Morgunblaðið - 25.01.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
7
Myrkir músíkdagar 1989:
Ætlum að endmreisa há-
tíðina með fullri sæmd
(Morgunblaðið/Þorkell)
Þrír af aðstandendum Myrkra músíkdaga, Hjálmar H. Ragnarsson, Signý Sæmundsdóttir og
Karólina Eiriksdóttir
- segir Hjálmar
H. Ragnarsson,
formaður Tón-
skáldafélagsins
MYRKIR MÚSÍKDAGAR, tón-
iistarhátið á vegum Tónskálda-
félagsins verða i Reybjavík,
dagana 11-23. febrúar, og
verða aUs sex tónleikar á hátí-
ðinni. Að sögn Hjálniars H.
Ragnarssonar, formanns tón-
skáldafélagsins, var fyrsta hát-
íðin með þessu nafni haldin
veturinn 1980, og var farið
mjög veglega af stað. Kvað
hann hátiðina heldur hafa dal-
að siðustu árin, af ýmsum
ástæðum, meðal annars Qár-
hagslegum, en nú sé meiningin
að endurreisa hana með fullri
sæmd.
Tilgangurinn með hátíðinni er
að flytja nútímatónlist, sem
Hjálmar kvað oft verða útundan
hjá þeim sem stunda almennan
tónlistarflutning og að þessu sinni
verður efnisskrá hátíðarinnar
samsett úr bæði íslenskum og
erlendum verkum.
Fyrstu tónleikamir verða söng-
tónleikar í Listasafni Siguijóns
Ólafssonar, laugardaginn 11.
febrúar, klukkan 17.00. Þar flytja
Signý Sæmundsdóttir, Inga Rós
Ingólfsdóttir, Kristinn Sigmunds-
son og Guðríður Sigurðardóttir
verk eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Þorstein Hauksson, Vladimir
Agopov og Önnu Jastzebska.
Sunnudaginn 12. febrúar,
klukkan 20.30, verða tónleikar í
Kristskirkju, í samvinnu við Tón-
listarfélag kirkjunnar. Þar verður
leikin íslensk flaututónlist og er
það Manuela Wiesler sem leikur
verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, Leif Þór-
arinsson, Pál P. Pálsson og Þor-
kel Sigurbjömsson.
Miðvikudaginn 15. febrúar,
klukkan 20.30, verða tónleikar í
Norræna húsinu, sem bera yfir-
skriftina „Hljóðskúlptúrar - ný
raf- og tölvutónlist." Á þeim tón-
leikum verða flutt verk eftir Þor-
stein Hauksson, Jonathan Harv-
ey, Kaju Saariaho og fleiri.
Dagskrá um Jón Leifs verður
síðan í Norræna húsinu, laugar-
daginn 18. febrúar, klukkan 16.00
og er hún í samvinnu við Háskóla-
tónleika. Hjálmar H. Ragnarsson
heldur fyririestur um „tónmál"
Jóns Leifs, Kristinn Sigmundsson
flytur nokkur sönglög eftir tón-
skáldið, við undirleik Jónasar
Ingimarssonar og kvintett, skip-
aður Bemhard Wilkinson, Einari
Jóhannessyni, Hafsteini Guð-
mundssyni, Helgu Þórarinsdóttur
og Ingu Rós Ingólfsdóttur, flytur
nokkur verk eftir Jón.
Sunnudaginn 19. febrúar,
klukkan 16.00, verður bandarísk
píanótónlist á dagskrá, í Norræna
húsinu. Þar leikur Alan Mandel
verk eftir George Antheil, Charles
Ives, Edward McDowell og Will-
iam Mayer.
Lokatónleikamir á Myrkum
músíkdögum verða síðan fímmtu-
daginn 23. febrúar, klukkan
20.30, í Langholtskirkju. Þeir tón-
leikar em í samvinnu við Kamm-
ersveit Reylqavíkur sem flytur
„Des Canyons aux Étoiles," eftir
franska tónskáldið Olivier Messia-
en, undir stjóm Pauls Zukovskys.
• Einleikari á píanó á þessum tón-
leikum er Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, en þrír aðrir einleik-
arar koma einnig fram; Marteen
van der Valk, sem leikur á xylo-
rimba, Eggert Pálsson, sem leikur
á klukkuspil og Joseph Ognibene,
sem leikur á hom.
Einkaumboó á íslandi
Þaö er sérstaklega ánægjulegt að geta sagt frá
því, að Húsgagnahöllin h/f hefur gert einkaum-
boðssamning við stærstu dýnuverksmiðju Norð-
urlanda, sænska fyrirtækið SCAPA, sem fram-
leiðir í miklu úrvali heimsþekktar gæðadýnur,
fjaðradýnur og vatnsdýnur.
í dag kynnum við dýrustu dýnuna þeirra, sem
sögð er vera alveg einstök gæðavara, enda full-
yrða framleiðendur, að engin fjaðradýna á mark-
aðinum sé vandaðri og betri að liggja og sofa
á. Þetta er dýnan Lux Ultraflex, sem kostar í
verslun okkar kr. 28.900,- í stæröinni 90x200 cm.
Penang sett: 48.680,-
með standard dýnum.
Besta dýnan sem þú getur keypt kostar 28.900,-.
Lappasett kostar 1.600,-. Meiðasett kostar 3.500,-
UX I LTR AFiÆX
Fjaóradýna, stífeða mjúk, meö tvöfalt
fjaórakerfiá tréramma.
Iefrifjaðramottunni eru 240LFK fjaörir
á fermetra og í neöri mottunni
130Bonellfjaðrirá fermetra.
Dýnunni fylgir þvottekta yfirdýna.
Stæröir: 90 cm, 105 cm, 120 cmog 160 cm.
n
Húsgagna&úllin
REYKJAVÍK