Morgunblaðið - 25.01.1989, Side 23

Morgunblaðið - 25.01.1989, Side 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 ‘mORGUNBLAÖIÐ 'mÍÐVTKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Krukkað í vísitöluna Fyrir 10 árum var stjóm Al- þýðubandalags, Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks við völd eins og núna. Þá voru sett svokölluð Ólafslög, þar sem með- al annars er heimilað að verð- tryggja innlán og útlán á pen- ingamarkaðinum. Sumarið 1979 mótaði Seðlabankinn síðan reglur um lánskjaravísitölu í samræmi við þessi lög. Nú hefur ríkisstjóm sömu flokka breytt þessari vísi- tölu. Hún hefur bætt viðmiðun við laun inn í vísitöluna og vegur þessi viðmiðun Vs á móti vísitölu framfærslukostnaðar annars vegar og vfsitölu byggingar- kostnaðar hins vegar. Þegar litið er á formhlið máls- ins, vekur í fyrsta lagi athygli, að viðskiptaráðuneytið tekur sér nú fyrir hendur að breyta láns- kjaravísitölunni en ekki Seðla- bankinn, sem hefur verið falin ábyrgð á útreikningi og útgáfu vísitalna. í öðm lagi er launa- vísitala ekki reiknuð þannig út núna, að hún uppfylli þær kröf- ur, sem gera verður til slíkrar vísitölu. Hún er áætluð að tals- verðu leyti að sögn Hallgríms Snorrasonar, hagstofusfjóra. í þriðja lagi telur úrskurðamefnd sem starfar á gmndvelli Ólafs- laga, að ekki sé „heimild til að skipta um vísitölur í verðtryggð- um samningum og á sama hátt verður ekki séð að unnt sé með sfjómvaldsákvörðunum að raska vægi verðvísitalna í núverandi lánskjaravísitölu". Þetta kemur fram í svari úrskurðamefndar við fyrirspum frá Seðlabanka. Ekki er ólíklegt, að einmitt af þessum sökum hafí viðskiptaráðuneytið en ekki Seðlabankinn staðið að breytingu vísitölunnar nú. Bank- inn hafí einfaldlega efast um lög- mæti breytingarinnar. Fyrir Al- þingi liggur framvarp til laga um launavísitölu; áður en það er orð- ið að lögum, er meira en hæpið að nota hana sem gmndvöll flestra lánssamninga í landinu. Þá er það sérstakt lögfræðilegt úrlausnarefni, hvort með þessum hætti sé unnt að breyta láns- samningum. Þrátt fyrir hæpnar lagafor- sendur, svo að ekki sé meira sagt, grípur ríkissijómin til þess ráðs að kmkka í lánskjaravísitöluna. Með því er verið að leysa úr pólitískum ágreiningi innan ríkis- sijómarinnar. Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, hef- ur hvað eftir annað sagt, að láns- kjaravísitalan væri að hverfa úr sögunni. Hann hefur m.a. hreyft’ því að afnema hana í ársbyrjun 1990. Fyrir áramót tilkynnti við- skiptaráðherra, að gildistöku nýrrar lánskjaravísitölu hefði ver- ið frestað um 3 mánuði vegna þess m.a., að Alþingi hefði enn ekki samþykkt lög um launavísi- tölu. Nú segir ráðherrann, að óvissan um lánskjaravísitöluna sé úr sögunni og við hana eigi að miða eins og hann hefur ákveðið. Er unnt að treysta þess- um orðum? Vilja menn byggja Qárhagsskuldbindingar sínar á þeim? Ifyrir áramót sömdu lífeyr- issjóðir um að lána ríkissjóði fé á gmndvelli óbreyttrar láns- kjaravísitölu. Nú virðist ríkið hafa breytt þeim samningi einhliða. Standast slíkir viðskiptahættir að lögum? Óánægjan með lánskjaravísi- töluna hjá skuldumm á rætur að rekja til þess, að hún mælir fyrir um hækkanir á skuldum á meðan laun em óverðtryggð. Með því að tengja vísitöluna launum kann að vera unnt að jafna þennan mun milli launa og skulda, en þessi tenging setur einnig laun- þegum og talsmönnum þeirra nýjar skorður. Hækkun launa leiðir af sér hækkun á lánskjara- vísitölu. í þessu sambandi má benda á, að lækkun raunvaxta kemur sér betur fyrir skuldara en breytingar á lánskjaravísitölu af þessu tagi. Ef það er pólitískt markmið þessarar aðgerðar að stuðla að sem minnstum launa- hækkunum á árinu, má segja, að ríkisstjómin fari óvenjulega leið í því efni. Um þennan þátt málsins er hins vegar talað í hálf- kveðnum vísum af ráðhermm. í ljós kemur hvaða áhrif við- miðunin við launavísitöluna hefur á áhuga manna á að festa fé sitt í verðbréfum eða með öðmm hætti, þar sem lánskjaravístalan kemur við sögu. Hin skyndilega ráðstöfun sem tilkynnt var í fyrradag fælir menn frá fjár- magnsmarkaðinum, ef hún verð- ur til að ýta undir þá skoðun, að stjómmálamenn ætli að vera með puttana í honum, eftir því hvem- ig orð falla við ríkisstjómarborðið hverju sinni. Það hefur löngum gefíst vel að setja peningana í steinsteypu frekar en bréf með rituðum texta, sem stjómvöld telja sig geta breytt, þegar þeim hentar. Leiðir ráðstöfun ríkis- stjómarinnar til þess að dregur úr dýrmætum spamaði? Hvemig sem á málið er litið, vekur kmkkið í lánskjaravísi- töluna tortryggni. Hækkanir ríkisstjómarinnar sjálfrar hafa snaraukið hraðann á verðbólgu- hjólinu. Ráðherrar vildu ekki horfast í augu við það í hækkun lánskjaravísitölunnar. Ríkis- stjómin er einfaldlega flækt í vítahring eigin verka og að sjálf- sögðu er það allur almenningur, sem borgar brúsann að lokum, ekki sízt þeir, sem stuðlað hafa að spamaði og því enn minni erlendum lántökum en ella. Morgunblaðið/Bjami Frá opnun sýningarinnar „Víkingar í J6rvík“. Á myndinni eru forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Þór Magnússon, þjóðminjavörður, Knud Odegárd, forstjóri Norræna hússins, og breski sendiherrann á íslandi, Mark F. Chapman. Sýningin „Víkingar í Jórvík“: Sýnir hvernig víkingarnir löguðu sig að borgarlífinu — segir forstöðumaður British Museum Norski landkönnuðurinn og rithöfundurinn dr. Helge Ingstad flutti fyrirlestur um fund norrænna manna á Ameríku á sunnudaginn. Hann sést hér ásamt eiginkonu sinni, Anne Stine. Sýningin „Víkingar i Jórvík“ var opnuð á laugardaginn að við- stöddu miklu fíölmenni. Hún er haldin sameiginlega af Norræna húsinu og Þjóðmiiyasafhi íslands og stendur hún til 2. apríl. í Norr- æna húsinu er lögð áhersla á muni sem sýna daglegt líf vikinganna en í Bogasal Þjóðminjasafhsins er gefin mynd af þeim sem sjómönn- um og landnámsmönnum. Um helgina voru haldnir tveir fyrirlestrar í Norræna húsinu í tengslum við sýninguna. Á laugardaginn flutti Sir David Wilson, forstöðumaður British Museum, fyrirlestur um efnið „Víkingar í Kúmbríu og á eynni Mön“, en dr. Helge Ingstad, landkönnuður og rithöfundur, hélt siðan fyrirlestur á sunnudaginn um fund norrænna manna á Ameríku. í fyrsta sinn sem sumir þeirra bjuggu í borgum Sir David Wilson, forstöðumaður British Museum, er fomleifafræð- ingur að mennt og hefur einkum lagt stund á rannsóknir á valdatfma Engil-Saxa og víkinga á Bretlands- eyjum. í fyrirlestri sínum á laugar- daginn fjallaði hann einkum um víkingabyggðir við írlandshaf; í Kúmbríuhéraði og á eynni Mön. Á þessum slóðum hafa fundist minjar um búsetu þeirra, þar sem norræn áhrif renna saman við keltneska og engil-saxneska menningu. Sir David ræddi einnig um blendna trú íbúanna og sýndi meðal annars myndir af steinkrossum, sem skreyttir vom með myndum úr heiðnum goðsögnum. í samtali við Morgunblaðið sagði Sir David, að sýningin í Norræna húsinu sýndi vel hversu auðveldlega víkingamir hefðu aðlagast enskri borgarmenningu, þótt fæstir þeirra hefðu áður búið í þéttbýli. Þeir hefðu verið hæfíleikaríkir iðnaðar- menn, auk þess að vera einhveijir mestu kaupmenn og sæfarar sam- Sýningargestum í Norrœna húsinu gafst kostur á að slá sina eigin víkingamynt. Sir David Wilson, forstöðumaður British Museum, stendur hér við eitt verkið á sýningunni í Norræna húsinu. Listamaður hefur brugðið upp mynd af daglegu lífi f Jórvfk frá þeim tíma er norrænir menn réðu þar ríkjum. tíðar sinnar. Lagði hann áherslu á þann mun, sem hefði verið á búferlaflutningum norrænna manna til byggðra landa og landnámi þeirra í óbyggðum löndum eins og íslandi. Þeir hefðu fljótlega blandast Engil-Söxum og minjamar frá Jórvík væm bæði af engil-saxneskum og norrænum upprana. Norræn áhrif mætti enn sjá í fjölmörgum ömeftium og ýms- um algengum orðum í nútíma- ensku, svo sem „husband" og „law“. Að sögn Sir Davids urðu miklar breytingar á skiptingu jarðnæðis og þjóðfélagsskipan á þeim svæðum sem norrænir menn réðu á Eng- landi. Yfirráð þeirra urðu þó skammvinn; þeir tóku fljótlega upp engil-saxneska tungu, köstuðu heiðnum átrúnaði sínum og urðu hluti ensku þjóðarinnar. Fundur norrænna manna á Ameríku er nú viðurkenndur Norski landkönnuðurinn og rit- höfundurinn dr. Helge Ingstad flutti fyrirlestur um fund norrænna manna á Ameríku í Norræna húsinu á sunnudaginn. Hann er lögfræði- menntaður, var landstjóri á Sval- barða í 22 ár, bjó í nokkur ár með- al indíána í Norður-Kanada og esk- imóa í Alaska og síðar kynnti hann sér hagi Apache-indíána í Arizona og Mexíkó. Hann bjó um skeið á Grænlandi og hefur rannsakað minjar um búsetu norrænna manna þar. Á ámnum 1961 til 1968 stóð dr. Helge Ingstad fyrir fomleifarann- sóknum á austurströnd Kanada ásamt eiginkonu sinni, Anne Stine, sem er fomleifafræðingur að mennt. Meðal þátttakenda í þeim rannsóknum var dr. Kristján Eld- jám, þáverandi þjóðminjavörður og síðar forseti íslands. í þessum rann- sóknum fundust norrænar mann- vistarleifar frá því um 1000 e.Kr. nyrst á Nýfundnalandi þar sem heitir L’Anse aux Meadows og er það talið sanna, að norrænir menn hafí siglt til Ameríku um það bil 500 áram á undan Kólumbusi. Þessi fomleifafundur vakti heimsathygli og hefur meðal annars af UNESCO verið talinn með mikilvægustu fom- leifafundum síðari tíma. í samtali við Morgunblaðið sagði dr. Helge Ingstad að sannana af þessu tagi hafí verið leitað í þijú- hundrað ár. Skiptar skoðanir hefðu verið um áreiðanleika hinna foma rita, er greina frá ferðum norrænna manna til Ameríku, eða „Vínlands hins góða“, eins og þeir kölluðu það, en þessi fundur hefði rennt stoðum undir sannleiksgildi þeirra frásagna. Um ástæður þessara ferða sagði hann, að hinir norrænu Grænlend- ingar hefðu sennilega verið að leita landa, sem betur væra fallin til búsetu en Grænland. Einnig hefðu þeir þurft að útvega sér timbur til skipasmíða, en það fundu þeir ekki þar. Auk þess hefði verið tiltölulega stutt leið frá byggðum þeirra á Grænlandi til Nýfundnalands. Dr. Helge Ingstad sagði að af fomum frásögnum mætti ráða, að á ýmsu hefði gengið í samskiptum hinna norrænu landnema og indí- ána. Ljóst væri að einhver verslun hefði átt sér stað, en indíánamir hefðu verið fjandsamlegir og oft hefði slegið í brýnu með þessum ólíku þjóðum. Ferðir til Ameríku hefðu fljótlega lagst af og minning- in um þessa landafundi næstum gleymst. Fj ármagnsgróða- lýður — eða hvað? eftir Birgi ísl. Gunnarsson Eitt elsta og oft áhrifaríkasta bragðið í áróðri er að breyta merk- ingu orða og hugtaka, gefa þeim nýtt inntak og ragla þannig fólk í ríminu. Oft er það gert af ásettu ráði og vitandi vits, en síðan dansa aðrir með, smitaðir af áróðrinum. Fjármagnsgróðalýður Umræðan um vexti, fíármagns- eigendur og viðskiptalífið er dæmi- gerð umræða þar sem höfð era endaskipti á hlutunum. Ég hlustaði t.d. nýlega á umræðuþátt f hljóð- varpi þar sem meðal þátttakenda var forystukona hjá Kvennalistan- um. Á henni var að skilja að til fíár- magnseigenda mætti relg'a flest hið illa í þjóðfélaginu. Þetta fólk sem stofnaði fyrirtæki, setti þau á haus- inn og stofnaði svo bara ný fyrir- tæki. Eitthvað á þessa leið hljóðaði þulan. Ég hlustaði líka á formann BSRB í sjónvarpsviðtali á dögunum þar sem hann var að koma af fundi ráðherra ríkisstjómarinnar um kjaramál ríkisstarfsmanna. í því viðtali virtust aðalóvinir launafólks nú vera „fjármagnsgróðalýðurinn", sem héldi uppi vöxtum í þjóðfélag- inu og spillti lífskjöram fólks. Hópum ruglað saman Þessi tvö viðtöl era dæmi af handahófí um umræðu síðustu viku. Auðvitað er hér raglað saman tveimur hópum manna. Annars veg- ar era það þeir sem stunda atvinnu- rekstur og viðskipti af ýmsum tagi, taka til þess lán í bönkum og öðram fjármálastofnunum. Sumum geng- ur illa, verða gjaldþrota, tekst að útvega sér lánsfé á ný og byija aftur. Öðram gengur vel og reka traust fyrirtæki, en öllum þessum er það sameiginlegt að þurfa að eiga aðgang að lánsfé. Þá komum við að hinum hópun- um, en það era þeir sem leggja láns- fé til. Stundum era þeir kallaðir sparifjáreigendur, stundum fíár- magnsgróðalýður og oft er þessum hópi manna ekki vandaðar kveðj- umar. Nú vill svo til að nýlega hefur verið varpað nokkra ljósi á þennan hóp. Félagsvísindadeild Háskóla íslands gerði í nóvember sl. könnun á einkennum og við- horfum sparifíáreigenda. Könnunin Birgir ísl. Gunnarsson „Það er þetta fólk sem með sparnaði og fyrir- hyggju leggur til það fé sem bankar og lána- stofiianir hafa til ráð- stöfunar í þágu at- vinnulífsins eða ein- staklinga sem þurfa á lánum að halda. Og þetta er engin fámenn stétt gróðamanna, held- ur góður meirihluti þjóðarinnar. Þetta er ekki síst aldrað fólk sem hefur sparað til elliáranna og ungt fólk sem sparar til að eign- ast íbúð eða koma sér á annan hátt fyrir í lífinu.“ er gerð fyrir Samband íslenskra sparisjóða og birtust helstu niður- stöður hennar í Mbl. laugardaginn 14. janúar. Hvaða fólk er þetta? Hér verður að vísa til þess sem þar kemur fram, en hér skal þó lögð áhersla á nokkur atriði. Rúm- lega 58% fólks segist eiga sparifé. Hlutfallslega flestir sparifíáreig- endur era í eldri aldurshópunum, þ.e. fólk á aldrinum 60-75 ára, en næstflestir í jmgstu aldurshópun- um, þ.e. 18-24 ára. Lítill munur er á hlutfallslegum fíölda sparifíáreig- enda á milli stétta. Hæsta hlutfallið er hjá fólki í skrifstofu- ogþjónustu- störfum. Það er einnig athyglisvert að sparifíáreigendur era með lægri fjölskyldutekjur en þeir sem ekki spara. Þama kom einnig fram að flestir telja háa vexti mikilvægasta, þegar velja á leið til að ávaxta sparifé. Spamaður og fyrirhyggja Vissulega era þetta fróðlegar upplýsingar og nauðsynlegt fyrir valdhafa að hafa þær í huga þegar taka þarf ákvarðanir í efnahags- og peningamálum. Það er þetta fólk sem með spamaði og fyrir- hyggiu leggur til það fé sem bank- ar og lánastofnanir hafa til ráðstöf- unar í þágu atvinnulffsins eða ein- staklinga sem þurfa á lánum að halda. Og þetta er engin fámenn stétt gróðamana, heldur góður meirihluti þjóðarinnar. Þetta er ekki síst aldrað fólk sem hefur sparað til elliáranna og ungt fólk sem spar- ar til að eignast íbúð eða koma sér á annan hátt fyrir í lífinu. Neikvæðir vextir? Nú boðar forsætisráðherrann það að hann vilji stefna að „neikvæðum vöxtum" a.m.k. um tíma. Hvað þýðir það? Það hefur í för með sér að vextir verði lægri.en verðbólgan, að hluti sparifíárins verði látinn brenna upp í verðbólgu og að með valdboði verði hluti af þessu fíár- magni fólksins tekinn og fluttur til þeirra sem viðskiptin stunda. Óhætt er að fullyrða að allur al- menningur er sér nú mjög meðvit- aður um það að sparifé verði ekki látið brenna upp. Svörin við spum- ingum í ofangreindri könnun sýna það glögglega. Hætt er því við að á þeirri stundu sem forsætisráð- herrann, með aðra ráðherra í eftir- dragi, þvingaði fram neikvæða vexti myndi fólk rífa fé sitt úr bönk- unum og leita annarra ráða til spamaðar. Hvar stæðum við þá? Höfundur er alþingismnður Sjálf- stæðisOokks fyrir Reyhjavíkur- kjördæmi. Dali yfirfærði dulvitundina í „handmálaða ljósmynd af draumi“ Þáttur Dalis á framþróun myndlistar tuttugustu aldar er ótvíræður og einkum tímamótandi verk, sem hann gerði á fyrstu tveim áratugum súrrealistastefn- unnar. Segja má, að hann hafí mynd- gervt drauminn og starfsemi und- irvitundarinnar flestum betur og hér varð hann fyrir miklum áhrif- um af kenningum Sigmunds Fre- uds og lærisveins hans, Carls Gustafs Jungs. — Yfírfært dulvit- undina í „handmálaða ljósmynd af draumi" svo maður vísi til setn- ingar sem iðulega er vitnað til. Hið bókmenntalega kemur einnig fram í myndum hans og hér varð hann fyrir dijúgum áhrifum af ritum Henris Bergsons. Hann er sá málari, sem hefur lýst hinu óraunveralega með hvað öfgakenndustu meðölum raun- sæis og ímyndunar og með aðstoð furðulegs samspils fíarvíddar og rýmiskenndar, sem hefur hans eigið kennimark og skilur hann Salvador Dali frá öllum öðram súrrealistum ald- arinnar. Hugtök eins og tími og lými verða afstæð í myndum hans og til að framkvæma fíarstæðu- kenndar hugmyndir sínar sótti hann heilmikið til meistara lista- sögunnar, svo sem Rafaels, Piero di Cosimo, Jean Francois Millet o.fl., og ræktaði hér hið þver- stæðukennda og óútreiknanlega sem kemur skoðandanum í opna skjöldu. Han var og meistari sjón- hverfínganna svo sem kemur einna greinilegast fram í mynd hans „Sixtínska maddonan" (1958). Standi skoðandinn alveg við myndina sýnist hún af engu eða óhlutbundin — í tveggja metra fjarlægð verður hún að Sixtínsku maddonunni en í fímmtán metra fjarlægð að eyra á engli. Hug- myndaflugi hans og myndrænum uppátækjum vora því engin tak- mörk sett frekar en ijölhæfni en hann vann einnig um tíma að kvikmyndum, gerði skartgripi, hannaði leikmyndir og skreytti búðarglugga o.fl. o.fl. Ahrif hans á heimslistina era því viðtæk og erfítt að skilgreina þau í stuttu máli og á afmörkuðu sviði. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.