Morgunblaðið - 07.01.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989
ísrael:
Drápi á gyð-
ingi mótmælt
Jerúsalem. Reuter.
GYÐINGAR á hernumdu svæðunum í ísrael efndu í gær til mót-
mæla eftir að lík hafði fundist af ísraelskum leigubílstjóra, sem
skotinn var til bana. Hermenn leituðu að hugsanlegum sökudólgum
í þorpum Palestínumanna og lögregluyfírvöld sögðu að ekki væri
vitað hvort leigubílstjórinn hefði verið skotinn af stjórnmálaástæðum.
Leigubílstjórinn, sem var á saka-
skrá fyrir glæpi, fékk tvö skot í
öxlina. Lík hans fannst í fyrrakvöld
við veg skammt frá Yakir, þar sem
gyðingar búa. Hann var jarðsettur
Bandaríkin:
Verða reyk-
ingar gleði
armingjans?
Chicago. Reuter.
í Bandaríkjunum eru
reykingar að einangrast meir
og meir við þá þjóðfélagshópa,
sem lítillar menntunar hafa
notið og standa því að ýmsu
leyti höllum fæti efíiahags-
lega. Almennt heftir reykinga-
mönnum fækkað mjög mikið
vestra. Voru þeir 30% þjóðar-
innar 1985 en verða ekki nema
22% um aldamótin haldi þró-
unin áfiam.
FVá þessu er skýrt í vikuriti
bandarísku læknasamtakanna en
nú eru 25 ár liðin síðan banda-
ríski landæknirinn kvað upp úr
með það, að tóbaksreykingar
væru stórhættulegar heilsu
manna og gætu valdið krabba-
meini. í leiðara tímaritsins segir
núverandi landlæknir, C. Everett
Koop, að bandarísk og bresk tób-
aksfyrirtæki stundi það enn að
„breiða út sjúkdóma, fötlun og
dauða í þróunarríkjunum" og
beri ábyrgð á 300.000 mannslát-
um í Bandaríkjunum einum á ári
hveiju.
Starfsmenn bandarísku sjúk-
dómaeftirlitsstöðvarinnar segja,
að þótt reykingar hafí almennt
mikið minnkað, sé fækkun
reykingamanna „fimm sinnum
meiri meðal menntamanna en
annarra". Augljóst sé þó, að það
sé ekki aðeins menntunin, sem
ráði úrslitum, heldur einnig og
ekki síður þjóðfélagslegar að-
stæður og efnaleg velferð.
í gær.
„Þetta er alvarlegasta athæfið
sem hægt er að hugsa sér,“ sagði
Zvi Endel, leiðtogi gyðinga á Gaza-
svæðinu, í ísraelska útvarpinu.
„Jafnvel þótt þetta hafi ef til vill
ekki verið morð af stjórnmála-
ástæðum, verk hryðjuverkamanna,
virðist staðreyndin samt sú að auð-
veldara sé að ráða gyðinga af dög-
um en fyrr." Endel sagðist tala
fyrir hönd leiðtoga gyðinga á her-
numdu svæðunum, sem hafa verið
í hungurverkfalli í þijár vikur fyrir
utan skrifstofu ísraelska forsætis-
ráðherrans til að mótmæla öryggis-
leysi á hemumdu svæðunum eftir
að uppreisn Palestínumanna hófst
í desember árið 1987.
Uppreisnin hefur kostað fjórtán
Israela lífið, þar af tvo sem búa á
hemumdu svæðunum, og að
minnsta kosti 356 Palestínumenn
hafa týnt lífí.
*
Otryggbrú
Reuter
Brú yfír Macquarie-ána í bænum Wellington í Ástralíu hrundi í gær.
Tveir bílar fóm fram af brúnni en ökumenn þeirra sluppu með smá-
vægileg meiðsli.
Júgóslavía:
Fargjöld til
Þýskalands
í mörkum
Belgrað. Reuter.
ÞÚSUNDIR Júgóslava, sem ferð-
ast til Vestur-Þýskalands með
áætlunarbifi'eiðum, verða að
greiða fargjöldin í vestur-þýskum
mörkum, þar sem fyrirtækin, sem
eiga bifreiðirnar, vilja ekki taka
við júgósiavneskum dínörum, að
því er dagblað í Belgrað greindi
frá á fímmtudag.
í blaðinu, Politika Ekspres, sagði,
að fyrirtækin, krefðust greiðslu í
mörkum, enda þótt slík viðskipti
væm bönnuð samkvæmt lögum.
„Það er allt selt fyrir gjaldeyri
hér, jafnvel lambakjöt," er haft eftir
langferðabílstjóra í borginni Livno í
Bosníu.
Í fyrra nam gengisfall dínarans
gagnvart vestur-þýska markinu 78%
og verðbólgan í Júgóslavíu á árinu
1988 var 251,2%. Látlausar hækkan-
ir verðlags hafa neytt fyrirtæki til
að fara út í gjaldeyrisviðskipti í því
skyni að firra sig tjóni.
Um 600.000 Júgóslavar hafa at-
vinnutekjur í Vestur-Þýskalandi. Á
undanfömum tveimur ámm hafa
hundmð tollfijálsra gjaldeyrisversl-
ana verið opnaðar með löglegum
hætti í Jugóslavíu. Það er liður í
þeirri viðleitni stjómvalda að koma
höndum yfir sem mest af þeim gjald-
eyri, sem kemur erlendis frá.
Átök Bandaríkjamann og Líbýumanna:
Myndbandið tekur af öll tví-
mæli um líbýsku herþoturnar
-segir talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins
Washington. Reuter.
BANDARÍSK yfírvöld hafa birt myndbandsupptöku og ljósmyndir
af atburðinum á Miðjarðarhafí á miðvikudag þegar tvær banda-
riskar F-14 orrustuvélar skutu niður tvær líbýskar MiG-orrustuvél-
ar. Myndbandið, sem tekið var upp um borð í annarri F-14 vélinni,
sýnir aðra MiG-orrustuvél Líbýumanna springa í loft upp þegar hún
varð fyrir flugskeyti.
Vegna mikils hraða í upptöku
kemur ekki glögglega fram hvort
líbýsku ormstuþotumar hafí verið
vopnum búnar. Á stækkaðri ljós-
mynd sem tekin var af myndband-
inu sést móta fyrir hlutum undir
Murdoch kaup-
ir bókaútgáfii
London. Reuter.
STJÓRN skozka útgáfufyrirtækisins William Collins samþykkti í gær
að taka tilboði ástralska Qölmiðlakóngsins Ruperts Murdochs.
Tilboð Murdochs í Coliins-forlag-
ið hljóðar upp á 403 milljónir sterl-
ingspunda, eða jafnvirði 35,4 miilj-
arða íslenzkra króna. Stjóm fyrir-
tækisins ákvað að leggja til við hlut-
hafafúnd að því yrði tekið. Sú
ákvörðun var tekin eftir að News
Intemational, en svo heitir §öl-
miðlasamsteypa Murdochs, til-
kynnti að hún hefði á undanfömum
ámm keypt sem næmi 45,4% hluta-
bréfa í Collins og að auki 20,3%
hlutabréfa sem ekki fylgdi atkvæði.
Fulltrúi Murdochs sagði að út-
gáfufyrirtækið mundi lúta óháðri
stjóm er hafa mundi óskorað sjálf-
stæði til að móta stefnu þess í út-
gáfúmálum. Var sú yfírlýsing túlk-
uð sem tilraun af hálfu News Int-
ernational til þess að friðþægja
ýmsa helztu rithöfunda Coilins, sem
hótað hafa að rifta samningum
sínum ef Murdoch eignaðist forlag-
ið.
Af kunnustu rithöfundum for-
lagsins má nefna ferðasöguritarann
Eric Newby og spennusöguhöfund-
inn Hammond Innes. Það gefur
m.a. út Fontana og Flamingo-kilju-
flokkana, ýmiss konar orðabækur
og uppflettirit og Biblíuna. Það
keypti á sínum tíma útgáfuréttinn
að Perestrojku, bók Míkhafls Gor-
batsjovs, Sovétleiðtoga. Að sögn
talsmanns News Intemational
hyggst nýi eigandinn efla forlagið
og gera það eitt hið umsvifamesta
á sínu sviði f heiminum.
Murdoch hefur unnið að því öllum
árum í tæp átta ár að eignast Coll-
/ns-fyrirtækið. í haust fékk hann
óvæntan keppinaut í franska for-
laginu Groupe de la Cite. Forráða-
menn skozka fyrirtækisins eru
sagðir hafa vonazt til að franska
forlagið kæmi í veg fyrir að það
lenti í klóm Murdochs. Groupe de
la Cite féll hins vegar nýlega frá
því að yfírbjóða fjölmiðlarisann þar
sem hluthafar voru ekki einhuga
um að slást um Collins með þeim
hætti, einkum þar sem fyrir lá yfír-
lýsing frá Murdoch að hann mundi
ekki selja þeim frönsku þann hlut
í Collins er hann hefði þá þegar
komizt yfír.
væng og skrokk orrustuvélarinnar
og bandaríska vamarmálaráðu-
neytið telur einsýnt að þar sé um
flugskeyti að ræða.
Af myndbandinu, sem er sjö og
hálfrar mínútu langt, heyrast sam-
ræður bandarísku flugmannanna
um það leyti sem reyndu að forða
sér undan meintum árásum líbýsku
þotanna. Skömmu síðar heyrist sjó-
liði af flugmóðurskipinu John F.
Kennedy, sem fylgdist með flug-
skeyti hæfa líbýsku orrustuvélam-
ar, tilkynna: „Ovinaflugvél grand-
að.“
Talsmaður bandaríska vamar-
málaráðuneytisins, Dan Howard,
sagði á fundi með fréttamönnum
að myndbandið væri afleitt að gæð-
um en að sýndi engu að síður svo
ekki yrði um viilst að önnur MiG-
orrustuþotan var vopnum búin.
„Allt bendir til þess báðar flugvél-
amar hafí verið vopnaðar," sagði
hann.
Líbýsk stjómvöld héldu því fram
á miðvikudag að MiG-orrustuvél-
.... .yv*'Y- ' A
WSrfa&i** '
Reuter
Ljósmynd tekin af myndbandi sem sýnir þegar önnur líbýsku MiG-
orrustuvélanna flýgur fyrir framan F-14 orrustvél Bandaríkja-
manna. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að af myndinni
megi ráða að minnsta kosti önnur MiG-orrustvélanna hafi vérið
búin APEX- og APHID-flugskeytum.
amar hefðu verið óvopnaðar á eftir-
litsflugi þegar F-14 orrustuvélarnar
skutu þær niður um 80 km norður
af ströndum Líbýu.
„Um langt skeið hef ég ekki trú-
að orði af því sem Muammar Gadd-
afí hefur sagt,“ sagði Ronald Reag-
an á fimmtudag. „Flugmenn okkar
brugðust við í sjálfsvöm. Þeir gerðu
hið eina rétta,“ sagði hann.
Bandaríkin:
Lítið atvinnuleysi hækkar dollar
Washington, London. Reuter.
Atvinnuleysi i Bandaríkjunum í desember var aðeins 5,3% og hef-
ur ekki verið minna um 14 ára skeið. Urðu þessi tíðindi og líkur á
vaxtahækkun vestra til að hækka dollaragengið þrátt fyrir tilraunir
bandaríska og vestur-þýska seðlabankans til að hamla gegn því.
í desembermánuði urðu til launþegum fjölgað um 3,7 milljónir.
279.000 ný störf í öðmm greinum
en landbúnaði og aðallpga í ýmsum
þjónustugreinum. Atvinnuleysið var
þá aðeins 5,3%, var 5,4% í nóvem-
ber, og hefur ekki verið jafn lítið í
14 ár. Á einu ári hefur bandarískum
Allt bendir þetta til öflugs efna-
hagslífs en hagfræðingar hafa þó
af því sínar áhyggjur. A þenslutím-
um eykst neyslan og krafan um
hærri laun og þá er hætt við, að
verðbólgan komi í kjölfarið. Vegna
þess er talið, að þessi annars góðu
tíðindi verði til að flýta fyrir vaxta-
hækkun.
Bandaríski og vestur-þýski seðla-
bankinn reyndu að sporna við geng-
ishækkun dollarans með mikilli doll-
arasölu en hún virtist hafa lítil
áhrif. í gær fékkst rúmlega 1,81
vestur-þýskt mark fyrir dollarann
og 126,6 japönsk jen.