Morgunblaðið - 25.01.1989, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 25.01.1989, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS lin imvii Þessir hringdu . . Þarf ekki að greiða skatt af samskotum? Óskar Haraldsson hringdi: „Ég hef verið framkvæmda- stjóri hjá fyrirtæki en fyrir nokkru ákvað ég að láta af störfum m.a. vegna þess hve mikill hluti launa minna fer í skatta. Fyrirtækið vill hins vegar hafa mig áfram. Hefur komið fram tillaga um að ég verði tekinn út af launaskrá en hluthafamir ætla að skjóta saman handa mér á hveijum fundi svo ég hafí einhveija peninga til að komast af. Vil ég beina þeirri fyrirspum til ríkisskattstjóra hvort það fé sem ég afla með þessum hætti sé ekki örugglega skattfrjálst. Nú get ég verið skemmtilegur á fundum og hafði ég áhyggjur af því að mér bæri að greiða skemmtanaskatt af samskota- fénu. Ég var því mjög feginn þeg- ar hæstvirtur menntamálaráð- herra lýsti því yfír að formenn A-flokkana þyrftu ekki að greiða skemmtanaskatt af því samskota fé sem þeim áskotnast og þeir þurfa ekki að greiða skatt af, eins og komið hefur fram. Treysti ég því að þetta gildi einnig um mig.“ Erfíngjar greiði skattinn Edith Randy hringdi: „Ég vil taka undir það sem fram kemur í grein Geir H. Ha- arde „Ranglætið aukið í skatt- lagningu eigna", sem birtist í Morgunblaðinu 19.janúar sl. Þeg- ar upp er staðið eiga hjón ekki reitur sína heldur erfíngjar, að því kemst fólk missi það maka sinn. Ég get ekki séð siðvæðingu í því að ekkja eða ekkill greiði skatta af þeim eignum sem þau að ein- hveijum ástæðum kjósa að við- halda fyrir aðra, hvað þá af þeim 10 prósentum sem hirt eru með erfðafjárskatti. Eignahlutar í arfí ættu að leggjast sem eignarskatt- stofn á erfíngja." Fressköttur Ómerktur, svartbröndóttur og hvítur fressköttur hefur verið á flækingi í Álfheimum í nokkum tíma. Eignandi hans er beðinn að hringja í síma 672909 eða síma 76206 sem allra fyrst. Gullúr Gullúr tapaðist á gamlárskvöld, sennilega við Rauðalæk 53 eða Reykjahíð 8. Pinnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 37129 eftir kl. 16. Reiðhjól Grátt reiðhjól var skilið eftir við Barmahlíð aðfaranótt 22. des- ember. Uppýsingar í síma 25743. Læða Svört og hvít læða af angóra- kyni fór að heiman frá sér að Erluhrauni í Hafnarfírði í síðustu viku. Hún er mannelsk og forvitin og gæti hafa lokast inni í kjallara eða bflskúr. Vinsamlegast hringið í síma 51078 eða 52675 ef hún hefur einhvers staðar komið fram. Jakki Brúnn skinnjakki var tekinn í misgripum 2. janúar á skemmti- staðnum Abracatabra. Sá sem jakkann tók er beðinn að skila honum þangað eða hringja í síma 51078 eða 52675. Taska Taska tapaðist í Lækjartungli sl. fímmtudag. Pinnandi er vin- samlegast beðinn að hafa sam- banH við Sonju í síma 46900. Hjartans þakkir fyrir auÖsýndan kœrleika og hlýju á 90 ára afmœli mínu. GuÖ blessi ykkur öll. Þórhildur Björg Jóhannesdóttir. Sendi öllum bestu þakkir sem glöddu mig meÖ gjöfum, skeytum og heimsóknum á áttrœÖis- afmceli mínu 17. janúar sl. GuÖ blessi ykkur öll. Anton Salómonsson. AlúÖarþakkir fœri ég öllum þeim, sem heiÖruðu mig meÖ gjöfum, árnaðaróskum og á annan hátt á áttrœÖisafmœlinu mínu 18. janúar sl. Kristján Guðbjartsson, Jaðarsbraut 39, Akranesi. Þakkarorð frá stúkunni Framför no. 16 í GarÖi. Öllum þeim, sem sýndu stúkunni heiður, vin- semd og hlýhug á 100 ára afmœlinu 15. janú- ar sl. meÖ gjöfum, heillaóskum, skeytum og kveÖjum, þökkum viÖ hjartanlega. Heill fylgi ykkur um alla framtíð í trú, von og kœrleika. Fyrir hönd stúkunnar Framför, Marta G. Halldórsdóttir, æ.t. FJARHRIFASAMBOND Til Velvakanda. I. Hinir máttugu guðir Fomíslend- inga á Landnáms- og söguöld voru engir hugarórar. Þar var um að ræða máttarverur, sem juku for- feðrum okkar visku, þrek og þrótt, svo þeir stóðu fremstir Norður- álfumanna að orðsnilld og atgerfi á sinni tíð. Hér myndaðist forgönguþjóð, sem sótti atokru sína í samband við guðlegar verur, orkumagnaðar og kærleiksríkar, sem veittu þ'eim af mætti sínum. Þessar öflugu verur sem mjög miklu framar stóðu okkur mönnum, byggðu hnött eða hnetti á fjarlægu geím- svæði. Við skulum ekki ímynda okkur, að hér hafi verið um einskisverð trúarbrögð að ræða. Hér var.um raunverulegt samband að ræða milli hinna guðlegu Ása og íslend- inga. Því miður féll þetta samband niður síðar, og margar myrkar aldir tóku við. II. FuII þörf væri á að endurvekja þetta foma guðasamband, en nú með fullri vitund og vitnesku um hið raunverulega' eðli og mögu- leika þessa sambands. Vita skyld-. um við, að hér væri til mikils að vinna. Reisa þyrfti stjömusam- bandsstöð slíka, að stæði undir nafni. Væri slík framkvæmd studd af þúsundum íslendinga, þyrfti ekki að kvíða lélegum árangri. Stjömusambandsstöðvar munu vera veglegustu byggingar á hnöttum þar sem farið er að stefna á rétta átt, og bygging slíks húss hér væri ótvírætt lífsstefnuein- kenni, og notkun þess, til sam- bands (að fjarhrifaleiðum) við' lengra komna íbúa annarra stjama, miða meira til sannra framfára en allt annað, sem þjóðin hefur til þessa tekið sér fyrir hend- ur. Ingvar Agnarsson SJÚKRANUDD HÖRPU NÝR OG BREYTTUR OPNUNARTÍMI Frá 1. febrúar nk. verður stofan opin: Fyrir hádegi mánud.-fostud. kl. 09.00 til 13.00 Eftir hádegi mánud.-fímtud. kl. 16.00 til 20.30 og fóstudaga frá kl. 14.30 til 18.30 TÍMAPANTANIR í SÍMA 91-20560 Harpa Harðardóttir, löggiltur sjúkranuddari, Hátúni 6a. (Geymið auglýsinguna). SOLARKAFFI ÍSFIRÐINGAFÉLAGSINS ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyrir sínu árlega SÓLARKAFFI föstudaginn 27. janúar nk., í Yeitingahúsinu GLÆSIBÆ. Húsið verður opnað fyrir matargesti kl. 18, en kl. 21 hefst dagskrá hins hefðbundna sólarkaffis með kaffi og rjómapönnukökum. Aðgangseyrir kr. 1200. Borðapantanir í síma 83436 alla virka daga. SIMCREIÐSLUR STJORNIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.