Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 18

Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 18
18 MORGUNÉLAÐIÐ, FIMMTtJDAGUR 29. DESEMBER 1988 Var jaftivel enn var- kárari en venjulega GUNNAR J. Friðriksson, for- maður Vinnuveitendasambands Islands og forstjóri sápugerð- arinnar Frigg, er blindur á hægra auga eftir slys sem hann varð fyrir síðastiiðið gamlárs- kvöld. Hann var þá einn ásamt konu sinni i sumarbústað i Svignaskarði í Borgarfírði. Eins og margir aðrir hugðust þau kveðja gamla árið og fagna nýju með því að skjóta upp fiug- eldum — tívolíbombum. „Eg hafði í nokkur ár keypt svona bombur og taldi mig kunna vel með þær að fara. Það hafði aldrei verið nálægt því að ger- ast neitt óhapp,“ segir Gunnar þegar hann rifjar þetta gaml- árskvöld upp. „Undir miðnætti ætlaði ég að skjóta upp fyrstu bombunni og fór þá eins að og venjulega, var jafn- vel ennþá varkárari — hugði mjög vel að undirstöðum og slíku. Þeg- ar ég bar eld að kveiknum fuðr- aði hann ekki upp eins og maður átti að venjast heldur sprakk þetta Á gamlárskvöld í fyrra hlutu þrír fullorðnir menn augnskaða við að slqóta upp svokölluðum tívolíbombum. Tvö slysanna urðu í Borgarfírði en eitt á höfuðborgarsvæðinu. Tveir þessara manna, þeir Gunnar J. Friðriksson, formaður VSÍ, og Kristján Benediktsson, garð- yrkjubóndi og fyrrverandi formaður Sölufélags garð- Gunnar J. Friðriksson beint í andlitið á mér. Ég fékk mikið sár og það reyndi mikið á konuna mína að vera ein með mig svona á mig kominn en til allrar hamingju vorum við með bílasíma. Lögregla og læknir í Borgarnesi brugðust fljótt við; voru komin til yrkjumanna, urðu við beiðni um að segja frá þessari reynslu sinni ef það mætti verða öðrum til vamaðar við meðferð skot- elda af þessu tagi nú um ára- mótin. Þess skal getið að inn- flutningur og sala á þessum varningi hefur verið bönnuð í kjölfár slysanna, nema i sér- stökum tilfellum. okkar eftir ótrúlega skamman tíma og fljótlega var ég svo kom- inn undir hendur færustu sérfræð- inga á Landakoti. Þar var ég saumaður það vel að ör sjást ekki nema við gaumgæfilega athugun. Hægra auganu hélt ég en missti alla sjón á því.“ Síðar var Gunnar sendur til Lundúna þar sem hann gekkst undir aðra aðgerð hjá kunnum augnsérfræðingi. „Skemmdin var þess eðlis að það kom fyrir ekki en til allrar ham- ingju hef ég óskerta sjón á vinstra auganu," segir hann. Gunnar vill ekki gera mikið úr þeim óþægindum og þeirri röskun á daglegu lífi hans sem afleiðing- ar slyssins hafí valdið honum. „Þessu fylgdi náttúrlega mikið álag á manns nánustu," segir hann en segist nú geta gert allt það sem hann var vanur að gera. „Þetta háir mér ekkert í starfí. Fyrstu 6 mánuðina gat ég ekki keyrt bíl, þrívíddarskynið breytist þegar annað augað gagnast ekki og maður þarf að læra upp á nýtt að dæma um fjarlægðir — en það venst." Gunnar rekur slysið til þess að hann hafi verið með gallaða vöru í höndunum. „Það getur alltaf gerst og ég vil ekki kenna einum eða neinum um það. En það sem þetta kennir manni er náttúrulega það að aldrei er hægt að fara nógu varlega með þessa hluti, þessi sprengiefni. Ég tel mig vera varkáran mann og ég var ekki sá eini sem Ienti í þessu, við lágum þrír saman á Landakoti, sem höfð- um svipaða sögu að segja. Líklega slapp ég best af okkur og síðan þetta gerðist hef ég heyrt um fjöl- marga sem naumlega sluppu með skrekkinn," sagði Gunnar J. Frið- riksson. Sködduðust á auga af „tívolíbombum“ Snerist hugur og ákváð- um að skjóta einni í viðbót í REYKHOLTI í Borgarfirði er höfð brenna síðdegis á gamlárs- dag og við hana hefst áramótafagnaður í dalnum þegar fólk safnast þar saman og skýtur upp flugeldum fyrir börnin. 1 fyrra mætti Kristján Benediktsson, garðyrkjubóndi í Víðigerði, að brennunni um sexleytið með konu sinni, syni, tengdadóttur, barna- börnum og mági. „Eg hafði skotið flugeldum upp i þrjátíu ár án þess svo mikið sem að brenna mig á putta en var ekki vanur tívolíbombum. Við höfðum lesið leiðarvísinn vandlega og allt gekk ágætlega þegar við skutum upp fyrstu tveimur bombun- um,“ sagði Kristján, þegar hann riQaði upp hvemig árið 1987 kvaddi hann og fjölskyldu hans.'Hann var einn þriggja Qölskyldu- manna, sem sködduðust á auga við meðferð skotelda þetta kvöld. „Við ætluðum að láta tvær bombur nægja í bili; vorum búin að pakka tundrinu saman og ætl- uðum að fara heim, en skjóta af- ganginum upp um miðnættið. Okkur snerist hugur og ákváðum að skjóta einni í viðbót. Mágur minn hélt í kveikinn en ég bar eldinn að. Um leið og byijaði að loga á kveiknum sprakk bonaban og þeyttist beint í hægra augað á mér. Kveikjuþráðurinn var gall- aður. Þetta var slæmt högg. Ég missti ekki meðvitund en gerði mér strax grein fyrir því að það var illa komið," sagði Kristján. Hann átti nú fyrir höndum um það bil fimm tíma ferðalag með sjúkrabílum, fyrst frá Reykholti til Borgamess, þar sem skipt var um sjúkrabfl og ekið til Akraness. Þar var augnlæknir spítalans kall- aður til. „Hann sá strax að það var ekkert um annað að ræða en skurðaðgerð og enn var ég fluttur í sjúkrabfl og nú ekið til Reykjavíkur, að Landakoti." A Landakoti var gerð aðgerð á Kristjáni, hægra augað fjarlægt og augnlokið saumað saman. „Það fyrsta sem ég vissi af mér, eftir að læknirinn á Akranesi gaf mér sprautu, var þegar Guðmund- ur Viggósson augnlæknir kom til mín á nýársdagsmorgun, ræddi við mig og sagði mér hvemig ástandið væri. Ég lá á spítalanum í hálfan mánuð. Það sem olli mér mestum óþægindum var að höfuð- beinið hafði spmngið og ég var með mikla höfíiðverki, sem hurfu ekki fyrr en að liðnum sex vikum. Ég fékk fljótlega gervivauga til bráðabirgða og seinna annað sérsmíðað. Síðan hef ég vanist þessum breytingum á mínum hög- um, sem í rauninni hafa ekki ver- ið svo miklar. Okkar lífsmunstur hér hefur lítið breyst. Ég er farinn að fljúga aftur. Læknisvottorð vegna einka- flugmannsprófs var numið úr gildi eftir slysið en ég fékk það end- umýjað eftir hálft ár. Ég var feg- inn því; það hefði verið vont að láta svipta sig dellunni til fram- búðar. Ég vann á grænmetis- markaði Sölufélags garðyrkju- manna í sumar og konan sá um ræktunina hér heima en það hafði verið ákveðið áður en þetta kom til. Slysið kom hins vegar upp á Morgunblaðið/Bemharð Jóhannesson Kristján Benediktsson miklum annatíma í ræktuninni en konan mín hafðí annað því með mikilli og góðri hjálp frá kollegum og nágrönnum," segir Kristján. „Ég hef að sjálfsögðu hugleitt flugeldamál mikið frá því að þetta gerðist og ég held að venjulegir stórir flugeldar séu skástir af þessu, þar vita menn hvað þeir em með í höndunum og bera virð- ingu fyrir því. Það skortir kannski þegar verið er að kaupa þessa Qölskyldupakka með alls kyns dóti, sem menn vita kannski varia hvemig á að snúa upp eða niður. Þá er ég ekki bara að tala um tívolíbombur. Ég held að það megi kallast kraftaverk að ekki hafi orðið fleiri slys í sambandi við þetta," sagði Kristján Bene- diktsson og bætti við að hann myndi í mesta lagi kveikja á stjömuljósi um þessi áramót. Guðmundur Kamban skáld. Viðar Víkingsson leikstjóri Kamban var djarf- huga og óragnr við að feta ótroðnar slóðir - segir Viðar Víkingsson leikstjóri og höfiindur heimildamyndar um skáldið, sem Sjónvarpið sýnir í kvöld „DÆMI um hvað þetta er ótrú- legur lífsferill er, að hann hefst á þennan einkennilega hátt að Kamban skrifar sem miðill og skrifar aðra fyrir þessum hug- verkum sínum, telur að látnir rithöfundar hafi skrifað í gegn- um sig. Síðan endar lífsferillinn á þann dramatíska hátt að Kamban er myrtur. Allt þar á milli sýnir hve hann var djarf- huga maður og óragur við að feta ótroðnar slóðir,“ segir Viðar Vikingsson um starfsferil Guð- mundar Kambans skálds. Viðar leikstýrir heimildamynd um Kamban sem sýnd verður í Sjón- varpinu í kvöld. Myndin er gerð í tilefiii af hundrað ára afinæli Kambans, en hann var fæddur árið 1888. Morgunblaðið ræddi við Viðar um gerð myndarinnar. Hann segir margt nýtt koma fram í myndinni um ævi og störf skáldsins og sumt sem áður var óvíst er þar staðfest. Dóttir Kambans, Sibil, kemur fram í myndinni og segir frá föður sínum, en hún hefur ekki komið fram áður i því skyni. í mynd Viðars er fléttáð saman atriðum úr leikverkum eftir Kamb- an ásamt atriðum úr kvikmyndum sem hann gerði á þriðja áratug ald- arinnar. „Kamban var fyrsti kvik- myndaleikstjóri íslendinga og við sýnum úr þremur kvikmyndum sem hann gerði, þar af tveimur leiknum. Það eru Hadda Padda og Húsið í svefni. Hadda Padda er gerð 1923 og er tekin að hluta á íslandi. Hús- ið í svefni er gerð 1925 og má segja að hún sé dönsk kvikmynd fyrir utan að hún er skrifuð af íslenskum höfundi og henni leikstýrt af hon- um, jjað er Kamban," sagði Viðar. „I þættinum notum við þessar kvikmyndir og reyndar líka upptök- umar úr kvikmyndunum til þess að lýsa æviferli Kambans. Það era atriði í myndunum sem hægt er að sjá sem vissa skírskotun til ævi hans og til dæmis lék eiginkona hans, Agnethe, í Húsi í svefni. Hún var dönsk leikkona og lék þar auka- hlutverk. Atriðin með henni era til dæmis notuð til að lýsa hjónabandi Kambans." í anda þöglu myndanna „Mynd okkar er öll í svart-hvítu og við reynum að líkja eftir blæ þöglu myndanna," heldur Viðar áfram. „Til dæmis er því lýst, þeg- ar Kamban var myrtur vorið 1945, eins og það væri í þögulli mynd, með textum á milli atriða. Ymis önnur stílbrögð sem era einkenn- andi fyrir þöglu myndimar era not- uð í þessum þætti. Þá era kvikmyndir Kambans not- aðar sem sviðsmynd. Við notum svokallaða chromatækni til að gera það kleift, að láta leikara í okkar mynd falla inn í þá mynd.“ Tveir leikarar túlka Kamban. Hallgrímur H. Helgason túlkar hann fram að þrítugu og Pálmi Gestsson túlkar hann eftir það. „Hallgrímur er reyndar höfundur að texta myndarinnar," segir Við- ar, „og við skrifum handritið í sam- einingu, ég síðan leikstýri mynd- inni. Það er rétt að taka fram að dóttir Kambans, Sibil, kemur fram í myndinni. Hún hefur verið búsett vestur í Bandaríkjunum síðan í stríðslok, síðan voðaatburðurinn gerðist." Nýjar upplýsingar „Sibil kemur með upplýsingar í myndinni sem hafa ekki birst áður um Kamban. Þær era bæði per- sónulegs eðlis og líka um stjórn- málaskoðanir hans. Menn hafa nú dálítið velt vöngum yfir þeim, hvort hann hafi verið hliðhollur Þjóðveij- um og hvort hann hafi verið á ein- hvern hátt hallur undir nasismann. Hún segir sögur af honum sem benda til að samstaða hans með nasistum hafi ekki verið mikil. Hins vegar var hann auðvitað vinsæll rithöfundur í Þýskalandi og þar af leiðandi hefur hann greinilega tölu- verða samúð með Þjóðveijum," sagði Viðar Vfkingsson. Aðgerðir ráðg*erðar gegn fé á þjóðvegum Landbúnaðarráðherra hefíir ákveðið að skipa nefiid til að kanna til hvaða ráðstafana hægt sé að grípa til að minnka umferð vörslulauss búfjár á og við þjóð- vegi landsins, einkum við þétt- býlisstaði. Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráðherra hefur beðið Stétt- arsamband bænda, Vegagerð ríkis- ins, Búnaðarfélag íslands og Um- ferðarráð að tilnefna fulltrúa í nefndina en ráðuneytið mun til- nefíia fimmta manninn. í bréfi ráðuneytisins segir um ástæður nefndarskipunarinnar: Víða heldur búfé sig í nágrenni við eða á þjóð- vegum landsins. Slys, eignatjón og margvísleg óþægindi af þessum sökum fara vaxandi með aukinni umferð og ökuhraða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.