Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 34

Morgunblaðið - 25.01.1989, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JAN.ÚAR 1989 Hjónaminning: Nanna Sigurðardóttir SverreH. VaJtýsson Fædd 24. október 1922 Dáin 15. janúar 1989 Fæddur 18. apríl 1923 Dáinn 15. janúar 1989 Kveðja frá Lyfjafræðinga- félagi íslands Flestum landsmönnum mun hafa brugðið í brún að heyra um hið hörmulega slys í Hvalfirði sunnu- daginn 15. janúar, er bíl’l fór út af veginum í hálku, og hrapaði niður snarbrattar hlíðar og niður í sjó. Það dró ekki úr áfallinu hjá kolleg- unum, þegar það spurðist að hjón- in, sem létust, hefðu verið Sverre Valtýsson lyfjafræðingur og kona hans Nanna Sigurðardóttir. Sverre fæddist í Reykjavík 18. apríl 1923, sonur Helga Valtýsson- ar kennara og rithöfundar og Sever- ine f. Sörheim frá Sunnmæri í Nor- egi. Sverre gekk menntaveginn, að loknu stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1942, hóf hann nám við Lyfj afræðingaskóla íslands og lauk exam. pharm.-prófi haustið 1945. Að því loknu stund- aði hann um nokkurt skeið fram- haldsnám í lyfjafræði við Danmarks Farmaceutiske Hojskole í Kaup- mannahöfn. Eftir heimkomuna starfaði Sverre fyrst í Ingólfs Apóteki, en fluttist 1948 til Akraness þar sem hann starfaði óslitið til ársins 1975, við Akraness Apótek. Mörg síðustu árin rak hann apótekið fyrir Fríðu Proppé, apótekara, sem lengi var heilsuveil. Eftir andlát hennar flutt- ust þau Nanna og Sverre til Hafnar- fjarðar og starfaði Sverre þá fyrst um sinn hjá Pharmaco hf. í júní 1977 réðst hann síðan til Hafnar- fjarðar Apóteks og starfaði þar til dauðadags. Alls staðar hefur hann komið sér mjög vel á vinnustað, verið sérstaklega þægilegur sam- starfsmaður og ráðagóður. Þá sak- aði ekki, að Sverre var ætíð kátur og léttur í lund. Sverre kvæntist árið 1951 ungri konu frá Akranesi, Nönnu Sigurð- ardóttur, og áttu þau eftir að fylgj- ast að til dauðasdags. Þau eignuð- ust þijú mannvænleg böm. Synir þeirra tveir em Helgi, f. 1952, rönt- gentæknir hjá Pharmaco hf., sem kvæntur er Vilborgu Teitsdóttur, og Sigurður, f. 1957, blaðamaður á Akranesi, kvæntur Steinunni Ólafsdóttur. Yngst er dóttirin Auð- ur Edda, f. 1961, stúdent, og var hún fyrir fáeinum dögum farin til starfa í Noregi. Sverre var félagslyndur maður og tók mikinn þátt í félagsmálum. Hann átti sæti í bæjarstjóm Akra- ness 1958-62 og gegndi þar ýmsum öðram trúnaðarstörfum. Þá var hann formaður Stúdentafélags Akraness 1953-57 og Stúdentafé- lags Mið-Vesturlands 1961-62. Hann starfaði einnig í Rotaryhreyf- ingunni, og var m.a. forseti Rot- ary-klúbba Akraness og Hafnar- Qarðar. Eftir að hann flutti til Hafnar- fjarðar tók Sverre virkan þátt í störfum Lyfjafræðingafélagsins. Hann átti sæti í stjóm félagsins frá 1977-79 og var síðar endurskoð- andi þess í nokkur ár. Einnig átti hann sæti í skólastjóm Lyflatækni- skóla íslands. Flestir kolleganna hafa sennilega síðast hitt Sverre á fundi í lok október, þar sem flallað var um mál lífeyrissjóðsins okkar, sem á í erfiðleikum líkt og aðrir lífeyrissjóðir. Var Sverre þar helsti talsmaður þeirra, sem nú sjá hilla undir starfslok. En það átti því miður ekki fyrir Sverre að liggja að komast á eftirlaun. Ég vil fyrir hönd Lyfjafræðinga- félags íslands senda bömum þeirra hjóna og öðram aðstandendum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Minning þeirra lifi. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir Útför þeirra verður gerð frá Víði- staðakirkju í dag, miðvikudaginn 25. janúar, kl. 13.30. Amma, veistu að amma Dúa og afí Sverre era dáin, sagði litli snáð- inn í símann við móðurömmu sína þegar honum var orðið ljóst að þau myndu ekki koma í heimsókn. Meira gat hann ekki sagt, hann brast í grát. Nafni minn hafði orðið fjög- urra ára nokkram dögum fyrr og hafði hlakkað til að fá afa og ömmu í Hafnarfirði í heimsókn á Skag- ann. Þar höfðu þau áður búið um árabil og þangað var alltaf gaman að koma. Þau höfðu ætlað að heim- sækja son sinn og tengdadóttur og bamabömin tvö og gleðjast með fjölskyldu sinni, sem þau unnu svo mjög. En þá var ferð þeirra stöðvuð með svo sviplegum hætti. Leiðir okkar Nönnu Sigurðar- dóttur og Sverre H. Valtýssonar lágu fyrst saman fyrir sjö áram, eða nokkra áður en Sigurður sonur þeirra og Steinunn dóttir okkar gengu í hjónaband. Þótt samskipti okkar og kynni hafi varað í alltof stuttan tíma vora þau bæði ánægju- leg og lærdómsrík. Þama fóra glað- leg og ræðin hjón, sem gaman var að hitta, hjón sem lögðu sig fram um að rétta öðram hjálparhönd og bára djúpa umhyggju fyrir bömum sínum og bamabömum. í návist bama og bamabama lýsti ljós kær- leika þeirra og umhyggju skærast. Það hefur eflaust verið slík rækt- arsemi og tilhlökkun um ánægju- legar samverastundir með §öl- skyldunni, sem borið hefur hæst í huga þeirra hjóna þegar þau lögðu upp í sína síðustu ferð í þessum heimi. Ástvinir era harmi slegnir við svo skyndilegt fráfall, en það er huggun harmi gegn að eiga bjartar minningar um hin ástríku hjón. Þær munu lifa í hugum bama þeirra og samferðarfólks. Um leið og við þökkum þeim samfylgdina færam við bömum þeirra og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um Guð að styrkja þau. Blessuð sé minning þeirra Nönnu og Sverres. Guðrún Ólafsdóttir, Ólafur Nilsson. Ég man ekki nákvæmlega hve- nær ég hitti þau fyrst. Veit bara að ég og allir kynntumst þeim fljótt. Þau vora manneskjur sem heilsuðu manni og þekktu mann uppfrá því, tóku vel á móti manni, urðu nákom- in svo ótrúiega fljótt. Þau vora fé- lagar manns, félagar allra vina bama sinna, en þannig kom ég inní hús þeirra, sem vinkona dóttur þeirra Auðar, um leið vinur þeirra, þó þau væra bæði feimin og róleg. Fólk kom þeim við. Mér finnst ég vera mjög heppin að hafa fengið að sitja í eldhúsinu hennar Dúu. Dúa gaf mér alltaf mjólk og kökur og spurði mig tíðinda eins og vani er á íslenskum heimilum. Stundum kom Sverre og settist og DÚa stóð gjaman og sá um borðhaldið. Og það var svo frá- bært að það var ekki hægt annað en hafa það gott hjá þeim þama í eldhúsinu. Kannski kom ég þreytt eða æst eða leið eða reið, hvemig sem viðraði varð manni alltaf hlýtt um leið og maður settist niður í eldhúsið hennar Dúu. Stundum kom ég og talaði og talaði og þá horfði Dúa athugul á mig og Sverre hlust- aði og hlustaði hægt og rólega, gerði svo athugasemd vandlega, og oft var eitthvað kímið við það sem hann sagði. Og það var það sem sveif um heimili þeirra, rólyndi og kímni. Úr augum þeirra beggja kom einhver kímni, einhver gleði sem svo erfitt er að snerta en hlýjar manni alltaf. Þau vora ólík að sjá. Hún ljós, hann dökkur. Hún kvik í hreyfíng- um, hann svona lallaði sér hægt. Hún talaði frekar hratt og hann frekar hægt. En á milli þeirra var ró, sjaldgæf ró, leyndardómsfull og ósnertanleg, eitthvað sem þau áttu tvö saman. Ró og ást. Saman stóðu þau. Saman lifðu þau. Þau vora saman. Og saman fóra þau héðan. Saman lifa þau í hugum okkar allra. Saman gáfu þau mér vinkonu, dótt- ur sína Auði, — ég þakka þeim það og fyrir svo margar stundir þegar þau breyttu roki og slabbi og éljum í mildu golu, með einfaldleik sínum, rólyndi og hlýju, kaffisopa og góðu kökunum hennar Dúu. Auði vinkonu minni, bræðram hennar og fjölskyldum þeirra votta ég mína dýpstu samúð. Kristín Ómarsdóttir Kveðja frá Inner-Wheel- konum Hafnarfirði „Dáin, horfin" - hannafregn. Hvílíkt orð mig dynur yfir. En ég veit, að látinn lifir, það er huggun harmi gegn. Hvað væri annars guðleg gjöf, geimur heims og lífið þjóða? Hvað væri sigur sonarins góða? Illur draumur, opin gröf. (Jónas Hallgrímsson) Það var sannkölluð harmafregn sem okkur barst sunnudaginn 15. janúar sl. er kær félagi í klúbbnum okkar, Nanna Sigurðardóttir, lést í bflslysi í Hvalfirði, ásamt eigin- manni sínum, Sverre Valtýssyni, þann sama dag. Nanna fæddist á Akranesi 24. október 1922. Foreldrar hennar vora hjónin Sigurður Vigfússon kaupmaður þar og Jónína Eggerts- dóttir. Árið 1951 giftist hún Sverre Valtýssyni lyfjafræðingi, sem ný- lega hafði komið til Akraness til starfa í apótekinu þar. Þau bjuggu á Akranesi til ársins 1976 að þau fluttu til Hafnarfjarðar. Sverre var mjög virkur Rotaryfé- lagi á Akranesi og gekk strax í Rotaryklúbb Hafnarfjarðar eftir að þau fluttu þangað. Eiginkonur Rotarymanna í Hafn- arfirði höfðu þá nýlega stofnað Inn- er-Wheel-klúbb og gekk Nanna í hann árið 1977. Þau hjón héldu ávallt miklum tengslum við heimabæ Nönnu, Akranes, og vora þau einmitt á leið þangað þegar kallið mikla kom. Við minnumst Nönnu með virð- ingu og söknuði. Það er stórt skarð höggvið í þann hóp okkar Inner- Wheel-kvenna sem ekki verður fyllt. Munum við sérstaklega minnast nóvemberfundar okkar, þar sem hún var hress og glöð að vanda og las fyrir okkur hugljúfa smásögu. Það reyndist okkar síðasti fundur með henni. Við kveðjum Nönnu Sigurðar- dóttur og þökkum fyrir allar ánægjustundimar sem við áttum með henni og þeim hjónum báðum, við ýmis tækifæri. Þökkum við þeim að leiðarlokum fyrir samfylgdina. Við sendum bömum þeirra, tengdadætram og bamabömum okkar innilegustu samúðarkveðjur, og biðjum algóðan Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Megi minn- ing um góða foreldra, tengdafor- eldra, ömmu og afa vera þeim hugg- un harmi gegn. „Fótmál dauðans fljótt er stigið" kvað Bjöm Halldórsson í Laufási forðum. Víst er að sú frétt kom fljótt og óvænt að þau hjón Sverre og Nanna væra horfin bak við tímans tjöld af völdum hörmulegs slyss. Sverre var rótarýbróðir okkar í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar, elsk- aður og virtur. Hann gerðist rótarý- félagi á Akranesi 1953 og var for- + Maöurinn minn, GISLI KÁRASON bifreiöastjóri, andaöist í Sjúkrahúsi Suðurlands 23. janúar. Sigrfður Jónatansdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir, ÓSKAR GUÐSTEINSSON, Sölvhólsgötu 14, lést í Landakotsspitala þriðjudaginn 24. janúar. Sólrún Guðsteinsson, Björgvin Óskarsson. + KRISTBJÖRG INGJALDSDÓTTIR frá Öxará lóst á dvalarheimilinu Hlíö, Akureyri, sunnudaginn 22. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 27. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja og vina, Slgrfður G. Torfadóttir. + Systir mín og móðursystir, GUÐNÝ GUÐNADÓTTIR, Byggðarenda 15, lést í Landspítalanum aöfaranótt 24. janúar. Krlstlnn Guðnason, Hanna Helgadóttir, Guðný Helgadóttir. + Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGILEIFAR GÍSLADÓTTUR, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 26. janúar kl. 13.30. Ingi Kolbeinsson, Jóhannes Markússon, barnabörn og barnabarnabörn. + ELÍN HELGA STEFÁNSDÓTTIR, Reynimel 72, verður jarösungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 26. janúar kl. 14.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd vandamanna, Stefán Ágústsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför RUNÓLFS GUÐMUNDSSONAR fyrrv. pósts, Ásbrandsstöðum. Guðrún Jónsdóttlr, börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og systkinl. Lokað milli kl. 13 og 15 miðvikudaginn 25. janúar 1989 vegna útfarar SVERRE H. VALTÝSSONAR og NÖNNU SIGURÐARDÓTTUR. Haf narfjarðar Apótek.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.