Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 22
22
8ei gsawaaío .os íPio/.auTMMis ,uiuajhkitohom
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
Danmörk:
Huðkvillar af gömlum fiski?
FJORIR af hveijum fimm starfs-
mönnum í dönskum fiskiðnaði
hafa einhvem tíma á síðustu fimm
áram þjáðst af húðsjúkdómi eða
af ertingu í húð vegna þess, að
fiskurínn var orðinn of gamail
þegar hann var unninn. Sagði fi-á
þessu í Jyllands-Posten fyrir
skömmu.
Lars Halkier-Sörensen, læknir við
Marselisborg-sjúkrahúsið, hefur
rannsakað þetta mál og segir hann,
að því eldri, sem fiskurinn er, því
varasamari sé hann.
„Það er beint samband á milli
þess hve fiskurinn er gamall þegar
hann er unninn og óþæginda í húð.
Þegar fólk hefur verið að vinna í
fiski, sem hefur verið geymdur yfir
helgi, fjölgar tilfellunum mikið,“ seg-
ir Lars og leggur áherslu á, að þessi
sé ástæðan fyrir sviðanum og kláðan-
um, sem margt fiskvinnslufólk kvart-
ar undan, en ekki mengun eins og
jafnvel var talið.
Lars leggur til, að fískurinn sé
hreinsaður og ísaður strax upp úr
sjó og aldrei geymdur í sjálfri fisk-
vinnslustöðinni.
Reykjavík:
Skátahúsið við Snorrabraut
Framtíð Skeitunni
Sýningarsalur Bifreiða og
landbúnaðarvéla Ármúla 13,
Álfabakki 14 v/Kaupstað í Mjódd,
Seglagerðin Ægir, Eyrargötu 7,
Bílaborgarhúsið Fosshálsi 1
Bernhöftstorfa Bankastræti 2,
Söluskúrvið Miklagarð,
Söluskúr við Kringluna,
Söluskúrvið Háskólavöll.
Garðabær:
Flugeldamarkaðir í Hjálpar-
sveitarhúsi við Bæjarbraut
Gamla pósthúsið við Garðatorg.
Akureyri:
Stór-flugeldamarkaðir í Lundi
og i sýningarsal Bílvirkjans
á Fjölnisgötu
Söluskúr við Hagkaup
Rakarastofan Passion við
Glerárgötu.
ísafjörður:
Skátaheimilið.
Aðaldalur:
Hafralækjaskóli Aðaldal.
Barðaströnd:
Hjálparsveitin Lómfell
Kópavogur:
Toyota, Nýbýlavegi 8,
Skátaheimilið Borgarholtsbraut 7,
Kaupgarður við Engihjalla,
íþróttahúsið við Digranesveg,
og við verslunina Grundarkjör við
Furugrund.
Egilsstaðir:
Gamla Rarik skemman
við Fargradalsbraut.
Vestmannaeyjar:
Skátaheimilið Faxastíg 38.
Dalvík:
Flugeldamarkaður á Skíðabraut 2
Hveragerði:
Hjálparsveitarhúsið Austurmörk 9.
Njarðvík:
Hjálparsveitarhús við Holtsgötu
51,
söluskúr á Hitaveituplaninu
og íþróttavallarhúsið.
Blönduós:
Hús Hjálparsveitar skáta
við Efstubraut 3.
Flúðir:
Hjálparsveitin Snækollur.
Saurbæjarhreppur
í Eyjafirði:
Hjálparsveitin Dalbjörg.
Grímsnes -
Grafningur - Selfoss
- Hjálparsveitin Tintron.
Á Selfossi: Austurvegi 22
við hliðina á Tryggingu h.f.,
viö verlsunina M.M. að Eyrarvegi 1.
Flugeldar - blys - gos - sólir stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TÍVOLÍFLUGELDAR - TÍVOLÍTERTUR
OGINNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
l+\ FLUGELDAMARKAÐIR
W HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Reuter
Móðir í Bangladesh grætur 13 ára gamlan son sinn sem drukknaði
er feija sökk eftir árekstur við annað skip á Dhaleswari-fljóti á
þriðjudag. Ottast er að nær 200 manns hafi týnt lífi í slysinu.
Skipsskaði í Bangladesh:
Nær 200 farast í
árekstri á fljóti
Dhaka. Reuter.
FARÞEGAFERJA sökk eftir að
hafa Ient í árekstri við vöruflutn-
ingaskip á fljótinu Dhaleswari í
Bangladesh á þriðjudag og eru
allt að 200 manns taldir af. Að
sögn lögreglu var slysstaðurínn
slæddur með fiskinetjum og hafa
11 lík fundist en 30 farþegum
tókst að synda í land.
Vöruflutningaskipið sigldi aftan
á feijuna sem hvolfdi og sökk
skömmu síðar en áhöfn björgunar-
skips, er sent var á vettvang, tókst
að lyfta henni upp á yfirborðið.
Wahed Ali var einn farþeganna sem
tókst að synda í land en 13 ára
dóttir hans lokaðist inni í flakinu
og drukknaði. „Það heyrðist ægi-
legur hvellur að aftanverðu. Síðan
sáum við eitthvað sem líktist
ófreskju koma og og tæta skipið
okkar í sundur," sagði Ali.
Þetta er þriðja feijuslysið í
Bangladesh á þessu ári en alls
drukkna þar að jafnaði um 2000
manns árlega í slysum sem verða
vegna kæruleysis og ofhleðslu
fljótabáta. Bangladeshar, sem eru
um 105 milljónir og í hópi fátæk-
ustu þjóða heims, hafa orðið fyrir
miklum áföllum síðustu mánuði.
Flóð í ágúst og september ollu
dauða 3.000 manna og 25 milljónir
urðu heimilislausar. I lok nóvember
fórust 5.000 í hvirfilbyl og gífurlegt
eignatjón varð í suðurhluta lands-
ins.
Breskir þingmenn:
Mannréttindaráð-
steíha 1 Moskvu
ekkienn
London. Reuter.
YFIR eitt hundrað breskir þing-
menn birtu í gær heilsiðuaug-
lýsingu í dagblaðinu The Times
þar sem þeir lýstu andstöðu
sinni við hugmyndir um alþjóð-
lega mannréttíndaráðstefhu í
Moskvu sem Míkhaíl Gorbatsjov
vill að verði haldin 1991. Segja
þeir slíkt ekki tímabært fyrr en
Sovétstjómin bætí ráð sitt í
mannréttíndamálum.
Það var nefnd þingmanna úr
öllum þingflokkum, er vinnur að
auknum réttindum sovéskra gyð-
inga, er stóð að auglýsingunni.
Nefndin segir að margt horfi í
rétta átt í mannréttindamálum í
Sovétríkjunum en jafnframt að
timabær
hún liti alvarlegum augum þau
brot á grundvallarréttindum sem
enn ættu sér stað þar. Meðal þess-
ara brota væri bann við því að
385.000 gyðingar, sem æskja
brottfararleyfis, fái að yfirgefa
landið.
„Við hlökkum til þess dags er
[áðumefndar umbætur hafa verið
gerðar] en þá munum við styðja
heils hugar hugmyndina um slíka
ráðstefnu," segir í auglýsingunni.
„Það er ekki tímabært að styðja
hugmyndina sem stendur."
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, hefur látið í ljós
svipaðar skoðanir og nefndar-
menn.