Morgunblaðið - 26.01.1989, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1989
FLUGLEIDIR
OFAROGOFAR
NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • JANÚAR 1989
ísland - Japan
Flugleiðir og stærsta flugfélag
Asíu, Japan Air Lines, bjóða í
samvinnu ódýrustu flutn-
ingsgjöld fyrir frakt milli íslands og
Japans. Aðeins 3 dollarar fyrir kílóið
ef sendingin er a.m.k. 250 kg.
Takmark Flugleiða er að koma
frakt til Japans á innan við
sóiarhring. Hraðferð er tii Japans
á mánudagsmorgnum frá Keflavík
um London til Tokyo. Sérstakar
ferðir eru einnig frá Keflavík um
London á mánudagskvöldum og
fimmtudagseftirmiðdögum.
Nánari upplýsingar veita
sölumenn fraktdeildar í síma
690100.
Loftleiðahótelið
betra fyrir fundi
Vissir þú að á Hótel
Loftleiðum eru 14 mismun-
andi salarkynni fyrir 8-230
manna fundi? Að undanförnu hefur
verið gert átak í því að gera
fundaaðstöðu hótelsins þannig að
hún fullnægi kröfuhörðustu
viðskiptavinum. Skipt hefur verið
um húsgögn og hljóðkerfi í hinum
fræga Kristalssal. Sömuleiðis býður
hótelið risamyndbandsskjá - eitt
hótela - og allt sem nútíma funda-
og ráðstefnugestir þurfa til að setja
punktinn yfir i-ið.
Ný björt og skemmtileg 8 og 14
manna fundaherbergi hafa verið
opnuð á öllum hæðum hótelsins
(sjá mynd). Þau henta sérstaklega
fyrir stjórnarfundi félaga og smærri
fyrirtækisfundi. Viðskiptavinir hafa
hrósað hinni nýju aðstöðu fyrir
góðan útbúnað til fundahalda og
ekki síst fyrir það sem miklu máli
skiptir til að ná árangursríkum
fundi - kyrrð og ró.
Ein nýjungin til viðbótar eru
símar og smábarir í hverju
fundaherbergi Hótels Loftleiða -
stærsta ráðstefnuhóteli íslands.
Nú er tískan að halda
árangursríka fundi á Hótel
Loftleiðum. Veitingastjóri
hótelsins gefur frekari upplýsingar í
síma 22322.
18 nýir vöruflokkar
í Saga Boutique
Þær eru fáar verslanirnar hér
á landi þar sem fólk getur
setið í makindum og verslað
um leið. Þessi þægindi, lágt verðlag
og hágæðavörur, þekkja farþegar
Flugleiða hjá Saga Boutique,
tollfrjálsu flugbúðinni í flugvélum
okkar. Þar þekkist ekki biðröð. í 10
km flughæð eru hvorki tollar né
söluskattur.
Aðeins viðurkenndar vörur eru
seldar í Saga Boutique og fyrir
nokkru fjölgaði vöruflokkunum um
18, í 56 í áætlunarflugi og 60 i
sólarlandaflugi. Allt frá leikföngum.
til armbandsúra og perluskartgripa.
Ilmvörur hafa verið feikilega
vinsælar. Framvegis verður úrvalið
endurmetið með hliðsjón af óskum
farþega og tískustraumum hveiju
sinni.
Saga Boutique er stór búð
með góða þjónustu. Hún er opin
allan sólarhringinn 363 daga á ári.
Hún er í 7 Flugleiðaþotum þar sem
afgreiðsluborðin eru 80 talsins og
200-300 flugfreyjur og -þjónar
annast viðskiptavini af lipurð í
Íiessari þægilegustu verslun
slendinga.
Hallo ísland -
Orlando hér!
Hér koma töiur frá Orlando.
Hitinn í janúar hefur verið
26°C, dósin af Coca Cola
kostar 20 kr. og hamborgarinn 100
kr. Hér fást bílaleigubflar fyrir 900
kr. á dag. Dagsmiði í Disneyworld
kostar 1.400 krónur. Flugleiðir
fljúga beint til Orlando tvisvar í
viku, fimmtudaga og sunnudaga.
' Tíu daga dvöl hér á Orlando með
Flugleiðum kostar frá 36.750 kr.
Stundvíst
innanlandsflug!
Starfsfólk innanlandsflugs
Flugleiða leggur metnað sinn
í að allar ferðir séu á réttum
tíma. Það veit líka að helsta ósk
farþeganna er réttur brottfarartími.
Árið 1988 flugu Flugleiðir 5.071
487 SINNUM UMHVERFIS
JÖRÐINA Á 365 DÖGUM
Fræg skáldsaga eftir Jules
Verne segir að hinn óviðjafn-
anlegi breski herramaður
Fíleas Fogg og Passepartout, ráða-
góður franskur þjónn hans, hafi
farið í kringum jörðina á 80 dögum.
Árið 1988 flugu flugvélar
Flugleiða samtals um 19.480.000
kílómetra í víðfermu leiðakerfi
félagsins. Það jafngildir 487 ferðum
í kringum miðbaug jarðar á einu
ári. Eða að Flugleiðir hafi flogið
nærri 1 xh hnattferð hvern
einasta dag ársins 1988.
Með Flugleiðum hefðu þeir
kumpánar Fíleas Fogg og
Passepartout komist 104 hnatt-
ferðir á 80 dögum árið 1988.
Enn betri Saga Class
á N-Atlantshafsleidinni!
ferð í innanlandsflugi frá
Reykjavíkurflugvelli. Fjórar af
hverjum fimm ferðum stóðust
áætlun. Stundvísi var 84,3% á móti
76,8% árið áður. Þannig hefur
stundvísi í innanlandsflugi
Flugleiða batnað um 7,5% milli ára
og stefnt er að því að halda áfram
á sömu braut.
Erfitt veðurfar hér á landi er
helsta ástæða seinkana en við það
ræður enginn mannlegur.máttur
eins og flestir okkar farþega skilja
svo mæta vel.
Saga Class þjónusta Flugleiða
hefur mælst vel fyrir hjá
viðskiptavinum. Stöðugt
fleiri notfæra sér möguleika
hennar.
Núna vilja Flugleiðir gera enn
betur fyrir Saga Class farþega á
N-Atlantshafsleiðinni, lengstu flug-
leið félagsins. Allir Saga Class
farþegar milli íslands og Banda-
ríkjanna og íslands og Luxemborgar
njóta nú góðs af meira rými og
aukinni þjónustu um borð. Fá
þannig ennþá meira fyrir
peningana.
Flugleiðir hafa ákveðið að hætta
að bóka í miðjusætið á Saga Class
á N-Atlantshafsleiðinni til að skapa
meira olnbogaiými fyrir fullborgandi
farþega. Nú fá Saga Class
farþegar því aliir glugga- eða
gangsæti.
Saga Class farþegar á
N-Atlantshafsleiðinni mega einnig
vænta aukinnar þjónustu í mat og
drykk. Fyrir flugtak verður nú boðið
upp á kampavín eða ávaxtasafa á
Saga Class. Og til aukinna þæginda
fyrir Saga Class farþega á þessari
flugleið verður matur framreiddur
í tvennu lagi, fyrst aðalréttur með
öllu tilheyrandi og síðan er borið
fram sér á bakka kaffi, eftirréttur
og líkjör, strax að loknum málsverði.
Þá fá allir Saga Class farþegar
afhentar litlar snyrtiöskjur.
Nýjasta Saga Class „betri
stofan“ var opnuð á Luxemborgar-
flugvelli fyrir skömmu - Courtesy
Lounge - við hliðina á stofu
stórhertogans af Luxemborg.
Flugleiðir vinna stöðugt að þvi
að gera Saga Class enn betri og
þægilegri fyrir viðskiptavini félagsins.
Góð
,fjarðsambönd“
Flugleiða í Mið-
Evrópu
w
ÍLuxemborg, strax eftir komu
Flugleiðaflugvélanna, leggja
þrjár lúxus-langferðabifreiðar
af stað til 10 borga í V-Þýskalandi.
Þetta er ókeypis þjónusta fyrir
farþega okkar og sýnir ótvírætt góð
,jarðsambönd“ Flugleiða í
Mið-Evrópu.
Til að búa í haginn fyrir farþega
hnfum við sérstaka samninea um
hagstæð járnbrautafargjöld til
borga í Sviss og Frakklandi. Dæmi:
Luxemborg - París 1.250 kr.
í bæklingi sem inniheldur áætlun
Flugleiða er að finna handhæga
töflu sem sýnir fargjöld og áætlanir
járnbrautalesta til rúmlega
50 helstu stórborga og bæja Evrópu.
P.S. Flugleiðaflug tii
Frankfurt í V-Þýskalandi er
tvisvar í viku, miðvikudaga og
sunnudaca.
Sértilboð
mánaðarins í
háloftunum
N ú eru fjórar vörutegundir á
sértilboðsverði í Saga
Boutique. Iquitos rakspíri
frá Alain Delon kostar 600 kr.,
Givenchy ilmsmyrsl er á aðeins
700 kr., Eau de toilette Spray í First
línunni frá Van Cleef & Arples á
900 kr. og svissnesku Le Clip
tískuúrin getum
við boðið á
600 kr.
Hagstæð
sértilboðsverð
um borð í
millilandaflugi
Flugleiða.
AUK/SfA k1l0d2Q-301