Morgunblaðið - 07.01.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989
35
Helga Þórodds-
dóttir — Minning
Fædd 20. júní 1910
Dáin 1. janúar 1989
Sú harmafregn harst mér á ný-
ársdag að elskuleg amma mín,
Helga Þóroddsdóttir, hefði látið
lífíð af slysförum. Svo fljótt, svo
skjótt. Sár söknuður nístir hjörtun
og minningarnar streyma að.
Amma mín fæddist að Myrkár-
dal í Hörgárdal 20. júní 1910. Hún
var dóttir hjónanna Þóreyjar Sig-
urðardóttur, sem fæddist að Sám-
stöðum í Eyjafírði 27. desember
1889 og Þórodds Magnússonar
sem fæddist að Ásgerðarstaðaseli
í Hörgárdal 29. júní 1885. Systkini
ömmu eru: Hólmfn'ður, Jóhanna
(lést 17 ára), Bolli, Þór, Njáll, Sig-
riður, Aðalheiður og Svanhildur.
Eiginmaður hennar var Skúli Ein-
arsson, útgerðarmaður frá Sandi,
Aðaldal, S-Þing.
Böm þeirra eru: Halla Þórey
Skúladóttir, maki Jón V. Guðjóns-
son. Áður gift Jóhannesi Jörunds-
syni, látinn; Skúli Skúlason, maki
Helga Ingólfsdóttir; Sigurfljóð
Skúladóttir, maki Guðmundur
Tryggvason; yngsta barn ömmu
er Elsa Björk Ásmundsdóttir. Fað-
ir hennar er Ásmundur Sigurðsson.
Maki Þorsteinn S. Ásmundsson.
Margs er að minnast úr starfs-
ævi ömmu en hér skal aðeins stikl-
að á stóru. Árið 1940 fluttist hún
að Laugarvatni og réðst þar að
mötuneytinu, fyrst sem bakari og
síðar sem yfírmatsveinn. Starfaði
hún þar í fjölda ára með miklum
dugnaði oft við hin erfíðustu skil-
yrði við að útvega matföng að
vetri til handa mörg hundruð nem-
endum að Laugarvatni. Amma hóf
síðan störf hjá samvinnuhreyfíng-
unni þar sem hún starfaði óslitið
til þess dags er hún lét af störfum
vegna aldurs. Hún hóf störf sem
matráðskona við Samvinnuskólann
á Bifröst veturinn 1955—1956.
Árið 1956 réðist hún sem yfírmat-
sveinn til mötuneytis Sambands
íslenskra samvinnufélaga á Sölv-
hólsgötu í Reykjavík, og starfaði
þar til síðla árs 1977. Þeir sem
þekktu til ömmu í starfí lofuðu
hana ætíð fyrir staka ræktarsemi,
reglusemi og dugnað.
Þegar ég sting niður penna og
rita þessi fátæklegu orð er mér
efst í huga að þakka henni ástsam-
lega fyrir alla hennar hjartahlýju
og gæsku sem hún veitti mér í
gegnum árin. Hún hafði ætíð
brennandi áhuga á að fylgjast með
bömum og barnabömum bæði í
starfí og leik. Hún hafði ekki síður
áhuga á því að fylgjast með allri
þróun sem átti sér stað bæði í þjóð-
félaginu og á æðri sviðum. Þær
vom ófáar stundimar sem hún
átti með okkur þar sem við rædd-
um um öll heimsins mál. Amma
var fróðleiksfús og víðsýn svo unun
var að eiga með henni stund. Henni
féll aldrei verk úr hendi þó hún
væri hætt lífsstarfi sínu. Alltaf var
eitthvert verk að vinna og hún
stefndi ótrauð og full bjartsýni inn
í framtíðina.
Það var geislandi birta sem
umvafði ömmu þegar við systkinin
heimsóttum hana og áttum með
henni yndislegt desemberkvöld.
Það var okkar hinsta kveðjustund
á heimili hennar, þó ekkert okkar
óraði fyrir að endalokin væm
skammt undan. Minningamar ylja
manni um hjartarætumar, því slík
var amma. Hún var kjarkmikil
kona og baráttuglöð og óhrædd
að takast á við hið óþekkta. Hún
trúði því að hver maður hefði sinn
vitjunartíma og guð einn réði þar
um. Hún hafði sagt okkur að ósk
hennar væri sú að deyja án þess
að þurfa að líða þjáningar í ell-
inni. Ekki vildi amma vera upp á
aðra komin heldur vera sjálfstæð
meðan hún lifði. Hún trúði því
einnig að dauðinn væri upphaf nýs
lífs og maðurinn hyrfi til frekari
starfa á æðri sviðum.
Nú þegar ég kveð elsku ömmu
mína hinsta sinni, þá bið ég algóð-
an guð að vemda hana og blessa,
að hann umvefji hana birtu sinni
og yl. Áfram mun hún lifa í hugum
þeirra og sál, sem þekktu hana.
Að fullu verður hún ekki frá okkur
tekin.
Fari elskuleg amma mín heil til
framandi yndis stranda.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinarskilnaður viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast, •
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar,
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum,
þér síðar fylgja í friðarskaut.
(V. Briem.)
Sveinfríður Jóhannesdóttir
Karólína Páls-
dóttir - Minning
Fædd 14. april 1892
Dáin 29. desember 1988
Hver fögur dyggð í fari manns
er fyrst af rótum kærleikans.
Af kærleik sprottin auðmýkt er,
við aðra vægð og góðvild hver
og friðsemd hrein og hógvært geð
og hjartprýði stilling með.
(Kingo-sb 1886 - H. Hálfd.)
Þegar ég sest niður til að skrifa
um ömmu mína fáein kveðjuorð
kemur upp í hugann sú hlýja og
umönnun sem hún sýndi mér. Enda
var alltaf hægt að leita til hennar.
Hvers manns vanda vildi hún leysa.
Eg á margar kærar minningar um
návist ömmu, er hún leiddi mig út
í lífið og gaf mér það besta sem
hún gat látið í té.
Ég veit að sterk trú hennar hjálp-
aði mörgum til að öðlast frið. Það
var ein af stóru gjöfunum, sem hún
gaf mér.
Megi sá er öllu ræður fylgja
ömmu Karólínu á ókunnum slóðum.
Mér er það afar kært að geta orðið
við þeirri beiðni hennar að flytja
hana til hinstu hvílu í sveitinni sem
henni var svo kær.
Megi Guð varveita alla afkom-
endur hennar. Útför Karólínu fer
fram frá Prestbakkakirkju í dag,
laugardag.
Lárus Ragnarsson
Látin er í hárri elli hún amma
mín blessunin. Hún var fyrir mörg-
um árum búin að ákveða að hún
skyldi jarðsett austur á Prestbakka
á Síðu og í dag verður hún lögð til
hinstu hvíldar í sveitinni sinni fögru
austur í Skaftafellssýslu.
Amma Karólína fæddist að Hofí
í Öræfum, fjórtánda dag aprílmán-
aðar árið 1892, hún hefði því orðið
97 ára á þessu nýja herrans ári.
Foreldrar hennar voru þau hjónin
Jóhanna Jónsdóttir og Páll Jonsson.
Amma var þeirra þriðja bam í röð
fjórtán systkina, en þau náðu flest
háum aldri og eru nú fjögur þeirra
á lífí.
Amma dvaldi í föðurgarði á Hofi
til 25 ára aldurs, en þá fór hún sem
vinnukona til Stefáns á Kálfafelli í
Fljótshverfi. Rúmlega þrítug réðst
hún sem kaupakona til Ólafar
Bergsdóttur og Jóns Jónssonar á
Teygingalæk. Hún felldi hug til
sonar þeirra Jons og eignaðist með
honum dóttur, sem er móðir mín
og skírð var Elín í höfuðið á föður-
systur sinni. Ekkert varð úr sambúð
þeirra ömmu og afa, en alltaf hefur
ríkt gott samband milli móður
minnar og föðurfólks hennar.
Amma gat verið stolt og skaprík
og ekki hefur hún ætlað að gefast
upp þó svo að hún væri einstæð
móðir með ungt bam. Hún hélt því
ótrauð áfram og hafði dóttur sína
með sér í vinnumennsku á hinum
ýmsu bæjum á Síðunni.
Þegar móðir mín giftist 1947,
föður mínum, Ragnari Lárussyni,
fluttist amma til þeirra. Hún bjó
síðan alltaf hjá þeim, fyrst í
Grímstungu í Vatnsdal til ársins
1953, en þá fluttust þau austur á
Síðu og hófu búskap á Keldunúpi.
Árið 1959 tók fjölskyldan sig upp
og flutti suður í Kópavoginn. Hún
móðuramma mín dvaldi því á heim-
ili foreldra minna í yfír fjörutíu ár
og eiga þau heiður skilinn fyrir þá
umönnun.
Mínar fyrstu bemskuminningar
tengjast því ömmú minni. Hún leit
eftir okkur systkinunum, hjálpaði
til við matargerð og pijónaði nán-
ast allt á fjölskylduna.
Alltaf var amma með einhveija
handavinnu og framundir níræðis-
aldurinn pijónaði hún gleraugna-
laust. Ég held að það megi segja
að hún hafí verið mikil hagleikskona
til allra verka.
Amma var alla tíð með eindæm-
um hraust og það var ekki fyrr en
ÍSLENSKT atvinnulíf 1987, rit
um afkomu og stöðu íslenskra
fyrirtækja, er komið út. Að-
standendur eru Talnakönnun
og Vísbending, vikurit um efaa-
hagsmál, gefíð út af Kaupþingi.
„íslenskt atvinnulíf" er hugsað
sem lykill að upplýsingum um
stærstu fyrirtæki landsins, til
dæmis fyrir þá sem hyggjast fjár-
festa í hlutabréfum, eða. eru í við-
skiptum við fyrirtækin.
I ritið er safnað öllum mikilvæg-
ustu upplýsingum um afkomu og
stöðu rúmlega 50 fyrirtækja á
árinu 1987. Skýrt er frá helstu
á síðasta ári að heilsunni hrakaði
og minnið tók að þverra. Síðasta
ár dvaldi hún sökum lasleika í
Sunnuhlíð, dvalarheimili aldraðra í
Kópavogi.
Ég gæti rifjað hér upp margar
góðar samverustundir okkar, en læt
það ógert. Þess í stað geymi ég þær
í fylgsnum hugans. Þær eru góð
minning um ömmuna og nöfnuna
Karólínu.
Elskuleg amma mín var ferðbúin
lengi. Hún er loksins komin á
áfangastað, komin heim í sveitina
sína. Megi hún hvíla þar í guðsfriði.
Hafí hún þökk fyrir samfylgdina.
Sigríin Karólína Ragnars-
dóttir og fjölskylda.
þáttum f rekstri hvers fyrirtækis
og birtar tölur úr rekstrar- og
efnahagsreikningum, sem og
helstu kennitölur. Einnig eru birt-
ar myndir sem sýna þróun milli
ára og gefa mynd af skiptingu
rekstrar hvers fyrirtækis í undir-
greinar.
í stuttum yfirlitsköflum er fjall-
að um einstakar atvinnugreinar.
Áhersla er lögð á að skýra fram-
setningu svo lesandinn geti kynnt
sér upplýsingarnar á auðveldan
hátt. Áformað er að framhald verði
á útgáfunni þannig að ritið komi
út árlega.
(Úr fréttatilkynningu.)
Rít um íslenskt atvinnulíf
Faðir okkar, + AXEL GUÐBJARTUR JÓNSSON
bifvélavirki,
Elliheimilinu Grund,
lést 2. jan. Hallgrímur Axelsson, Hrefna Axelsdóttir, Hjálmar Axelsson, Dóra Axelsdóttir. |
+
Fósturfaðir minn,
HANIÚES JÓNSSON,
Drápuhlið 40,
fyrrum bóndi að Austur-Meðalholtum,
er látinn.
Ásdfs Lárusdóttir.
t
Faðir okkar,
ÁRNIJÓNSSON,
\ Melabraut 5,
Seltjarnarnesi,
lést á öldrunardeild Borgarspítalans 5. janúar sl.
Jón Árnason, Guðbrandur Árnason.
+
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓHÖNNU GÍSLADÓTTUR,
Efstasundi 64,
fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 9. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
l'slands.
Karl Pótursson,
Marfa E. Karlsdóttir, Lucien Huesmann,
Hrafnhildur Karlsdóttir, Friðjón Pálsson,
Lilja Karlsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
Kari Jóhann Karlsson, Gíslfna Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
STEFANÍU SIGRÚNAR STEINSDÓTTUR,
Hólsvegi 16.
Hörður Runólfsson,
Auður Harðardóttir, Eðvarð Benediktsson,
Bergljót Harðardóttir, Halldór Guðmundsson,
Úlfar Örn Harðarson, Helga Magnúsdóttir,
Ingibjörg L. Harðardóttir, Jóhann Hauksson,
Hörður Þór Harðarson, Guðrún Hrönn Smáradóttir,
Ingólfur Hauksson, Marfa Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.