Morgunblaðið - 25.01.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
19
Reuter
Lik listmálarans Salvadors Dalis í gær, þegar það var til sýnis fyrir
almenning. Dali lést á mánudag, 84 ára að aldri.
Spánn:
Deilt um legstað
Salvadors Dalis
Figneras. Reuter.
LÍK Salvadors Dalis, með stift yfirvararskeggið upp í loftið, var til
sýnis í Figueras i Katalóníu í gær og benti fátt til þess að lát yrði
á deilum um listamanninn eftir andlát hans á mánudag.
Likið var sýnis í tvær klukku-
stundir í stofnun er ber nafnið Gala-
Salvador Dali og var þar mikið fjöl-
menni. íbúar Figueras komu til að
kveðja stórmálarann, krossuðu sig
og sumir brustu í grát þegar þeir
sáu andlit mannsins, sem gerði þorp-
ið þeirra frægt. Dali var mikils met-
inn meðal þorpsbúa og þeir sögðu
að hann hefði ávallt verið ljúfur og
vingjamlegur, „en hann breyttist
snögglega þegar fjölmiðlamenn voru
nálægir," bætti þó einn þeirra við.
Þorpsbúamir minntust ýmissa uppá-
tækja málarans, til að mynda rifjað-
ist upp sagan af því þegar hann
reið fíl inn á aðaltorg þorpsins.
Dali lét ekki hjá líða að valda
deilum um eigin legstað. Kona hans,
Gala, liggur í grafhýsi í kastala hans
í smáþorpinu Puboí við hlið annars
grafhýsis, sem Dali hafði ætlað sjálf-
um sér. Bæjarstjóri Figueras, Mar-
iano Lorca, sagði hins vegar í fyrri
viku að Dali hefði fyrir tveimur
mánuðum óskað eftir því að fá að
hvíla í safninu, sem við hann er
kennt. íbúar Pubol urðu ævareiðir
vegna þessa.
Erfðaskrá Dalis verður lesin eftir
tvær vikur og er talið að málverk
hans verði áfram á Spáni.
Síðustu æviárin hneykslaði Dali
marga með því að veita ýmsum sam-
starfsmönnum sínum heimild til að
eftirprenta verk sín. Hann ritaði
einnig nafn sitt á blöð, sem notuð
vom við eftirprentunina.
Á listamarkaðinum er nú fjöldinn
allur af ódýrum eftirprentunum og
folsunum á verkum Dalis. Fyirum
einkaritari hans var til að mynda
handtekinn í París í fyrra með
70.000 falsanir, sem gætu hafa selst
á 2,5 milljarða ísl. kr.
Listaverkasalar í Lundúnum segja
að helstu verk Dalis eigi eftir að
hækka mjög í verði í kjölfar andláts-
ins, þrátt fyrir hinn mikla fjölda fals-
ana og eftirprentana. Talsmaður
uppboðsfyrirtækisins Christie’s, Jon-
athan Pratt, sagði að verk, sem kost-
aði 40 milljónir ísl. kr. árið 1982,
myndi hækka upp í 200 til 250 millj-
ónir króna. Southby’s selur ekki
lengur verk, sem Dali málaði á sjö-
unda og áttunda áratugnum vegna
eftirprentana og falsana, en að sögn
Pratts er mikil eftirspum eftir mál-
verkum hans frá því fyrir þann tíma.
Reuter
Múhameðstrúarmenn í Bradford búa sig undir siðdegisbænahald í
Jamia-moskunni í Howard-stræti. 50.000 múhameðstrúarmenn i
borginni kreQast þess að bókin Söngvar Satans verði bönnuð.
„Þar sem menn
brenna bækur..“
Margir þeir, sem tekið hafa til
máls í dagblöðum, benda á, að ekk-
ert sé að því að brenna bókina á
almannafæri, að því gefnu að engin
lög séu brotin. Lögreglan i Bradford
hafi ekki aðhafst neitt og því verði
að líta svo á, að hún hafi ekki séð
neitt athugavert við ^erknaðinn.
Auk þess hafi brennumenn sjálfir
greitt fyrir bækumar, sem vom
brenndar. Áköfustu andstæðingar
bókarinnar vilja hins vegar banna
hana alveg.
Á síðasta ári var Rushdie boðið
að flytja fyrirlestur í Suður-Afríku
á vegum rithöfundasamtaka þar.
Bókin er bönnuð þar í landi, og yfir-
völd meinuðu honum að koma til
landsins á þeim forsendum, að þau
gætu ekki ábyrgst öryggi hans.
Fyrirlesturinn, sem hann hugðist
flytja, bar heitið: „Þar sem menn
brenna bækur, brenna þeir einnig
fólk.“
Rushdie segir, að herferðinni
gegn bók sinni sé afar vel stjómað
úr mosku í Regent’s Park í London
og múhameðstrúarstofnun Yussufs
Islams, sem áður var poppsöngvar-
inn Cat Stevens. Á laugardaginn
efna múhameðstrúarmenn til mót-
mælagöngu að Penguin-útgáfufyr-
irtækinu í London, en það á Viking-
útgáfuna, sem gaf út bók Rushdies.
Perú:
Ottastum
líf lOOgull-
námumanna
Lima. Reuter.
SPRENGING varð síðastlið-
inn föstudag i gullnámu í af-
skekktu héraði i Perú,
skanunt frá borginni Nazca.
Eitrað gas af völdum elds,
sem upp kom, ógnar lífi meira
en hundrað námumanna sem
lokuðust inni i námunni. í gær
höfðu sex lík fimdist en þeir
sem næst voru námuopinu
munu flestir liafa komist lífe
af.
Alls er talið að um 400 manns
hafi verið að störfum í námunni
er slysið varð. Samgöngur eru
lélegar á þessum slóðum, sama
máli gegnir um fjarskiptasam-
band, og bárust því ekki fréttir
af slysinu til höfuðborgarinnar,
Lima, fyrr en aðfaranótt mánu-
dags.
Borgarstjórinn í Nazca taldi
litlar lfkur á því að inniluktu
mennimir héldu lífí þar sem eld-
urinn hlyti að eyða öllu súrefni
í námunni. Hann hvatti til þess
að sent yrði timbur, dælur, ljós-
ker, matvæli og vatn á slysstað-
inn og sagði „miklar tafir" hafa
orðið á öllu hjálparstarfí. Að-
standendur námumannanna að-
stoðuðu við hjálparstarfið, að
sögn borgarstjórans, en skorti
m.a. dælur og slökkvitæki til
að fjarlægja eiturgasið úr nám-
unni. Hann taldi víst að eldur
hefði kviknað í námunni af völd-
um gaslampa.
ÚTSALA
Andrés,
Skólavörðustíg 22a, sími 18250.
=l«ENWOOD=
ÞAD VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGOUM MEO KENWOOO HEIMILISTÆKIN
Rafmagns- og steikarpannan
frá KENWOOD
er naudsynleg í hverju eldhúsi
Verð frá kr. 7.220,-
Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta
Heimiljs- og raltækjadeild
HEKIA HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
— \r VÍKURHUGBÚNAÐUR —
Sterkur leikur í stöðunni
r hnlrhdlHiA
Á nýju ári er rétt að taka .. föstum tökum. Örtölvutækni
kynnti nýlega hollenskar I ULIi tölvur sem eru í senn nettar
og hraðvirkar Þessar tölvur bjóðast nú á einstöku kynningar-
verði með RAÐ-hugbúnaði.
Sérstök SYNING á NET-
tengdum TULIP tölvum með
RÁÐ-hugbúnaði verður að
Ármúla 38 og er hún opin sem
hér segir:
Fimmtudagur 26. jan.: 10-17
Föstudagur 27. jan.: 10-18
Laugardagur 28. jan.: 10-15
Við hvetjum þig til að líta inn og kynnast nýjum, sterkum valkosti
í tölvuvæðingu fyrirtækisins.
Við bjóðum lægra verð og betri þjónustu.
Einnig IBM og Hewlett Packard tölvur á góðu verði.
Örtölvutækni - leiðandi á sínu sviði
WM ÖRTÖLVUTÆKNI =^—
Tölvukaup hf., Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími 687220, Fax 687260