Morgunblaðið - 26.01.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1989
23
Dr. Hook,
Village People,
John Mayall
og Ivan Rebr-
off á íslandi
Bandarísku hljómsveitirnar Dr.
Hook and the Medicine Show og
Village People eru væntanlegar
til landsins og munu skemmta
landsmönnum með tónleikahaldi
á næstunni.
Hljómsveitimar koma hingað á veg-
um Ólafs Laufdal og skemmta í veit-
ingahúsum hans. Þá er væntanlegur
til landsins Bretinn John Mayall og
hljómsveit hans Bluesbreakers. Hinn
margraddaði og rússnesk-ættaði,
Ivan Rebroff, heilsar síðan upp á
Islendinga þann 9. mars og heldur
hér fema tónleika, að sögn Birgis
Hrafnssonar markaðsstjóra hjá Ólafi
Laufdal.
Ray Sawyer, öðm nafni Dr.
Hook, kemur með hljómsveit sína
til landsins í lok mars. Áætlað er
að halda. hér þrenna tónleika og
síðan er förinni heitið til Evrópu.
Hljómsveitin Village People kemur
til landsins þann 27. febrúar nk. á
leið sinni í tónleikaför til Evrópu.
Hér á landi verða sveitin í um vik-
utíma. John Mayall og Bluesbrea-
kers verða aðeins með eina tónleika
hér, sunnudagskvöldið 26. febrúar.
Mayall er nú 54 ára gamall, stofn-
aði Bluesbreakers fyrir 26 ámm
síðan.
_______________
„Dr. Hook“ eða Ray Sawyer er
væntanlegur með hljómsveit sína
til Islands í lok marsmánaðar.
Ivan Rebroff hefur tvívegis áður
komið til íslands. Hann er burt-
fluttur frá Rússlandi fyrir allnokkr-
um ámm og hefur undanfarin ár
búið í Þýskalandi. Hljóðfæraleikinn
annast Rússar, búsettir í Evróþu.
Ekki hefur nákvæmlega verið
ákveðið hvarþessir hljómlistarmenn
koma fram, en stefnt er að hljóm-
leikahaldi bæði fyrir norðan og
sunnan, líklegast í Broadway eða
Hótel íslandi og í Sjallanum á Akur-
eyri, að sögn Birgis.
Vörugjaldið:
Reglugerð væntan-
leg í vikulokin
REGLUGERÐ um álagningu
vörugjalds er væntanleg nú í lok
vikunnar, að sögn Þórleife Jóns-
sonar framkvæmdastjóra Lands-
sambands iðnaðarmanna. Hann
sat fúnd í gær með sérstökum
starfehópi sem ríkisstjórnin skip-
aði og á að Snna leiðir til að
leggja gjaldið á með sem bestum
hætti. „Það er engin endanleg
niðurstaða fengin, það er að
koma betur og betur í Ijós hvað
þetta er flókið og erfitt í fram-
kvæmd,“ sagði Þórleifúr eftir
fúndinn í gær.
„Ég held að senn sé að nást ill-
skársta niðurstaðan," sagði Þórleif-
ur. Sú niðurstaða felst í því að vöm-
gjald af hráefni verði fellt niður við
innflutning og við kaup af innlend-
um hráefnissala. Þeir sem framleiða
vömgjaldsskylda vöm þurfa þá að
sækja um vömgjaldsskírteini til
skattstjóra, en það er hliðstætt sölu-
skattsskírteini. Þetta skírteini á að
veita framleiðendunum heimild til
að kaupa og flytja inn hráefni án
vömgjaldsins.
Þeir sem ekki framleiða vöm-
gjaldsskylda vöm að staðaldri en
em í samkeppnisiðnaði geta sótt
um til fjármálaráðuneytisins að fá
sérstakt bréf sem heimilar þeim að
kaupa eða flytja inn hráefni án
vömgjalds.
Þórleifur segir að enn sé eftir
að leysa ýmis vandamál, til dæmis
að skera úr um hvað sé heildsölu-
verð og hvað ekki.
„Það má segja að það sé vax-
andi skilningur á því að fara þær
leiðir sem við höfum verið að benda
á,“ sagði Þórleifur eftir fundinn í
gær. Starfshópurinn sem ríkis-
stjórnin skipaði til að fjalla um vöm-
gjaldið er skipaður fulltrúum fjár-
málaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis,
Félags íslenskra iðnrekenda og
Landssambands iðnaðarmanna.
Steingrímur Hermannsson:
Kristinn Finnbogason
lagði til málamiðlun
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra segir að Krist-
inn Finnbogason, fúlltrúi Fram-
sóknarflokks í bankaráði Lands-
bankans, hafi lagt fram mála-
miðlunartillögu í ráðinu er vaxta-
hækkun var ákveðin á föstudag.
Alþýðublaðið sagði frá því á
þriðjudag að Kristinn hafi lagt
fram tillögu um vaxtahækkun,
sem fúlltrúar Sjálfetæðisflokks
hafi samþykkt, en fulltrúar Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags
verið á móti.
„Kristinn lagði ekki til neina
vaxtahækkun. Hann lagði til mála-
miðlun, sem var miklu lægri en það
sem bankastjórarnir vildu og reyndi
að sætta ólík sjónarmið. Það er
hans mál,“ sagði Steingrímur.
„Kristinn er ekki neinn sendi-
sveinn minn eða annarra þarna,"
sagði Steingrímur, er hann var
spurður hvort hann væri að missa
stjóm á sínum mönnum í ráðinu.
„Hann var kosinn í þetta bankaráð
og fer eftir sinni sannfæringu."
Steingrímur sagði að ágreiningur
um vaxtamál hefði ekki verið á
dagskrá á ríkisstjórnarfundi á
þriðjudag þrátt fyrir ummæli Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráðherra um
að ráðherrar litu þau mál mismun-
andi augum og ummæli Steingríms
Sigfússonar landbúnaðarráðherra
um að stjóminni bæri að halda vöxt-
um niðri.
Isaflörður:
Ráðgert að taka nýja sjúkra-
húsið í notkun 10. mars
Sumir telja sjúkrahúsið heilsuspillandi
YMISLEGT bendir nú til þess að samkomulag náist um að flytja í
nýja Qórðungssjúkrahúsið á Isafirði lO.mars. Við það er miðað að
stjórnvöld standi við marggefin loforð um kaup á allra nausynlegasta
búnaði.
Deilur hafa að mestu staðið um
tvo þætti, málsins, kaup á tækjum
til rekstursins og hugsanlega hættu
á að krabbameinsvaldandi efni,
mengi andrúmsloftið í húsinu.
Eftir að yfirlæknir sjúkrahússins
gerði athugasemd við frágang lofta
á síðasta hausti, hafa ýmsar stofnan-
ir ríkisins ásamt heilbrigðisnefnd
ísafjarðar, fjallað um málið án niður-
stöðu. Menn töldu þó að lágmarks
aðgerða væri þörf og ákvað heil-
brigðisráðherra þá að skerða 7 millj-
óna króna ijárveitingu, sem nota
átti til kaupa á áhöldum og tækjum
sjúkrahússins og nota til viðgerða á
loftum.
Stjóm sjúkrahússins, sem nú hef-
ur að mestu tekið við störfum af
byggingamefnd, átti nýlega fund í
Reykjavík með forstjóra Innkaupa-
stofnunar ríkisins, heilbrigðisráð-
herra og þingmönnum lqordæmisins.
Fyrir tilstuðlan Matthíasar Bjama-
sonar þingmanns Vestflarðakjör-
dæmis og fyrrverandi heilbrigðisráð-
herra, vom gerð drög að samkomu-
lagi um að taka lán til frágangs á
loftum svo ekki kæmi til frekari
skerðingar á fé til tækjakaupa. Heil-
brygisráðherra hefur nú fallist á
þessa málsmeðferð og að panta
megi tækin. Búið er að panta tæki
fyrir 5 miljónir, en ekki er alveg ljóst
hvemig fer með afganginn því ekki
hefur verið tekin afstaða til hvemig
á að greiða þær kostnaðarhækkanir
sem orðið hafa á tækjunum síðan í
haust. Hér er þó einungis um að
ræða tvo þriðju hluta þess búnaðar
sem nauðsynlegur er vegna þessa
áfanga, að sögn yfirlæknisins, Krist-
ins Benediktssonar, en er sættanlegt
ef það sem á vantar, kemur innan
skamms.
Erfítt reyndist að fá ábyggilegar
upplýsingar um hvort þama ætti að
flytja inn í heilsuspillandi húsnæði
eða ekki. Formaður sjúkrahússtjóm-
ar vísaði til þess álits forstjóra Holl-
ustuvemdar ríkisins að húsnæðið
væri ekki heilsuspillandi ef tiltölu-
lega einfaldar lagfæringar væm
gerðar, en það álit er byggt á eigin
athugunum forstjórans _og sam-
þykkis heilbrigðisnefndar ísaflarðar.
Þá segir hann að forstjóri Vinnueft-
irlits ríkisins hafí komið vestur og
haldið fund með starfsfólki sjúkra-
húsins og fullyrt að húsnæðið stæð-
ist allar kröfur Vinnueftirlits ríkis-
ins.
Yfírlæknir sjúkrahússins telur að
þótt þær aðgerðir, sem nú er talað
um, nægi líklega til að ekki verði
um heisluspillandi umhverfí að ræða
fyrir starfsfólk hússins, þá hnigi öll
vísindaleg rök að því að holskurðar-
sjúklingar, sængurkonur og bmnas-
árasjúklingar gætu hlotið skaða af.
Krabbameinsvaldandi efni, sem
komast nú fyrirhafnarlítið út í and-
rúmsloftið á sjúkrahúsinu frá ein-
angmn yfír lausum milliloftum, eiga
greiðan aðgang að opnum sámm og
telur hann að það sé ekki veijandi
að leggja fólk inn á sjúkrastofnun
við þær aðstæður. Hann byggir
skoðanir sínar á skýrslu, sem dr.
Guðni Jóhannesson verkfræðingur
skilaði, eftir að hafa skoðað aðstæð-
ur á sjúkrahúsinu og eftir viðræður
við dr. Vilhjálm Rafnsson yfírlækni
Vinnueftirlits ríkisins.
Forstjóri Hollustuvemdar hefur
enn ekki fengist til að senda frá sér
annað en minnispunkta, auk þess
að ræða málin í síma. Yfírlæknir
vill hinsvegar fá fram formlega rök-
studda skýrslu sem starfsmenn geti
tekið afstöðu til. Hann segir jafn-
framt að samþykkt heilbrigðisnefnd-
ar ísaflarðar við tillögum Hollustu-
vemdar, sem settar vom fram í
símtali, hafí byggst á þvi að þama
væm um fyrstu aðgerðir að ræða
en ekki endanlegan frágang. Hann
sagði jafnframt að starfsfólk væri
tilbúið til flutnings 10. mars ef
stjómvöld stæðu við gefin loforð.
Að tækin væm að mestu komin og
skriflegar staðfestingar væm fyrir
því að það sem ávantaði væri á leið-
inni.
Hygging Fjórðungssjúkrahússins
á ísafirði hefur nú staðið yfír um
15 ár. Framreiknaður byggingar-
kostnaður er orðinn 500—600 millj-
ónir króna, nú um það leyti er flutt
er inn.
Þá er eftir síðasti áfangi bygging-
arinnar, sem er innrétting á hluta
legudeildar og aðstöðu fyrir starfs-
fólk. - Úlfar
r r
„AÐ SYNA SIG OG SJA AÐRA“
I myrkri og misjöfnum veðrum vetrarmánaðanna er góður Ijósabúnaður mikilvægt öryggistæki.
Fullkominn Ijósabúnaður tryggir ökumanni gott útsýni og eykurþanng öryggi hans og annarra
vegfarenda.
Mörgum blleigendum þykir einnig til bóta að Ijóskerin prýði útlit bllsins.
RING aukaljóskerin skila þessu tvíþætta hlutverki vel. Þau eru með
sterkum halogen perum sem lýsa betur en hefðbundnar glóþráðaperur.
RING aukaljóskerin fást I mörgum stærðum og gerðum, bæði með
gulu og hvltu gleri og leiðbeiningar á íslensku tryggja
auðvelda ásetningu.
Þeir bllaeigendur, sem kjósa öryggi samfara góðu útliti,
ættu að koma við ánæstu benslnstöð Skeljungs og kynna
sér nánar kosti RING aukaljóskeranna.
PRISMA