Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
ASI mót-
mælir auknu
vægi launa
í vísitölu
Á FUNDI miðstjórnar ASÍ i gær
var mótmælt þeirri ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að tvöfalda
vægi launa í lánskjaravísitölunni.
I ályktun miðstjómar segir eftir-
farandi: „Nú er kaupmáttur launa
í lágmarki en hlýtur að vaxa með
þeim samningum sem framundan
eru. Að breytingin sé gerð til þess
að komast hjá misgengi launa og
lána lántakendum í hag fær því
ekki staðist. Þvert á móti eykur
breytingin greiðslubyrði lántakenda
til lengri tíma. Þá er óhjákvæmilegt
að minna á að launavísitalan sam-
kvæmt því frumvarpi sem kynnt
hefur verið tekur ekki tillit til breyt-
inga á vinnutíma og yfirborganir
mælast að fullu í vísitölunni.
Launavísitalan getur því hækkað á
sama tíma og tekjur minnka vegna
minni yfirvinnu og minni yfirborg-
ana.
Tvöfaldað vægi launa í láns-
kjaravísitölu setur einstakling í þá
aðstöðu að samhliða hverri 10%
kauphækkun hækka verðtryggð lán
um 5V2%. Sama staðreynd blasir
við atvinnurekandanum. Þegar
hann samþykkir kauphækkun er
þar með ákveðin hækkun fjár-
magnskostnaðar fyrirtækisins.
Þessi breyting mun því óhjákvæmi-
lega torvelda samningagerð."
Öll tæki í
Morgunblaðið/RAX
Hált á svellinu
Miklar umferðartafir urðu í
Reykjavík og nágrannabæjum
síðdegis í gær vegna fijúgandi
hálku. Um fimmleytið byijaði
að snjóa, einmitt á mesta ann-
atíma í umferðinni. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík var
hitastig og vatnsmagn í snjón-
um með þeim hætti, að „varla
mátti snúast hjól á götu, þá
var komið svell undir,“ eins
og lögregluþjónn orðaði það.
Á tímabiii var nánast samfelld
bflaröð úr Ártúnsbrekku og vest-
ur á Hringbraut, enda komust
margir ekki af stað aftur, ef
stanzað var á gatnamótum eða
í brekku. Þess voru dæmi að
strætisvagn fór þversum á götu.
Smávægilegir árekstrar urðu f
hálkunni, en ekki urðu slys á
mönnum. Þessi mynd var tekin
á gatnamótum Hringbrautar og
Vatnsmýrarvegar og má kallast
dæmigerð fyrir ástandið; bflstjóri
að ýta bfl sínum og annar fastur
uppi á eyju.
brúnniónýt
TVEIR grænlenzkir rælgutogar-
ar urðu fyrir óhöppum á miðun-
um í fyrradag og þurftu að koma
inn til hafnar. Togarinn Natsek
frá Nuuk kom inn til Hafhar-
Qarðar í gærmorgun með öll
tæki í brúnni brotin eða ónýt af
sjó og Nokasa sigldi á isjaka og
skemmdist lftiUega.
Nokasa sigldi á ísjaka á Dohm-
banka og kom gat á ballesttank að
framan. Skemmdimar era óvera-
legar að sögn umboðsmanns togar-
ans hér á landi, en gert verður við
þær í Slippnum í Reykjavík.
Natsek fékk á sig slæmt brot þar
sem togarinn hélt sjó vegna veðurs
um 500 mflur vestur af Garðskaga.
Engin slys urðu á mönnum en öll
tæki í brúnni era brotin eða ónýt
af því að sjór gekk yfir þau. Auk
þess er brúin skemmd og ýmis tæki
á þilfari skökk og snúin.
Varðskipið Ægir kom Natsek til
hjáipar og fylgdi togaranum til
hafnar. Skipverjar höfðu aðeins
segulkompás til að vísa sér leiðina
og handstýrðu þeir skipinu til Hafn-
arfjarðar.
Stuðlahálsverzlumn eink-
um með dökkt öl í fyrstu
Bjórverzlun ÁTVR á Stuðlahálsi mun í fyrstu einkum bjóða upp
á dökkt, yfirgeijað öl, á borð við Guinnesbjórinn, sem margir þekkja.
Auk þess verða þar fáanlegar ljósu bjórtegundimar þijár, sem seld-
ar verða i útsölum ÁTVR. Að sögn Höskuldar Jónssonar, forstjóra
ÁTVR, verður því ekki um það að ræða, að memi geti tíl dæmis
fengið sína uppáhaldstegund af Ijósum, þýzkum bjór i sérverzlun-
inni, heldur verði áherzla lögð á að bjóða upp á mjöð, sem sé brugg-
aður á mismunandi hátt.
„Það telja sumir aðalatriðið í
sinni neyzlu að hafa þennan dökka
„stout“ bjór," sagði Höskuldur.
„Við munum þess vegna frekar
vera með hann til að byija með
heldur en að taka inn til dæmis tíu
ljósa þýzka bjóra." Höskuldur sagð-
ist þó búast við að er sérverzluninni
yxi frekar fiskur um hrygg, yrðu
teknar inn fleiri tegundir af ljósum
bjór.
Umboðsmenn bjórtegunda, sem
ekki verða á boðstólum í verzlunum
ÁTVR, era sumir hveijir óánægðir
með reglur um sérpantanir, til
dæmis fyrir veitingahús. Þetta mun
einkum eiga við um umboðsmenn
vinsælla ljósra bjórtegunda.
Að sögn Höskuldar era reglumar
þannig að veitingahús mega panta
ótakmarkað magn, en era háð þeim
kvöðum að sækja áfengið til ÁTVR
og greiða hann innan flórtán daga
frá því það kemur til landsins.
Umboðsmenn og veitingamenn
segja að þetta geri stærri veitinga-
húsum afar erfítt fyrir um að bjóða
þá bjórtegund, sem þau kjósi helzt.
Veitingahúsin þurfi helzt að geta
verzlað við ÁTVR frá degi til dags,
en ómögulegt sé að þau séu háð
sérpöntunum og þurfí að staðgreiða
stórar pantanir. „Sérpantanir era
fyrst og fremst til þess að þjóna
sérstökum óskum einstaklinga,"
sagði Höskuldur. Hann sagði að
ÁTVR væri ómögulegt að vera að
sérpanta mikið magn og gefa mönn-
um frest á að innleysa birgðir, það
byði því heim að ATVR þyrfti að
liggja með stóran lager. „Þær tak-
markanir, sem þessu kerfi fylgja,
Allsheijarúttekt á rekstri Flugleiða:
Hyggjast stórauka hagnað
af hótel- og bílaleigurekstri
A FUNDI stjórnar Flugleiða hf. í gær var samþykkt ákveðin áætlun
eða rekstarmarkmið fyrir alla þætti rekstrar fyrirtækisins næstu
árin. Áætlunin er afrakstur þriggja mánaða allsheijarúttektar á
öllum þáttum rekstrarins. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
eru rekstrarmarkmiðin meðal annars fólgin í því áð færa út kvíamar
í bæði hótelrekstri og bílaleigu fyrirtækisins, með það fyrir augum
að stórauka hagnaðinn af þessum þáttum. Einnig er stefint að því
að halda uppi tíðari ferðum á Kaupmannahöfii, Frankfiirt, Stokk-
hólm, Osló, London og New York, en á þessa viðkomustaði verður
nú lögð megináherzla. Öðrum stöðum verður þjónað með þeim
fiugtíma, sem afgangs verður.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, er ætlazt
til þess að hagnaður af hótelrekstri
og bflaleigu verði aukinn til þess
að standa undir gífurlegum fjárfest-
ingum í flugvélakaupum, en fyrir-
tækið mun eyða um 12 milljörðum
í endumýjun á flugflota sínum á
næstu áram. Tugir milljóna hafa
þegar verið lagðir í endurbætur á
Hótel Esju og nú verður eytt mikl-
um §árhæðum í Hótel Loftleiðir.
Ekki er þó á döfinni að fjölga hótel-
um félagsins.
Að sögn Einars siglir úttektin í
kjölfar tiilagna ráðgjafarfyrirtækis-
ins Boston Consulting Group um
breytingar á flugrekstri félagsins.
Nauðsynlegt hafi þótt að fara ná-
kvæmlega ofan í saumana á öllum
öðram rekstri félagsins og gera til-
lögur um úrbætur, þar sem þeirra
era auðvitað að það fæst ekki allt,"
sagði Höskuldur.
þurfí með, til að ná hámarks hag-
kvæmni og hagnaði. Fjöldi starfs-
manna fyrirtækisins hefur unnið
að þessari úttekt síðustu þijá mán-
uði í samráði við yfirmenn. Sömu
starfshópar munu svo fylgja áætl-
uninni eftir.
„Þetta er framtíðarstefnumótun
fyrir félagið og snertir alla rekstrar-
þætti þess,“ sagði Sigurður Helga-
son, forstjóri Flugleiða. „Þetta er
vinna, sem fer fram í öllum nútíma-
fyrirtækjum erlendis, en þetta er
nýtt á íslandi.“
Lávið
stórbruna
við Kröflu-
virkjun
ELDUR kom upp i áhaldahúsi
Kröfluvirkjunar síðdegis í gær.
Starfsmönnum tókst að slökkva
eldinn áður en slökkvibíll kom á
vettvang, en húsið er mikið
skemmt. Vélar og tæki sluppu
að mestu, en að sögn Péturs
Yngvasonar vélsijóra í Kröflu
munaði litlu að stórbruni yrði.
20-30 gashylki voru meðal ann-
ars í húsinu og voru þau tekin
að hitna mikið er þeim var náð út.
Eldur kom upp í einangran í vegg
er verið var að sjóða festingar fyrir
nýja hurð á húsið. Sprautað var úr
slökkvitækjum inn um gat á veggn-
um og héldu menn að tekizt hefði
að slökkva. Vaktmaður, sem auk
vélstjóra var einn eftir í virkjuninni
er dagvaktin hafði lokið störfum,
vildi ganga úr skugga um að allt
væri í lagi og heyrði þá að farið
var að snarka í einangraninni milli
þilja. Eldurinn breiddist síðan um
vegginn með miklum hraða, að sögn
Péturs.
Sjö menn af dagvaktinni vora
nýlagðir af stað niður í þorpið í
Reykjahlíð og tókst að kalla þá upp
í talstöð. Starfsmennimir gripu til
þess ráðs að rífa álklæðninguna
utan af vegg áhaldahússins með
stórvirkri vélgröfu og síðan var
sprautað á eldinn úr kraftmiklum
slöngum.