Morgunblaðið - 07.01.1989, Síða 5
<ma7mt r r-T a / r a r >' t a ( ir v TflT-f ir-'-M v . •
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1989 5
I skugga hrafiisins:
Tuttugiiþúsund hafa
séð myndina hérlendis
Um tuttuguþúsund manns
hafa nú séð I skugga hrafhsins
hérlendis og myndin hefur einn-
ig hlotið góða aðsókn i Noregi
og Svíþjóð. Hún verður frumsýnd
í nýju kvikmyndahúsi í Kaup-
mannahöfh i marz og um svipað
leyti í Helsingfors. Gert hefur
verið alþjóðlegt eintak af mynd-
inni og var það sent til kynning-
ar til dreifingaraðila í Banda-
ríkjunum fyrr i þessari viku.
Að sögn Hrafns Gunnlaugssonar
er einnig ákveðið að sýna myndina
á kvikmyndahátíðum í Evrópu, en
ekki hefur verið ákveðið hverjar
þeirra verða fyrir valinu.
Sjónvarpsmyndin um gerð kvik-
myndarinnar verður sýnd í sænska
sjónvarpinu nú um helgina og við-
tali því sem Hrafn átti við Ingmar
Bergman, þegar hann var gestur
Listahátíðar í Reykjavík, hefur ver-
ið breytt í kvikmynd sem sýnd hef-
ur verið í danska og finnska sjón-
varpinu og verður sýnd í því sænska
þann 15. janúar. Myndin var gerð
fyrir kvikmyndahátíð í Lúbeck þar
sem sýndar voru tíu frægustu
myndir Bergmans og var það að
ósk Bergmans sjálfs að þetta viðtal
var valið til að gera úr kvikmynd
um hann til sýningar á hátíðinni.
Hrafn sagðist telja þetta mikinn
heiður og eftir ummælum gagnrýn-
enda að dæma hefði myndin um
Bergman þótt eitt forvitnilegasta
framlagið á hátíðinni.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson í hlutverkum sínum í í
skugga Hrafiisins.
Hafamarpör komu
upp 21 unga 1 sumar
FIMMTÁN hafarnarhjónum tókst að koma upp 21 unga suma-
rið 1988. Onnur 24 hjón héldu sig við óðöl en urpu ekki eða
varp þeirra misfórst af einhveijum orsökum. 29 ernir, ungir
að stakir fullorðnir sáust á árinu og hræ af einum fullorðnum
fannst, dánarorsök ókunn.
Þetta kemur fram í frétt frá
Fuglaverndarfélagi íslands en þar
segir einnig að gera megi ráð
fyrir að amarstofninn hérlendis
sé stærri en þessu nemur þar sem
öll amarsvæðin vora ekki könnuð.
Emir eiga nú mjög í vök að
veijast í heiminum og nefna má
sem dæmi að hvíthöfða bandaríski
örninn er nú í útrýmingarhættu.
Fuglaverndarfélagið segir að Is-
lendingar eigi því láni að fagna
að bændur séu menntaðir og hafi
góðan skilning á náttúruvernd.
Ef þetta kæmi ekki til væri
íslenski amarstofninn löngu liðinn
undir lok.
í frétt félagsins segir svo:
...„Bændur við Breiðafjörð, sem
hafa æðarækt, hafa áram saman
haldið hlífskyldi yfir ömum sem
verpa í nánd. Við viljum færa
þeim bestu þakkir og getum við
nefnt sem dæmi hin stórmerku
hjón í Miðhúsum Svein Guð-
mundsson og konu hans Ólínu."
Af öðram fuglum í útrýmingar-
hættu má nefna keldusvín sem
minnkur og framræsla mýrlendis
hefur líklega útrýmt. Haftyrðill
og snæugla era að hverfa úr
íslensku lífríki og þórshana fer
fækkandi.
Minnihlutinn í borgarsljórii:
Hugmyndir um sameigin-
legl framboð reifaðar
HUGMYNDIR um sameiginlegt fi-amboð minnihlutaflokkanna í borgar-
stjóm Reykjavíkur hafa verið reifaðar en engar formlegar viðræður
hafa átt sér stað um málið, að sögn Elínar G. Ólafsdóttur, borgarfull-
trúa Kvennalistans. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, segir að ýmsar hugmyndir hafi verið ræddar í þessu sam-
bandi og sjálf sé hún „dálítið skotin" í einni þeirra.
Bjami P. Magnússon, borgarfull-
trúi Alþýðuflokksins sagði í Morgun-
blaðinu á fimmtudaginn, að hann
væri mjög hlynntur sameiginlegu
framboði minnihlutaflokkanna og
hann hefði lýst þeirri skoðun sinni
víða. Sigurjón Pétursson oddviti,
Alþýðubandalagsins í borgarstjóm
sagði að hugmyndin hefði verið rædd
milli flokkanna. Það helgaðist af
því, að ef þessir flokkar næðu meiri-
hluta myndu þeir starfa saman hvort
sem er, auk þess sem samstarf þeirra
hefði verið mjög gott á þessu
kjörtímabili.
Morgunblaðið leitaði álits Sig-
rúnar Magnúsdóttur, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins á þessum um-
mælum. Hún sagðist hafa kynnt í
flokknum þær viðræður, sem átt
hefðu sér stað um sameiginlegt
framboð, en engin afstaða hefði ver-
ið tekin til þeirra. Sjálf sagðist hún
vera „dáiítið skotin“ í einni þeirra
hugmynda, sem fram hefði komið.
Elín G. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
Kvennalistans, sagði að hugmyndir
um sameiginlegt framboð minnihlut-
ans hefðu verið reifaðar, en engar
formlegar viðræður átt sér stað.
Kvennalistinn hefði ekki tekið af-
stöðu til þessa máls, enda þyrfti að
skoða málið frá ýmsum hliðum. Elín
minnti á, að forveri hennar í borgar-
stjóm, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
hefði lýst sig fylgjandi hugmyndinni
um sameiginlegt framboð, en hún
vildi ekki sjálf gefa upp afstöðu sína
til þess.
SÝNING
PEUGEOT 309 - FJÖLSKYLDUBÍLLINN.
Einstaklega lipur og hentugur ferðabíll, með nægilegt rými fyrir fólk
og farangur.
PEUGEOT 405 - BÍLL ÁRSINS í EVRÓPU 1988.
Sérlega fallegur og þægilegur bíll sem farið hefur sigurför um
Evrópu. Kynnum nú í fyrsta skipti station útfærsluna af 405.
Glæsilegur bíll, rúmgóður og með fjöðrun í Peugeot gæðaflokki.
PEUGEOT 205 - „BESTI BÍLL f HEIMI".
Nú, fjórða árið í röð, valinn af lesendum Auto, Motor und Sport.
Bíll með aksturseiginleika í sérflokki í stöðugri sókn á íslandi.
JÖFUR - ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
Opið laugardag 13-17.