Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 19

Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 19
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988 19 A að selja dýra- eða nátt- úru„vernd“ hæstbjóðanda? eftir Magnús H. Skarphéðinsson í Morgunblaðinu þriðjudaginn 29. nóvember sl. var úrdráttur úr allmerkilegri grein um hvali og hvalafriðun eftir breskan sjávarlíf- fræðing að nafni dr. John Alan Gulland, sem birtist í október sl. í breska blaðinu New Scientist. Dr. Gulland þessi er einn af virt- ustu sjávarlíffræðingum jarðarinn- ar í dag og starfar nú við Imperial College í London, sem er stofnun sem hefur með mat á auðlindum hafsins að gera. Hann starfaði áður í allmörg ár sem forstöðumaður FAO, Matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Gagnrýni dr. Gulland á „vísinda“-veiðarnar Ýmislegt merkilegt er í þessari grein sem æskilegt væri að benda á röksemdum okkar hvalavina til stuðnings, svo sem þá staðreynd að samkvæmt mati þessa merka vísindamanns þá hafa vísindaveiðar íslendinga ekkert með rannsóknir á stofnstærð hvalanna hér við land að gera. Og ýmis fleiri athyglisverð atriði í greininni sem ekki verða tíunduð hér. Sjávarlíffræðingurinn breski op- inberar eftirminnilega margvíslega hræsni sem Hafrannsóknarstofnun íslands hefur gert sig seka um, með Jóhann Sigurjónsson sjávarlíf- fræðing í broddi fýlkingar. Einkum það sem þetta Hafrannsóknarstofn- unarstóð hefur kallað „vísindaveið- ar“ á hvölum. Dr. Gulland kemur og víðar við í þessari grein sem ég ætla ekki að endurtaka hér. Samt vil ég gagn- rýna eitt atriði í málflutningi hans. Það er hugmyndin um kvótasölu á hvalveiðum hér á jörðinni. Þessar hugmyndir hafa heyrst áður, þó ég hafí ekki heyrt þeim hreyft hér á landi fyrr. A að selja hvali „hval- sali“ hæstbjóðanda? Dr. Gulland segir að sá mögu- leiki sé fyrir hendi að koma á fót alþjóðlegri stofnun sem fái eigna- réttinn yfir hvalastofnum heimsins, og selji síðan hæstbjóðanda veiði- kvóta hverrar fisktegundar og veiðisvæðis á hveiju ári. Þá væri hvalavinum allra landa í lófa lagið að sýna í verki umhyggju sína fyrir hvölunum og einfaldlega yfirbjóða hvalaslátrara jarðarinnar og Magnús H. Skarphéðinsson „Nei, svona markaðs- torg náttúruverndar, dýraréttinda eða bara mannréttinda er full- komin tímaskekkja í mannheimi á tuttug- ustu öldinni.“ „kaupa“ alla vinina sína í kvótum, hvernig svo sem það er hugsað. Menn geta rétt ímyndað sér hvemig það mál allt þróaðist fljót- lega ef af yrði. Sem og gengi alls ekki til lengdar. Til að kaupa hinum tignarlegu og gáfuðu og alsaklausu vinum okkar í hafinu grið yrði að koma til linnulaust sístreymi fjár á upp- boð náttúruverndargæða jarðarinn- ar frá hvalavinum allra landa. Þar, á markaðstorgi náttúmgæðanna, toguðust síðan á í krafti samkeppn- isíjármagns okkar mannanna, ann- ars vegar friðun dýrategunda í út- rýmingarhættu eða virðingarsjón- armið við hin dýrin hér á plánet- unni sem örfáir menn hafa reynt að tileinka sér, og hins vegar gróðrarvon veiðimannanna sem hugsuðu um það eitt að annað hvort að selja dýrin á fæti (á sporði? eða bægslum???) tii ævifangelsanna í dýragörðum eins og furðufyrirtæk- ið Fauna hf. í Hafnarfirði gerir með því að selja þrælasali að jafnaði 4 háhyrninga á ári til útlendra dýra- garða, eða með því að ná hámarks- gróðanum með því að skera, sjóða og bræða skjólstæðinga okkar í Hvalavinafélaginu, eins og t.d. hvalaslátrunarfyrirtækið Hvalur hf. gerir. íslendingar hafa staðið í broddi fylkingar í heimi hér og á eftirtektarverðan hátt í hvalveiðum til slátrunar, reyndar gegn flestum eðlilegum alþjóðasamþykktum en það er aftur annað og verra mál. Menn sjá að uppboðstorgið yrði ójafn leikur strax í byrjun. Ekki væri nokkur kostur fyrir okkur dýravinina að keppa við þessar út- rýmingarbúðir sem framleiddu allt þetta „hráefni", á meðan við „fram- leiddum" bara frelsi fjarstaddra vina okkar. Ofan á þetta bættist síðan að ef okkur hvalavinum væri gert skylt að kaupa frelsi skjólstæðinga okkar sífellt á hveiju ári, þá myndi þessi alþjóðastofnun dr. Gullands vænt- anlega gefa út sífellt stærri „hvala- kvóta" ár frá ári, því þá loksins færu hvalastofnarnir að ná sér eft- ir aldalanga ofveiði og rányrkju. Og kæmi svo að lokum að ekki nokkur samtök heiðarlegs fólks réðu við að kaupa „allt þetta frelsi" og slátrunin hæfist á ný úr hám- arksarðsemishvalastofnunum. Eigum við þá ekki alveg eins að taka upp hið „arðbæra“ þrælahald aftur? Á þá ekki með svipuðum rök- semdum að meta hvort taka eigi upp þrælahald aftur, svipað því sem stundað var fram í lok síðustu ald- ar? Þ.e. með markaðstorgsreglunni um hæstbjóðendur? Þ.e.a.s. hvor málflutningsaðilinn; frelsis blökku- mannanna eða helsis þeirra, gæti reitt fram stærri upphæð ár hvert. Útilokað væri fyrir okkur talsmenn réttinda blökkumanna að keppa fjárhagslega við gömlu þrælahald- arana á markaðstorgi mannréttind- anna og á markaðstorgi vinnuafls- ins. Við værum að kaupa þeim frelsi, en þrælahaldararnir að kaupa sér réttindalausar vélar í verksmiðj- ur sínar sem gæfu síðan mikinn arð af sér á stuttum tíma, eins og hval- veiðar samtímans gera, sem og fjöldi annarra svipaðra dæma úr mannkynssögunni sanna. Ég veit vel að margir segja hér sem svo að þetta séu ekki á nokk- urn hátt sambærileg dæmi. Og á vissan hátt eru þau það ekki. En þau eru samt ekki íjarlægari en svo að baráttan um þrælahaldið stendur basði mjög nálægt okkur í tíma, rétt eina öld eða tvær frá okkur, og hitt að um flest sömu grundvall- arrökin er tekist á í báðum málun- um og þau því náskyld úr fjarlægð séð. I amstri og hita hversdagsins er hins vegar þessi skyldleiki ekki svo ljós, eins og svo oft vill verða þegar beinharðir hagsmunir standa andspænis manni. En það er aftur annað mál. Nei, samviskur eiga ekki að vera til sölu Nei, svona markaðstorg náttúru- vemdar, dýraréttinda eða bara mannréttinda er fullkomin tíma- skekkja i mannheimi á tuttugustu öldinni. Þó reyndar allir þessir þrír markaðir eigi sér enn stað í raun- veruleika samtímans í ýmsum „menningar“afkimum okkar, þá hefur orðið almennt samkomulag um að leggja þessa iðju niður. Þrælasala barna og unglinga er samt ennþá nú á dögum allábata- samur atvinnuvegur prangara víða í fjarlægari ríkjum Asíu. Og ekki skortir eftirspurnina á Vesturlönd- um eftir „framleiðslunni" frekar en öðru sem við hér í velsældarklúbbi hnattarins teljum okkur geta notast við úr hinum fátækari ríkjum jarð- arinnar. Það er þó framför hér í þessum heimi samfelldra tára og þjáninga að mannskepnan a.m.k. skammast sín fyrir þessar dýra- og mannsals- iðju sína sem aftur hefur það í för með sér að sífellt erfiðara ætti að vera að stunda hana. Hnúfubakur stekkur upp úr sjónum og skellur á haffletinum til þess að hreinsa sig af ýmiskonar smádýrum að því er vísindamenn telja. Þetta er yfirleitt mjög tignarleg sjón að sögn þeirra sem séð hafa Höfúndur er meðlimur í Hvala- vinafélagi íslands. TVOFALDUR 1. VINNINGUR á föstudag handa þér, ef þú hittir á réttu tölurnar. Láttu þínar tölur ekki vanta í þetta sinn! i Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 I ” Bkiðið sem þú vaknar við!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.