Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 3

Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 3 Á hraðferð í ófærðinni ÖKUMAÐUR evrópskrar sport- bifreiðar hefur ekki ætlað að láta erfiða feerð tefja ferðalag sitt um Bústaðaveg í hádeginu á mánu- dag. Samkvæmt ratsjá lögregl- unnar fór hann þar um með 106 kílómetra hraða á klukkustund. Lögreglan stöðvaði for mannsins og færði hann og bifreið hans á lög- reglustöð. Þar var hann sviptur öku- leyfi til bráðabirgða eða þar til um mál hans hefur verið fjallað fyrir sakadómi. x Annar ökumaður á hraðferð varð á vegi lögreglumanna á Miklubraut laust fyrir ellefu á mánudagskvöld. Ratsjá lögreglunnar gaf til kynna að hann æki á 103 kílómetra hraða á klukkustund. „Snæfiigl er fefiegt skip“ „SNÆFUGL er fallegt skip,“ sögðu bömin á Reyðarfirði þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði þau hvað þeim fyndist um hinn nýja togara Reyðfirðinga, Snæfúgl SU 20. Skipið kom í fyrsta skipti. til heimahaíhar i gær, þriðjudag, en það var smíðað í Flækkefjord í Noregi. # -# # # /■•## ar Morgunblaðið/Rúnar Þór Sighngmn Eyjaijorð Mokveiði hefúr verið á loðnu undanfarið þegar gefið hefúr á sjó á annað borð. Bátarnir hafa verið með fúllfermi dag eftir dag og ætla má að undanfarið hafi peningalyktin lagzt hug- hreystandi yfir sjávarplássin. Hér er það Súlan £4, sem er drekkhlaðin á leið inn til Akur- eyrai , en annar bátur landar vænum feng á Krossanesi við Eyjaflörð. Hermannaveiki: Þriðjungur barna með mótefiii UM 30% íslenskra barna, 3—12 ára, hafa myndað mótefni gegn hermannaveikibakteríunni sam- kvæmt rannsóknum sem læknam- ir Haraldur Briem og Ásgeir Har- aldsson gerðu, ásamt tveimur dönskum visindamönnum, meðal um 400 fslenskra barna. Frá niður- stöðunum er greint í 10. tbl., siðasta árgangs Læknablaðsins. Allur þorri bamanna er þó ein- kennalaus og engin ástæða er til að óttast faraldur, að sögn Har- alds Briem. „Svona há tíðni er til marks um það að þessi baktería er í umhverfi okkar,“ sagði Haraldur. „Yfirleitt hafa böm yngri en þriggja ára ekki myndað mótefni gegn henni." Hann sagði að eldri rannsóknir á blóði blóð- gjafa sýndi að mótefni gegn bakter- íunni væri einnig mjög algengt með- al fullorðinna hér á landi. Haraldur sagði að sýkinga yrði einkum vart meðal fólks sem væri veikt fyrir og hefði orðið fyrir úða- smiti, til dæmis frá loftræstikerfum en þar sem oft væri að finna ákjósan- leg vaxtarskilyrði fyrir bakteríuna. Hæstiréttur: Rflásendurskoðun fær að- gang að sjúkraskýrslum „Snæfugl er mjög fullkomið skip og í það vantar einungis flökunar- og hausunarvélar til að það geti kall- ast alfrystiskip," sagði Alfreð Steinar Rafnsson, skipstjóri á Snæfugli, í samtali við Morgunblaðið. Reyðfírðingum var boðið að fara í um klukkustundar siglingu með Snæfugli um Reyðarfjörð í gær og þáðu um 200 manns, bæði böm og fullorðnir, boðið. Einnig var boðið upp á veitingar um borð í skipinu í tilefni dagsins. „Snæfugl byrjar á hefðbundnúm ísfískveiðum en fjármagnskostnaður- inn er það mikill að mér sýnist að ekki þýði annað en að nýta skipið sem alfrystitogara. Hinsvegar get ég ekki sagt til um hvenær við byrj- um á þvr'," sagði Hallgrímur Jónas- son, framkvæmdastjóri Skipakletts hf. á Reyðarfírði, sem er eigandi skipsins. SAMNINGUR milli ístaks hf. og borgarinnar um áframhaldandi framkvæmdir við byggingu ráð- hússins við Ijörnina hefúr verið lagður fram í borgarráði. Samningurinn felur i sér upp- steypu hússins og uppsetningu burð- arviða í þaki og er áætlaður kostnað- ur, byggður á verklýsingum, rúmlega 175,2 milljónir miðað við verðlag 1. janúar síðastliðinn. Gert er ráð fyrir að lokið verði við kjallarana 30. júní næstkomandi. Uppsteypu skrifstofu- HÆSTIRÉTTUR hefúr úrskurð- að að heilsugæslulækni í Grindavik sé skylt að veita Rikis- endurskoðun aðgang að sjúkra- skýrslum sjúklinga sinna. Læknir- inn hafði kært samhljóða úrskurð undirréttar til Hæstaréttar og hússins á að vera lokið 6. desember og borgarstjómarhússins fyrir 20. mars 1990. 1. maí verður mestur hluti fylling- ar utan stálþilsins fjarlægður ásamt hluta af girðingunni við Tjömina. Síðustu verkþættir samkvæmt samn- ingnum verða í ágúst 1990. Borgarráð visaði samningnum til afgreiðslu borgarstjómar og verður hann tekinn á dagskrá við síðari umræðu um fjárhagsáætlun borgar- innar, að sögn Gunnars Eydal skrif- stofustjóra borgarstjóra. krafðist þess að kröfii Ríkisend- urskoðunar um aðgang að skýrsl- unum yrði hrundið. I niðurstöðum Hæstaréttar segir meðal annars að mikilvægir þjóð- félagshagsmunir búi því að baki að sett hafi verið lög um endurskoðun reikningsgerðar opinberra stofnana og að þar sé leitast við að tryggja viðunandi aðstöðu til könnunar á frumgögnum. Eðli málsins sam- kvæmt geti þau gögn sem um sé deilt ekki verið trúnaðarmál læknis og sjúklinga einna, þar sem starfs- menn viðkomandi heilbrigðisstofn- unar hljóti að hafa um þau nokkra vitneskju og að auki beri reikningar, sem til endurskoðunar séu, með sér að gerðar hafí verið tilteknar aðgerð- ir. Sé því ekki um að ræða megin- breytingu varðandi leynd gagnanna þó að trúnaðarlæknir, bundinn þagn- arskyldu, kynni sér þau að því marki sem krafist sé í málinu. Ekki verði því fallist á að unnt sé að þrengja ótvírætt ákvæði laga frá síðasta alþingi um Ríkisendur- skoðun vegna áhrifa læknalaga eða annarra réttarreglna þannig að taka beri til greina kröfu læknisins, sem meðal annars hafði vísað til 66. greinar stjórnarskrár, eldri dóma Hæstaréttar, Mannréttindayfírlýs- ingar S.Þ og Mannréttindasáttmála Evrópu, auk ákvæða læknalaga, máli sínu til stuðnings. í fjórða sæti tegunda er Subaru, af honum seldust 967 bílar, eða 7,9% heildarsölu. Þá koma Mazda með 693 selda bfla, 5,7%, og Dai- hatsu með 647 selda bfla eða 5,3% Guðmundur Jónsson, Benedikt Blöndal, Guðrún Erlendsdóttir og Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómar- ar kváðu upp dóminn ásamt Amljóti Bjömssyni, settum hæstaréttardóm- 'Hekla hf. seidi mest einstakra umboða, eða 19,0% heildarsölunnar. Þar vegur Mitsubishi þyngst, 16,6%, Volkswagen 1,5% og aðrar tegundir minna. Alls voru seldir 12.206 nýir fólks- bflar hér á landi árið 1988. Notaðir fólksbflar vom 2.038, fólksbflar alls 14.244. Allir bflar samanlagt seldir hér í fyrra eru 15.078, þar af 1.006 dísilbflar. Pallbifreiðir undir 7.500 kg heild- arþunga sem seldar voru á síðasta ári voru alls 192 talsins. Þar af voru flestar af gerðunum Mazda, eða 49, Mitsubishi 33 og Toyota 31. 154 nýjar vörabifreiðir yfír 7.500 kg heildarþunga vora seldar hér í fyrra, flestar af gerðinni Scania, eða 47. Þar á eftir koma Volvo, 39 bílar, M.A.N., 26 bílar, og Mercedes Benz, 22 bílar. Mun færri seldust af öðrum gerðum. Sé litið á sölu síðasta mánuð ársins er Daihatsu söluhæstur fólksbfla með 100 bfla selda, þar á eftir koma Mitsubishi með 96, Toy- ota með 57, Mazda með 42, Lada með 40 og Subara með 38. Lög um rekstur SR endurskoðuð Sjávarútvegsráðherra hyggst á næstu dögum skipa nefiid til að endurskoða lög um rekstur Síldarverksmiðja ríkisins. Að sögn ráðherra eru lögin gömul og úrelt og stjórnun verksmiðjanna ekki nægilega sveigjanleg. Til greina komi að breyta fyrirtækinu í hlutafélag og selja hluti í þvi til einkaaðila. Sfldarverksmiðjumar era ríkis- framt viðunandi rekstur á viðkom- fyrirtæki með sjálfstæðan fjárhag og eiga meðal annars loðnuverk- smiðjur á Siglufirði, Raufarhöfn, Reyðarfírði og Seyðisfírði, véla- verkstæði á Siglufírði, beinamjöls- verksmiðju á Skagaströnd og skrifstofuhúsnæði í Reykjavík. „Verksmiðjumar eiga svo mikl- ar eignir að það er á fárra færi að kaupa þær og tryggja jafn- andi stöðum. í rekstur sem þenn- an þarf mikið eigið fé,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, í samtali við Morg- unblaðið. Hann sagði að á Reyðar- firði hefði komið fram beiðni frá heimamönnum um að kaupa verk- smiðjuna þar. „Ég tel að það eigi að athuga það mál í fullri alvöra. Meginmálið er að þessi rekstur fari fram, en í mínum huga er það ekki aðalmarkmiðið að ríkið standi í atvinnustarfsemi. Það er ekki hlutverk þess nema í sérstök- um tilfellum," sagði ráðherra. Halldór sagði að til greina kæmi að stofna hlutafélag um rekstur verksmiðjanna og seija part af hlutafénu til heimamanna á hveijum stað til þess að tryggja þeim meiri áhrif á reksturinn. Hann sagði að það hefði mikið verið rætt, hvort Sfldarverksmiðj- umar fengju að kaupa skip. Til greina kæmi að skipaeigendur gerðust aðilar að rekstri fyrirtæk- isins með einhveijum hætti, til dæmis með því að þeim yrði boð- ið hlutafé. Þá sagði ráðherra að hugsa mætti sér að samtök út- vegsmanna og sjómanna ættu eignarhlut í verksmiðjunum, og um leið yrði kjöri í stjóm fyrirtæk- isins breytt. Sjómenn og útvegs- menn eiga þar einn fulltrúa hvorir. Ráðherra sagði að ekki lægi á í þessum málum, aðalatriðið væri að endurskoða lögin, því að allir væra sammála um að þau væra úrelt. Ekki er ákveðið hvemig nefndin, sem endurskoða á lögin, verður skipuð. Bjóða 175,2 millj. í uppsteypu ráðhússins ara. Bifreiðainnflutningur 1988: Þrjár tegundir 43,1% sölunnar BÍLAR af tegundinni Mitsubishi seldust mest fólksbila hér á landi á síðasta ári. 2.023 Mitsubishi bílar seldust og eru það 16,6% af heildarsölu ársins. Næst kom Toyota með 1.807 bíla, eða 14,8% og í þriðja sæti Lada með 1.426 bíla selda, eða 11,7% heildarsölu. Þess- ar þijár tegundir höfðu því 43,1% af fólksbílasölu síðasta árs. Þetta kemur fram í yfirliti Bílgreinasambandsins um bifreiðasölu 1988.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.