Morgunblaðið - 25.01.1989, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989
Andrej Sakharov:
Keppir
félaga í
Moskvu. Reuter.
Mannréttindafrömuðurinn og
Nóbelsverðlaunahafinn Andrej
Sakharov var á sunnudag einum
rómi valinn einn af frambjóðend-
Sovét-
Uzbekístan:
Forseti
víkur úr
embætti
Moskvu. Reuter.
FORSETI Sovétlýðveldisins
Úzbekístan, Pulat Khabi-
bullajev, hefur sagt af sér
og hverfur nú að „visinda-
störfiim“, að sögn sovéska
stjórnarmálgagnsins tz-
vestfju. Fjölmiðlar í lýðveld-
inu hafa sakað forsetann um
ýmiss konar valdniðslu.
Mannabreytingar hafa verið
í lýðveldinu undanfömu en þar
hefur verið kjaminn í spilling-
ameti sem náð hefur alla leið
Moskvu. í síðasta mánuði var
Júríj Tsjúrbanov, tengdasonur
Leoníds Brezhnevs fyrrum Sov-
étleiðtoga, dæmdur í 12 ára
fangelsi ásamt nokkrum öðrum
háttsettum embættismönnum
fyrir aðild að spillingunni í
Uzbekístan.
-Dale .
Carnegie
þjálfun"
STÆKKA
SJÓNDEILDAR-
HRINGINN
STJORIVIUIMAR-
SKQLIIMIM
Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðm*
Sími: 82411
um þingsæti við
forsætisneftid
um fyrir Moskvu i kosningum
sem senn fara fram i Sovétrikj-
unum til nýs fulltrúaþings. Þetta
gerðist á þúsund manna fundi
sem eCnt var tíl af samtökum
andstæðinga stalinisma, Minn-
ingu, er í ljós kom að sovéska
akademían myndi ekki tilnefiia
Sakharov sem einn af frambjóð-
endum sínum. Á föstudag til-
nefiidi eðlisfræðistofnun í borg-
inni Sakharov sem frambjóðanda
sinn en samkvæmt kosningaregl-
um mun tilnefningin á sunnudag
gilda. FuIItrúi kjörnefhdar sagði
nær vist að Sakharov myndi m.a.
keppa um þingsæti Vítalíj Vo-
rotníkov, félaga i 12 manna for-
sætisnefnd Æðsta ráðsins, sem
er helsta valdastofnun landsins.
Sakharov hefur um árabil verið
ofsóttur af yfirvöldum vegna skoð-
ana sinna. „Þessi maður var lifandi
tákn heiðarleika á þeim árum er
lygar og hálfsögð sannindi höfðu
yfirhöndina," sagði rithöfundurinn
Ales Adamovitsj á fundinum við
gífurleg fagnaðarlæti fundargesta.
Þúsundir manna urðu að bíða fyrir
utan salinn þar sem kjörið fór fram.
„Hafíð engar áhyggjur," sagði
þrekvaxinn lögregluforingi bros-
andi. „Andrej Dmítrijevitsj [Sak-
harov] verður valinn." Fólkið ótt-
ðaðist að reynt yrði að koma í veg
fyrir kjör Sakharovs með belli-
brögðum.
Kjömeftid þarf að samþykkja
framboð Sakharovs en eðlisfræð-
ingur, sem styður Sakharov, sagðist
efast um að yfírvöld þyrðu að hrófla
við tilnefningunni. „Þeir sjá hvað
hann hefur mikinn stuðning. Auk
þess þarf Gorbatsjov. á mönnum
eins og honum að halda á þinginu.“
Vorotníkov er forseti stærsta og
fjölmennasta ríkis Sovétrílqanna,
Sovétlýðveidisins Rússlands. Tveir
Skrifstofutækninám
Tölvuskóli íslands
Símar: 67-14-66
67-14-82
aðrir frambjóðendur keppa um sæt-
ið og er Borís Jeltsín annar þeirra
en hann var á sínum tíma sviptur
stöðu flokksformanns í Moskvu eft-
ir að hafa gagnrýnt Gorbatsjov fyr-
ir að fara of hægt í sakimar í
umbótum sínum. Fram til þessa
hefur háttsettum sovéskum valda-
mönnum aldrei verið ógnað í kosn-
ingum þar sem ekki hefur verið
nema einn frambjóðandi til hvers
þingsætis.
Reuter
Andrej Sakharov (lengst t.h.) á fundinum í Moskvu á sunnudag,
skönunu eftir að hann var kjörinn frambjóðandi í væntanlegum þing-
kosningum.
Kosningar í Indlandi:
Kongressflokkurinn ber sig-
ur úr býtum í tveimur ríkjum
Gandhi á enn í vök að veijast vegna ósigursins í Tamil Nadu
Nýju Delhi. Reuter.
Kongressflokkur Rajivs Gandhis, forsætisráðherra Indlands, vann
sannfærandi sigur í þingkosningum í norðausturríkjunum Nagalandi
og Mizoram á mánudag eftir mikinn kosningaósigur i Tamil Nadu-
ríki á sunnudag.
Kongressflokkurinn hlaut að
minnsta kosti 31 af 59 sætum
þingsins í Nagalandi, samkvæmt
nýjustu tölum í gær. Þá fékk flokk-
urinn minnst 22 af 40 þingsætum
í nágrannaríkinu Mizoram.
Úrslit kosninganna í þessum
tveimur landamæraríkjum eru talin
nokkur huggun fyrir Gandhi og
Kongressflokkinn þótt þau bæti
ekki upp hrakfarimar í Tamil Nadu.
Þótt Gandhi hafí beitt sér mjög í
kosningabaráttunni þar laut flokkur
hans í lægra haldi fyrir tveimur
flokkum, sem ekki bjóða fram til
alríkisþingsins; flokki tamfla, DMK,
sem hlaut 148 þingsæti, og
AIADMK, sem fékk 27 sæti. Kon-
gressflokkur mátti sætta sig við 26
þingsæti. Talið er að þessi ósigur
verði til þess að Gandhi fresti í
lengstu lög að boða til alríkiskosn-
inga, sem verða að fara fram í
síðasta lagi í desember. Fréttaskýr-
endur telja að Kongressflokkurinn
tapi mörgum þingsætum í þeim
kosningum þótt flestir efíst um að
núverandi stjómarandstaða nái
meirihluta. Því hefur ennfremur
verið spáð að nokkrir þingmenn
Kongressflokksins, sem eiga á
hættu að missa sæti sín á alríkis-
þinginu, taki þá áhættu að ganga
til liðs við stjómarandstöðuna eða
reýni jafnvel að gera uppreisn gegn
Gandhi innan flokksins.
Kosningasigurinn í Nagalandi og
Mizoram er ekki talinn mikilvægur.
Bæði ríkin era langt frá Norður-
og Mið-Indlandi, þar sem Kongress-
flokkurinn verður að halda fylgi
sínu til að bera sigur úr býtum í
alríkiskosningum. Alls búa tvær
milljónir manna í báðum þessum
ríkjum til samans, en íbúar Tamil
Nadu era 50 milljónir.
Fjöldamorðinginn Bundy tekinn af lífí í gær:
Játaði að hafa myrt
á þriðja tug kvenna
Starke. Reuter.
FJÖLDAMORÐINGINN Theodore Bundy, sem dæmdur var fyrir
þijú morð og játaði yfir helgina að hafa myrt að minnsta kosti 22
ungar konur að auki, var tekinn af lífí í rafinagnsstól i ríkisfangels-
inu í Flórída á hádegi i gær. Aftakan fór fram aðeins klukkustund
eftir að hæstiréttur Bandaríkjanna synjaði beiðni lögfræðinga Bund-
ys um frestun, sem barst á elleftu stundu. Hinn 42 ára Bundy, sem
setið hafði í fangelsi i 10 ár, var sekur fundinn um að hafa myrt 12
ára stúlku árið 1978.
Eftir næstum áratugalanga þögn
greindi Bundy um helgina rann-
sóknarlögreglumönnum frá fjöl-
mörgum morðum sem hann framdi
á áttunda áratugnum. Bundy var
um langt skeið talinn bera ábyrgð
á hátt í þijátíu morðum og manns-
hvörfum.
Að sögn fangelsisyfírvalda af-
þakkaði Bundy síðasta málsverð
sinn og síðustu stundimar sat hann
við bænir ásamt fangelsisprestin-
um. Að sögn fangelsisyfírvalda
hringdi Bundy í móður sína en fékk
að öðra leyti engar heimsóknir frá
Qölskyldu sinni.
Sjónvarpspredikarinn James
Dobson, sem talaði við Bundy í ein-
rúmi skömmu fyrir aftökuna, sagði
að dauðafanginn hefði tjáð sér að
á unglingsaldri hefði hann ánetjast
klámi af grófustu tegund og að það
hefði verið hvatinn að því að síðar
rann á hann morðæði.
Um 150 stuðningsmenn dauða-
refsingar höfðu safnast saman fyrir
utan fangelsismúrana þegar Bundy
var leiddur til aftökunnar. Á ljósa-
skilti sem komið hafði verið fyrir
ofan á bflþaki stóð: „Bundy, stikn-
aðu í helvíti". Skammt frá blóms-
traðu viðskiptin hjá götusala sem
bauð til sölu stuttermaboli með
áletraninni „Stiknaðu Bundy Stikn-
aðu“.
VOLKSWAGEN
1989
M. AJFLSTÝRI
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
plHEKLAHF
“ iLaugavegi 170-172 Simi 695500
VERÐ FRA KR.
1.244.000
Noregnr:
Fluttu skilaboð milli ísr-
aela og Palestínumanna
ÓsI6. Reuter.
THORVALD Stoltenberg, utanríkisráðherra Noregs, sagði í viðtali
sem bírt var i norska dagblaðinu Klassekampen að flokkur hans,
Verkamannaflokkurinn, hefði flutt skilaboð milli ísraelskra hreyf-
inga og Frelsissamtaka Palestínumanna, PLO, síðan árið 1982 og
milli Bandarikjamanna og PLO siðan flokkurinn komst til valda
árið 1986.
„Verkamannaflokkurinn hefur
gegnt hlutverki sendiboða milli
helstu aðila í Mið-Austurlöndum
síðan árið 1982,“ sagði Stoltenberg.
Þessi afskipti hófust eftir að sendi-
nefnd flokksins ræddi við Yasser
Arafat, leiðtoga PLO, í lok ársins
1982 og þau héldu áfram eftir að
flokkurinn myndaði stjóm undir
forystu Gro Harlems Brandtland
árið 1986. Stoltenberg gat þess
ekki um hvaða ísraelsku hreyfingar
væri að ræða.
Norski utanríkisráðherrann sagði
í síðustu viku að hann hygðist ræða
við Arafat í Túnisborg til að kanna
hvort Norðmenn gætu stuðlað að
friði í Mið-Austurlöndum.