Morgunblaðið - 26.01.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
17
Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti
ekki stefiiubreytingu haustið 1987
eftirEyjólf
Konráð Jónsson
Daginn fyrir þingsetningu 1987
tilkynnti þáverandi forsætisráð-
herra á þingflokksfundi, að ríkis-
stjómin hefði ákveðið afdrifaríka
stefnubreytingu og stórhækkaða
skatta m.a. á matvörur. Þessi
ákvörðun var aldrei borin undir
þingflokkinn, en hann og flokksráð
höfðu við stjómarmyndunina um
sumarið samþykkt samkomulag
stjómarflokkanna þar sem ákveðið
var að reyna ekki að ná hallalausum
flárlögum nema þá á þrem ámm.
Á flokksráðs- og formannafundi
Sjálfstæðisflokksins 20. og 21. nóv-
ember var lögð fram ályktunartil-
laga þar sem m.a. var óskað stuðn-
ings við þessa breyttu stjórnar-
stefnu. Þar sagði t.d.: „Gmndvallar-
forsenda þess að draga megi úr
verðbólgu á næsta ári er að fast
verði staðið við þá ákvörðun ríkis-
stjómarinnar að reka ríkissjóð án
halla" og síðar: „Ríkissjóð verður
að reka án halla. Beita verður að-
haldi í peningamálum.“ Þessari
stefnu hafnaði fundurinn og setn-
ingamar vom strikáðar út ásamt
öðmm breytingum. Mér vitanlega
hefur því engin stofnun flokksins
fallist á þessa skattastefnu þótt
þingflokkurinn hafnaði henni ekki
formlega enda ljóst að það hefði
leitt til stjórnarslita eins og öllum
málatilbúnaði var háttað.
Á þessu er nauðsynlegt að vekja
athygli því að óneitanlega heyrast
um það ásakanir að Sjálfstæðis-
flokkurinn í heild beri ábyrgð á
ósköpunum. Nóg er að skamma
okkur þingmennina sem sáum þann
kost vænstan að láta þetta yfir
okkur ganga. Á landsfundi sem
framundan er markar sjálfstæðis-
fólkið áreiðanlega svo afdráttar-
lausa stefnu að enginn þurfi að
vera í vafa um fijálslyndi flokksins
og festu.
Nú em menn líka væntanlega
famir að skilja að ofsköttun og
kjararýmun einstaklinga og at-
vinnufyrirtækja leiðir ekki til halla-
lausra íjárlaga heldur þvert á móti
til vaxandi halla því að útgjöld ríkis-
ins hækka fyrr og meira en tekjurn-
ar eins og nú hefur sannast enn
einu sinni.
Tönnlast hefur verið á þeirri
endaleysu ár og síð að leiðin til að
ná hagstæðum viðskiptajöfnuði
væri sú að hafa hallalaus fjárlög.
Það hefur verið reynt að gera með
því að sölsa fé frá einstaklingum
„Nú hefur það ánægju-
lega gerst að Ólafur
Isleifsson eftiahags-
ráðunautur fyrrver-
andi ríkisstjórnar hefur
í síðasta sunnudags-
blaði Mbl. ritað ágætis
gfrein þar sem hann
rekur það skilmerki-
leg-a að ekkert samband
er á milli ríkissjóðshalla
og óhagstæðs við-
skiptajafiiaðar.“
og atvinnuvegum í þeim tilgangi
að koma í veg fyrir „þenslu",
þ.e.a.s. minnka atvinnu, framleiðslu
og auðæfaöflun m.a. til útflutnings.
Hæfílegt atvinnuleysi og minni
framleiðsla, það var lóðið.
Nú hefur það ánægjulega gerst
að Olafur Isleifsson efnahagsráðu-
nautur fyrrverandi ríkisstjómar
hefur í síðasta sunnudagsblaði Mbl.
ritað ágætis grein þar sem hann
rekur það skilmerkilega að ekkert
samband er á milli ríkissjóðshalla
og óhagstæðs viðskiptajafnaðar.
Að þessu atriði hefur svokölluð
„hallanefnd" sem starfar á vegum
Fjárlaga- og hagsýslustofnunar áð-
ur vikið ásamt þeirri staðreynd að
ríkið hefur í langa tíð sölsað til sín
með álögum svo mikla peninga, sem
það síðan hefur lánað út með verð-
tryggingu og vöxtum, að það á
miklu meiri kröfur á hendur borgur-
unum en þeir á hendur því vegna
spariskírteina, þótt einungis séu
talin húsnæðislán, námslán og lán
Byggðasjóðs. Um þetta hef ég áður
rætt.
í grein sinni um álit „hallanefnd-
ar“ bendir Ólafur á að áhrifín af
auknum tekjuhalla ríkissjóðs á við-
skiptajöfnuð geti verið engin. Gild
rök tel ég raunar vera fyrir því að
viðskiptahalla okkar megi á
skömmum tíma eyða ef fyrirtækjum
eru eftirlátnir ijármunirnir til fram-
leiðsluaukningar í stað þess að
hrifsa af þeim eignarráðin. Ólafur
nefnir nokkur dæmi og segir m.a.:
„í Belgíu er ríkisbúskapurinn
rekinn með halla upp á 6—7% af
landsfiramleiðslu. Samt sem áður
er ríflega 2% afgangur á viðskipta-
jöfnuði Belgíu." Hann greinir frá
Eyjóllur Konráð Jónsson
því að fjárlagahalli Ítalíu sé 10%
af landsframleiðslu og segir:
„Ef sama ætti við hér á landi
væri halli ríkissjóðs ríflega 25 millj-
arðar króna. Þrátt fyrir þennan
mikla fjárlagahalla er viðskiptahalli
Ítalíu nánast enginn eða um V2%
af landsframleiðslu."
Annar ágætur hagfræðingur,
Vilhjálmur Egilsson, hefur nýlega
vakið á því athygli að kannske yrði
þjóðin bara betur sett ef menn hefðu
áfram atvinnu og uppbygging og
öflun auðæfa yrði mikil. Hann er
kaldur sá! Allavega skilur alþýða
hann.
Höfundur er alþingismaður Sjdif-
stæðisflokks fyrir Reykjavíkur-
kjördæmi.
Boróopantomr
Einnig bjóðum
sérréttomatsec
;
r, i • { i( * / //1
. < * • )