hinsvegar bann- fært þessa einkadóttur þeirra, þar sem hún giftist ættmenni sínu og hyggst hún nú vinna ást þeirra að nýju. Amman (Fletcher) leggur fæð á barnabörr sín, þau eru læst inni og mega ekki koma fyrir nokkurs manns augu. Tennant sinnir þeim lítið, upptekin við að endurheimta náð foreldranna og digran arfinn. Komast börnin að því að þau eru hreint ekki á framtíðarplani mömmu ... Maður hefur á tilfinningunni að Blóm á háaloftinu hefði getað orðið fyrirtaks hrollvekja, en því er nú svo farið að hún veldur sjaldan verulegum ugg hjá áhorfandanum þó margt sé vel gert. Leiktjöldin eru prýðisgóð, sem og leikur krakk- anna og Fletcher í annars tilþrifa- litlu hlutverki hinnar andstyggilegu ömmu. En það eru þúsund lausir þræðir flangsandi útum alla mynd og leikstjórnin heldur dáðlítil. Renn- ur átakalaust framhjá. Nár blir o» tofte e* sporsmöl om liv og dod...? Svik og prettir drama Svik ★1/2 Leikstjóri Jud Taylor. Handrit Dorothy Salisbury Davis. Aðal- leikendur Tommy Lee Jones, Annette O’Toole, M. Emmet Walsh, Milo O’Shea. Bandarísk, gerð 1986. JB heildsala 1988. 90 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Vel mannað miðlungsdrama um kaþólska klerkinn Jones sem verður fyrir því að maður deyr fyrir augun- um á honum, í hinu hrörlega hverfi sem hann þjónar. Atburðurinn fær mikið á hann og fyrr en varir er hann kominn á spor morðingjans. Svik fjallar einnig um staðfestu kaþólskra kennimanna og heldur er nú okkar maður veikur á svell- inu. Hér er farið billega með athygl- isvert efni. Jones stendur alltaf fyr- ir sínu, hvort sem hann leikur manndrápara eða guðsmenn. M. Emmet Walsh er líklegast vinsæl- asti leikarinn í Hollywood um þess- ar mundir og O’Shea nær alltaf jafn góðum tökum á hlutverkum sínum. Þessir heiðursmenn gera Svik örlítið ásjálega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.