Morgunblaðið - 07.01.1989, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989
9
f -------■ N
Heba heldur vió heilsunni
Námskeið hefjast 9. janúar
Konur!
Viö bjóöum uppá:
Þolaukandi (acrob), vaxtarmótandi,
liökandi og megrandi leikfími meö
músik (vívlþjálfun).
Dag- og kvöidtímar.
Frjáls mæting iaugardaga.
Keójuvirkandi bónuskerfi í gangi.
Nýjung!
HEBU-línan“ 4+1, 3+1,2+1 er algjör nýjung.
Nýtt - Nýtt!
Höfum tekið nýja tækið TRIMFORM í þjónustu okkar.
í HEBU geta konur á öllum aldri fundið eitthvað við sitt haefu
Innritun og upplýsingar í símum 42360 og 641309 (Elísabet).
Kennari: Elísabet Hannesdóttir íþróttakennari.
Heilsurœktin Heba
Auðbrckku 14. Kópavogl.
SPARIFJÁR-
EIGENDUR
INNLAUSN ELDRI
SPARISKÍRTEINA
Yfirhönd Vesturlanda
Þær fréttir berast nú, að árangur kunni að
nást í viðraeðum austurs og vesturs í Vínar-
borg, sem fara fram á grundvelli Helskinki-
samkomulagsins frá 1975. í Vín er annars
vegar verið að tala um leiðir til að draga úr
hefðbundnum vígbúnaði og hins vegar frek-
ari áfanga á í baráttunni fyrir mannréttindum
í alræðisríkjum kommúnismans. í Stakstein-
um í dag er vitnað í nýtt hefti af NATO-frétt-
um og grein Manfreds Wörners, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, sem
þar birtist. í greininni rökstyður hann það
meðal annars, að Vesturlönd hafa náð yfir-
hendinni í umræðum um framtíð heimsins.
Góður árang-
ur Vestur-
landa
Manfred Wömer,
framkvæmdastjóri Atl-
anthafrbandalagsins,
minnir á í grein í NATO-
fréttum, að leiðtogar
bandalagsrikjamia hafi á
fimdi í mars sl. lýst yfir
að stefiiumálum banda-
lagsins miði vel áfram
og segir síðan:
„Björt framtið blasir
einnig við okkur. Ég tel
að þetta eigi rætur að
relqa til þess að frelsi,
lýðræði og mannréttind-
unum er sigurinn vis í
framtfðinni. í Vestur-
Evrópu hafa menn tekið
til við verkefiii sem sann-
arlega hefiir sögulegt
gildi, að koma á fót ríkja-
samfélagi þar sem hug-
myndir, vamingur og
fólk njóta frelsis til að
berast frá einni þjóð til
annarrar. Á undanfom-
um árum hafa rikin í
Austur-Evrópu tekið til
við umbætur. Þær bera
það með sér að menn
hafa hrifizt af afli og
árangri á Vesturlöndum,
um leið og ljóst er að
kerfin í austri hafa
bmgðizt vonum fólksins
sem þar býr. Mikið af
þeirri „nýju hugsun",
sem við heyrum talað
um, er tilraun til að svara
hugkvæmni og skapandi
frelsi þeirrar arfleifðar
sem við gætum, hug-
myndum okkar og liinum
sögulegu breytingum
sem orðið hafa stig af
stigi innan sfjómkerfís
okkar. Við getum viður-
kennt þessi sannindi
vegna þess, að við höfum
lagt svo hart að okkur
til að skapa heim, þar
sem lýðræðissjónarmið
okkar og virðing fyrir
manninum og rétti hans
geta þrifizt áfram. Ut-
anríkisráðherra í einu
NATO-rflqanna komst
þannig að orði nýlega,
að Vesturlönd liefðu náð
yfirhendinni í umræðun-
um um framtið heimsins,
stjómmálalega, efiia-
hagslega, menningar-
lega, félagslega og sið-
ferðilega. Einnig hefur
náðst töluverður árangur
í þriója heiminum á
síðustu árum i baráttunni
fyrir lýðræðislegum sjón-
arháttum og meira at-
hafiiafrelsi fyrir ein-
staklinga í atvinnu- og
efiiahagsmálum. Þamiig
em miklar líkur á því,
að okkur takist með
árangursríkum hætti að
glfma við verkefiii fram-
tíðarinnar, ef við höldum
okkar striki."
Samstarfí
fyrirrúmi
Manfred Wömer segir
ennfremur:
„Þessi verkefhi em
alkunn. Hvemig getum
við nýtt bezta tækifærið
sem okkur hefur boðizt
árum saman til að bæta
samskipti rflqa í austri
og vestri? Hvemig eigum
við að móta viðbrögð
Vesturlanda við þeim
áformum um breytingar
sem nú em uppi i Sov-
étríkjunum og Austur-
Evrópu, og hvemig get-
um við bezt hvatt þjóð-
imar í austri til að taka
upp stefiiu að vestrænni
fyrirmynd? Hvemig á að
semja um þau kenningar-
legu vandamál, sem
spretta af hraðri þróun
á sviði afvopnunarmála,
og einkum að þvi er varð-
ar nauðsyn þess að tak-
mörkun vigbúnaðar og
afvopnun byggist á þeim
grunni að ekki sé dregið
úr öryggistryggingu?
Hvemig á að þróa frekar
viðhorf Vesturlanda til
afvopnunarmála á þess-
um grunni með hliðsjón
af öryggisgæzlu og öllu
sem henni fylgir? Hvem-
ig eiga aðildarríki Atl-
antshafsbandalagsins að
standa að verki við að
skapa nýjan vilja og þrótt
til að skipta jafnt með sér
byrðum, áhættu og
ábyrgð ásamt með ávinn-
ingi af sameiginlegu
átaki við breyttar heims-
aðstæður? Hvemig eig-
um við innan bandalags-
ins að styrkja hina evr-
ópsku stoð þess?
f stuttu máli, hvemig
getum við með betri og
skynsamlegri iiætti nýtt
vamarmátt okkar og þá
Qármuni, sem til hans er
varið, og hvemig getum
við stuðlað að betri sam-
vinnu á öllurn sviðum
sameiginlegra vama?
Hér er ekki sizt um mikil-
vægt verkefhi að ræða
fyrir þá sem við her-
gagnaiðnað starfa, þeir
verða að auka samskipti
sin á milli og beina at-
hyglinni að þeim aðilum
samstarfsins sem eiga
undir högg að sækja
vegna þess, að efha-
hagslíf og iðnaður þeirra
er vanþróaðri en hinna.
Þegar viðhorf almenn-
ings til grundvallarþátta
i samskiptunum við ríkin
í austri em að breytast,
hvemig getum við þá
bezt kynnt það sjónarmið
að nauðsynlegt sé að við-
halda hæfilegum vömum
í því skyni að tryggja
lifsnauðsynlegan stuðn-
ing almennings i lýðræð-
isrflqum? Að lokum
byggist geta okkar til að
takast á við allt annað á
þvi, hvort þjóðir okkar
era reiðubúnar til að
veita vamarátaki okkar
nauðsynlegan stuðning.
Svörin við öllum þess-
um spumingum tvinnast
saman að minu mati.
Okkur tekst ekki að ná
neinu fram, nema við
getum treyst og eflt sam-
stöðu, samvinnu og afl
bandalagsins. Allt annað
byggist á því.“
InnlausnardaRur Flokkur
Vextir ef skírteinið er
ekki innleyst
10.01. ’89
10.01. ’89
10.01. ’89
10.01. ’89
10.01. ’89
1975-1
1985- lA
1986- lA 3 ár
1986- 1D
1987- 1A2 ár
4,25%
7%
7%
0% (lokainnlausn)
0% (lokainnlausn)
Tökum innleysanleg Spariskírteini ríkissjóðs
sem greiðslu fyrir Einingabréf, Skammtíma-
bréf, ný Spariskírteini eða önnur verðbréf.
FRAMTÍÐARÖRYGGI
í FJÁRMÁLUM
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar, sítni 91-686988 og
Ráðhústorgi 5, Akureyri, sími 96-24700
4%
O
a
%
fir)
' /ÖNl ^
ÞJOÐDANSAFELAG REYKJAVIKUR
Sundlaugave^.
DANSKEIMNSLA
Við höfum kennt dans frá 1951 og stuðlað að útbreiðslu hans með kennslu
í barnadönsum, þjóðdönsum og gömlu dönsunum. Þú hlýtur að finna eitthvað
við þitt hæfi.
Barnadansar hefjast mánudaginn
9. janúar.
3-4 ára 10x30 mín., krónur 1500
5-7 ára 10x45 mín., krónur 2300
8 ára og eldri 10x60 mín., krónur 3000
Hér er fjölbreytni og börnin fara
ánægð frá okkur.
Þjóðdansar hefjast fimmtudaginn 12.
janúar kl. 20 með íslenskum dönsum
og kl. 21 með dönsum frá ýmsum
löndum. Hefur þú e.t.v. kynnst þeim
á ferðum þínum erlendis? Hvernig
væri þá að læra þá?
Gömlu dansarnir hefjast mánudag-
inn9. janúar.
Þeirverða tvískiptir:
Kl. 20-21 Byrjendahópur þar sem
grunnspor eru kennd ítar-
lega. 10 skipti á 3000 krónur.
Kl. 21-23 Opnirtímarfyrir lengra
komna. Þú mætir þegar þér
hentar og kvöldið kostar
400 krónur (ath. 120 mín).
Við byrjum á rælum, polkum
og stjörnupolka. Harmon-
ikuleikari hjá báðum hópum.
JttargniiMafrtfe
Gódan daginn!
Hvernig væri að dusta rykið af dansskónum, stunda skemmtilega hreyfingu
og auka jafnframt þolið. Athugið málið og gerið verðsamanburð.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur,
Sundlaugavegi 34,
símar 681616, 687464, 675777.