Morgunblaðið - 06.12.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR ÞRJÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1988
B 9
KNATTSPYRNA / VESTUR-ÞÝSKALAND
KNATTSPYRNA / ITALIA
Vestur-Þjóðverjar
í aðalhlutverkum
ÞAÐ var vestur-þýskur stimpill
á sigri Inter Mílanó gegn Pes-
cara á útivelli um helgina og
sigurinn viðhélt tveggja stiga
forystu Inter í ítölsku deildinni.
Þýskur stimpill var það vegna
þess að mörkin skoruðu þeir
Andreas Brehme og Lothar
Mattheus, sem komu til féiags-
insfrá Bayern Munchen fyrir
yfirstandandi keppnistímabil.
Brehme skoraði beint úr auka-
spyrnu á 55. mínútu og félagi
hans skoraði 10 mfnútum
seinna.
Napólí vann öruggan sigur gegn
Fiorentina. Diego Maradona
var í miklum ham þótt aðeins 18
klukkustundir væru liðnar frá því
að hann steig af flugvél frá Arg-
entínu. Maradona skoraði fyrra
markið úr víti í fyrri hálfleik og var
tvívegis nærri búinn að skora úr
aukaspymum. Careca skoraði
síðara markið, áttunda mark hans
í vetur og er hann markahæstur.
Rudi Völler, sem lítið hefur leikið
með Roma í seinni tíð, var með nú
og skoraði fyrra mark liðsins. Dani-
ele Massaro bætti öðm marki og
Sampdoria átti aldrei möguleika
þótt liðið léki á heimavelli sínum.
AC Mílanó hefur gengið illa án
Ruuds Gullit sem er meiddur, en
þó tókst að mctja 2:0 sigur gegn
Lecce, einu af botnliðunum. Rigetti
hjá Lecce átti sök á báðum mörkun-
um, þvældist fyrir knettinum er Van
Basten skaut á markið og breytti
þannig stefnu hans að markvörður-
inn gat sig hvergi hrært, 1:0. Og
seinna markið var einnig jólagjöf
frá Righetti, sem skellti Evani flöt-
um í teignum og Van Basten skor-
aði úr vítinu.
Juventus sem vann stóran útisig-
ur, 4:1, gegn Pisa. Zavarov lék
ekki með vegna leikbanns, en þeir
Rui Barros, Michael Laudrup, Alles-
sandro Altobelli og Antonio Cabrini
skomðu mörkin.
■ Úrslit/B11
■ Staðan/B11
Ásgeir for á kostum
Bayern Miinchen haustmeistari án tapleiks
Síðasta umferð fyrri umferðar-
vestur þýsku deildarkeppninn-
ar í knattspyrnu fór fram á laugar-
daginn og er Bayern Míinchen í
BBBi efsta sæti, svokall-
FráJóni aður haustmeistari
H. Garöarssyni 0g náði liðið þeim
i V-Þýskalandi árangri án þess að
tapa leik, en það.
hefur aðeins einu sinni gerst áður.
HSV vann sama afrek keppnistíma-
bilið 1982 til 1983. Bayern tryggði
þenna áfanga með markalausu
jafntefli á útivelli gegn Bochum.
Það var sprellfjömgur leikur sem
hefði getað endað 6:6 þótt ekkert
mark hafi verið skorað.
Annars var leikur umferðarinnar
tvímælalaust viðureign Stuttgart
og meistara Werder Bremen. Brem-
en hafði ekki tapað átta leikjum í
röð og Stuttgart var taplaust á
heifnavelli. Engin breyting varð á,
liðin skildu jöfn, 3:3 í líflegri og
spennandi viðureign.
Bestu menn vallarins vom As-
geir Sigurvinsson hjá Stuttgart,
sem fór á kostum, og Rune Brat-
seth, Norðmaðurinn hjá Bremen,
og vom báðir valdir í lið vikunnar.
Asgeir skoraði fyrsta mark leiksins,
glæsilegt mark úr þröngu færi, en
Bratseth jafnaði. Buchwald skoraði
þá fyrir Stuttgart, en Schaaf og
Bratseth skomðu fyrir Bremen.
Fritz Walter, sem kom inn á sem
varamaður, skoraði jöfnunarmark
Stuttgart eftir undirbúning Ásgeirs.
Það kom á óvart, að framheijarnir
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
PSG og Auxerro
sérábáti
EINVÍGI París SG og Auxerre
heldur enn áfram í frönsku 1.
deildinni. Forskot liðanna sem
eykst nú við hverja umferð er
orðið 10 og 9 stig á þriðja lið
sem er Marseilles, en Mar-
seilles og Sochaux gerðu
markalaust jafntefli um helg-
ina. Mónakó átti mjög góðan
útiieik gegn Lens og sigraði
4:2. Bordeaux sem um síðustu
helgi tapaði fyrir PSG á heima-
velli náði jafntefli í Montpellier
þrátt fyrir að vera yf irspilað
mest allan leiktímann. Úrslit
sem gefa leikmönnum Borde-
aux örlitla von fyrir leikinn gegn
Napólí í Evrópukeppninni á
miðvikudagskvöldið.
Christian Perez sem leikur með
PSG sem lánsmaður frá Mont-
pellier, var maðurinn á bak við sig-
ur Parísarliðsins gegn Cannes.
■■■■ Perez skoraði eina
Bernharð
Valsson
skrifar
frá Frakklandi
markið, í leik sem
var afar jafn og oft
hart leikinn, á 41.
mínútu eftir send-
ingu frá Susic.
Botnliðið Lens átti aldrei neina
möguleika á að laga stöðu sína er
liðið lék á heimavelli Auxerre. Þrátt
fyrir að heimamenn gerðu aðeins
eitt mark, Prunier á 60. mínútu,
þá léku þeir við hvern sinn fingur
og sýndu að það er enginn tilviljun
að það séu þeir sem heyi kapphlaup-
ið við PSG.
Það er óhætt að tala um enskan
sigur þegar talað er um 4:2 sigur
Mónakó gegn Lille. Þeir Hoddle og
Hateley gerðu þijú mörk og byggðu
upp það fjórða sem Jose Toure skor-
aði. Mörk heimamanna voru bæði
gerð af útlendingum, það fyrra af
Belganum Van Den Bergh og það
seinna af Pele frá Ghana.
Matra Racing sígur hægt og ró-
lega niður stigatöfluna. Hver tap-
leikurinn rekur annan og sá síðasti
var á laugardagskvöld í St.Etienne.
Matra byrjaði þó vel og náði for-
ystu strax á fjórðu mínútu með
marki Perard. En það dugði
skammt, því heimamenn, sem eru
í þriðja neðsta sæti, vildu allt gera
til að bæta sinn hag, og skoruðu
tvö mörk í röð stuttu seinna. Fran-
cescoli jafnaði úr víti á 35. mínútu,
en tvö mörk í upphafi seinni hálf-
leiks tryggðu St.Etienne sigur.
Francescoli bætti þó við þriðja
marki Matra á síðustu mínútu leiks-
ins, aftur úr víti, en það var of seint
og Matra með allar sínar stjörnur
og fyrirheit situr í 16. sæti deildar-
innar.
Bordeaux var yfirspilað í Mont-
pellier og skipti þar mestu, að
Kólombíumaðurinn Carlos Valder-
ona sem ekkert hefur getað í allan
vetur, sýndi öllum á óvörum snilld-
arleik. Þrátt fyrir ójöfnuðinn, þá
náðu gestirnir að jafna leikinn úr
tveimur skyndisóknum. Buscher
skoraði bæði mörk Montpellier, en
Jesper Olsen og Jannick Stophyra
svöruðu fyrir Bordeaux. Mark
Olsens var sérlega glæsilegt og
hans fyrsta fyrir Bordeaux. Hann
fékk knöttinn á miðjum velli og
hafði greinilega gefist upp á sam-
herjum sínum, því hann óð upp ali-
an völl, lék á hvern heimamanninn
af öðrum og skoraði svo glæsilega.
Papin hjá Marseilles hefur skor-
að 12 mörk og er markahæstur.
Þeir Bravo hjá Nice, Vujovic hjá
Cannes og Xuereb hjá PSG hafa
skorað 10 mörk.
■ Úrslit/B11
■ Staðan/B11
Walter og Norbert Maier hjá Brem-
en sátu á bekknum í byijun. Þótti
það benda til þess að leikinn yrði
stífur varnarleikur, en annað kom
á daginn.
Niirnberg og Stuttgart Kickers
skildu jöfn í hinum markaleik um-
ferðarinnar. Schwalbe, Wagner og v
Stenzel skoruðu fyrir heimaliðið, en
Schuler, Wolf og Hotic fyrir Kic-
kers.
Thomas Allofs hjá Köln er mark-
hæstur með 12 mörk, en 9 mörk
hafa skorað þeir Uwe Leifeld Boc-
hum, Hans Jörg Criens Gladbach
og Frank Neubarth hjá Bremen.
■ Úrslit/B11
■ Staðan/B11
SEVEN
SEAS
VÍTAMÍN
DAGLEGA
GERIÐ GÆÐA
SAMANBURÐ
LÝSIS HYLKI
(§)t orenco
HEILDSÖLUDREIFING
Laugavegi 16, simi 240S7.
öruggur stuðninqur við íbróttamenn
■o
DONJOY varmahlífar eru léttar og liprar og
hindra ekki eðlilegar hreyfingar. Þærveita
góðan stuðning jafnframt því að halda hita
á liðamótum. Þannig
geta DONJOY varma-
hlífar dregið úr hættu
á meiðslum.
Útsölustaðir: Útillf, Reykjavik og Bjarg, Akureyri.
n