Morgunblaðið - 07.01.1989, Side 43
MORGUNBLÍÁÐŒ) ÍÞRÓT71R LALrGÁRtíÁGUR1 V. !JÁkúAR 19áð
43
KNATTSPYRNA/ 1.DEILD
, Taka Guðni Kjartanssonog
Ástráður Gunnarsson við ÍBK?
Hólmbert Friðjónsson hættur við að þjálfa liðið, þar sem óskum hans var ekki fullnægt
Hóimbert FriAjónsson
HÓLMBERT Friðjónsson hef-
ur hætt við að þjálfa fyrstu
deildar lið Keflvíkinga og er
nú reynt að fá Guðna Kjart-
ansson og Ástráð Gunnars-
son til að taka við liðinu. „Við-
ræður standa yfir, en ekkert
hefur verið ákveðið. Hólm-
bert hætti við að taka liðið
að sér og bað stjórnin okkur
Ástráð þá um að taka við
þjálfuninni, en máliö er enn á
viðræðustigi," sagði Guðni
Kjartansson, aðstoðarlands-
liðsþjálfari, í samtali við
Morgunblaðið I gærkvöldi.
■■ yrr ! vetur samþykkti Hólm-
■ bert Friðjónsson að taka við
þjálfun liðsins með því skilyrði að
allir leikmennimir yrðu áfram og
fleiri bættust við. Síðan hafa orð-
ið þreytingar á og lykilmenn horf-
ið á braut; Ragnar Margeirsson
hefur skipt í Fram, Grétar og
Daníel Einarssynir í Víði og Sig-
urður Björgvinsson hefur verið
orðaður við Víking.
„Ég skrifaði undir samning
með þeim fyrirvara að þessir
menn yrðu áfram, en annað hefur
komið á daginn og því ákvað ég
að hætta við,“ sagði Hólmbert,
sem þjáifaði ÍBK síðast 1986, við-
Morgvnblaðið í gærkvöldi.
Guðni sagði að hann ætti eftir
að ræða þessi mál við KSÍ, myndi
sennilega gera það um helgina,
en Guðni hefur verið Siegfried
Held til aðstoðar með landsliðið.
Hann hefur verið með knatt-
spyrnuskóla hjá ÍBK og þjálfaði
IBK síðast 1984, en Hólbert tók
þá við af honum. Ástráður hefur
hins vegar lengi verið liðsstjóri
IBK og þjálfað yngri flokka fé-
lagsins. Guðni og Ástráður eru
því öllum hnútum kunnugir hjá
IBK. Guðnl Kjartansson
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN
íþróttir
Stock sigraði loks
eftir átta ára bið
Austurríkismenn í þremur efstu sætunum
Leonhard Stock frá Austurríki
kom heldur betur á óvart er
hann sigraði í bruni karla sem fram
fór í Laax í Sviss í gær. Þetta var
fyrsti sigur hans síðan hann varð
ólympíumeistari í bruni 1980.
Ausurríkismenn áttu fyrstu þrjá
menn í bruninu og var þetta í fyrsta
sinn síðan 1984 sem það gerist.
Stock, sem hafði rásnúmer 23, var
hálfri sekúndu á undan landa
sínum, Peter Wimsberger og Helm-
ut Höflehner varð þriðji 0,64 sek.
á eftir Stock.
„Þetta er stærsti sigurinn á ferl-
inum, jafnvel enn stærri en þegar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
íslensku ungllngarnlr, sem Skíðasamband íslands valdi til Frakklands-
fararinnar.
ég varð Ólympíumeistari. Ég hafði
ekki látið mig dreyma um að sigra
í bruni í vetur. En ég sá að ég átti
möguleika er veðrið lagaðist rétt
áður en ég fór niður,“ sagði Stock
sem er þrítugur og hefur tekið þátt
í heimsbikamum í 13 ár.
Zurbriggen, sem er efstur í
heimsbikamum, hafði rásnúmer tvö
og var mjög lélegt skyggni þegar
hann fór niður. Hann varð í 10.
sæti og var næstur á eftir Marc
Girardelli.
í dag verður keppti í bmni á
sama stað.
helgarinnar
Handbolti
Reuter
Vrenl Schnaldor frá Sviss hefur svo gott sem tryggt sér sigur í heims-
bikamum í ár. Hé rer hún á fullri ferð ! stórsviginu í gær, þar sem hún sigr-
aði örugglega — sjötti sigur hennar í heimsbikarmótum vetrarins.
Schneider ósigrandi
Hefur unnið öll svig- og stórsvigsmót vetrarins
SVISSNESKA skíðakonan VrenfSchneider er óstöðvandi um
þessar mundir. í gær sigraði hún í stórsvigi í Mellau í Aust-
urríki og var það sjötti sigur hennar á heimsbikarmótum vetrar-
ins. Hún getur tryggt sér heimsbikarinn í stórsvigi og svigi með
því að ná 3. sæti í dag og á morgun.
Allt virðist ganga upp hjá mér
núna. Það er stórkostlegt að
vera til þegar svona vel gengur,“
sagði hin 24 ára gamla svissneska
stúlka sem stolið hefur senunni í
heimsbikarkeppninni. Hún var einni
næst með 98 stig og Anita Wachter
í þriðja með 62 stig.
1. deild karla
Sunnudagrir
FH-Stjaman......Hafnarf. kl. 20.15
Víkingur-KA.........Höll kl. 20.00
Grótta-ÍBV..........Seltjn. kl. 20.00
UBK-Valur........Digraneskl. 15.15
1. deild kvenna
Fram-Víkingur.......Höll kl. 21.15
Valur-Stjaman.....Valsh. kl. 13.30 <
ÍBV-Haukar.........Eyjum kl. 20.00
2. deild karla
Laugardagur
ÍBKJR............Keflavíkkl. 14.00
Sunnudagur
ÍH-Selfoss......Hafnarf. kl. 19.00
Blak
1. deild karla
Laugardagur
Fram-KA.......Hagaskólakl. 14.00
Þróttur Nes.-Þróttur R..kl. 16.00
1. deild kvenna
Laugardagur
Þróttur Nes.-Þróttur R..kl. 17.15
Sunnudagur
Víkingur-KA....Hagaskóla kl. 14.00
ÍS-HK.........Hagaskólakl. 15.15
Badminton
Meistaramót TBR hefst i dag kl. 15.30
og heidur áfram á morgun frá kl. 10
í TBR-húsinu. Úrslit hefjast kl. 14.
Sund
Hið árlega nýárssundmót fatlaðra
bama og unglinga fer fram í Sundhöll
Reykjavíkur á morgun og hefst klukk-
an 14. Keppt verður í flokkum hreyfi-
hamlaðra, þroskaheftra, blindra og
sjónskertra og heymarlausra.
BorAtennis
í dag kl. 19.15 hefst borðtennismót í
KR-húsinu. Keppt verður í meistara-
og fyrsta flokki karla og kvenna og
öðrum flokki karla. Á morgun hefst
keppni kl. 13.20, en úrslitaleikir hefj-
ast kl. 15.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Boðið til Frakklands
Níu íslensk ungmenni á aldrin-
um 15 - 17 ára héldu utan
til Frakklands á þriðjudaginn og
munu dvelja í Savoie héraðinu í
Albertville til 13. janúar í boði
framkvæmdanefndar Vetrar-
Ólympíuleikanna í Albertville.
Franska ríkisstjómin ásamt
Ólympíunefnd Frakklands og
undirbúningsnefnd fyrir Vetrar-
Ólympíuleikana árið 1992, sem
fram fara í Albertville í Frakkl-
andi, hefur ákveðið að bjóða 2.000
ungmennum, piltum og stúlkum,
allstaðar að úr heiminum til kynn-
ingarferðar á tfmabilinu 1988 til
1992. Hópamir munu dvelja í 10
daga í Savoie héraði í Albertville
og er ferða- og uppihaldskostnað-
ur greiddur að fullu. Markmiðið
með þessu boði er að efla samhug
og styrkja Ólympíuhugsjónina í
heiminum.
Það kom í hlut Skíðasambands
íslands að velja ungmennin níu
til fararinnar og voru þau eftirtal-
in: Halldóra Blöndal, Seyðisfirði,
Sigurður Hreinsson, Húsavík,
María Magnúsdóttir, Akureyri,
Bjami Jóhannsson, Dalvík, Guð-
mundur Óskarsson, Ólafsfirði,
Valdís Arnardóttir, Reykjavík,
Margrét Rúnarsdóttir, ísafirði,
Sölvi Sölvason Siglufirði og Dan-
íel Jakobsson.ísafirði. Fararstjóri
er Hreggviður Jónsson.
Birgir Skúlason
hættur í Þór
Jónasi Róbertssyni ráðlagt að hætta í
knattspyrnu vegna meiðsla
sekúndu á undan Ulrike Maier frá
Austurríki og Maria Walliser, Sviss,
varð þriðja einni og hálfri sekúndu
á eftir Schneider.
Schneider, sem meiddist á hnéi
á miðju keppnistímabili í fyrra og
missti þar með af sigri i keppninni
samanlagt, virðist nú vera búin
tryggja sér heimsbikarinn í ár. „Það
hefur engri stúlku tekist að vinna
Schneider í vetur og ég held að hún
geti bókað sigur í keppninni nú
þegar,“ sagði Maria Walliser sem
tvívegis hefur unnið titilinn.
Schneider hefur unnið öll þtjú
svig- og stórsvigismótin sem fram
hafa farið og getur tryggt sér sigur
í þessum greinum um helgina, ef
hún nær þriðja sæti i stórsviginu í
dag og sviginu á morgun. Hún hef-
ur nú hlotið samtals 182 stig. Ul-
rike Maier frá Austurríki kemur
ÞRÍR af lykilmönnum Þórs
hafa tllkynnt félagskipti,
læknar hafa ráðlagt einum að
hætta vegna melðsla og einn
hefur ekki endanlega gert
upp hug sinn varðandi félaga-
skipti.
4T
Aður hefur verið greint frá
félagaskiptum Halldórs
Áskelssonar í Val og Guðmundar
Vals Sigurðssonar í FH. Þá hefur
Birgir Skúlason ákveðið að skipta
yfir í félag í Reykjavík og læknar
hafa ráðlagt Jónasi Róbertssyni
að hætta að leika knattspymu
vegna þnémeiðsla. Loks íhugar
Siguróli Kristjánsson en félaga-
skipti í Val á Reyðarfirði.