Morgunblaðið - 07.01.1989, Side 17

Morgunblaðið - 07.01.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 17 Nýtt heilsuræktaræði: Þúsundir æfa sig á hreyfanlegum bekkjum 1200 manns stunda æfingarnar í Reykjavík einni Morgunblaðið/Emilía Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi er einn 1200 Reyk- vikinga, sem stundar œfingar á bekkjunum. Flott- form heitir æfingar- kerfi sem kynnt var hér á landi s.l. haust og náð hefiir geysi- legri útbreiðslu á aðeins nokkr- um mánuðum. Nú stunda þús- undir manna þetta kerfi i 10 æfingastöðvum viðs vegar á landinu, þar af 1200 manns i Reykjavík. Nú stendur fyrir dyrum kynning meðal ellilif- eyrisþega, en æfingakerfið þykir heppilegt fyrir eldra fólk. Það er fyrirtækið Hreyfing sf sem flytur bekkina inn. A kynn- ingu fyrirtækisins kom fram hjá Sóleyju Jóhannsdóttur, einum for- svarsmanna þess, að fyrstu bekk- imir hefðu komið til landsins í ágúst s.l. Þeir vom settir upp í Dansstúdíói Sóleyjar Engjategi 1 í Reykjavík. Síðar opnaði Sóley aðra stofu í Breiðholti. Síðan hafa verið opnaðar stofíir víðar, svo sem í Hafnarfírði, Keflavík, Vest- mannaeyjum, Akureyri og Sauð- árkróki og fleiri eru í bígerð. Aðrir aðilar reka þessar stofur en Hreyfing sf flutti bekkina inn. Sem fyrr segir hefur þessi æfinga- meðferð verið mjög eftirsótt og nú stunda 1200 manns bekkina hér í Reykjavík, svo dæmi sé tek- ið. Eru þeir á aldrinum 20-76 ára Að sögn Sóleyjar em bekkimir amerískir. Um er að ræða sjö mismunandi bekki, hreyfanlega. Á hveijum bekk eru 5-6 æfingar en sjöundi bekkurinn er hvíldar- bekkur. Æfíngamar taka 8 mínútur á hveijum bekk. Það tek- ur því um klukkustund að fara í alla bekkina. Algengast er að fólk fari í bekkina 2-3 sinnum í viku. „Það er óhætt að segja að þessi bekkir séu nýjasta heilusræktar- æði Islendinga, ef svo má að orði komast," sagði Sóley Jóhanns- dóttir. „Ég held samt að þetta sé ekki fyrirbrigði sem eigi eftir að fjara út því árangurinn hefur ver- ið svo góður og fólkið verið án- ægt. Æfingamar koma blóðrá- sinni í líkamanum af stað, hreinsa óhreinindi sem setjast þar að og svo teygir þetta og styrkir vöð- vana. Margir hafa losnað við vöðvabólgur, bjúg á fótum og mígrenisjúklingar hafa telja sig hafa fengið bata af æfingunum. Reynslan hefur sýnt það að líkam- inn styrkist mjög mikið og eftir 20-30 skipti byijar aukakílóum að fækka. í stuttu máli má segja að fólki líði mjög vel eftir æfíng- amar.“ Sóley segir að með tilkomu bekkjanna hafi tekist að ná til þess stóra hóps sem stundi enga heilsurækt. „Það er ótrúlega stór hópur fólks sem hreyfir sig alls ekkert. Ég tel að æfíngabekkimir henti þessu fólki sérstaklega vel. Það getur snúið sér að öðra, t.d. sundi, skokki og almennum æf- ingum þegar það hefur náð sér á strik, eða haldið áfram æfingum á bekkjunum, eins og algengt er.“ Sóley sagði að lokum að nám- skeið væra stöðugt í gangi hjá henni. Fólk gæti komið og fengið ókeypis kynningartíma. Hver og einn er mældur við komuna og síðan á 10 tíma fresti. „Þetta er ágætis þjálfun, hress- andi og hæfilega erfið. Ég tel að þessi tæki henti fólki á öllum aldri og í öllum þyngdarflokkum," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Iögmaður og borgarfulltrúi, en hann stundar æfingar á bekkjun- um. Vilhjálmur stundar einnig veggjabolta, sem hann segir öllu erfiðari íþrótt en afar skemmti- lega, enda aukist vinsældir hennar stöðugt hér á landi. Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Grindur fyrir glugga Eigendur verslana hér á landi hafa í alltof litlum mæli hugað að þeim möguleikum, sem þeim stendur til boða varðandi vamir gegn hugsanlegum skemmdum á húsnæði þeirra, svo og inn- brotum. I dag er á boðstólum alls kyns búnaður til þess að hægt sé að fyrirbyggja eða minnka til muna líkur á t.d. rúðubrotum og innbrotum. Jám- og álgrindur era til í ýmsum tilbrigðum og bjóða upp á óteljandi möguleika. Bakglugga í verslunum, vöralag- eram og geymsluhúsnæði þarf að rammgera, en auk þess er hægt, og í rauninni sjálfsagt ef tekið er mið af tíðni innbrota og rúðubrota í verslunarhúsnæði, að setja fallega hannaðar og sterkbyggðar grindur fyrir útsýnisglugga slíks húsnæðis. Verslun- areigiendur hafa helst kvartað yfír því að með tilkomu grindanna takmarkist gildi útstillinga. Þessu er til að svara að svo þarf ekki að vera. Til eru grindur sem takmarka á engan hátt möguleika fólks á að skoða í gluggana og rýra á engan hátt útlit húsnæðis- ins, heldur þvert á móti, sé rétt að málum staðið. Grindur era sýnileg vöm til vamaðar hugsanlegum brotamönn- um, veija rúður, hindra ekki vegfarendur í að virða fyrir sér vaming fyrir innan þær, skemma ekki útlit húsnæðis, era til í mörgum litbrigðum og era auðveldar í uppsetningu. ' Til era ýmis afbrigði grinda; grindur sem rennt er upp eða til hliðar á daginn á meðan verslunin er opin, rafdrifnar og fastar, allt eftir óskum hvers og eins og þeim tilgangi, sem þær eiga að þjóna. Ekki er óraunhæft að áætla að verslunareigendur og trygginga- félög taki höndum saman og marki sér stefnu um vægi iðgjalda og þess, sem lagt er af mörkum til að minnka líkur á skemmdum eða innbrotunm. Þannig gætu verslunareigendur flárfest í búnaði sjálfum sér til vamar og um leið lækkað hlutfallslega tryggingar- iðgjöldin. Evrópumeistaramót unglinga í skák: Alexíj Dreev sigraði Þröstur Þórhalls- son varð í 20. sæti „MÉR GEKK fremur illa á mót- inu. Ég vann fyrstu þrjár skák- irnar og síðan vann ég ekki skák,“ sagði Þröstur Þórhalls- son í samtali við Morgunblaðið. Hann tók þátt í Evrópumeist- aramóti unglinga, 20 ára og yngri, í skák, sem haldið var fyrir skömmu í borginni Arn- heim í Hollandi. Sigurvegari á mótinu varð Sov- étmaðurinn Alexíj Dreev með 10,5 vinninga. Þröstur hafnaði í 20. sæti með 6 vinninga. Alls vora tefldar 13 umferðir. 32 þáttakendur vora á mótinu, einn frá hveiju landi, nema að tveir Sovétmenn kepptu, þeir Dre- ev og Bóris Gelfendt. Þeir urðu reyndar jafnir að vinningum, en Dreev sigraði á stigum. 7 alþjóð- legir meistarar vora í hópi kepp- enda. Þröstur sagði að ef til vill hafi það valdið nokkru um frammi- stöðu sína að hann kenndi lasleika í mótslok, „þótt það sé auðvitað engin afsökun." Hann segist hafa tapað 25 ELO stigum á þessu móti. _^^uglýsinga- síminn er 2 24 80 Þorrinn nálgast! Eigum til ílát undir „súrmatinn", bæði stampa og kassa; löggilt undir matvæli. Símar 35408 og 83033 GAMLIBÆRINN SELTJNES Hverfisgata 4-62 Tjarnarstiguro.fi. AUSTURBÆR Stigahlíð 49-97 fttargmiMiiMfe

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.