Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Ellefuskáld-
verk tilnefiid
NIÐURSTAÐA dómnefndar um hver skuli hljóta Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs f ár, verður tilkynnt f Kaupmannahöfii á morgun.
Að venju hafa Danmörk, Finnfand, Noregur, Svfþjóð og ísland útnefiit
verk tveggja höfimda en Færeyingar eitt. Jóhann Hjálmarsson og
Sveinn Einarsson eiga sæti f dómnefndinni fyrir hönd Islands.
Af íslands hálfu er lögð fram ljóða-
bókin „Tengsl", eftir Stefán Hörð
Grímsson og leikritið „Dagur vonar"
eftir Birgir Sigurðsson. Að sögn Jó-
hanns, sem er formaður dómnefdar
að þessu sinni, telst Hörður Grímsson
vera meðal helstu skálda af svokall-
aðri atomskáldakynslóð. „Tilnefning
á leikriti Birgis er að því leyti óvenju-
leg að þrátt fyrir að reglur geri ráð
fyrir að leggja megi fram leikrit
hafa hinar þjóðirnar aldrei gert það
en ísland þrisvar," sagði Jóhann.
„Ahugi dómnefndar hefur því beinst
mest að ljóðabókum og skáldsögum,
en „Dagur vonar", er að margra
Spástefna
Stjómunar-
félagsins
ÁRLEG spástefiia Stjómunarfé-
lags íslands verður haldin f dag
fimmtudag f Kristalssal Hótels
Loftleiða og hefst kl. 14.00.
Forsætisráðherra Steingrímur
Hermannsson verður með fyrstu
framsögu í dag, en Vilhjálmur Eg-
ilsson framkvæmdastjóri Verslun-
arráðs íslands hefur tekiB að sér
að benda á það sem hann telur
miður fara í spá forsætisráðherra
um framvindu efnahagslífsins.
Kynntar verða spár fyrirtækja um
þróun helstu hagstærða og mun
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofiiunar síðan Qalla um þær
spár. Að lokúm verða pallborðsum-
ræður, þar sem þátttakendur verða
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS
og Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ. Stjómandi pall-
borðs verður Ómar Valdimarsson
blaðamaður.
mati með því besta sem fram hefur
komið í íslenskri leikritagerð á
síðasta áratugi."
Frá Danmörku er skáldsagan
„Rejsens bevægelser" eftir Jens
Christian Grondahl og ljóðabókin
„Gá om bag spejlet", eftir Rolf
Gejdsted. Jens Christian Grandahl,
er frekar ungur höfundur sem feng-
ist hefur við kvikmyndagerð. Að sögn
Jóhanns er augljóst hvað Dani varð-
ar, að þar er á ferðinni nýbreyttni í
sagnagerð í anda „modemisma".
Framlag Finna er smásagnasafnið
„Frussna ögonblick", sem skrifað er
undir dulnefni. „Þetta eru sögur eða
þættir, sem gerast á afskekktum
stöðum og draga upp sérkennilegar
myndir af mannlífinu þar,“ sagði
Jóhann. „Þá er það ljóðabókin „JÁr“,
eftir Gösta Ágren, sem vakið hefur
hvað mesta athygli á Norðulöndum
að undanfomu og hefur meðal ann-
ars hlotið Finnlandia verðlaunin."
Frá Noregi koma tvær skáldssög-
ur, „Hvem har ditt ansikt?", eftir
Liv Koltzow og „Roman 1987“, eftir
Dag Solstad, og eru þær skrifaðar í
mjög raunsæislegum anda að sögn
Jóhanns. Framlag Svía er „Din livs-
frukt", skáldsaga eftir Lars Ahlin,
sem er með þekktari höfundum Svía.
Að sögn Jóhanns lýsir höfundur ævi
miðaldra manns úr embættisstétt,
sem er einnig að skrifa og velta vöng-
um yfir heimspekilegum vandamál-
um. Síðan er því lýst hvemig lífíð
kemur í heimsókn til hans með
óvægilegum hætti er þau hjónin loks
eignast bam, sem er vangefið. Þá
er það skáldssagan „Byron" eftir
Sigrid Combuchen sem byggir á ævi
skáldsins og vina hans án þess að
vera heimildarit.
Frá Færeyjum kemur ljóðabókin
„Hús úr ljóði", eftir Gunnar Hoydal
og er höfundur meðal þekktari skálda
í Færeyjum.
Bókmenntaverðlaun Norðurland-
aráðs verða afhent á fundi ráðsins í
Stokkhólmi 28. febrúar.
Morgunblaðið/Bjami
Nita (Stemunn Ólafsdóttir) sýnir Alice (Bára
Lyngdal Magnúsdóttir) nýju hárgreiðslustofuna.
Phil (Christine Carr) og sambýlismaður hennar
Nash (Ólafúr Guðmundsson).
„og mærin fór í dansinn...“
Frumsýning hjá Nemendaleikhúsinu í kvöld
ÖNNUR frumsýning Nemenda-
leikhússins í vetur er i kvöld
kl. 20.00 í Lindarbæ. Þá verður
firumsýnt leikritið „og mærin
fór í dansinn...1* eftir Debbie
Horsfield. Leikstjóri er Stefán
Baldursson, Ólafur Gunnarsson
þýddi verkið, leikmynd er eftir
Messíönu Tómasdóttur, Ása
Björk hefur umsjón með bún-
ingum, lýsingu annast Árni
Baldursson, hárgreiðslu Árni
Kristjánsson og tæknimaður er
Ólafur Örn Thoroddsen. Nem-
endur 2. bekkjar Leiklistarskól-
ans sjá um alla aðstoð við sýn-
inguna.
Leikaraefnin átta sem mjmda
Nemendaleikhúsið eru Bára
Lyngdal Magnúsdóttir, Christine
Carr, Elva Ósk Óiafsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Ólafur Guð-
mundsson, Sigurþór A. Heimis-
son, Steinn A. Magnússon og
Steinunn Ólafsdóttir.
„og mærin fór í dansinn..." lýs-
ir lífi flögurra ungra kvenna í
Manchester, fyrrum áköfum
aðdáendum Manchester United,
þeirra Alice, Beth, Nitu og Phil.
Lífið gengur ekki lengur útá laug-
ardagseftirmiðdaga á vellinum,
alvara fullorðinsáranna hefur tek-
ið við. Alice giftir sig, Nita opnar
hárgreiðslustofu, Phil er í há-
skóla, en Beth gengur illa að fóta
sig í tilverunni sem hefur lítið
annað að bjóða en atvinnuleysi
og vonbrigði. Samskipti við karl-
menn skipa stóran sess í lífi stall-
systranna, sem vonlegt er, en þau
eru enginn dans á rósum.
Leikritið samanstendur af
stuttum myndum úr lífi vinkvenn-
anna og lýsir baráttu þeirra við
sjálfar sig og umhverfið. Það er
annað í röðinni af þremur leikrit-
um Debbié Horsfíeld um þessar
persónur og hlaut Thames Tele-
vision verðlaunin 1983. Öll þijú
leikritin voru síðan sýnd í breska
Þjóðleikhúsinu árið 1985.
í sýningu Nemendaleikhússins
er Alice leikin af Báru Lyngdal
Magnúsdóttur, Beth af Elvu Ósk
Ólafsdóttur, Nita af Steinunni
Ólafsdóttur og Phil af Christine
Carr. Aðrir leikarar fara með
fleiri en eitt hlutverk hver, Helga
Braga Jónsdóttir leikur m.a. syst-
ur Alice og hina léttlyndu Carm-
en, Sigurþór A. Heimisson eigin-
mann Alice o.fl., Ólafur Guð-
mundsson leikur sambýlismann
Phil auk ýmissa minni hlutverka
og Steinn Á. Magnússon leikur
unnusta Nitu og félaga eigin-
manns Alice.
Þetta er annað verkefni Nem-
endaleikhússins í vetur, en eftir
frumsýningu á því þriðja, nýju
íslensku verki, útskrifast leikara-
efnin sem leikarar.
Egils Gull frá Ölgerðinni,
þrjár tegundir frá Sanitas
Milljón lítrar pantaðir af Budweiser, Kaiser og Tuborg
EGILS GULL er nýtt nafii á bjór
Ölgerðarinnar sem notað verður
frá og með 1. mars næstkom-
andi, þegar bjórsala verður leyfð
hér á landi. Ölgerðin mun ekki
brugga erlendar tegundir fyrst
um sinn að minnsta kosti, að sögn
Jóhannesar Tómassonar for-
sljóra. Hins vegar hefiir Ölgerð-
in umboð fyrir Tuborg bjór og
mun hugsanlega tappa honum á
neytendaumbúðir þegar fram
líða stundir. Sanitas býður upp á
þijár tegundir: Löwenbráu, San-
itas Pilsner og Lageröl. Staðfest
hefiir verið að þær þijár erlendu
tegundir sem á .að selja í öllum
verslunum ÁTVR eru Budweiser,
Kaiser og Tuborg. Milljón lítrar
hafa verið pantaðir af hverri
tegund. Ekki hefur enn verið
tekin endanleg ákvörðun um
verðlagningu bjórsins, að sögn
Gústafs Níelssonar skrifstofú-
stjóra ÁTVR.
Egils Gull verður 5% að styrk-
leika og að sögn Jóhannesar Tómas-
sonar er Ölgerðinni ekkert að van-
búnaði að fylla hillur verslana
ÁTVR með miðinum tímanlega,
fyrir 1. mars næstkomandi. Ölgerð-
in hefur að auki umboð fyrir Tu-
borg bjór frá Danmörku og stað-
festi Gústaf Níelsson það í samtali
við Morgunblaðið í gær. Jóhannes
Tómasson segir að fyrst um sinn
að minnsta kosti verði Tuborg flutt-
ur inn á dósum, síðar verði hann
ef til vill fluttur inn á tönkum og
tappað á neytendaumbúðir hjá Öl-
gerðinni. Hann sagði að það færi
eftir vilja ÁTVR hvort og hvenær
af því verður.
Þijár tegimdir frá Sanitas
Sanitas býður þijár tegundir.
Löwenbráu er bruggaður hér með
leyfí hinna þýsku framleiðenda.
Hann verður 5,3% að styrkleika.
Sanitas Pilsner verður 4,6% og Lag-
eröl 5,6%. Ragnar Birgisson for-
stjóri Sanitas sagði í samtali við
Morgunblaðið að fyrirtækið væri
við því búið að geta boðið hveijar
tvær þessara tegunda sem væri, ef
af því verður að fjórar innlendar
bjórtegundir verði seldar í verslun-
um ÁTVR. Hann sagði að til greina
kæmi einnig að bjóða mismunandi
tegundir eftir búðum, eftir því
hvernig eftirspumin er á hveijum
stað. Verði fjórar innlendar tegund-
ir á boðstólum, sagðist Ragnar gera
ráð fyrir að áhersla verði lögð á
Löwenbráu og Pilsner.
Slæm samkeppnisstaða
Innlendu framleiðendumir hafa
sent verðtilboð til ÁTVR og em þau
í skoðun þar. Ekki fengust upplýs-
ingar í gær um hvaða verð þeir
bjóða. Ragnar taldi samkeppnis-
stöðu innlendra framleiðenda vera
slæma, þar sem þeir þyrftu að
keppa við heimsmarkaðsverð risa-
fyrirtælqa, jafnvel undirboð, auk
niðurboðinna flutninga til landsins.
Því væri fráleitt að bera saman
verð innlendu framleiðslunnar og
hinna erlendu tegunda, enda þyrftu
íslensku framleiðendumir að greiða
mun meira fyrir hráefni, vinnuafl
og fjármagn, auk flutninga.
Ragnar sagði að verð á Sanitas
bjómum yrði á mjög svipuðum nót-
um og það er nú þegar í viðskiptum
við Fríhöfnina á Keflavíkurflug-
velli, en vildi ekki tilgreina það
nánar.
Verðið enn óklárt
Útsöluverð bjórsins hefur ekki
verið endanlega ákveðið enn, að
sögn Gústafs Níelssonar. Hann seg-
ir að eftir eigi að koma í ljós hver
verða ýmis gjöld af bjómum, tollur,
vörugjald og fleira. í gær varð ljóst
að tilboð_ um flutninga verða til
þess að ÁTVR mun kaupa bjórinn
við skipshlið, það er fob, og greiða
flutninginn til landsins. Eimskip
átti lægsta tilboð í flutninga bjórs-
ins hingað til lands, 3,45 krónur á
hvem lítra, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, en einnig buðu
Skipadeild Sambandsins , Nes og
Jöklar í flutningana.
Síðastliðið haust voru meginlínur
lagðar um verðlagningu bjórsins og
samkvæmt þeim ætti innlendur bjór
að kosta nálægt 110 krónum út úr
búð hver 33 sentilítra dós. Erlendur
bjór átappaður hér um 125 krónur
og innfluttur á dósum um 145 krón-
ur. Engar breytingar hafa enn ver-
ið ákveðnar á þessum tölum, að
sögn Gústafs og ekki hefur heldur
verið tekin ákvörðun um hvort verð-
ið verður eitthvað mismunandi eftir
alkóhólinnihaldi. Samkvæmt al-
mennum reglum um verðlagningu
áfengis ætti verðið að vera hærra
á sterkari bjór en þeim veikari.
Kaiser er gamall í hettunni
Staðfest var í gær að Budwieser
frá Bandaríkjunum, Kaiser frá
Austurríki og Tuborg frá Dan-
mörku verða þær erlendu tegundir
sem seldar verða í verslunum
ÁTVR. Budweiser verður 5% að
styrkleika og á 35,5 sentilítra dós-
um. Umboð fyrir Budweiser hefur
fyrirtækið 3 K. Umboð fyrir Kaiser
er í höndum fyrirtækisins Útgarða
sf. Framkvæmdastjóri þess og einn
aðaleigenda er Ásdís Jónasdóttir.
Bjórinn sem hingað verður fluttur
heitir fullu nafni Kaiser Premium
Beer og er 5,44% að styrkleika.
Kaiser- fyrirtækið er stærsta ölgerð
Austurríkis með um 40% markaðs-
hlutdeild þar og flytur út drykkjar-
vörur til um 30 landa, að sögn tals-
manns Útgarða sf. Kaiser stendur
á gömlum merg í Austurríki, brugg-
un bjórs á vegum fyrirtækisins
hófst árið 1475 í borginni Salzburg.
Milljón lítra pantanir
Samningar ÁTVR um innfluttan
bjór hljóða upp á eina milljón lítra
frá hveijum hinna þriggja framleið-
enda á þessu ári. Það er lágmarks-
tala. í fyrstu umferð hafa 300 þús-
und lítrar verið pantaðir frá hveij-
um, eða sem samsvarar 20-25 gám-
um. Framleiðendumir eiga að af-
greiða þetta magn til ÁTVR á tíma-
bilinu 17 febrúar til 1. apríl, að
sögn Gústafs Níelssonar.