Morgunblaðið - 25.01.1989, Page 27

Morgunblaðið - 25.01.1989, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 27 LýðurS. Hjálmars son — Kveðjuorð Fæddur 21. júlí 1957 Dáinn 16. janúar 1989 Það er ekkert eins dýrmætt og að eiga sér bróður sem þykir vænt um mann, sýnir manni umhyggju og tekur þátt í því sem maður er að gera. Það er ekkert eins gott og að eiga bróður sem hægt er að leita til og deila með sorgum sínum og gleði. Og það er ómetanlegt að eiga bróður sem er vinur í raun og hægt er að leita til þegar eitthvað bjátar á. Og það er ekkert eins erfitt, eins óheii\ju sárt og að horfa á bak bróður sínum. Þegar við systkinin stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að Lýður sé dáinn fyllast hjörtu okkar sárum söknuði og tómleika. Missir okkar er mikill. Við áttum sannarlega miklu láni að fagna að hafa átt slíkan bróð- ur sem Lýður var. Fyrir það erum við þakklát. Lýður hefur kvatt sitt jarðneska líf en hann lifir áfram í öllum fallegu og björtu minningunum sem tengdar eru honum, og á þann hátt mun hann alltaf vera hjá okk- ur, vaka yfir okkur og veita okkur styrk. Lýður var einstakur persónuleiki. Hann var svo kröftugur og duglegur og hann hafði svo fallegt og jákvætt viðhorf til lífsins. Þess vegna var hann okkur fyrirmynd í svo ótal- mörgu. Það var alltaf gott að vera nálægt honum og samleiðin með honum er okkur mjög dýrmæt reynsla. Lýður hafði mjög aðlaðandi fram- komu og han gaf mikið af sjálfum sér. Enda eignaðist hann marga góða vini og kunningja á lffsleiðinni sem alla tíð héldu tiyggð við hann. Eitt af mörgu sem Lýður hafði fram yfir okkur hin var góða skapið hans. Honum var nefnilega gefið ein- staklega gott skap sem gerði honum kleift að halda reisn sinni þrátt fyrir það að vera upp á svo margt og marga kominn. Þess vegna gat hann aðlagað sig svo vel kringumstæðum sínum og gert gott úr öllum hlutum. Þetta er einstakur hæfileiki og fáum gefið. Lýður kunni ekki að láta sér leið- ast. Hann var mjög félagslyndur og átti sér margvísleg áhugamál sem hann rækti af kappi. Hann tefldi, spilaði brids og hlustaði mikið á tón- list. Hann var ákaflega mikill áhuga- maður um íþróttir og þá sérstaklega fótbolta. Hann var alla tíð einn áka- fasti stuðningsmaður Akranessliðs- ins og minnkaði það síst eftir að hann flutti til Reylq'avíkur. Þar smit- aði áhugi hans út frá sér og oftar en ekki fjölmenntu vinir hans með honum á völlinn. Þá hafði hann brennandi áhuga á stjómmálum og öllu því sem laut að hagsmunum og rétti fatlaðra I þjóðfélaginu. í hjarta sínu var hann trúr og tryggur Al- þýðuflokknum og jafnaðarmanna- stefnunni og var hann á lista hjá Alþýðuflokknum í Reykjavík' til síðustu alþingiskosninga. Innan veggja Sjálfsbjargar var hann alltaf tilbúinn að taka að sér hin ýmsu störf og verkefni og á meðan kraftar hans leyfðu var hann virkur þátttakandi í starfsemi íþróttafélags fatlaðra. Hann náði mjög góðum árangri í boccia-íþrótt- inni enda kappsfullur og metnaðar- gjam að eðlisfari. Lýður vildi alltaf gera betur. Eitt besta dæmið um metnaðar- gimi hans, hörku og viljastyrk er nám hans við Öldungadeild Mennta- skólans við Hamrahlíð. Þrátt fyrir litla undirstöðumenntun hóf hann þar nám og átti hann ekki langt eftir í stúdentspróf þegar fötlun hans ágerðist það mikið að hann varð að hætta. Lýður hefur vissulega átt sínar erfíðu stundir eins og allir en hann bar tilfínningar sínar aldrei á torg, kvartaði aldrei nokkum tímann. Hann hugsaði nefnilega alltaf sem svo að það væru svo ótal margir aðrir sem væru verr á sig komnir en hann. Bjartsýni og létt lund ein- kenndu hann allt hans líf og það var aðdáunarvert hvað hann gat haldið ró sinni og stillingu, sama á hveiju gekk. Lýður var fasti punkturinn í okkar systkinahópi, sá sem við hin leituðum til. Það var nefnilega hægt að ræða við hann um alla hluti og hann var góður hlustandi. Þau vom ófá skipt- in sem við leituðum til hans og þau voru ófá skiptin sem hann hjálpaði okkur með ráðum sínum og einfald- lega bara á þann hátt að vera til staðar, — vera vinur okkar, þegar við þurftum á honum að halda. Lýður var heima yfír jólin og ára- mótin eins og alltaf, og alltaf var jafn gaman og yndislegt að fá hann heim. Okkur fannst jólin alltaf virki- lega vera að koma þegar hann kom heim á Þorláksmessu. Þessi jól var eitthvað öðruvísi. Okkur fannst eitt- hvað vanta. Lýður var ákaflega þreyttur, líkaminn gerði kröfur og þurfti mikla hvfld. Og í brúnu augun hans vantaði glampann. Við gerðum okkur grein fyrir því að Lýður myndi kannski ekki verða með okkur mörg jól f viðbót. En að hann skyldi hverfa svona fljótt á braut áttum við ekki von á. Litla frænda sinn, Hjálmar Öm, sem býr í Þýskalandi náði hann ekki að hitta en hann kom ásamt móður sinni til landsins nóttina sem Lýður dó. Við systkinin munum segja Hjálmari litla frá öllum góðu og ánægjulegu stundunum sem við átt- um með Lýð og á þann hátt mun hann eignast hlutdeild í dýrmætri minningu um hugrakkan og ástkær- an bróður, minningu sem fyllir okkur stolti og gerir okkur að betri mönn- um, færari um að takast á við lífið og tilveruna. Minningin lifir, hún lýs- ir upp myrkrið og styrkir okkur í sorginni. Prændi, þegar fiðlan þegir fuglinn kiýpur lágt að skjóli, þegar kaldir vetravegir villa sýn á borg og hóli, sé ég oft í óskahöllum, ilmanskógum betri landa, ljúfling minn sem ofar öllum íslendíngum kunni að standa, hann sem eitt sinn undi hjá mér, einsog tónn á fiðlustreingnum eilíft honum fylgja frá mér friðarkveðjur brottu geingnum. Þó að brotni þom í sylgju, þó að hrökkvi fiðlustreingur, ég hef sæmt hann einni fylgju: óskum mínum hvar hann geingur. (H. Laxness) Kveðja frá systkinum. Esther, Valur, Hafdís og Hulda. Okkur langar í örfáum orðum að minnast vinar okkar Lýðs S. Hjálm- arssonar sem lést 16. þ.m. Það er alltaf erfitt að kveðja góð- an vin eins og Lýður var. Hann var mikið fatlaður vegna sjúkdóms en lét það samt ekki aftra sér frá því að gera það sem hann langaði til. Það var aðdáunarvert að horfa á þennan unga mann, alltaf var hann hress og glaðvær og stundaði sína vinnu fram á síðasta dag. Hann átti stóran vinahóp enda var hann hvers manns hugljúfi. Það er við hæfi að enda þessa litlu grein með æðruleysisbænini, því æðruleýsi átti Lýður okkar nóg af. Við þökkum samfylgdina sem því miður var alltof stutt og biðjum góð- an Guð að vemda hann og geyma. Foreldrum hans og systkinum vott- um við okkar dýpstu samúð. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt, Kjark til að breyta því, sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. • Gunnar Siguijónsson, Fríða Sigurðardóttir. Lýður var jarðsunginn frá Akra- neskirkju föstudaginn 20. janúar sl. Ég gat ekki verið við jarðarför hans því veður hamlaði minni för. En mig langaði til að minnast hans með nokkrum orðum. Lýður er - dáinn, hann dó í nótt, hljómaði í eyrum mér mánudaginn 16. janúar. Eg ætlaði varla að trúa þessu þó ég hafi vitað að hann hafi verið eitthvað lasinn undanfama daga. Sigurður vinur hans og makker á bridsmótum undanfarin ár var búinn að skrá sveit þeirra félaga I sveita- kepppi bridsdeildar Sjálfsbjargar í Reykjavík, er átti að hefjast mánu- daginn 16. janúar, svona er stutt á milli lífs og dauða. En þetta sýnir þann keppnisanda sem bjó með Lýð, með skyldi hann vera, þó hann væri hálfslappur. Ég kynntist Lýð fyrir um það bii 10 árum, er hann flutti inn í hús Sjálfsbjargar f Hátúni 12. Hann tók strax mikinn þátt í félagsstarfi Sjálfsbjargar í Reykjavík og ná- grenni. Við vorum saman í stjóm félagsins í nokkur ár, einnig sat hann í nefndum fyrir félagið, þar á meðal æskulýðsnefnd. Lýður hafði alltaf eitthvað til málanna að leggja og stóð fast á sfnum skoðunum. Hann starfaði mikið fyrir íþróttafélag fatl- aðra í Reykjavík og stundaði boccia á meðan kraftar leyfðu. Hið mikla keppnisskap hefur áreiðanlega veitt honum kraft til að gefast ekki upp þótt fötlunin væri mikil. Fyrst þegar ég sá Lýð var hann f venjulegum hjólastól og var upp á það kominn að einhver ýtti honum áfram, en svo fékk hann rafmagns- hjólastól, og þá var hann eins og fuglinn ftjáls og komst nærri því um allt sjálfur. Hann fór f göngur með íþróttafélagi fatlaðra um götur borg- arinnar. Það var gaman að skiptast á skoð- unum við Lýð hvort heldur var um pólitík, félagsmál eða spilamennsku. Lýður hafði áhuga á mörgu öðru svo sem fótbolta, sem ég vissi að hann lifði sig inn í. Það er góður drengur genginn með Lýð og þakka ég honum sam- fylgdina þann tíma sem við þekkt- umst. Ég votta foreldrum hans og systk- inum innilega samúð mfna. Guð blessi minningu Lýðs S. Hjálmars- sonar. Rósa Aldarminning: Dr. Halldór Han- sen, yfírlæknir Halldór Hansen fæddist á Miðengi á Álftanesi 25. janúar 1889 og er því á þessum degi liðin öld frá fæð- ingu hans. Foreldrar hans voru Bjöm Kristjánsson, kaupmaður, síðar bankastjóri og ráðherra, og Sigrún Halldórsdóttir frá Reynisvatni. Halldór tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reylqavík 1910. Læknisprófi lauk hann frá Háskóla íslands 1914 með hárri 1. einkunn og liðu 12 ára þangað til jafn hátt próf var tekið við læknadeildina. Við framhalds'nám var hann á Ríkisspíta- lanum í Kaupmannahöfn 1914— 1916 og lagði einkum fyrir sig melt- ingarsjúkdóma. í júní 1916 gerðist hann starfandi læknir í Reykjavfk, stundaði almennar lækningar og gaf sig sér í lagi að meltingarsjúkdóm- um. Jafnframt var hann sjúkrahús- Iæknir á Landakotsspftala. Halldór var viðurkenndur sérfræð- ingur í meltingarsjúkdómum 1923. Hann varði doktorsritgerð sína um pseudoulous og ulcus pepticum árið 1933 í Reykjavík og var fyrsti dokt- or í læknisfræði frá Háskóla íslands. Félagi í Vísindafélagi íslands var hann frá 1932. Prófdómari við læknadeild Háskólans var hann um árabil. Hann fór margar kynnis- og námsferðir um sína daga til útlanda, Danmerkur, Englands, Frakklands, Þýskalands, Austurríkis og Banda- ríkjanna. Hann ritaði fjölmargar greinar í innlend og útlend læknarit. Yfírlæknir var hann á Landakotsspít- ala að Matthíasi Einarssyni látnum 1948—1959, en það ár varð hann sjötugur. Á unga aldri tók Halldór mikinn þátt í íþróttum og var valinn í för glímumanna á Olympíuleikana f Stokkhólmi 1912. Hann var einn af stofnendum og lengi í stjóm íþrótta- sambands íslands og heiðursfélagi þess frá 1929. Á fullorðinsárum stundaði hann lengi golfíþrótt af áhuga. Halldór giftist 1911 Ólafíu Þórðar- dóttur frá Ráðagerði á Seltjamar- nesi. Hún var mikil menningar- og hæfileikakona og bjó honum friðsælt og fallegt heimili. Þau eignuðust flögur böm. Elst er Sigrún, húsmóð- ir og fyrrum bankastarfsmaður í Reykjavík. Næst var Jón, sem drukknaði ungur í Atlantshafí á stríðsámnum, þegar skip það sem hann var á var skotið í kaf. Þriðja var Rebekka, sem var sjúklingur frá æskuámm og lést á góðum aldri. Yngst bama þeirra hjóna er Halldór, yfirlæknir f Reykjavík. Ólafía lést árið 1961. Síðari kona Halldórs var Rut Hermanns, fiðluleikari. Eins og áður er vikið að var Hall- dór mikinn hluta starfsævi sinnar þrískiptur í starfi. Fyrri hluta dags stundaði hann sjúkrahússtörf og skurðlækningar, en seinni hluta dags almennar lækningar og svo störf í sérgrein sinni, meðferð á sjúklingum með meltingarsjúkdóma. Sjúkrasam- lagspraxis hans var eins stór og leyfi- legt var á hveijum tíma, og vom vinnuafköst hans að staðaldri mikil. Hann var stilltur og þolinmóður í lund, gaf sér jafnan góðan tíma til starfa sinna og eyddi gjaman einum klukkutfma f viðtal við sjúkling sem leitaði hans í fyrsta skipti. Vinnudag- ur hans var því yfirleitt langur, 11—12 tímar án teljandi uppihalds, þó sáust sjaldan þreytumerki á hon- um, það var aldrei asi á honum, hann sýndist yfirleitt ekki í tíma- þröng og hann var alltaf í góðu jafn- vægi. Upp á hann mátti heimfæra orðtækið, að sá sem mest hefur að gera, má að flestu vera. Hann skipu- lagði starfsdag sinn vel og honum vannst vel það sem hann fékkst við hveiju sinni. Bjó hann lengi fram eftir ævi yfir feikimiklu starfsþoli, var einn þeirra, sem em fæddir heil- sugóðir og hafa fengið í vöggugjöf mikla líkamshreysti, þrek og viðnám gegn hverskonar álagi og sjúk- dómum. Þá lagði hann mikla rækt við heilsu sfna, stundaði reglubundið líkamsþjálfun og lifði heilsusamlegu lífi, eftir því sem hann kom þvf við á hveijum tíma. Dr. Halldór Hansen var ekki hár maður vexti en vel á sig kominn, herðabreiður, niðurmjór, vöðvastælt- ur, léttur í hreyfingum og safnaði ekki holdum með aldri. Hann var fríður sýnum og bauð af sér góðan þokka. Hann var ljúfmannlegur mað- ur, lftillátur og yfirlætislaus og vann störf sín hávaðalaust. Lét hann sér mjög annt um sjúklinga sína, hafði einlægan vilja til að verða þeim að liði, lina vanlfðan þeirra, létta af þeim áhyggjum og ráða bót á mein- um þeirra. Enda þótt læknavísindin væru ekki ýkja langt á veg komin framan af starfsævi hans, er ekki efamál, að hann kom mörgu góðu til leiðar í starfi sínu og bætti ófáum sjúklingum sjúkdóma þeirra. Ekki mun það hafa verið vanda- laust fyrir Halldór Hansen, að setj- ast í sæti Matthíasar Einarssonar, svo mikilfenglegur sem Matthías var, máttugur persónuleiki og dáður læknir. En eins og flest störf, sem Halldór tók að sér, fór honum það hlutverk vel úr hendi. Kom þar til elja hans, ástundun og Qölhæfni, látleysi, lipurð hans í samstarfi og alúðleg framkoma. Lengi hefur verið á orði haft, hversu góður starfsandi hafí verið og sé á Landakotsspftala þannig að læknar spftalans hafi unn- ið þar vel og þægilega saman bæði hver og einn út af fyrir sig og einn- ig sem vel samstilltur og samstæður starfshópur. Ekki er ólíklegt, að Halldór hafi átt þar dijúgan hlut að máli þau ellefu ár, sem hann var yfirlæknir spítalans, oddviti hópsins, sá sem gaf tóninn og markaði við- horf og starfshætti lækna og starfs- liðs þar. Víst er um það, að vel kunnu starfsbræður hans að meta hann. Sýndu þeir honum hug sinn til hans, þegar þeir veittu honum verðuga við- urkenningu á sjötugsaftnæli h&ns og gáfu út aftnælisrit með frumsömdum fræðigreinum sínum honum til heið- urs. Var það stórmannleg gjöf, sem mun hafa glatt Halldór, og var hún mjög að makleikum. Eftir að Halldór lét af yfírlæknis- störfum á Landakotsspftala, átti hann eftir sextán ár ólifuð. Hann settist þó ekki að fullu f helgan stein, varð ekki með öllu aðgerðarlaus held- ur hélt áfram að sinna aimennum lækningum að nokkru leyti til ævi- loka og hélst verklund hans óþrotin allt fram á síðustu ár. Hann lést hinn 18. maí 1975, og hafði þá læknis- starf hans náð yfír 59 ár. Löngum og farsælum starfsferli var þar með lokið. Fljótt fennir í sporin og flest lækn- isverk gleymast fyrr en varir, en á hitt má líta, að vandað læknisstarf ber launin í sjálfu sér eins og raunar svo mörg önnur störf, sem vel eru af hendi leyst. Lífið er stutt, gleymskan bfður flestra eftir starfs- lok og dauða, fáir lifa lengi í minning- unni eftir sinn dag og „losnar og raknar sá hnútur sem traustast vér bindum“. Engu að síður mega marg- ir vera þakklátir fyrir þá lífsfyllingu og þýðingarkennd, sem vel unnin störf gefa í aðra hönd á ævitfma þeirra. Það er sú umbun góðra verka, sem ekki er minnst um vert í lífínu. Þá umbun hlaut Halldór Hansen ríkulega á langri ævi. Var hann vel að þeim launum kominn. Þeim, sem kynntust Halldórí og urðu aðnjótandi liðsinnis hans og ljúfmennsku, munu alla tfð minnast hans með þakklæti og hlýjum hug. Ólaftxr Sigurðsson, læknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.