Morgunblaðið - 07.01.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989
Upplýsing-ar um afkomu SH komu fram á árlegum verkstjórafundi á Hótel Loftleiðum í gær.
Aukning í framleiðslu Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihús-
anna en samdráttur í sölu
1988 eitt erfiðasta rekstrarár sjávarútvegs í þijá áratugi
Á árinu 1988 dróst sala Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á sjávar-
afurðum saman um 14% miðað við 1987, en heildarsalan fór úr um
92 þús. tonnum í um 79 þús., þ.e. dróst saman um tæplega 13 þús.
tonn. Framleiðsla frystihúsa SH var aftur á móti svipuð á sl. ári,
eins og hún var árið 1987 eða tæplega 90 þús. tonn af Sski. Mestur
samdráttur varð í sölu loðnu og loðnuafurða til Japans á nýliðnu
ári, en hefði hann ekki komið til, hefði raunminnkun orðið aðeins
3.900 tonn eða 5% á milli ára, en það hefði þýtt að 1988 hefði orðið
sjötta stærsta ár SH í magnútflutningi. I frétt frá SH um afkomuna
segir:
SI. ár hefur, vægt til orða tekið,
reynst SH og í raun öllum íslenskum
sjávarútvegi afar erfitt og óhag-
stætt á flestum sviðum rekstursins.
í fyrsta lagi má minna á óraun-
hæfa gengisskráningu og gengis-
þróun. Verðlækkanir áttu sér stað
á nær öllum mörkuðum SH í mynt
viðkomandi landa, sem bættist ofan
á samdrátt í sölu þrátt fyrir nær
óbreytta framleiðslu milli ára.
Á sl. ári varð aukning í fram-
leiðslu á öllum botnfisktegundum,
sem nam frá 3% upp í 30% eftir
einstökum tegundum. Síldarfram-
leiðslan hjá SH-húsum nær tvöfald-
aðist milli 1987 og 1988. Hins veg-
ar munar mestu um samdrátt í
loðnuafurðum vegna verkfalla og
erfiðrar vertíðar sl. vetur.
ÚTFLUTNINGUR SH 1988 - SKIPT Á FISKTEGUNDIR
(í tonnum)
Fisktegund 1987
Þorskur 29.200
Ýsa 2.900
Ufsi 12.600
Karfí 13.000
Grálúða 10.700
Sfld 5.200
Skelfískur 3.000
Loðnuafurðir 11.100
Aðrar tegundir 4.100
Alls 91.900
52% heildarsala til
Bandaríkjanna og Asíu
Sala til Bandaríkjanna er hlut-
fallslega lægri nú en nokkru sinni
1988 Breyting 1988
+ (-) Hlutfall
28.100 (1,1) 35,5%
3.500 0,5 4,4%
10.900 (1,6) 13,8%
12.800 (0,3) 16,2%
10.000 (0,7) 12,6%
5.700 (0,5) 7,2%
2.700 (0,3) 3,4%
2.400 (8,8) 3,0%
3.100 (1,0) 3,9%
79.200 (12,7) 100,0%
fyrr, þ.e. 30% í magni og rúmlega
40% í verðmætum. Bandaríkin og
Asíulönd eru með yfir 52% heildar-
sölu SH þrátt fyrir hlutfallslega
mestan samdrátt ’88. Hér munar
mest um hve lítið var framleitt af
hefðbundnum Ameríkupakkningum
í u.fsa, karfa og grálúðu. Sala og
framleiðsla á þessum þremur teg-
undum dróst saman um rétt rúm
6.000 tonn á sl. ári í Bandaríkjun-
um, en heildarminnkun nam rúmum
7.000 tonnum. Sala Coldwater á
Bandaríkjamarkaði varð samt meiri
en þetta 1988 vegna eigin birgða
fyrirtækisins í upphafi þess árs.
Hins vegar varð samsvarandi aukn-
ing á karfa og grálúðu til Asíulanda.
Verðmæti einstakra
markaða
Af helstu mörkuðum Sölumið-
stöðvarinnar eru Bandaríkin verð-
mætust, þ.e. að heildarverðmæti
sölunnar þangað nemur 41,5% af
heildarútflutningi. í öðru sæti er
Japan og önnur Asíulönd með
16,7% og Bretlandseyjar 14,4%. í
fjórða sæti er Frakkland með 8,3%
verðmæta heildarútflutnings í tonn-
um, en þar á eftir kemur V-Þýska-
land með 6,9% og loks Sovétríkin
með 6,2%. Onnur markaðssvæði og
lönd eru með mun minna magn og
verðmæti.
Verðmætishlutdeild
sölufyrirtækja SH
Sölumiðstöðin starfrækir fjögur
sölufyrirtæki erlendis, þ.e. í Banda-
ríkjunum, Bretlandi, V-Þýskalandi
og Frakklandi. Söluskrifstofumar
eru í raun í innbyrðis samkeppni,
sem tryggir stöðugt aðhald sölu-
kerfisins. Á sl. ári vom seldar sjáv-
arafurðir til Coldwater Seafood
Corporation í Bandaríkjunum fyrir
um 4.000 milljónir króna í sölu eða
41,5% af heildarsölu. Þar á eftir
kemur Icelandic Freezing Plants
Ltd. í Bretlandi með um 1.400
millj. kr. fyrir sölu ársins, í þriðja
sæti er söluskrifstofa SH f Ham-
borg með 1.000 millj. kr. og sölu-
skrifstofan í Boulogne í Frakklandi
með tæplega 900 millj. kr.
Söluverðmæti seldra sjávaraf-
urða til Asíu námu á sl. ári 1.600
millj. kr. og til Sovétríkjanna rétt
um 800 millj. kr., en sala til þess-
ara markaða fer enn fram í
Reykjavík. Fjögur þúsund tonna
söluaukning í Asíu á karfa, grálúðu
og sfld undirstrikar mikilvægi þessa
nýja markaðssvæðis og rennir enn
frekari stoðum undir aukna sölu-
mennsku í þeim heimshluta.
í tilefni sjónvarpsfréttar
Athugasemd frá Sigurði Markússyni framkvæmdastj óra Sjávarafiirðadeildar SÍS
Útfluttar botnfiskafurðir
landfryst + sjófryst
sambandið
Sjavaraftirtadelld
5.6
Samanburöur á Fob-veröi (SlS/allir aftrir)
Prósentur sýna mismun okkur i hag.
1984 1985 1986
m
1987
íii
8 m/87
. Allar teg. botnfiskafuróa
í sjónvarpsfréttum að kvöldi
fimmtudags 5. janúar, þar sem sagt
var frá blaðamannafundi
Steingríms Hermannssonar forsæt-
isráðherra, komu m.a. þessar full-
yrðingar fram, sumpart hjá ráð-
herranum, sumpart í túlkun frétta-
manna:
1. Að Sjávarafurðadeildin væri
með lægri söluverð en aðrir útflytj-
endur.
2. Að lægri söluverð Sjávarafurða-
deildar stöfuðu m.a. af því deildin
seldi hlutfallslega meira til Banda-
ríkjanna en SH.
3. Að afkoma Sambandsfrystihús-
anna væri mun verri en afkoma
Sölumiðstöðvarhúsa í því 29 húsa
úrtaki, sem hópur löggiltra endur-
skoðenda gerði upp m.v. fyrstu þrjá
íjórðunga ársins.
Um þessar fullyrðingar má segja
að ein er röng, cínnur hæpin og sú
þriðja blendin. Ég mun þá víkja að
hverri fyrir sig.
Söluverðin
Botnfiskafurðir taka til um 85
af hundraði af verslun landsmanna
með frystar sjávarafurðir. Meðal-
verð Sjávarafurðadeildar fyrir
frystar botnfískafurðir hefur um
margra ára skeið verið nokkru
hærra en meðalverð allra annarra
útflytjenda. Frá 1984 hefur þessi
munur, framleiðendum okkar í hag,
verið sem hér segir:
„Um raunhæfan rekstr-
arsamanburð á milli
sölusamtakanna
tvcggja verður naum-
ast að ræða fyrr en tek-
in verða til skoðunar
öll frystihús hjá hvor-
um aðila fyrir sig.“
Árið 1984 5,6%
Árið 1985 11,8%
Árið 1986 6,0%
Árið 1987 8,2%
8 mán. 1987 9,9%
8 mán. 1988 6,6%
Þessir útreikningar eru byggðir
á opinberum verslunarskýrslum um
útflutning landsmanna til allra
markaða. Sjálfur hef ég aldrei gert
mér far um að halda þessum mis-
mun á loft; hann stafar að hluta
af mismunandi tegundasamsetn-
ingu, að hluta af mismunandi skipt-
ingu á milli verðrninni og verðmeiri
pakkninga, en naumast nokkru
sinni af því að sölusamtökin séu
að selja sams konar pakkningar á
sitt hvoru verðinu. Ég þakka fyrir
í hljóði meðan opinberar skýrslur
sýna að þessi mismunur er okkar
framleiðendum í hag. Hins vegar
get ég ekki setið hjá þegjandi, þeg-
ar ranghverfu sannleikans er haldið
að landsmönnum.
Ameríkusalan
Það er út af fyrir sig ekki óeðli-
legt, að menn haldi því fram, að
Sjávarafurðadeild selji hlutfallslega
meira til Bandaríkjanna en SH.
Þannig var þetta t.d. árin 1985,
1986 og 1987. Á því tímabili, sem
hér er til umræðu, þ.e. fyrstu þrem
fjórðungum ársins 1988, mun SH
hafa selt nokkru meira hlutfallslega
til Bandaríkjanna en Sjávarafurða-
deild. í tölum sem SH gaf út opin-
berlega eftir fyrstu sex mánuði árs-
ins kom td. fram, að 27% af heildar-
útflutningi miðað við magn hefði
farið til Bandaríkjanna; tilsvarandi
hlutfall hjá Sjávarafurðadeild, fyrir
sama tímabil, var 25%. Magntölur
sem ég hef fyrir framan mig fyrir
fyrstu átta mánuði ársins gefa til
kynna, að þessi munur hafi aukist
lítillega og ég á ekki von á að neitt
hafi gerst í september, sem breytt
gæti þessari mynd. Ljóst er að hlut-
fallslega minni sölu okkar til
Bandaríkjanna má rekja til aðgerða
Greenpeace, en svo sem kunnugt
er af fréttum hafa aðgerðir þeirra
þar í landi beinst sérstaklega að
Iceland Seafood Corporation, sölu-
fyrirtæki okkar vestra.
Afkoma
Sambandsfrystihúsanna
Út af fyrir sig mun það rétt, að
skoðun nokkurra löggiltra endur-
skoðenda á afkomu 29 frystihúsa
sýni verri stöðu hjá Sambands-
frystihúsum en SH-húsum. Ef ég
kann að tíunda þessar tölur rétt,
þá voru í úrtakinu 11 Sambands-
frystihús (af um 35) en 18 SH-hús
(af um 60). Kunnugir halda því
fram, að í úrtaki Sambandsins hafí
verið nær öll hin erfíðustu rekstrar-
dæmi þar á bæ og hafi þau raunar
verið í meirihluta í úrtakinu; SH-
fyrirtækin hafi hins vegar verið
valin þannig, að tiltölulega mörg
af þeirra húsum með erfiða rekstr-
arstöðu hafi verið utan úrtaksins.
Nú verð ég að taka fram, að það
hvarflar ekki að mér að hér hafí
verið gerð vísvitandi tilraun til þess
að halla málum, öðrum hvorum
aðilanum í hag eða óhag. Ég er
þess fullviss, að val fyrirtækjanna
réðst einfaldlega af því, hvaða upp-
gjör voru tiltæk á þeim tíma, er
athugunin fór fram. Ekki varð það
Sambandsmönnum til framdráttar
í samanburðinum, að eitt af þeirra
bestu húsum var í útreikningum
þessum talið með SH-húsum. Er
það raunar eitt af þeim 18 „SH-
húsum“, sem rætt er um hér að
framan. Um raunhæfan rekstrar-
samanburð á milli sölusamtakanna
tveggja verður naumast að ræða
fyrr en tekin verða til skoðunar öll
frystihús hjá hvorum aðila fyrir sig;
teljist það ekki framkvæmanlegt
verður a.m.k. að gæta þess að hvort
úrtak fyrir sig sé valið eftir hlið-
stæðum reglum.