Morgunblaðið - 26.01.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
31
Menningarsjóður útvarpsstöðva:
Framlög til Sinfóníunn-
ar af óskiptu fé sjóðsins
Vegna fréttar á fjölmiðlasíðu Morgunblaðsins síðastliðinn sunnu-
dag um Menningarsjóð útvarpssöðva vill Hörður Vilhjálmsson,
fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, taka eftirfarandi fram:
„Af 96 milljón króna framlögum
Ríkisútvarpsins á árunum 198.7 og
1988, fékk Ríkisútvarpið sjálft út-
hlutað 37,7 milljónum króna. Sam-
kvæmt orðalagi fréttarinnar virðast
framlög sjóðsins til rekstrar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands eingöngu
færð af framlagi Ríkisútvarpsins,
sem að mínu áliti er rangt. Þau
rekstrarframlög á að taka af
óskiptu fé sjóðsins."
Starfsmannafélagið Sókn:
Verðstöðvunarbrotiim
ríkisvaldsins mótmælt
STARFSMANNAFÉLAGIÐ
Sókn hefúr sent Steingrími
Hermannssyni forsætisráð-
herra mótmæli gegn „síendur-
teknum verðstöðvunarbrotum
ríkisvaldsins síðustu vikur“.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
lýsir einnig undrun sinni á
auknum skattaálögum á al-
menning í landinu í formi hækk-
ana á tekju- og fasteignaskött-
um, vörugjaldi, eldsneyti og
orkukostnaði og öðrum nauð-
þurftum, á sama tíma og hinn
almenni launamaður býr við
frystingu launa.
Þá segir í ályktun félagsins:
„Launafólk í landinu getur ekki
endalaust borið slíkar hækkanir
bótalaust. Fundurinn harmar því
að ekki hafí verið gengið lengra í
hækkun skattleysismarka og tekið
upp nýtt skattþrep vegna hárra
tekna. Við leyfum okkur að benda
ríkisstjórn „félagshyggju og jafn-
aðar“ á að við þekkum ótal dæmi
þess frá félagsmönnum okkar að
launatekjur þeirra nægi þeim ekki
til framdráttar.“
Fískverö á uppboðsmörkuðum 25. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heiidar-
verfi verð varð (lestir) verð (kr.)
Þorskursl. 58,00 57,00 57,80 14,121 816.158
Þorskurósl. 51,00 41,00 48,75 10,090 491.877
Þorskur dauöbl. 27,00 27,00 27,00 0,059 1.593
Ýsa sl. 89,00 46,00 58,16 4,927 286.543
Ýsa ósl. 79,00 79,00 79,00 1,000 79.000
Karfi 38,00 32,00 33,14 0,852 28.232
Steinþítur 30,00 30,00 30,00 0,247 7.425
Hlýri 36,00 36,00 36,00 0,251 9.036
Langa sl. 25,00 25,00 25,00 0,127 3.175
Langa ósl. 25,00 25,00 25,00 0,100 2.500
Lúöa 310,00 205,00 263,21 0,092 24.215
Keila 14,00 14,00 14,00 0,368 5.159
Keila ósl. 14,00 14,00 14,00 0,303 4.242
Steinbítur sl. 47,00 41,00 44,63 0,823 36.756
Rauðmagi 53,00 53,00 53,00 0,007 345
Koli 25,00 25,00 25,00 0,011 275
Ufsi 29,00 29,00 29,00 0,766 22.2145
Grálúöa 42,00 42,00 42,00 0,756 31,752
Samtals 53,02 34,901 1.850.497
Selt var úr Stakkavík ÁR, Stálvík Sl, Ljósfara HF, Óskari Hall-
dórssyni RE og fleiri bótum. ( dag veröur selt úr bátum, 10-15
tonn.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur ósl. I.bl. 47,00 43,00 45,92 9,788 449.510
Þorskursl. 57,00 54,00 55,38 7,306 404.581
Þorskur smár 36,00 36,00 36,00 1,021 36.749
Þorskurósl. 35,00 32,00 33,43 2,387 79.788
1-3 n. Ýsa alls 96,00 14,00 74,27 6,245 463.811
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,110 1.650
Hrogn 250,00 150,00 206,49 0,194 ' 40.060
Lifur 25,00 5,00 16,18 0,093 1.505
Steinbítur 45,00 29,00 43,16 11,193 483.055
Keila 15,00 15,00 15,00 0,132 1.980
Langa 33,00 33,00 33,00 0,223 7.359
Lúða 360,00 195,00 232,45 0,051 11.855
Tindabykkja 3,00 3,00 3,00 0,310 930
Skarkoli 83,00 63,00 68,30 0,745 50.896
Rauðmagi 89,00 89,00 89,00 0,025 2.225
Samtals 52,53 31,125 1.635.001
Selt var úr Skipanesi SH, Farsæli, frá Heimaskaga og úr bátum.
i dag veröur seldur bátafiskur.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 57,50 45,00 54,27 37,648 2.043.314
Ýsa 105,00 62,00 83,42 3,311 276.195
Keila 17,50 17,50 17,50 1,530 26.775
Ufsi 21,50 21,50 21,50 3,600 77.400
Karfi 26,60 17,00 22,22 0,999 22.199
Steinbítur 13,00 13,00 13,00 0,070 910
Langa 15,00 15,00 15,00 0,040 600
Blálanga 25,00 25,00 26,00 0,051 1.275
Lúöa 300,00 270,00 285,00 0,080 22.800
Samtals 52,22 47,329 2.471.468
Selt var úr Ólafi Jónssyni, Eldeyjarboða og Sighvati. ur selt úr dagróörarbátum ef gefur á sjó. I dag verð-
Morgunblaðið/Árni Sœbcr^
Nefnd um átak gegn áfengisvörnum gerði nýlega grein fyrir starfí sínu á fundi með fréttamönnum A
myndinni eru talið frá vinstri: Höskuldur Jónsson, Arni Einarsson starfsmaður nefíidarinnar, Hafeteinn
Þorvaldsson formaður nefiidarinnar, Aldís Yngvadóttir og Óttar Guðmundsson. Á myndina vantar Ólaf
Walter Stefánsson sem einnig á sæti i nefiidinni.
Nefnd um átak í áfengisvörnum:
Spoma verður við að
áfengisneysla aukist
ÁÆTLAÐ er að neysla bjórs á þessu ári verði að minnsta kosti
um 7 milljónir lítra, og ef gert er ráð fyrir að ekki dragi úr
neyslu annars áfengis verður aukning á heildarneyslu áfengis
að minnsta kosti 20% miðað við árið 1987. Telur nefiid á vegum
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um átak í áfengisvörn-
um að svo mikil aukning áfengisneyslu á einu ári hljðti að hafa í
för með sér aukin heilsufarsleg og félagsleg vandamál vegna
áfengisneyslu, og því beri að vera vel a'verði og fylgjast náið
með framvindu mála eftir að breytt áfengislöggjöf tekur gildi.
Nefnd um átak í áfengisvömum
var skipuð samkvæmt ákvæði til
bráðabirgða í breytingu á áfengis-
lögunum er heimilar sölu og dreif-
ingu bjórs hér á landi, og er henni
ætlað að gera tillögur er stuðlað
gætu að því að draga úr heildar-
neyslu áfengis. Þau viðfangsefni
sem nefndin telur brýnt að leggja
áherslu á til að spoma við aukinni
áfengisneyslu með tilkomu bjórsins
eru meðal annars að kannað verði
hvaða áhrif bjórinn hefur á áfengis-
neyslu og neysluvenjur lands-
manna, sérstaklega hjá ungu fólki
og misnotendum, og hvort tilkoma
hans komi til með að skapa ný
vandamál í umferð, atvinnulífi og
heilbrigðismálum almennt. Þá sé
mikilvægt að hvetja ungt fólk til
vímulauss lífemis og reka þurfí
áróður fyrir því að hóf í meðferð
áfengis og bindindi á áfengi og
önnur vímuefni sé sjálfsagður hluti
heilbrigðs lífernis.
Nefndin telur nauðsynlegt að
koma á samstarfi vinnuveitenda og
launþega um ákveðnar reglur til
að tryggja að ekki skapist sú hefð
hér á landi að drekka bjór í vinn-
utíma eða hléum til matar eða
hvíldar. Bendir nefndin á að víða
erlendis valdi áfengisneysla bæði
slysum og handvömm í atvinnulíf-
inu.
Til að spoma við ölvunarakstri
og því að bjórinn auki hann hugsan-
lega enn frekar telur nefndin að
þurfí að koma til mikil fræðsla,
Garðabær:
Skemmdar-
verk upplýst
FIMM piltar, 14 og 15 ára, hafa
játað á sig að hafa skemmt um
20 ljósastaura í Garðabæ seint í
októbermánuði. Piltarnir brutu
ýmist upp staurana sjálfa eða
tengibox fyrir þá og klipptu þar
í sundur rafleiðslur. I suma
staurana þurfti að draga raflínur
að nýju.
Við yfirheyrslur hjá lögreglunni
í Hafnarfírði gengust piltamir við
verknaðinum og kom fram að þeir
hefðu haft við hendina vönduð verk-
færi, sérstaka hanska og einangr-
aðar tengur. Þeir hafa ekki áður
komið við sögu lögreglu.
áróður, aðhald og samstarf þeirra
sem vinna að umferðarmálum.
Þá telur nefndin að almennar
venjur tengdar bjómeyslu geti orðið
til þess að auka aðgæsluleysi for-
eldra og uppalenda gagnvart áfeng-
isneyslu unglinga. Bjór sé í hugum
í 50 krónur.
Á boðstólum eru mörg hundruð
titlar úr ólíkum flokkum og um
hvers konar efni; allt bækur sem
Vaka-Helgafell og fyrirtækin sem
sameinuð voru í því hafa gefíð út.
hun klukkan 15.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
hollustu og heilnæmi matarræðis,
næringargildi, framleiðslu og fram-
reiðslu, hagkvæmni í innkaupum,
vmis konar sérfæði og hagsmuni
margra miklu fremur svaladiykkur
en áfengi, og því sé hugsanlegt að
foreldrar verði ósparari á bjór til
bama sinna en á annað áfengi.
Þessu þurfí að mæta með miklum
áróðri og upplýsingum til foreldra,
ekki síst í gegnum samtök þeirra á
ýmsum sviðum.
Nefnd um átak í áfengisvömum
vill eftir mætti tryggja á sem flest-
um sviðum að fólk geri sér grein
fyrir ýmsum áhættuþáttum sem
fylgja bjórkomunni 1. mars, ogheit-
ir hún á almenning, samtök, stofn-
anir og fjölmiðla sér til fulltingis í
því efni.
Margar elstu bókanna hafa ekki
verið á markaði undanfarin ár og
eru aðeins til í takmörkuðu upp-
lagi, segir í frétt fyrirtækisins.
sjúklinga.
Öllum er heimill aðgangur að
ráðstefnunni á meðan húsrúm leyf-
ir.
Frá bókamarkaði Vöku-Helgafells.
Vaka-Helgafell:
Bókamarkaður í Síðumúla
BÓKAÚTGÁFAN Vaka-Helgafell rekur bókamarkað að Síðumúla
29 til 4. febrúar næstkomandi. í frétt frá fyrirtækinu segir að
þar sé veittur allt að 90% afeláttur og fáist bækur fyrir ailt niður
Samtök heilbrigðisstétta:
Ráðsteftia um matar-
æði á sjúkrastoftiunum
STJÓRN Samtaka heflbrigðisstétta efiiir í dag til ráðstefinu um
matarræði á sjúkrastofnunum. Ráðstefiian verður haldin í Hús-
næði Hjúkrunarfélags íslands að Suðurlandsbraut 22 og hefet