Morgunblaðið - 25.01.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25..JANÚAR 1989
33
Minning:
Helga S. Zoega
Fædd 19. september 1917
Dáin 2. janúar 1989
Það varð svo brátt um Helgu
frænku, að ég var varla búin að
átta mig fyrr en hún var dáin og
jarðarforin yfírstaðin. Þetta kom
eins og reiðarslag, eins og tengda-
dóttir hennar sagði svo réttilega.
Helga frænka var sem dóttir afa
Helga og ömmu Geirþrúðar í Tjam-
argötu 14, þegar tvær litlar stúlk-
ur, 7 og 8 ára að aldri og alls
ómælandi á íslensku, komu frá
Englandi með móður sinni og voru
í skjóli hjá þeim fyrst í stað. Það
kom því í hlut Helgu frænku, sem
var xh ári eldri, að vera fyrsti leið-
beinandi í leilqum og starfí. { Tjarn-
argötunni var margt í heimiíi og
oft glatt á hjalla. En eftir að afí
Helgi dó fluttist fjölskyldan í
Bröttugötu 3A, þar sem einnig var
margt manna undir öruggri hendi
ömmu. Móðir mín var þá flutt á
eigið heimili með okkur systur.
Helga fluttist svo til ömmu sinnar,
Margrétar, þegar hún var komin
yfír fermingu.
Alltaf var gott samband með
okkur systrum og Helgu frænku.
Ljúfar minningar geymast um
skemmtilega sumardvöl þegar við
hjónin vorum ásamt syni okkar
Hróbjarti upp við Geitháls eitt sum-
ar með Helgu og Gústa og bömun-
um, Reyni og Svölu. Á ég margar
myndir og minningar frá því góða
sumri þegar við vorum ungir for-
eldrar. Höfum við síðan haft gott
samband hvor við aðra, og þó að
fundir hafí ef til vill verið færri en
skyldi á seinni árum tel ég okkur
hafa haft trúnað hvor annarrar í
gegnum tíðina.
Sigríður Zoéga móðir Helgu og
afí minn Helgi Zoéga voru böm
Einars hótelhaldara Zoéga í
Reykjavík, hann fyrri konu bam
Ástríðar, en hún seinni konu bam
Margrétar, svo að okkur rann blóð-
ið til skyldunnar.
Mótlæti lífsins kemur misjafn-
lega við mannanna böm. Það kom
snemma til Helgu frænku, en hún
óx út úr því og yfír það sem vel
gefín og menntuð kona, sem átti
sitt stolt og vildi láta gott af sér
leiða enda vinsæl og dugleg í starfí
er mörgum má vera kunnugt. Það
er því harmsefni að þau hjónin
skyldu ekki eiga lengri dvöl saman
á nýja heimilinu sínu, þar sem þau
undu sér svo vel og gott var að
koma. Mennimir ráðgera en Guð
ræður.
Helga er kært kvödd af frænkum
sínum Evelyn og Helgu og fjöl-
skyldunni allri. Þessum orðum fylg-
ir síðbúin, innileg samúðarkveðja
til Gústafs, mannsins hennar, Reyn-
is, Svölu og Helgu litlu og fjöl-
skyldna þeirra og fjarstaddrar syst-
ur hennar, Öglu Jacobsen.
Evelyn Þóra Hobbs
tm i98&W$í$
m. aflstýri
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
IhIHEKLAHF verðfrákr.
| : | Laugavegi 170 -172 Simi 695500 704 000
A
mnmmmi
í TAKT VIÐ TÍMANN
Viltu skara fram úr á hörðum
vinnumarkaði?
Við bjóðum þér upp á hagnýta
kennslu í viðskipta- og tölvu-
greinum, ásaint því helsta sem
gerir þig að hæfum og dugandi
starfskrafti.
Þú getur valið um morgun- eftir-
miðdags- eða kvöld tíma, eftir því
sem þér hentar.
Að námskeiðinu loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir.
Innritun og allar nánari upp-
lýsingar færðu í símum 68 75 90
og 68 67 90.
Kristján Sveinsson
„Ég hafði farið á námskeið hjá Tölvu-
fræðslunni og líkað vel. í framhaldi af
pví ákvað ég að drífa mig í skrifstofu-
tækni.
Námið var mjög fjölbreytt og
skemmtilegt og hópurinn samhentur
Þaö kom mérsamt á óvart hve námið
hefur nýst mér vel í starfi“
g^^TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartún 28
ADnm#'
Laugaveqi 47
S. 17575
UTSALAN
ADAm#'
Laugoveqi 47
S. 17575