Morgunblaðið - 07.01.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989
K2 ^ U
K2 SKVÐAPOKAR
^nlR sKÍÐAPAKKAR
HAGSTÆÐIBSK sALA
skiðaleiga pjónusja
SKÍÐAVVÐGERÐAP T
TÖKUM NOTAÐJ^L------
£S5T"' “ *■
^ _inAD&KKAB "
SPORTLEIGAN
VtÐ UMFERÐARMtÐSTÖÐINA S. 1 98 00
SKÍÐAMIÐSTÖÐ FJÖLSKYLDUNNAR
OPIÐ:
VIRKA DAGA 9-18
UM HELGAR 10 - 14
(LAU. OG SUNN.D.)
V/SA
Sovétríkin:
Háðsádeiluhöfundur-
inn JÚIí Daniel látinn
Vopnasölumálið í Bandaríkjunum:
Júlí Daniel lést á 63. aldursári á
heimili sínu í Moskvu síðastliðinn
fostudag.
fluttist síðar til Parísar. Þeir neit-
uðu báðir þeim sakargiftum að þeir
hefðu dreift and-sovéskum áróðri
og héldu því fram að listrænar hvat-
ir hefðu legið að baki skrifum
þeirra, ekki stjómmálaástæður.
Þegar réttarhöldunum lauk töldust
þeir hetjur meðal ungra sovéskrar
rithöfunda og menntamanna.
Daniel, sem skrifaði undir
skáldanafninu Nikolaj Arzhak, var
háðsádeiluhöfundur og eru verk
hans rík af myndmáli og furðum.
Um sjö ára skeið smyglaði hann
nokkrum verka sinna til útlanda
þar sem hann fékk þau útgefin.
Hans þekktasta verk, „Moskva tal-
ar“, er stuttsaga sem fjallar um dag
einn sem opinber yfirvöld hafa helg-
að morðum um land allt.
Sovéskir menntamenn og félagar
í kommúnistaflokkum víðs vegar
um heim lýstu yflr mikilli skelfíngu
er réttarhöldunum yflr Daniel lauk.
Hið opinbera málgagn Pravda varði
Fátt í veginum fyrir
að Reagan náði North
Morðingjar Indiru
Gandhi hengdir
Nýju Delhí. Reuter.
TVEIR Indverjar, dæmdir fynr morðið á Indiru Gandhi, fyrrum
forsætisráðherra Indlands, voru hengdir í Nýju Delhí í gærmorgun
en mikil úrkoma og varúðarráðstafanir lögreglu komu í veg fyrir
að öfgamenn úr röðum síkha gætu gripið til hefndaraðgerða þegar
í stað, eins og þeir höfðu hótað.
Satwant Singh, annar tveggja
lífvarða Gandhi sem skutu hana til
bana 31. október árið 1984, og
Kehar Singh, sem dæmdur var fyr-
ir að skipuleggja morðið, voru
líflátnir í Tihar-fangelsi í Nýju-
Delhí og lauk þar með miklum
málaferlum sem höfðu staðið síðan
mennirnir voru dæmdir 22. janúar
árið 1986. Hinn árásarmaðurinn,
Beant Singh, var skotinn til bana
nokkrum sekúndum eftir morðið,
og annar meintur samsærismaður,
Balbir Singh, var sleppt úr fangelsi
í ágúst í fyrra.
Fangelsisyfírvöld, sem vildu ekki
að útför færi fram vegna ótta um
hefndaraðgerðir, létu þegar í stað
brenna líkin í fangelsinu og virtu
þannig að vettugi hinstu ósk Sat-
wants um að augu sín og önnur
líffæri yrðu notuð í lækningaskyni.
Ættingjar mannanna, sem fengu
ekki að vera viðstaddir hénginguna,
sendu hæstarétti beiðni um að fá
að minnsta kosti ösku mannanna.1
Hæstiréttur hefur fyrirskipað að
askan verði varðveitt á öruggum
stað þar til ákveðið verður hvað
gert verði við hana.
Mikil úrkoma í Norður-Indlandi
varð til þess að stuðningsmenn
síkha efndu ekki til mótmæla eins
og búist hafði verið við. Aðeins um
hundrað manns, aðallega ættingjar
og fréttamenn, söfnuðust saman
skammt frá fangelsinu og lögreglan
kom í veg fyrir að þeir kæmust að
fangelsisveggjunum. Síkhar í Nýju
Delhí og Punjab-ríki minntust heng-
ingarinnar með því að loka verslun-
um og skrifstofiim, auk þess sem
fram fór lestur á helgri bók síkha
í hofum þeirra.
leyniþjónustunni að gefa ekki upp
nöfn einstakra manna en eftir sem
áður er um mjög viðkvæm mál
að ræða. Þar að auki vill Hvíta
húsið ekki, afhenda Walsh sak-
sóknara ýmis skjöl, sem hann tel-
ur sig þurfa. Reagan forseti neit-
ar þvf þó, að leyndarskjaladeilan
hafí verið notuð til að unnt væri
að náða North síðar og segist
aðeins halda eftir upplýsingum,
sem honum beri skylda til að
standa vörð um.
Ákæruatriðin, sem líklega verð-
ur sleppt, eru tvö en ekki þijú
eins komið hefur fram og annars
vegar, að North hafi gerst sekur
um þjófnað og hins vegar um
samsæri. Það síðaniefnda á við
um vopnasöluna til írans og ólög-
lega ráðstöfun hagnaðarins til
skæruliða í Nicaragua.
Ákærumar, sem eftir standa,
eru svo sem æmar en ekki er víst,
að North þurfi að hafa neinar
áhyggjur af þeim. Lee Hamilton,
formaður fulltrúadeildamefndar-
innar, sem rannsakaði vopnasölu-
málið, segir, að ákvörðun Lawren-
ce Walsh saksóknara hafí ekki
komið sér á óvart því að mjög
erfitt hefði reynst að sanna sam-
særiskenninguna fyrir rétti. í
framhaldi af því sagði Orrin
Hatch, sem átti sæti í öldunga-
deildamefnd um vopnasölumálið,
að þegar samsærisákæran væri
frá, væri fátt í veginum fyrir því,
að Reagan náðaði North alveg.
Reuter
Jasbir Kaur, eiginkona Kehars Singhs, annars morðingja Indiru
Gandhi, fyrrum forsætisráðherra, sem hengdur var í fangelsi í
Nýju-Delhí í gær, og sonur þeirra Majinder Singh (t.v.) hrópa slag-
orð gegn ríkisstjórn Indlands fyrir utan fangelsið. Lögreglan hélt
ættingjum morðingjanna tveggja frá fangelsinu þegar hengingin fór
fram.
Indland:
SOVÉSKI andófsmaðurinn og
háðsádeiluhöfúndurinn Júlí
Daniel lést af völdum hjarta-
áfalls á heimili sínu í Moskvu 30.
desember sl. að sögn konu hans
Larisu Bogoraz. Daniel var á
sínum tíma dæmdur til fímm ára
fangelsis- og vinnubúðavistar.
Lokuð réttarhöld hófust í máli
Daniels nokkrum mánuðum eftir
að Níkita S. Khrústsjov þáverandi
Sovétleiðtoga var velt úr sessi. Er
litið á þau réttarhöld sem upphaf
harkalegra aðgerða Leonids Brez-
hnevs og félaga hans gegn andófs-
mönnum á sjöunda áratugnum.
Bókmenntagagnrýnandinn An-
drei D. Sinjavskíj, samstarfsmaður
Daniels, var einnig dæmdur til sjö
ára vinnubúðavistar. Sinjavskíj
Deilan um aðgang að leyniskjölum reynd-
ist saksóknaranum of stór biti í háls
Washington. Rcuter, Daily Telegraph.
OLIVER North olúrsti og helsti
sakborningur i vopnasölumál-
inu virðist hafa unnið mikinn
sigur í tilraunum sínum til að
koma í veg fyrir réttarhöld. í
fyrradag ákvað Lawrence
Walsh, sérlegur saksóknari í
málinu, að fara fram á það
dómarann, að helstu ákærunum
á hendur North yrði sleppt og
er búist við, að á það verði fall-
ist.
North er ekki enn laus ailra
mála en ákærumar, sem eftir
standa, em lítilvægari og talið er
víst, að lögfræðingar hans hætti
nú við að stefna þeim Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og Ge-
orge Bush, verðandi forseta, fyrir
réttinn. Má rekja þessa kúvend-
ingu til þess, að Walsh hefur talið
ógerlegt að komast yfír þá laga-
legu múra, sem einn lögfræðinga
Norths, Brendan Sullivan, hafði
hlaðið í kringum skjólstæðing
sinn.
í málavafstrinu fram til þessa
hefur Sullivan haldið því stað-
fastlega fram, að veijendunum sé
nauðsynlegt að fá aðgang að
40.000 leyniskýrslum og 90 hljóð-
ritunum. Bandaríska leyniþjón-
ustan hefur hins vegar brugðist
ókvæða við kröfunni og einnig
ríkisstjómin, sem segir, að með
Oliver North ofursti og fyrrum
ráðgjafí ríkisstjórnarinnar í
þjóðaröryggismálum.
því verði gerð opinber háleynileg
mál, sem varði hagsmuni þjóðar-
innar. Meðal þessara leyndarmála
em nákvæmar lýsingar á tilraun-
um til að fá bandaríska gísla í
Líbanon leysta úr haldi; lýsingar
á leynilegum aðgerðum, sem
North hafði afskiptj af, og afrit
af samræðum Reagans og ýmissa
þjóðarleiðtoga.
Dómarinn skar leyndarskjala-
fjöldann niður í 300 og heimilaði
dómsúrskurðinn á þeim forsendum
að rithöfundamir hefðu greinilega
misskilið eðli „sósíalísks lýðræðis“
í Sovétríkjunum.
Þegar Daniel var látinn laus úr
fangelsi, þar sem hann missti næst-
um alla heym, starfaði hann og
dvaldist í Kaluga og Moskvu og lét
af öllum andófsaðgerðum.
Frakkland:
Þráðlaust
símkerfi
aðári
París. Reuter.
FRAKKAR hyggjast starf-
rækja svokallað þráðlaust
símkerfi frá og með næsta
ári, að sögn talsmanns franska
landsímans, France Telecom.
Hinir þráðlausu símar, sem fyrir-
hugað er að nota, er ný kynslóð
farsíma. Notendur eiga þess kost
að hringja úr símtækjum sínum
innan ákveðinnar fjarlægða frá
miðstöð. Talsvert ódýrara mun
vera að starfrækja þráðlausa
símkerfíð miðað við hið svokallað
sellu-farsímakerfí.
Samkvæmt upplýsingum
franska landsímans hefur ekki
verið ákveðið hveijir koma til
með að starfrækja þráðlausa
símkerfíð þar í landi. Tvær sam-
steypur brezkra, franskra og
bandarískra rafeindafyrirtækja,
sem keppast um að fá að reka
samskonar símkerfi í Bretlandi,
Telepoint-kerfíð, þykja líklegast-
ar til að hreppa hnossið.