Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 Salan á Útveg'sbankanum: Ahugi hjá tveimur af smærri bönkunum á hlutafl árkaupum JÓN Sigurðsson viðskiptaráð- herra segir að hann eigi von á að £á hugmyndir frá hlutafélaga- bönkunum um kaup á Útvegs- bankanum á næstunni. Af þeim hafi tveir af smærri hlutafélaga- bönkunum sýnt því áhuga að kaupa hlutafé og sameinast Út- vegsbankanum í nýrri banka- stofiiun. Jón skipaði nefnd í vetur til að annast þetta mál og segir hann að henni sé settur frestur til að skila Sverrir Hermanns- •• son og Ogurvík: Bankaeftir- litið fékk af sér áliti nú um næstu mánaða- mót. Hann segist vona að sú niður- staða verði að einhveijir af smærri hlutafélagabönkunum sameinist Útvegsbankanum en vill ekki að svo stöddu gefa upp nöfn þeirra sem mestan hafa áhugann. „Ef þetta verður ekki úr munum við leita annarra leiða við sölu á bankanum," segir Jón. Inn í þeirri mynd eru hugsanleg kaup erlendra bankastofnana á hlutafé í Útvegs- bankanum en í frétt Morgunblaðs- ins frá því seint sl. haust kom fram að fyrirspumir um slík kaup hefðu borist frá erlendum bönkum. Er ríkissjóður tók við Útvegs- bankanum á sínum tíma átti hann miklar fjárhæðir í útistandandi skuldum. Aðspurður um hvemig innheimta þeirra skulda hefur gengið, segir Jón að hún hafí geng- ið vel. Hann vill þó ekki nefnar neinar tölur þar um Morgnnblaðið/Ami Sæberg Varla hundi útsigandi Reykvíkingar fengu að reyna ýmis sýnishorn af Færð var þé orðin sæmileg í borginni. Þessum veðri í gær. Vatnselgur var sums staðar á götum rakka virtist þó ekki lítast meira en svo á fierð- vegna hláku og skúrir fyrri hluta dags, en er ina sem hann rak hausinn út nndnn blæjunni á leið á daginn kólnaði og gekk á með éljum. bifreið eiganda síns. greinargerð Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra: Nefndin úrskurðar ein- göngu um tæknileg atriði ÚRSKURÐARNEFND um verðtryggingu hefur þegar úrskurðað um tengingu eldri gnmns lánskjaravísitölunnar við þann nýja, en sam- kvæmt reglugerð viðskiptaráðuneytisins frá í fyrradag vegur nú launavísitala þriðjung í lánskjaravísitölu á móti framfeerslu- og bygg- ingarvísitölu. Nefiidin gerði það að beiðni Seðlabankans sama dag og lánskjaravísitalan var gefin út, svo sem ber að gera samkvæmt lögum um nefiidina. Þessi úrskurður lýtur að tæknilegri útfærslu og tengingu eldra grunnsins við þann nýja. SVERRIR Hermannsson banka- stjóri Landsbankans sendi bankaeftirlitinu greinargerð í fyrradag um eignaraðild sfria að útgerðarfyrirtækinu Ög- urvík hf. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins kemur þar fram, að Sverrir Hermannsson hafi sagt af sér sem stjómar- formaður fyrirtækisins áður en hann tók við embætti Lands- bankastjóra. Breyting þessi á stjóm fyrirtæk- isins mun hins vegar ekki hafa verið tilkynnt til hlutafélagaskrár. Þá kemur einnig fram í greinar- gerð bankastjórans skv. upplýsing- um Morgunblaðsins, að hann hafí leitað eftir kaupendum að hluta- bréfunum en ekki tekizt að selja þau enn sem komið er. Þórður Ólafsson formaður bankaeftirlitsins sagði að þessu máli yrði hraðað eins og kostur væri. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið og sagði að Sverr- ir mundi fyrstur fá niðurstöðu eft- irlitsins. Sverrir Hermannsson vildi ekki tjá sig um málið í gær og vísaði til fyrmefndar greinargerðar. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, telur að nefndin hafí ein- göngu úrskurðarvald um tæknileg atriði, til dæmis varðandi ágreining um útreikning tiltekinna verð- tryggðra skuldbindinga. Nefndin hafí ekki efnislegt úrskurðarvald og slíkum málum verði að vísa til dómstóla, enda séu dæmi um það að nefndin hafí vísað efniságrein- ingi frá sér til dómstóla. Hallgrímur Snorrason, hagstofu- stjóri og formaður nefndarinnar, segist að sjálfsögðu ekki geta sagt um það fyrirfram hver niðurstaða nefndarinnar yrði væri máli skotið til hennar. Það sé hins vegar ljóst að það sé ekki á verksviði nefndar- innar að fjalla um lögmæti reglu- gerðar, sem sett sé af þar til gerðu stjómvaldi. „Úrskurðamefndinni er fyrst og fremst falið það verkefni í lögunum að §alla um tengingu milli vísitölu- grundvalla. Hennar verkefni er ein- göngu tæknilegt og hún hefur þeg- ar ijallað um þá tengingu sem nú hefur verið ákveðin," sagði Jón Sig- urðsson aðspurður um þá álitsgerð úrskurðamefndar um verðtrygg- ingu að breyting á lánskjaravísitölu ætti að skoðast sem ný vlsitala. „Um skoðanir nefndarmanna að öðru leyti á málinu vil ég ekki segja annað en það að sú ákvörðun sem iiggur fyrir var tekin að undangeng- inni mjög rækilegri skoðun á þeim lögfraeðilegum atriðum sem þama koma við sögu. Ég er sannfærður um að þama sé fullkomlega rétt staðið að málum. Ég bendi líka á að það eru fordæmi fyrir ákvörðun- um af þessu tagi um breytingar á reikningsaðferðum vísitalna sem ganga inn í Iánskjaravísitölu, bæði frá sumrinu 1983 og reyndar þegar gmndvellir þessara vísitalna hafa verið endumýjaðir. Auðvitað er sú lánskjaravísitala sem var í gildi fyr- ir setningu reglugerðarinnar alls ekki sú „sarna" og sú sem ákveðin var í upphafí. Það er búið að skipta út öilum þáttum. Hún hefur því verið endumýjuð oftar en einu sinni," sagði Jón. Hann sagði að að þessari ákvörð- un hefði verið staðið á fullkomlega eðlilegan og formlega réttan hátt. Aðalatriðið væri að þegar til lengri tíma væri litið væri ekki verulega raskað þeim hagsmunum sem vísi- tölunni væru tengdir og það teldi hann vera tryggt. Um þá gagnrýni að launavísital- an væri ónákvæmur mælikvarði, sagði Jón að það mætti segja um allar vísitölur að yrðu skyndilegar breytingar á því sem þeim væri ætlað að mæla, yrðu þær þeim mun ótraustari mælikvarði. „Það er ekk- ert sem segir að launabreytingar verði með þeim hætti alltaf og ævinlega og auðvitað emm við öll að vona að launabreytingar og aðr- ar verðlagsbreytingar í landinu ÞRÍR Reykvíkingar, Gústaf R. Gústafsson, 27 ára, Hallgrímur P. Gústafsson, 29 ára, og Magnús G. Baldvinsson, 31 árs, hafa ver- ið dæmdir til 4 ára fangelsisvist- ar. Þeir eru dæmdir fyrir að Mosfellsbær: Fékk uagla úr byssu í augað MAÐUR, sem vann ásamt öðrum við að klæða þak nýbyggingar í Mosfellsbæ, fékk þriggja tommu nagla úr naglabyssu á kaf í auga sitt síðdegis í gær. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð. Að sögn lögreglumanna var hann með meðvitund þrátt fyrir að nagl- inn hafí þeyst í auga hans með miklum krafti úr þrýstiloftsknúinni byssunni. verði stillilegri og þá falla þessar röksemdir um sig sjálfar. Kjara- samningar eiga að snúast um kaup- mátt en ekki krónutölu kaups," sagði Jón. Ég hef í hyggju að þessi breyting á lánskjaravísitölu verði kynnt rækilega og hef falið starfsmönnum ráðuneytisins og Seðlabankans að útbúa efni í því sambandi, sem færi sparifjáreigendum og öðrum heim sanninn um það að þessi láns- kjaravísitala er örugg verðtrygging, en jafnar greiðslubyrðinni niður með sanngjamari hætti eftir ár- ferði," sagði hann ennfremur. hafa ráðist grímuldæddir inn á heimili aldraðra hjóna á Seltjarn- arnesi að næturlagi í september- mánuði siðastliðnum, beitt hús- ráðendur þar ofbeldi og ógnað þeim til að benda sér á verðmæti í íbúðinni. Hjónin, sem eru hátt á áttræðis- aldri, hlutu bæði mikla áverka eftir árás mannanna. Konan mjaðmar- grindarbrotnaði og maðurinn marð- ist mikið á höfði, brotnaði og hljóp úr liði á fíngri. Sakamennimir höfðu með sér á brott úr húsinu um 15 þúsund krón- ur í peningum, gullhálsmen, 6 gull- hringi, 6 bjórdósir og 9 eða 10 áfengisflöskur. Þeir vom hand- teknir fljótlega eftir atburðinn og hafa tveir þeirra síðan setið í gæslu- varðhaldi, sem kemur til frádráttar refsingunni, en sá þriðji afplánar eftirstöðvar refsingar samkvæmt eldri dómi. Þá voru mennimir dæmdir til greiðslu alls sakarkostn- aðar. Sverrir Einarsson sakadómari kvað upp dóminn. Bjór í verslunum ÁTVR: Budweiser, Tu- borg og Kaiser ÞÆR ÞRJÁR erlendu bjórtegundir sem líklegastar eru til að verða á boðstólum í verslunum ÁTVR eru Budweiser frá Bandarikjunum, Tuborg frá Danmörku og Kaiser frá Austurríki, segir Gústaf Níels- son skrifitofustjóri ÁTVR. Innkaupastofnun ríkisins hefur metið verðtilboð framleiðenda, sem skilað var síðastliðinn fimmtudag. Gústaf segir að samkvæmt því verði framangreindar tegundir fyr- ir valinu, þó með fyrirvara um flutningskostnað. ÁTVR fær í dag tilboð frá skipafélögunum um flutningsgjöld fyrir bjórinn og gætu þau hugsanlega breytt myndinni, en þó taldi Gústaf það ekki líklegt. Nítján framleiðendur skiluðu til- boðum. Þijú lægstu tilboðin komu frá bandarískum framleiðendum. Þar sem aðeins verður tekin ein tegund frá hverju landi í verslanir ÁTVR verða teknar tvær tegundir frá öðrum löndum. Þær reyndust vera Tuborg og Keiser sem buðu fjórða lægsta verðið og það fímmta lægsta. Gústaf sagði að ekki hafí enn verið tekin nein ákvörðun um hvort hinar tegundimar verði á boðstól- um í bjórbúð ÁTVR í Reykjavík, nú væri kröftunum beitt að því forgangsverkefni að ná þessum þremur tegundum inn hið fyrsta, enda skammur tími til stefnu. í frétt Morgunblaðsins í gær af bjórmálum kom fram að óljóst væri hver fer með umboð fyrir Bass Export, sem framleiðir Tenn- ets Lager bjór. Fram hefur komið að staðfesting liggur fyrir frá fram- leiðanda um að fyrirtækið Bassi hf. hefur það með höndum. Grímuránið á Seltjarnarnesi: Hlutu flögurra ára fangelsisdóma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.