Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 1
48SIÐUR B
20. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jarðskjálftinn í Tadzhíkístan:
Reuter
Stendur og þegir
Fyrir fimm árum hét hindú-
inn Baba Mohandas Kharajee
þvi að standa uppréttur og
mæla ekki orð af vörum í
fjórtán ár. Hér sést hann á
Kumbh Mela-hátíðinni sem
haldin er á tólf ára fresti á
mótum ánna Ganges og Ya-
muna. Eins og sjá má hvílir
Kharajee vinstri fót enda ekki
nema von eftir fimm ára
stanslausa stöðu.
Heyrðu skriðuna
nálgast og tókst
að forða lífi sínu
Moskvu. Reuter.
ÍBÚAR Sovétlýðveldisins Tadzhíkístans bjuggu sig undir nýjar jarð-
skjálftahrinur í gær í kjölfar skjálftans á aðfaranótt mánudags.
Sjálfúr skjálftinn, sem átti upptök 50 km suðvestur af Dúshanbe,
höfúðborg Tadzhíkístans, olli ekki miklu tjóni en kom af stað aur-
skriðu sem lagði þorpið Shahora í rúst og eyðilagði hluta af þrem-
ur öðrum þorpum. Sovésk yfirvöld sögðu á mánudag að um það
bil þúsund manns hefðu farist og voru þær tölur byggðar á íbúa-
fiöldá í þorpunum fiórum. Seinna kom á daginn að mörgum íbúa
þorpsins Okúlibolo tókst að forða sér undan aurskriðunni.
Á blaðamannafundi sem Gennadíj
Gerasímov, talsmaður sovéska ut-
anríkisráðuneytisins, hélt í gær kom
fram að íbúar þorpsins Okúlibolo
heyrðu drunur í aurskriðunni sem
nálgaðist og tókst þriðjungi þeirra
þorpsbúa, sem taldir voru af, að
forða lífi sínu.
Þúsundir manna hafa unnið að
björgunarstarfi undanfama daga en
kvartað hefur verið yfir skorti á
verkfærum til að moka ofan af þorp-
unum. Ekki er ljóst hversu mörgum
hefur verið bjargað lífs úr eðjunni
sem hylur þorpin en sovéskir fjöl-
miðlar hafa talað um allt frá einum
og upp í átta. Gerasímov sagði að
sú spuming hefði vaknað hvort það
væri í samræmi við lífsviðhorf múha-
meðstrúarmanna sem byggðu þorpin
að grafa fómarlömb skriðunnar upp
úr leðjunni.
Sakaðir um
samningsbrot
Washington. Moskvu. Reuter.
Fyrsti fundur nýskipaðs forseta með fiilltrúum Bandaríkjaþings:
Kærleikar með Bush og
helstu leiðtogum þingsins
Washington. Reuter.
GEORGE Bush átti i gær sinn fyrsta fund með leiðtogum beggja
flokka á Bandaríkjaþingi eftir að hafa tekið við forsetaembætti.
Bush reifaði hugmyndir sínar í efnahagsmálum og fékk hlýjar
viðtökur bæði hjá forystumönnum repúblikana og demókrata. John
Chafee, öldungadeildarþingmaður repúblikana frá Rhode Island,
gekk svo langt að segja að um „ekta ástarfund" hefði verið að ræða.
Alan Cranston, annar helsti leið-
togfi demókrata í öldungadeildinni,
sagðist vonast til að hveitibrauðs-
dagamir entust sem lengst og full-
yrti að andrúrhsloftið hefði verið
„allt annað og betra" en í þau átta
ár sem þingið átti við Ronald Reag-
an að etja.
vamarmála. Ljóst er að frumvarp
Reagans á eftir að taka miklum
breytingum í meðfömm þingsins
og nýrrar ríkisstjómar. George
Mitchell, leiðtogi demókrata í öld-
ungadeildinni, sagði að Bush myndi
ekki hafa ráðrúm til að endurskoða
fmmvarp Reagans í heild sinni fyr-
ir 9. febrúar en búast mætti við
nýjum tillögum sem skýrðu stefnu
forsetans.
Fundurinn í Hvíta húsinu í gær
hófst með léttum brag. Var til þess
tekið að Bush var mættur á skrif-
stofu sína klukkan 8, klukkustundu
fyrr en Reagan var vanur að gera.
Leiðtogar demókrata færðu Bush
kristalsskál fulla af uppáhaldi hans,
svínarifjum, og fylgdi flaska af
sterkri piparsósu frá Texas, heima-
ríki forsetans. Saman réðu þing-
menn og forsetinn í það hversu
táknræn gjöfin væri því í Was-
hington er „pork", eða „svínakjöt“,
slanguryrði yfir eyðslusama ríkis-
stjóm. Á hinn bóginn var sterka
sósan túlkuð sem sérdeilis hlýleg
kveðja.
Undanfama daga hafa væntan-
legir stjómarhættir Bush tekið á
sig mynd. Hann hefur til dæmis
einsett sér að hressa upp á sið-
ferðislega ímjmd stjórnvalda. í gær
skipaði Bush siðanefnd sem í eiga
sæti bæði repúblikanar og demó-
kratar. Nefndin á að vera forsetan-
um til ráðgjafar um hvemig bæta
megi siðferði í opinberri stjómsýslu.
Hópur Moskvubúa efhdi á sunnudag til kosningafundar til stuðnings Bóris Jeltsin, fyrrverandi
leiðtoga flokksdeildar kommúnistaflokksins í borginni. Jeltsin, sem var rekinn úr embætti haustið
1987, býður sig nú fram til fúlltrúaþings Sovétrikjanna. Á kröfúspjaldinu stendur: Bitsa (hverfi i
Moskvu) kýs Jeltsin.
Sjá „Keppir um þingsæti . . .“ á bls. 20.
JELTSÍNÁ ÞING!
Reuter
CHARLES Redman, talsmaður
bandaríska utanrikisráðuneytis-
ins, sakaði Sovétmenn í gær um
skýlaust brot á samkomulagi um
brottflutning sovéska herliðsins
frá Afganistan. Skömmu siðar
greindi sovéska fréttastofan
Tass frá þvi að afganski stjómar-
herinn hefði í gær fellt tæplega
400 skæruliða, sem hefðu hindr-
að birgðaflutninga til Kabúl.
Redman sagði á blaðamanna-
fundi að sovéski herinn gerði dag-
lega sprengjuárásir á bækistöðvar
skæmliða í Afganistan. Væri þama
um óþolandi brot á friðarsamkomu-
iaginu um Afganistan að ræða sem
gert var í apríl í fyrra. Redman
sagðist þá búast við því að sovéski
herinn yrði á brott frá Afganistan
15. febrúar eins og ráð er fyrir gert.
Cranston sagði að Bush hefði
virst áfjáður til samstarfs við demó-
krata sem hafa meirihluta í báðum
þingdeildum, um að draga úr hall-
anum á ríkissjóði. Forsetinn hefði
varast að ögra þingmönnum demó-
krata líkt og Reagan átti til í sínum
fyrstu viðræðum við fulltrúa lög-
gjafarþingsins. Fram kom í máli
demókrata að ekki hefði verið rætt
ítarlega um einstök svið efnahags-
mála en forsetinn hefði kunngjört
að hann myndi bera fram fjárlaga-
tillögur stjómar sinnar í ræðu 9.
febrúar næstkomandi. Eins og lög
gera ráð fyrir bar Ronald Reagan
fram fjárlög skömmu áður en hann
lét af forsetaembættinu þar sem
m.a. var reiknað með tveggja pró-
senta raunaukningu í útgjöldum til
Kalevi Sorsa biðst lausnar
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttaritara Morgunblaðsins.
KALEVI Sorsa, utanríkisráðherra Finnlands, afhenti Mauno Koi-
visto Finnlandsforseta afsagnarbeiðni sina i gær. Afsögn Sorsa er
hápunktur i skopleik innan finnska jafúaðarmannaflokksins, sem
snýst um að koma Pertti Paasio, formanni flokksins, inn í rfkis-
stjómina.
Samstarfsflokkar jafnaðar-
manna í ríkisstjóminni, Hægri-
flokkurinn, Sænski þjóðarflokkur-
inn og Landsbyggðarflokkurinn,
hafa ítrekað lýst því yfir að það
sé einkamál jafnaðarmanna að
koma sér saman um hvaða ráð-
herra þeirra eigi að rýma til fyrir
Paasio. í haust var svo komið að
nær allir ráðherrar jafnaðarmanna
höfðu verið tilnefndir til að víkja
en enginn lét segjast. í gær var
Sorsa greinilega nóg boðið því hann
tilkynnti óvænt að hann vildi segja
af sér til þess að Paasio kæmist inn
í stjómina.
Kalevi Sorsa, sem er 58 ára
gamall, hefur gegnt ráðherraemb-
ætti í mörgum finnskum ríkis-
stjómum og meðal annars hefur
hann verið forsætisráðherra. í gær
sagðist hann ekki vita hvort Koi-
visto forseti samþykkti afsagnar-
beiðnina en hún er dagsett 1. febrú-
ar. Sorsa segist reiðubúinn að taka
við bankastjóm í seðlabanka Finn-
lands en hyggst halda þingsæti
sínu. Áður hafði hann gefið í skyn
að hann vildi draga sig f hlé frá
flokkspólitík en jafnaðarmenn hafa
óformlega tilnefnt hann sem arf-
taka Koivistos skyldi hann ekki
bjóða sig fram árið 1992.