Morgunblaðið - 29.12.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
5
Dagurmn
í laxveiði
hækkarum
20 tU 25%
Stangveiðifélag Reylqavíkur
hefur gefið út verðskrá fyrir
næsta sumar í þeim ám sem
félagið hefúr til umráða. Dag-
urinn í þessum ám hækkar
yfirleitt um 20-25% frá því
sem var síðasta sumar, en
dæmi eru um meiri hækkanir.
Dýrasti dagurinn er í Norðurá
eða 31.300 krónur. Þetta verð var
26.400 krónur í fyrra. Hinvegar
er hægt að veiða ódýrt í Norðurá
eða fyrir 7000 krónur á dag á
efri svæðunum. Þá verður bryddað
upp á þeirri nýjung í Norðurá að
næsta sumar verður í fyrsta sinn
hægt að fá hjá SVFR veiðileyfi í
Flóðatanga, neðsta hluta Norður-
ár, og mun dagurinn þar kosta
mest 3.500 krónur.
Ár sem hækka meir en nemur
fyrrgreindum 20-25% eru Blanda
en dýrasti dagurinn í henni fer
úr 13.000 krónum í sumar upp í
18.000 krónur næsta sumar.
Svartá hækkar úr 13.000 krónum
dýrasti dagurinn upp í 19.000
krónur næsta sumar og Langá á
Mýrum fer úr 12.200 krónum í
19.000 krónur.
Minnsta hækkunin á verði er í
Gljúfurá þar sem dýrasti dagurinn
fer úr 10.800 krónum í 11.800 og
Soginu þar sem hækkun er úr
9.400 krónum í 10.800 krónur.
Dæmi um verð í öðrum ám á
vegum SVFR (miðað er við dýr-
asta daginn) eru að dagurinn í
Leirvogsá hækkar úr 17.800 krón-
um í 22.000 krónur. Miðá í Dölum
hækkar úr 6.400 krónum í 8.500
krónur og Brynjudalsá hækkar úr
6.400 krónum í 8.900 krónur.
Ein á hækkar ekkert í verði
milli ára og það er Stóra Laxá í
Hreppum.
iHróöleikur og
JL skemmtun
fyrirháa semlága!
Honda 89
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfl
Verð frá 919 þúsund,
miðaðviðstaðgreiðsluágengi 1. nóv. 1988
NÝ AFBORGUNARKJÖR
ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA.
ÍHOMDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
-*“x'
•íiSBS”.
UYrr,. . • «r**s
íKWA
Dregið á morgun, föstudag!
-