Morgunblaðið - 07.01.1989, Page 22

Morgunblaðið - 07.01.1989, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUG, :DAGUR 7. JANÚAR 1989 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Bankalög og nýr banka- stíóri Landsbanka * 113. grein bankalaga segir: „Bankastjórum, aðstoðar- bankastjórum og útibússtjórum er óheimilt að sitja í stjóm stofn- ana og atvinnufyrirtækja utan bankans eða taka þátt í atvinnu- rekstri að öðm leyti nema slíkt sé boðið í lögum eða um sé að ræða stofnun eða atvinnufyrir- tæki, sem bankinn á aðild að.“ Ákvæði þessara laga em af- dráttarlaus og ótvíræð. Hinn 3. janúar sl. tók nýr bankastjóri við störfum í Landsbanka Islands, Valur Amþórsson. Bankaeftirlit- ið sá ástæðu til að senda hinum nýja bankastjóra bréf, þar sem hann var spurður, hvort hann gegni störfum, sem samræmist ekki störfum hans sem banka- stjóra. Valur Amþórsson sagði í samtali við Morgunblaðið sl. fímmtudag, að þótt ákveðið hefði verið að hann tæki að forminu til við starfi bankastjóra um ára- mót um leið og Helgi Bergs lét af störfum hefði orðið að sam- komulagi, að hann hefði svigrúm fram. eftir mánuðinum til að ljúka öðmm störfum. Þótt Valur Amþórsson hafi formlega tekið við starfi banka- stjóra Landsbanka íslands er hann enn stjómarformaður Sambands ísl. samvinnufélaga. Hann er einnig stjómarformaður Olíufélagsins hf. og Samvinnu- trygginga og hann á sæti í stjómum fjölmargra annarra fyrirtækja. Margir mánuðir em liðnir frá því að ákveðið var í bankaráði Landsbanka íslands að ráða Val Amþórsson bankastjóra við Landsbankann. Hann hefur haft nægan tíma til þess að segja af sér störfum í stjómum hinna fjöl- mörgu samvinnufyrirtækja, sem hann hefur átt aðild að. Hann hefur einnig haft nægan tíma til þess að ljúka störfum sem kaupfélagsstjóri KEA á Akur- eyri. Jón Sigurðsson, bankamála- ráðherra, sagði í viðtali við Morgunblaðið í fyrradag að- spurður um þetta mál: „Svar mitt er ákaflega skýrt. í banka- lögum segir, að bankastjóri skuli ekki gegna starfi sem stjómar- maður eða stjórnandi í atvinnu- rekstri eða að stunda á annan hátt atvinnurekstur í fyrirtækj- um.“ Bankamálaráðherra bætti því við, að það væri skylduverk bankaráðanna að sjá til þess að bankastjórar fullnægi þessum skilyrðum og kvaðst hafa bent formanni bankaráðs Landsbank- ans á það. Jón Sigurðsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær: „I þessu máli er ekkert ha og humm og kannski. Annað- hvort er Valur Arnþórsson bankastjóri eða hann er það ekki.“ Bankaráð Landsbankans sendi frá sér fréttatilkynningu í gær um þetta mál. Þar er vísað til bókunar, sem bankaráðið gerði hinn 14. júlí sl. þegar ákveðið var að ráða Val Amþórs- son, bankastjóra Landsbankans frá 1. janúar 1989, „enda full- nægi hann III. kafla laga nr. 86/1985 um viðskiptabanka". Síðan segir í fréttatilkynningu bankaráðs Landsbankans: „Eins og þessi samþykkt ber með sér var ráðgert að Valur tæki við stöðu sinni við bankann 1. jan- úar 1989. Nú hefur komið í ljós, að honum hefur ekki tekizt að losa sig að fullu úr fyrri störfum og þar með ekki að fullnægja skilyrðum bankaráðs og laga um viðskiptabanka. Hann mun því ekki taka við stöðu bankastjóra fyrr en þeim skilyrðum er full- nægt, en nú er ákveðið að það verði 1. febrúar nk.“ Jafnframt fói bankaráðið einum af aðstoð- arbankastjórum bankans að gegna störfum aðalbankastjóra til næstu mánaðamóta. Allt er þetta mál með ólíkind- um. Valur Amþórsson tók form- lega við starfi bankastjóra í árs- byrjun. Honum var þá ljóst, að hann hafði ekki uppfyllt laga- ákvæði um að segja af sér öllum þeim störfum, sem honum bar að hverfa frá lögum samkvæmt. Bankaráði Landsbankans hlaut að vera það ljóst þá þegar, að hinn nýi bankastjóri hafði ekki uppfyllt þessi lagaákvæði. Samt sem áður var tekið á móti honum í Landsbanka íslands sem eftir- manni Helga Bergs. í fréttatil- kynningu bankaráðs Lands- bankans kemur ekkert fram um það, hvort Valur Amþórsson hefur sagt lausu starfi sínu sem bankastjóri Landsbankans, sem hann tók við í ársbyrjun og hvort hann hefur verið ráðinn til þess á ný frá 1. febrúar. Slík aðgerð ein mundi fullnægja ákvæðum laga, sem þó hafa verið brotin nú þegar. Hvorki Valur Arnþórsson né bankaráð Landsbanka íslands geta haft að engu lög, sem Al- þingi Islendinga hefur sett, eða reynt að komast framhjá þeim með yfírklóri. Afgreiðsla þessa máls er ófullnægjandi með öllu og þeim aðilum til hneisu, sem að því hafa staðið. Er Valur Arnþórsson bankastjóri Lands- banka íslands eða er hann það ekki? Samvinna A-flokk- anna kallar á borg- aralegt samstarf eftir Þorstein Pálsson A öndverðum vetri vakti það nokkra athygli að umræður hófust um hugsanlega sameiningu Al- þýðubandalags og Alþýðuflokks. Sameiningarmálið var síðan tekið til sérstakrar umfjöllunar í tengsl- um við flokksþing Alþýðuflokksins. Því var lýst yfir að sögulegur ágreiningur flokkanna væri ekki lengur fyrir hendi. Þar með var gefíð til kynna að málefnaleg rök væru ekki lengur fyrir aðgreiningu í tvo flokka. I ljósi þessara yfirlýsinga þurfti það ekki að koma á óvart að for- menn Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags skyldu gera það nýárs- heit að efna til sameiginlegra funda víða um land. Þar á að plægja jarðveg fyrir sameiningu flokkanna. Ymsum þykir þó sem þetta beri fremur keim að pólitísk- um uppákomustíl en alvöru. Kúvending til vinstri Sumir hafa orðið til að gagnrýna þetta uppátæki, en formennirnir hafa bitið gagnrýnendurna af sér með því að segja að í þessu tilviki séu þeir óháðir flokkum sínum. Þó að sumum finnist það kyndugt að formenn stjómmálaflokka geti lýst því yfir að þeir séu í einstökum tilvikum óháðir flokkum sínum virðist það vera viðurkennd mál- flutningsleikfimi innan nýja Al- þýðubandalagsflokksins. Auðvitað er þessi fundaherferð pólitískt aukaatriði, hitt er meira alvörumál að þessir flokkar hafa í vetur sameinast um vinstrisinnaðri kúvendingu í íslenskum efnahags- málum en dæmi eru um frá því á kreppuárunum. Engum dylst að Alþýðubandalagið hefur haft und- irtök við mótun stjómarstefnunnar og Alþýðuflokkurinn hefur látið sér það vel líka, væntanlega í þeim tilgangi að bijóta niður gamla múra sögulegs ágreinings. Og Framsókn hefur svo fylgt með. Ríkisstjómin fór af stað með yfirlýsingu um að horfið yrði frá viðurkenndum vestrænum aðferð- um við stjóm efnahagsmála. I ályktun flokksþings Alþýðuflokks- ins um efnahags- og atvinnumál sagði í fyrirsögn að gjalda bæri varhug við og mikilli áherslu á einkaframtak. Og í ályktuninni sjálfri var að auki tekið fram að ríkisrekstur og samvinnurekstur ættu að skipa sama sess og einka- rekstur í íslensku atvinnulífi. Segja má með nokkrum sanni að með þessu hafi hinum sögulega ágrein- ingi verið mtt úr vegi. Endurtekin tilraun Sameiningarhugmyndir af þessu tagi em ekki nýjar af nálinni. Þær vom síðast reyndar í fullri alvöru á þeim tíma sem Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna störfuðu með hvað mestum þrótti. Núver- andi formenn Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags vom báðir forystu- mann og frambjóðendur fyrir þau samtök, annar kominn úr Alþýðu- bandalaginu en hinn úr Framsókn- arflokknum. En Magnús Kjartans- son og Lúðvík Jósefsson höfðu ekki á þeim tíma áhuga á að yfir- taka Alþýðuflokkinn og Gylfi Þ. Þorsteinn Pálsson „ Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn hafa með dyggum stuðningi Framsóknarflokksins komið fram ýmsum grundvallarstefnumál- um Aiþýðubandaiags- ins í efiiahags- og at- vinnumálum. Það er hinn eðlilegi undanfari aukinnar samvinnu og síðar samruna A-flokk- anna. Borgaraöflin verða nú að snúast gegn þessari þróun með aukinni samvinnu sín á milli á pólitíska svið- inu.“ Gíslason og Benedikt Gröndal stóðu þá dyggan vörð um fijáls- lynda jafnaðarstefnu og vom ekki tilbúnir til að fóma henni. Nú em hugmyndasmiðir sam- einingarinnar úr Samtökum fijáls- lyndra og vinstri manna orðnir formenn Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags. Það skýrir hversu auð- velt Alþýðuflokkurinn hefur átt með að laga sig að stefnu Al- þýðubandalagsins á undanförnum mánuðum. Og nú er uppgjöf Al- þýðuflokksins í fyrri ríkisstjórn auðskilin. Þessir tveir flokkar hafa samein- ast um að hindra almennar aðgerð- ir til þess að treysta undirstöður útflutningsframleiðslunnar og samkeppnisiðnaðarins. I stað al- mennra efnahagsráðstafana sem treysta rekstrargmndvöll vel rek- inna fyrirtækja er nú verið að byggja upp umfangsmikið sjóða- kerfí, sem á að auðvelda stjóm- völdum að ná undirtökum í atvinn- ulífinu Þegar hefur einum slíkum alræmdum sjóði verið komið á fót og nú hafa verið kynntar tillögur um að koma upp þremur sjóðum af þessu tagi til viðbótar. Augljóst markmið Markmiðið er augljóst: Fyrst á að knésetja fyrirtækin, síðan á að segja við stjórnendur og starfsfólk: Þið ráðið augljóslega ekki við þetta verkefni og því verða sjóðir ríkis- valdsins að taka yfir. Flestir sjá í hvert óefni er komið fyrir íslensku atvinnulífi þegar íjarstýra á hinum kraftmiklu fyrirtækjum í sjávarút- vegi og iðnaði frá sjóðsstjóraskrif- stofum í Reykjavík. Annar þáttur í þessari vinstri herferð gegn atvinnulífinu felst í nýjum skattaálögum. Þegar viður- kennt er að vandi atvinnufyrir- tækjanna felst fyrst og fremst í því að þau búa við of lítið eigið fé em lagðir á skattar til þess að koma í veg fyrir að þeirri þróun verði snúið við. Nýju skattamir draga einnig úr möguleikum til fíárhagslegrar og tæknilegrar end- urskipulagningar og þeir hvetja til óþarfa fíárfestinga. Og nýju hug- myndimar um sjóðakerfið byggjast á tillögum um nýtt aðstöðugjald á sjávarútveginn og að stigin verði fyrstu skrefín í auðlindaskatti á höfuðatvinnuveginn. Engin dæmi eru um aðra eins hækkun á sköttum einstaklinga eins og nú hefur verið ákveðið. Þar er um að ræða hækkun á tekjus- köttum, eignasköttum, sköttum á byggingarefni, húsbúnað og inn- réttingar og ýmsum öðrum neyslu- vörum, svo og hækkun á sköttum á bensín og bíla. Og þannig mætti lengi telja. Nýju skattamir leggjast með mestum þunga á fólk með miðlungstekjur og lágar tekjur. Þannig eru skattleysismörk í nýja staðgreiðslukerfinu lækkuð og sú trygging sem staðgreiðslulögin frá 1987 fólu í §ér um hækkun per- sónuafsláttar, bamabóta og sjó- mannaafsláttar i samræmi við al- mennar verðlagsbreytingar felld úr gildi. Framtíðarmarkið er að hækka tekjuskatta með því smám saman að rýra þessa afsláttar- og bótaliði í skattalögunum. Ríkisstjórnin ein virðir ekki verðstöðvun í tíð síðustu ríkisstjómar tókst að lækka nafnvexti úr u.þ.b. 40% niður í 25%. Sú ríkisstjórn setti •einnig á tímabundna verðstöðvun. Það var svo ákvörðun núverandi ríkisstjómar að framlengja þessa verðstöðvun og í samræmi við það hafa nafnvextir lækkað nokkuð til viðbótar en engin lækkun orðið á raunvöxtum. Verðstöðvunin átti að skapa eðlilegt svigrúm til að- gerða í efnahags- og atvinnumál- um. Launþegar hafa möglunar- laust tekið á sig umtalsverða kjara- skerðingu og atvinnurekendur hafa tekið á sig umtalsverðar kostnaðarhækkanir á þess að setja þær út í verðlagið. Fjármálaráð- herra til að mynda staðfest að kaupmenn hafí ekki komið áhrifum septembergengisbreytingarinnar út í verðlagið heldur borið þann kostnað sjálfír. Þannig hafa allir í þjóðfélaginu tekið höndum saman bæði launa- fólkið og atvinnurekendur. Sá eini sem hefur vikið sér undan verð- MÞBUBUBIB STOFNAD Formvnn A llokk.n., JOn B.ld.in H.nnlb.l..on og Ól.lur R.gn.r Onm..on lunduðu liMvglv I g». I ul.nrtkl.ráðun.^lnu þ.r ..m ••mvtginlvg lund.h.rl..ð ... .nd.nl.g. áknðln og .kipulðgð. „PM.I lund.L.ó .r .ndlrlnn . lotliðlnnl," >»gi. Jðn B.ldrln «lð Alþýðublaölð. A mynd/EOL. „Á rauðu Ijósi" — Upphaf sameiningar A-flokkana? JÓN BALDVIN OG ÓLAFUR RAGNAR I SAMEIGINLEGA FUNDAHERFERÐ Jún Baldvin: „Endirínn i forliðinni“ — Viðbrögð foryslusveita flokkana neikvœð Formenn A llokk.nn., Jðn Beldvin H.nnlb.l.ton og Ól- alur Ragnar Orímt.on Ak.éðu endanlaga é lundi i ulanríkltréðunayllnu tiðdeg it i gar að leggj. upp i tem- eiglnlega lundaherterð um land alll i janúarménuðl. Fundirnir tem eru étla talt- Int i tyretu umlerð. yerða haldnir dagana 14.-28. januar, og eru ollum opnir. Funda- herleröin. tem ber ylirtkrítl- ina „A rauöu Ijötl,* er lyrtt og Iremtl larin III að kanna viðbrögö vlð þeirrl hugmynd að tamelna Alþýðullokk og Alþýðubandalag og ttolna tlðran jatnaðarmannallokk og vekja umraöu um Iramlið vlnttrlhreylingar é itlandi. endirinn é tortiðlnnl,* tagir Jðn Baldvln Hannibaltton lormaður Alþýðullokktlnt við Alþýðublaðiö um lyrirhugaöa herlerð þeirra ólalt Ragnart. „Nú er tpumingunum beint III Iramtiðarinnar. Vlð erum Ivelr loimenn llokka tem e.- um litbúnir að tpyrja tpum- Inga og tvara þeim og von- umat lil að lundarmenn téu einnig reiöubúnir að gera hlð tama. Vlð vlljum kanna III Mitar, hvorl grundvöllur té jalnvel ttmeinlngu A-llokkana og viljum velle þelnl umr.edu III gratrðlarínnar með tlikri lundalerð.* Jðn Baldvin tegir við Al- þýðublaölð að tpurningarnar téu margar „Elnt og hvort Slalin té ennþé hér? Er ólal- ur Ragnar krali? Er Alþýðu- bandalagið bara kralar? Er Alþýðubandalaglð gengið i NATO? Er Gorbaltjov orðinn kratl? Var Jðn Baldvin marx itU? Er Jðn Baldvin haegri krati? Er hann Iriðarsinni? Eða er hann orðlnn þjððnyt- ingartinni? Er verkalýðt- hreylingin dauð? Er lortiðin i ðtku? Er tramtiðtn túper- kralallokkur?* Jðn Baldvin tegir ennlrem ur að lyrtlu vtðbrögð þelrra alþyðullokktmanna tam raell hali við tig, téu mjög nei- kvaeð: „Það vlrðatt allir é mðll þestari lundaharlerð okkar Ólalt Ragnart.* Ólalur Ragnar Grimtton tal lund Iramkveemdatljðrn. ar Alþýöubandalagtint i g»r- kvðldi Samkvaeml helmild- um Alþýöublaðtlnt vc-u vlð- brðgð Iramkvaemdatljðmar- innar við lyrirhugaðri lunda- terö þeirra Jðnt Baldvint einnlg neikvaeö. og tormaðut- Inn varaður við aö gela með þettu klolið Alþýðubanda lagið tem nú vaeri aö né tér elllr vaeríngar undanlatinna mittera. Ekkl néöitl i Ólal Ragnar vegne þetta mélt. tr tegir 14. januar Ita- ’, 15. Janúar Akranet, 19. |anúar Vetlmannaeyjar. 20. janúar Höln i Homatiröl. 21. januar Netkauptlaður, 22. januar Sigluljörður, 2S. janú- ar Akureyrl og 28. janúar Halnarljörður. stöðvuninni er hinn nýi forystu- maður um sameiningu vinstri manna, formaður Alþýðubanda- lagsins og fjármálaráðherra, Ólaf- ur Grímsson. Þær ráðstafanir sem hann hefur beitt sér fyrir upp á síðkastið leiða nú til nýrra verð- bólgusprengingar. Skattahækkan- imar munu þannig valda umtals- verðum verðhækkunum, þrátt fyrir verðstöðvun. Verðbólga hefur nán- ast engin verið að undanfömu en augljóst að hún fer vel yfír 20% næstu 3 mánuði, einvörðungu vegna aðgerða ríkisstjómarinnar. Það gerist ekki vegna þess að laun- þegar hafa knúið fram launahækk- anir eða katipmenn ýtt kostnaðar- hækkunum út í verðlagið. Engin dæmi eru um að verðbólga hafi rokið jafn mikið upp einvörðungu vegna ákvarðana ríkisstjómar. Alþýðubandalagið hefúr undirtökin Af öllu þessu má glöggt ráða að hér situr býsna harðsnúin vinstri stjórn, þar sem formaður Alþýðubandalagsins hefur augljós undirtök. Bæði Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa orðið að viðurkenna neitunarvald Alþýðubandalagsins um samninga við erlenda aðila um stækkun ál- vers og í framhaldi af því upp- byggingu nýrra stórvirkja. Og Al- þýðubandalagið hefur áskilið sér neitunarvald um hugsanlegan varaflugvöll sem byggður yrði í samvinnu við Atlantshafsbanda- lagið. Stefna Alþýðubandalagsins í utanríkis-, varnar- og öryggismál- um hefur dagað uppi eins og nátt- tröll í þeim miklu jákvæðu breyt- ingum sem orðið hafa í alþjóða samskiptum á undanfömum miss- emm. I þeim efnum hefur stefna lýðræðisríkjanna orðið ofan á og hinir nýju leiðtogar í Sovétríkjun- um hafa gert sér grein fyrir því að beita sér nú fyrir breytingum sem eru aðlögun að vestrænum viðhorfum. Alþýðuflokkurinn hefur enn sem komið er haldið óbreyttri stefnu í utanríkismálum, en því er ekki að leyna að ýmsir óttast að hann kunni einnig að kúvenda afstöðu sinni á þessu sviði rétt eins og í efnahags- og atvinnumálum í þeim tilgangi að tryggja samrunann við Alþýðubandalagið. Samstarf borgaraaflanna brýn nauðsyn Engum vafa er undirorpið að borgaraleg fijálslynd öfl eru í mikl- um meirihluta á íslandi. Þau eru ekki einungis að finna í Sjálfstæð- isflokknum og Borgaraflokknum, heldur einnig í Framsóknarflokkn- um og meðal stuðningsmanna Al- þýðuflokksins og jafnvel Kvenna- listans. Ef hér á að byggja upp fijálslynt þjóðfélag og koma í veg fyrir að þau vinstri viðhorf, sem nú ráða ríkjum, verði allsráðandi er nauðsynlegt fyrir borgaraöflin að hefía aukið samstarf sín á milli. Þó að mikill vandi steðji að íslensk- um atvinnuvegum, búa íslendingar við mjög góð skilyrði um þessar mundir og hafa því alla möguleika á að vinna sig út úr erfiðleikunum og heíja nýja framfarasókn. Alþýðubandalagið og Alþýðu- flokkurinn hafa með dyggum stuðningi Framsóknarflokksins komið fram ýmsum grundvallar- stefnumálum Alþýðubandalagsins í efnahags- og atvinnumálum. Það er hinn eðlilegi undanfari aukinnar samvinnu og síðar samruna A- flokkanna. Borgaraöflin verða nú að snúast gegn þessari þróun með aukinni samvinnu sín á milli á pólitíska sviðinu. Það er tvímæla- laust mikilvægasta pólitíska verk- efnið sem við blasir í byijun þessa árs. Það kann að verða dýrkeypt að gefa Alþýðubandalagsflokkun- um tækifæri í tvö og hálft ár í viðbót til þess að grafa undan íslensku atvinnulífi og koma hér á ríkisforsjárstefnu í gegnum marg- brotið sjóðakerfí. Höfundur er formaður Sjálfstæð- isúokksins. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Iran: Kannskí menn verði að fara að huga aftur að vatnsmelónunum til að tjá sig innan þess ramma sem trúin og byltingin og hagsmunir þjóðarinnar setja okkur, er sjálf- sagt og eðlilegt og bein krafa hvers einasta rnanns." Þetta er dirfsku- lega mælt í klerkaveldi írans, en svo virðist sem Montazeri erkik- lerkur og andlegur arftaki Kho- meinis og hinn mesti afturhalds- í FEBRÚAR eru tíu ár liðin frá byltingunni í íran. Tveir atburðir — einn sem er liðinn og annar yfírvofandi — hljóta fyrr en sfðar að neyða stjórnendur landsins til að horfast í augu við framtíðar- skipan þess kerfís sem var innleitt f landið eftir að keisarinn var rekinn úr landi. Með lokum striðsins við íraka er einn helsti samein- ingarþáttur þjóðarinnar úr sögunni, en hins er beðið með mismik- illi óþreyju að Khomeini gefi upp öndina — og vegna þess að þrátt fyrir ellihrumleika Khomeinis heldur hann öllum þráðum hins and- lega og veraldlega valds í gömlum höndum sinum. Við fráfall hans munu lfnur skýrast, en þá gæti einnig brostið á heiftúðleg valdabar- átta. í grein Kambiz Foroohar, i janúarhefti tfmaritsins The Middle East veltir greinarhöfundur fyrir sér ástandi og horfíim i íran. Við þessa grein er stuðst hér. Það er engu líkara en Khomeini geti ekki dáið og þó hafa fregnir um að hann væri við dauð- ans dyr verið áleitnar mjög síðustu tvö ár og raunar lengur. En þetta leiðir óneitanlega til þess að stjóm- málalífíð í Teheran er i algjörum ruglingi. Á meðan Khomeini er lífs er hann eins og fyrr segir leiðtogi þjóðarinnar. En hann virðist nota vald sitt til að neita að horfast í augu við þá valdastreitu sem löngu er hafin. Þar með lætur hann einn- ig hjá líða að takast á við nokkum skapaðan hlut. Með því að fullyrða sýknt og heilagt að eining ríki verð- ur ekkert útkljáð og úlfúðin fer vaxandi og stjómleysið kemur æ nöturlegar í ljós. Khomeini hefur ekki fengist til að viðurkenna að nú að loknu Flóastríðinu sé ástæða til að huga að stjómunarmálum, sem vom látin sitja á hakanum meðan það stóð yfir. Þó svo að hinir ýmsu keppinaut- ar um hin andlegu og jarðnesku völd hiki ekki við að skara eld að einni köku, treystir enginn sér til að ganga fram fyrir skjöldu og taka af skarið. Þó svo að þeim sé flestum orðið ljóst að Khomeini sé gersamlega ófær um að ráða einu eða neinu af raunsæi, hvað þá held- ur viti. En menn óttast einnig að með því að bregða fyrir hann fæti gætu þeir vakið upp viðbrögð, langtum hættulegri en þau sem yrðu þegar hann loksins safnast til feðra sinna á eðlilegan hátt. En flestum ráðamönnum í íran er ljóst — hvort sem þeir em aftur- haldssinnar eða strangtrúaðir múll- ar, að þetta ástand fær ekki stað- ist til lengdar. Þó ekki væri nema fyrir það að efnahagur landsins er í rúst eftir langt stríð og vegna þess hve margir menntamenn og handverksmenn flýðu íran eftir byltinguna. Þá hefur íran búið við nánast algera alþjóðlega einangmn seinni ár, vegna afstöðu Khomeinis erkiklerks til Vesturlanda sem kommúnistalanda. Nú hefur komið fram í fréttum síðustu mánuði, að íranir em að teygja sig eilítið í áttina til bæði Frakka og Rússa og nokkrir tilburðir em til að bæta samskipti við Bretland og nokkur önnur Evrópulönd. Allt er þetta meira og minna gert í blóra við vilja Khomeinis og þarf því að sýna fyllstu aðgát. Rafsanjani, forseti íranska þingsins, hefur gengið hvað lengst í tilraunum til að fá landa sína til að skilja hve brýnt er að reyna að koma einhveiju vitlegu skipulagi á stjómun efnahagsmála, taka upp samskipti á ný við önnur lönd og hann hefur verið talsmaður meira frelsis. Hann sagði nýlega „frelsi Khomeini Fjöldi fólks hefur flosnað upp úr sveitum og sest að i bæjunum og býr við bág kjör Rafsanjani seggur, hafí einnig gert sér grein fyrir þessu. Hann tók undir orð Rafsanjanis og sagði að gætu íran- ir ekki þolað að hlýða á skoðanir sem væm andstæðar eigin skoðun- um, gæti svo farið að stór voði væri á ferðum. Meðal almennings gætir mikillar þreytu og vonleysis með ástandið. Varla er sú fjölskylda í landinu sem ekki hefur misst einhveija nána ættingja í löngu og hatrömmu stríði. Smátt og smátt breyttist viðhorf fjölskyldna sem fögnuðu því framan af að fá að senda syni til vígvallarins og syrgðu þá ekki fallna, vegna dýrðarljóma píslar- vættisins. En eftir því sem fleiri og fleiri fóma var krafist og kon- ur, ung böm og gamalmenni sultu heilu hungri af því að það var eng- inn til að skipuleggja né halda neinni framleiðslu gangandi, fór að minnka dýrðin. Margir vom beiskir yfir því að ekki var staðið við heitstrengingar byltingarvarðanna um að skipta upp landi milli smábænda. Aðeins þijú prósent af ræktuðu landi hafa verið afhent fátækum. Samdráttur í landbúnaði hefur orðið svo geig- vænlegur að framleiðsla hefur farið úr 21 prósenti í 12 prósent á árinu 1987. Iðnaður landsins er í rústum, hverri verksmiðjunni af annarri hefur verið lokað. Fyrst kom til að mjög margir iðnlærðir menn flýðu eftir byltinguna og engir vom þjálf- aðir í þeirra stað. Verst er ástand- ið í olíuiðnaðinum og þetta má einn- ig rekja til svipaðra ástæðna. Nú em 20 olíuvinnslustöðvar en vom 60 fyrir byltinguna. Efnahagsmál hafa aldrei verið á áhugasviði Khomeinis, það hefur beinlínis farið í taugamar á honum ef menn hafa haft uppi gagnrýni á það hve mjög hafi dregið úr matvælaframleiðslu í íran. „Bylt- ingin snýst um háleitari markmið en verð á vatnsmelónum," hreytti hann einhveiju sinni út úr sér. En nú í kjölfar endaloka stríðsins milli írans og íraks, þegar byltingar- mennimir em sundraðir og múll- amir sjálfum sér sundurþykkir í boðun guðsorðsins, flest er í kalda- koli og þúsundir svelta vegna þess að matvælaframleiðsla hefur verið látin sitja á hakanum — þá gæti verið að menn fæm að íhuga í fullri alvöm að það væri vitið meira að snúa sér að ræktun vatnsmelóna á ný. Þótt guðsorð geti verið kjamgott er það ekki saðsamt til lengdar, eitt sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.