Morgunblaðið - 25.01.1989, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.01.1989, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 31 Rannveig Guðmunds dóttir — Minning Fædd 9. apríl 1904 Dáin 13. janúar 1989 Að morgni 13. janúar sl. lést Rannveig Guðmundsdóttir á Dval- arheimilinu Hrafnistu í Hafnarfírði. Með hvarfí Rannveigar úr þess- ari jarðvist er merk kona gengin. Mig langar því að minnast hennar nokkrum orðum. Rannveig fæddist á ísafirði 9. apríl 1904. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson sjómað- ur og Sólveig Steinsdóttir. Guð- mundur drukknaði skömmu eftir fæðingu Rannveigar, þannig að kynni þeirra urðu lítil. Sólveig móðir Rannveigar var systir Þorbergs Steinssonar oddvita og athafnamanns á Þingeyri við Dýrafjörð. Hálfbróðir hennar var Jóhann Steinsson, lengi yfírvélstjóri á skipum Eimskipafélags íslands. Sólveig var harðdugleg kona, vann baki brotnu í fiskvinnu, vaskaði eins og það var kallað, breiddi og þurrk- aði físk. Þannig vann hún árum saman og ól upp litlu stúlkuna sína. Mæðgumar urðu mjög samrýndar og slitu ekki samvistum fyrr en Sólveig dó. Rannveig launaði móður sinni vel uppeldið, lét henni líða vel sem framast var kostur hjá sér. Ég hef ekki séð blíðari samskipti manna en voru milli þeirra mæðgna. Voru þær þó báðar skapmiklar konur. A æskuárum Rannveigar lá skólamenntun ekki á jafn lausu og nú, þó braust Rannveig til náms við húsmæðraskóla í Danmörku og varð vel að sér í allri matargerð, hannyrðum og dönskuu máli. Rann- veig hélt ávallt síðan nánum tengsl- um við fyrrverandi skólasystur og skóla sinn. Hún fór oftsinnis í heim- sókn á hinar dönsk slóðir. Rannveig réðst snemma til versl- unarstarfa á ísafírði og reyndist harðdugleg og samviskusöm. Hún átti þó við erfiðan hjartasjúkdóm að stríða og þurfti oft að leita lækn- is suður til Reykjavíkur. Þann kvilla tókst henni að lokum að yfírvinna að mestu. Hið stóra skap Rannveigar rak hana út í sjálfstæðan atvinnurekst- ur og hún stofnaði litla hannyrða- verslun í húsi þeirra mæðgna í Sundstræti á ísafírði. Verslunina starfrækti hún um margra ára skeið og þótti mörgum gott að versla þama enda allt handbragð mjög smekklegt. í tengslum við verslun sína varð hún oft að fara til Reykjavíkur og leita fanga. Hún dvaldi þá oftast á heimili hálfbróður Sólveigar, Jó- hanns. Á þeim árum kynntist ég vel Rannveigu og fylgdist með dugnaði og árvekni hennar. Mér er einkum minnisstætt erfíðleikatíma- bilið á dögum gjaldeyris- og inn- flutningsnefnda. Hún þurfti þá oft að eyða mörgum sinnum fleiri dög- um í Reykjavík en eðlilegt gat tal- ist í eltingarleik við nefndarmenn þessara ágætu nefnda og þá var slæmt að vera sjálfstæðismaður. Því miður fóru úrlausnir oft eftir því hvemig menn vom flokkaðir í pólitík. Heimili þeirra mæðgna var með miklum glæsibrag og mátti þar glöggt sjá smekkvísi og handbragð Rannveigar. Móttökurnar sem mað- ur fékk þegar komið var til þeirra vom yndislegar, hvort heldur var að nóttu eða degi, skipti þá engu hvort skipið stæði stutt eða lengi við. Þegar Rannveig var komin yfír miðjan aldur og orðin þreytt að sækja til Reykjavíkur fluttu mæðg- umar suður og keyptu íbúð á Hrefnugötu 4 í Reykjavík. Hún var fljót að ná sér í vinnu og starfaði lengi við vefnaðarvömverslun. Síðar réðst hún til samtaka Rauða krossins og vann þar í mörg ár sem gjaldkeri. Rannveig og Sólveig bjuggu sam- an í yndislegu umhverfí á Hrefnu- götu 4 þar til Sólveig andaðist. Rannveig var nú orðin ein en all- mörgum ámm síðar eða árið 1962 giftist hún Hallgrími Jónssyni fyrr- verandi yfírvélstjóra hjá Eimskip og formanni Vélstjórafélags íslands um þriggja áratuga skeið. Hallgrími hafði hún kynnst á ferðum sínum til Reykjavíkur svo og af þeim kynn- um sem vom samfara sendingum okkar til hennar en Hallgrímur tók oft pakka okkar vestur á ísafjörð. Þegar Hallgrímur kvæntist Rannveigu hafði hann verið ekkill um nokkurra ára skeið. Sambúð þeirra varð mjög góð og áttu þau skap saman enda bæði vel gáfum gædd. Hallgrímur hefur manna mest unnið vélstjórastéttinni gagn. Auk þess sem hann var formaður stétt- arinnar og vemdari um margra ára skeið lagði hann það á sig, kominn á efri ár, að vinna sem stjómarmað- ur og afgreiðslumaður í .Sparisjóði vélstjóra og tók ekki eyri fyrir. Enginn vafí er að sparisjóðurinn hefði aldrei komist á legg ef við hefðum ekki átt slíka sjálfboðaliða. Ég held að Rannveig hafi smit- ast af áhuga Hallgríms á stétt sinni því að hún tók virkan þátt í upp- byggingu sparisjóðsins. Síðast mætti hún við vígslu fyrsta útibús sparisjóðsins, þá farin að kröftum, fyrir tveimur árum. Tuttugu ár höfðu þá farið í það að koma einu útibúi Sparisjóðs vélstjóra á fót, svo vingjamlega hafa stjómvöld þessa lands litið viðleitni launþegasam- taka til að fást við atvinnurekstur. Vélstjórafélag íslands eignaðist fagran fána árið 1931. Fáninn var farinn að láta mjög á sjá enda mik- ið notaður við alls konar athafnir. Hallgrímur fékk þá Rannveigu til að sauma nýjan fána sem þau gáfu félaginu um miðjan sjöunda áratug- inn. Fáninn er forkunnarvel gerður og sýnir myndarskap og hannyrða- kunnáttu Rannveigar. Fáninn er með hvítum pnnni sem táknar frið og sakleysi. I miðju fánans er saum- uð skipsskrúfa með upphafsstöfum félagsins, saumað í bláum lit. „Fáninn á að vera varanlegt tákn þess að við eigum að nota mátt samtakanna sem stéttarfélags í þágu góðra málefna en einungis góðra málefna og gæta þess jafnan að beita einungis strangheiðarleg- um vopnum við hvem sem í hlut á.“ Svo ritaði Hallgrímur 1931 þeg- ar fyrsti fáninn var tekinn í notkun fyrir stétt hans. Árið 1967 varð að samkomulagi að sameina tvö stærstu vélstjórafé- lög landsins í eitt félag. Þá var ákveðið að leggja þennan fána nið- ur og gera nýtt merki. Sársauka- laust var það ekki en einhveiju varð að fóma til að sameina stríðandi bræður. Fáninn okkar t Ástkæreiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR SIGURÐSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Brúnavegi 12, verður jarðsunginn fró Fossvogskirkju föstudaginn 27. janúar kl. 15.00. Peir sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti Heilsugæslusjóð Hrafnistuheimilanna njóta þess. Kristjana Þorsteinsdóttir, Gerður Ólafsdóttir, Magni Ingólfsson, Rebekka Ólafsdóttir, Valdimar Sveinsson, Sigriður Ólafsdóttir, Bjarni Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. hvíti er enn varðveittur í heimkynn- um vélstjórafélagsins. Ég vona að svo verði áfram eða jafnvel að fán- anum verði komið fyrir í safni og handbragð Rannveígar þannig varðveitt. Hallgrímur andaðist 29. júní 1973. Samvistir þeirra urðu því aðeins ellefu ár. Hallgrímur átti mikið safn góðra bóka og vildi að Hrafnista fengi til eignar að honum látnum enda mikill áhugamaður um uppbyggingu Hrafnistu. Rannveig kom bókasafninu til skila og aðstoð- aði starfsmenn Hrafnistu við að koma bókunum fyrir. Safnið er nú í húsakynnum Hrafnistu í Hafnar- fírði. Fyrir nokkrum árum lenti Rann- veig í mjög alvarlegu bílslysi. Ekið var á hana þar sem hún var á leið út í matvörubúð. Hún fór mjög illa út úr þessu slysi, ekki bara á limum heldur líka á huga. Beiskja og ein- manakennd varð talsvert áberandi í fari hennar en hún vildi beijast ein og gerði það. Slysið olli því að hún fékk íbúð inni í Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem hún dvaldi þar‘"^ til yfir lauk. I eðli sínu var Rannveig mjög félagslynd og gekk fljótlega eftir komu sína til Reykjavíkur í stúku Rebekkusystra innan Oddfellow- reglunnar. Þar undi hún sér í vina- .hópi meðan kraftar leyfðu. Samskipti okkar urðu heldur slitrótt síðustu árin. Engu að síður met ég alltaf dugnað, heiðarleika og ættrækni þessarar stórbrotnu konu og bið góðan Guð að varð- veita hana um alla eilífð. Öm Steinsson — Tiskufatnaður • vinnufatnaður • barna- og ungl- ingafatnaður • sængur, koddar • sængurvera- sett • fóðraðir og ófóðraðir jogginggallar • barnaúlpur • skíðasamfestingar • fata- og gardínuefni • snyrti- vörur • skartgripir • gjafavara • garn og prjónavörur • gallabuxur • skór • og margt margt fleira. Fjöldi góðra fyrirtækja á aðild að Risaútsölumarkaðnum. Eingöngu vandaðar vörur f boði, á stór- lækkuðu verði. Nú er tækifæri, sem seint býðst aftur, til að gera góð kaup. Allt á að seljast! Við höfum opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12:00 til 18:00 og á laugardögum frá 10:00 til 16:00. Allt að 80% afsláttur RISAÚTSÖLUMARKAÐURINN Bíldshöfða 10 (þessi með stjörnunni)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.