Morgunblaðið - 25.01.1989, Page 16

Morgunblaðið - 25.01.1989, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 Ríkismat sjávarafurða: Förum efltir viður- kenndum reglum -segir fiskmats- sljóri um tæplega 800 kg sýnatöku „STARFSMÖNNUM Ríkismats sjávarafurða er heimilt að taka án endurgjalds hæfilegt magn af fiski og sjávarafurðum til rannsókna, enda verði eigendum fisksins, eða afurðanna, skilað skriflegri skýrslu um niðurstöð- ur rannsóknanna. Þetta er tekið fram í 21. grein laga númer 53 frá árinu 1984 um Ríkismat sjáv- arafurða. Um hæfilegt magn eru til alþjóðlegar viðurkenndar reglur. Ríkismatið lagði þær til grundvallar þegar starfsmenn þess tóku tæp 800 kílógrömm af frystum afurðum sem sýni úr frystitogaranum Mánabergi í desember síðastliðnum,“ sagði Halldór Árnason, fiskmatsstjóri, í samtali við Morgunblaðið. „Reglur þessar voru mótaðar af nefnd sem kallast Codex Alimentar- ius og starfar á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Samein- uðu þjóðanna," sagði Halldór. Útgerð Mánabergs, Sæberg á Ólafsfirði, þykir þessi sýnataka óeðlilega mikil og í bréfi hennar til Ríkismatsins kemur fram að út- gerðin vilji fá fiskinn bættan. Því hefur Ríkismatið hins vegar hafnað. Sæberg hefur leitað aðstoðar Jónas- ar Haraldssonar, lögmanns Lands- sambands íslenskra útvegsmanna, í málinu. Jónas hefur sent Ríkismat- inu bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum um hvað Ríkismatið telji vera eðlilegt magn sem sýni. „Það var verið að klára þessa úttekt á sýnum úr Mánabergi á föstudaginn en það er eftir að ganga frá skýrslugerð um úttekt- ina. Sýnunum er alltaf skilað aftur en þessi sýni nýtast að vísu ekki sem fryst afurð lengur," sagði Hall- dór Árnason fískmatssijóri. í greinargerð um þetta mál, sem birtist í fréttabréfi Ríkismats sjáv- arafurða á næstunni, segir fisk- matsstjóri meðal annars að þegar Mánabergið hafi komið að landi 14. desember síðastliðinn hafi verið í skipinu 5.560 kassar, eða 16.389 öskjur, af frystum afurðum. Af þeim hafi Ríkismatið tekið 87 öskj- ur, eða 786,9 kílógrömm, sem sýni. Umhverfísmálaráð Reykjavlkur: Ahyggjur af erfða- mengun í Elliðaánum Umhverfismálaráð Reykjavíkur hefur áhyggjur af erfðamengun laxastofiisins í EUiðaánum. Kem- ur þetta i framhaldi af umræðum sem urðu á síðasta ári um Qölgun flökkulaxa í ánum. Vegna þessa hefur Umhverfismálaráð beint þeim tilmælum til borgaryfír- valda og löggjafarvaldsins að setja reglur sem komi í veg fyrir erfðamengun. Það sem ráðið leggur til er ann- arsvegar að í sjókvíaeldi verði stefnt að því áð nota gelda stofna sem ekki geta breytt erfðum náttúru- legra stofna. Hinsvegar er lagt til að í hafbeit verði fyrst og fremst stefnt að því að nota stofna sem eiga uppruna sinn á viðkomandi svæði til að minnka líkur á meintum áhrifum flökkulaxa úr hafbeit. í bókun sem Umhverfismálaráð hefur lagt fram um þetta efni segir m.a.: „í Ijósi hafbeitar og sjókvía- eldis í grennd við höfuðborgina hefur komið fram uggur um að flökkulax úr eldi kunni að spilla hinum einstöku stofnum Elliða-. ánna. Samkvæmt upplýsingum sem Umhverfismálaráð lét taka saman virðist þessi ótti á rökum reistur að því leyti að ...gera megi ráð fyr- ir verulegri aukningu á flölda flökkulaxa í Elliðaárnar ef áætlanir um aukna hafbeit í grennd við höf- uðborgina standast." Mótmælendur fyrir utan Burger King staðinn í Tallahassee. Herferð Grænflriðunga í Bandaríkjunum: Mótmælin í Flórída snerust upp í lofsöng MÓTMÆLI Grænfriðunga gegn Iceland Seafood, fisksölufyrir- tæki Sambandsms í Bandarilqunum, eru hafin. Þau eru liður í baráttu samtakana gegn hvalveiðum íslendinga. Hópur Grænfrið- unga safhaðist saman fyrir framan Burger King staði víðsvegar um Bandaríkin á miðvikudaginn í síðustu viku til mótmæla. í Tallahassee f Flórída snérust mótmælin fyrir utan Burger King hinsvegar upp í lofsöngva um eiganda þess staðar eftir að mót- mælendur fréttu að hann hefði hætt að kaupa fisk af Iceland Seafood fyrir Qórum mánuðum og keypti nú af Norðmönnum og Kanadamönnum í staðinn. Sá mun eiga 366 Burger King staði I fylkinu. Hilmar Skagfield ræðismaður íslands í Tallahassee segir að greint hafí verið frá mótmælunum í staðarblaðinu „ Tallahassee Democrat". í frétt blaðins var megináherslan lögð á þessi snöggu umskipti mótmælenda eftir að í Ijós kom að viðkomandi staður væri hættur viðskiptum við Iceland Seafood. „Mér finnst alveg makalaust að mótmælendumir skuli hafa lofsungið eigenda þessa Burger King staðar fyrir að kaupa fisk af Norðmönnum því ég veit ekki betur en þeir veiði einnig hvali," segir Hilmar. Mótmælin nú beinast eingöngu gegn Iceland Seafood en ekki Coldwater sölufyrirtæki SH í Bandaríkjunum. Magnús Frið- geirsson forstjóri Iceland Seafood segir að þeir hafí ekki enn orðið vanr við nein áhrif frá þessum aðgerðum Grænfriðunga nú og hvað Burger King varðar séu við- skiptin við þá veitingastaði nú vaxandi hjá fyrirtækinu. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. 45 þúsund atvinnuleysis- dagar í desembermánuði 215 þúsund allt árið 1988. Aukning um 41% írá 1987 45 ÞÚSUND atvinnuleysisdagar voru skráðir á landinu öllu í des- ember síðastliðnum og hafði fjölgað um nærri 20 þúsund frá mánuðinum á undan. Allt árið f Sigfínnur Pálsson írá Stórulág látinn Sigfinnur Pálsson bóndi og hestamaður frá Stórulág f Nesja- hreppi lést að morgni sfðastliðins sunnudags, 22. janúar, á elli- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfii f Hornafirði. Hann var á sjötugasta og þriðja aldursári. Sigfínnur var fæddur 18. apríl 1916 á Norðfírði, en ólst upp á Hoffelli í Nesjahreppi. Hann stund- aði sjómennsku framan af ævinni, en bjó sfðah öll sín búskaparár á Stórulág. Sigfinnur var kunnur fyrir hesta- mennsku og hrossarækt. Hann átti fjölda gæðinga, þeirra nafntogað- astur er Skúmur sem varð efstur í A-flokki gæðinga á landsmóti hestamanna sem haldið var á Þing- völlum 1978. Eftirlifandi kona Sigfinns er Sig- urbjörg Eiríksdóttir frá Miðskeri. Sigfinnur Pálsson Hún var fædd 16. september 1922. Þau gengu í hjónaband þann 17. október 1947. Þau áttu fjóra syni. fyrra voru 215 þúsund atvinnu- leysisdagar skráðir, það er fjölg- un um 62 þúsund daga, eða um 41% frá árinu áður. I desember bárust til Vinnumálaskrifstofú félagsmálaráðuneytisins tilkynn- ingar um uppsagnir 325 starfe- manna og urðu tilkynningar um uppsagnir þá um tvö þúsund á árinu öllu, segir í frétt frá Vinnu- málaskrifetofúnni. Þjóðhags- stofúun og Vinnumálaskrifetof- an munu láta fára fram sérstaka könnun á atvinnuástandinu nú f lok janúar. Skráð atvinnuleysi í desember jafngildir því, að 2.100 manns að meðaltali hafi verið á atvinnuleysis- skrá í mánuðinum. Það samsvarar um 1,7% af áætluðum mannafla samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Síðasta virka dag desembermánað- ar voru 2.700 manns á atvinnuleys- isskrá á landinu. Um §órðungur skráðra atvinnu- leysisdaga í desember féllu til á höfuðborgarsvæðinu og um þrír §órðu hlutar utan þess. 54% at- vinnulausra í desember voru konur og af þeim sem voru á skrá síðasta virka dag ársins voru 95% verka- konur, iðnverkakonur, verkamenn og sjómenn. „Af þessum tölum er ljóst að þá miklu aukningu sem varð í desember á skráðu atvinnu- leysi má öðru fremur rekja til stöðv- unar í fiskvinnslu og útgerð, að höfuðborgarsvæðinu undanskildu, þar sem aukningin varð í öðrum atvinnugreinum," segir í frétt Vinnumálaskrifstofunnar. 830 atvinulausir allt árið 14 þúsund atvinnuleysisdagar voru skráðir í desember 1987, sam- anborið við 45 þúsund 1988, sem er mesti fjöldi í desember síðan 1983, en þá voru atvinnuleysis- dagar í desember rúmlega 48 þús- und. Heildarfjöldi atvinnuleysis- daga 1988, 215 þúsund, jafngildir því, að 830 manns hafí verið á at- vinnuleysisskrá að meðaltali allt árið, það samsvarar um 0,7% af áætluðum mannafla. Sem hlutfall af mannafla hefur skráð atvinnu- leysi aukist um 0,2 prósentustig. „Þrátt fyrir umskipti sem urðu á vinnumarkaði síðari hluta liðins árs, verður árið í heild að teljast gott í atvinnulegu tilliti. Á því tímabili sem er samanburðarhæft, það er frá og með árinu 1983, var aðeins síðastliðið ár (1987, innsk.) og árið 1986 jafngott og árið 1988 hvað atvinnuástand snertir," segir í frétt Vinnumálaskrifstofunnar. Þar segir ennfremur frá tvö þús- und uppsögnum á liðnu ári. „Meðal annars af þessum ástæðum ríkir nú meiri óvissa um framvindu mála á vinnumarkaði en oft áður. Með hliðsjón af þessum aðstæðum hefur verið ákveðið að látas fara fram sérstaka könnun á atvinnuhorfum og mun hún framkvæmd síðari hluta janúarmánaðar í samvinnu Þjóðhagsstofnunar og Vinnumála- skrifstofu félagsm+alaráðuneytis- ins. Er þess að vænta að niðurstaða könnunarinnar liggi fyrir fyrrihluta febrúarmánaðar næstkomandi." Atvinnulausum fækkar á Kópaskeri Sé fjöldi atvinnuleysisdaga skoð- aður eftir byggðarlögum kemur í ljós, að í desember fjölgar þeim frá fyrra mánuði í öllum byggðarlögum nema átta. Þessir staðir eru Borgar- nes, Hellissandur, Bfldudalur, Suð- ureyri, Kópasker, Þorlákshöfn, Vík í Mýrdal og Vestmannaeyjar. Með- alfjöldi atvinnulausra í desember er mestur á höfuðborgarsvæðinu, 460, og á Norðurlandi eystra, 461. Atvinnulausum í mánuðinum fjölg- aði mest á Austurlandi, jafnaðar- tala þeirra hækkaði um 191. Minnst fjölgun varð á Vestfjörðum frá mánuðinum á undan, þar fjölgaði um 18 að meðaltali. Á flestum stöð- um eru konur í meirihluta atvinnu- lausra, þó ekki á höfuðborgarsvæð- inu þar sem karlar eru 277 og kon- ur 183 og á Suðumesjum, þar eru 86 karlar og 55 konur að jafnaði skráð atvinnulaus í desember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.