Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
5
Neskaupstaður;
Agreiningur um greiðsl-
ur fyrir innlagða mjólk
Á BÆNUM Skorrastað III í Norðfjarðarsveit er mjólk, sem þar
er framleidd, nú hellt niður vegna ágreinings um greiðslur fyrir
mjólkina. Telur bóndinn sig eiga rétt á staðgreiðslu við afhend-
ingu mjólkurinnar á meðan kaupfélagið Fram á Neskaupstað er
í greiðslustöðvun, en þar hefúr hann lagt mjólkina inn fram að
þessu. Kaupfélagið fékk greiðslustöðvun 10. janúar síðastliðinn,
og stendur hún til 10. aprfl, og segir kaupfélagsstjórinn að sam-
kvæmt búvörulögum beri að líta á mánaðarlegar greiðslur fyrir
innlagða mjólk sem staðgreiðslu.
Þórður Júlíusson, bóndi á Skorra- Á meðan svo er neyðumst við til
stað III, sagði í samtali við Morgun- þess að hella mjólkinni niður," sagði
blaðið að átta mjólkurinnleggjendur Þórður.
af níu hafi samþykkt að leggja inn
hjá kaupfélaginu áfram í reiknings-
viðskiptum á sömu forsendum og
voru áður en kaupfélagið fékk
greiðslustöðvun. „Faðir minn, Júlí-
us Þórðarson, sem talinn er fyrir
mjólkurframleiðslunni hjá okkur,
er hins vegar ekki með nein reikn-
ingsviðskipti við kaupfélagið, og
samkvæmt upplýsingum sem við
höfum aflað okkur mun kaupfélagið
eiga að staðgreiða öll vörukaup á
meðan greiðslustöðvunin varir. Því
telur hann sig eiga rétt að fá mjólk-
ina staðgreidda við afhendingu, en
kaupfélagið neitar að ganga að
þessu og sækja mjólkina til okkar.
Fíkniefiiamálið:
Þáttur manns-
ins sem var
í gæslu lítill
ÞRÍTUGUR maður, sem fíkni-
efhadeild Reykjavíkurlögreglu
handtók vegna gruns um aðild
að fíkiniefhamáli því sem lög-
regla f Reykjavík. og Kaup-
mannahöfh vinna nú saman að
rannsókn á, var látinn laus úr
gæsluvarðhaldi um hádegi á
laugardag. Að sögn Arnars Jens-
sonar lögreglufiilltrúa reyndist
þáttur mannsins lítill í málinu
sem heild.
Amar varðist að öðru leyti frétta
af gangi rannsóknarinnar en þrír
íslendingar og Hollendingur sitja
nú í gæsluvarðhaldi í Kaupmanna-
höfn vegna þess. Talsmaður Kaup-
mannahafnarlögreglu hefur sagt að
fólkið, sem úrskurðað hefur verið í
varðhald þar í borg, tengist alþjóð-
legum fíkniefnahring. Ekki hefur
verið upplýst hve mikið magn af
fíkniefnum fólkið er grunað um að
hafa flutt milli Hollands, Dan-
merkur og íslands en þar mun að
mestu eða öllu leyti hafa verið um
hass að ræða. Ekki hefur heldur
verið látið uppi hvemig samvinnu
íslensku og dönsku lögreglunnar
hefði verið háttað í málinu. Amar
Jensson staðfesti þó að fslenskur
lögreglumaður væri nýkominn frá
Kaupmannahöfn þar sem hann
hefði unnið að rannsókn þessari
með dönskum starfsbræðmm
sfnum.
Ingi Már Aðalsteinsson, kaup-
félagsstjóri, segir að það sé álita-
mál hvemig standa beri að greiðsl-
um fyrir innlagða mjólk á meðan
kaupfélagið er með greiðslustöðv-
un. „í búvömlögunum segir að inn-
lagða vöm eigi að staðgreiða 10.
dag næsta mánaðar eftir að varan
er lögð inn, og eftir því munum við
fara varðandi greiðslur fyrir inn-
lagða mjólk. Með því að greiða fyr-
ir mjólkina samkvæmt þessu teljum
við að um staðgreiðsluviðskipti sé
að ræða,“ sagði Ingi Már.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Mjólkinni hellt niður á bænum Skorrastað III í Norðfjarðarsveit
vegna ágreinings um greiðslur fyrir mjólkina.
Veiðar
leyfðar í
Mývatni
Mývatnssveit.
STJÓRN veiðifélags Mývatns
hefur gefið heimild til veiða
í Mývatni frá 1. febrúar til
1. mai næstkomandi. Annars
hefur vatnið verið alfriðað
fyrir allri veiði síðan í sept-
ember.
Netafjölda er úthlutað sam-
kvæmt arðskrá og mega veiði-
réttarhafar veiða fimm daga í
hverri viku og dorga tvo daga.
Kristján
Ný sakamál
í uppsiglmgu
sem þeir
MATLOCK
Og
DERRICK
munu glíma viö -
Iivor á sinn hátt
/
A fimmtudögum og
föstudögum í vetur.
Spennandi mál
fyrlr auglýsendur.
:
ix \:\ \ >
SJONVARPIÐ
ekkert rugl.
■
t)H03 L
i: í
nb fci m
líSiHÍil