Morgunblaðið - 26.01.1989, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1989
Háskólinn á Akureyri:
Keimsla í sjávarútvegs-
fræðum hefst að ári
Eins árs starfsreynsla við sjávarútveg skilyrði inngöngu
VONAST er til að nám S sjávarút-
vegsfræðum við Háskólann á
Akureyri geti hafist um næstu
áramót. Sjávarútvegsfræðin
verður burðarásinn í skólastarf-
inu, en nú þegar hafa verið settar
á laggirnar heilbrigðisdeild og
rekstrardeild. Skilyrði fyrir inn-
töku i deildina eru stúdentspróf
og a.m.k. eins árs reynsla við
störf í sjávarútvegi. Umsækjend-
ur með langa starfereynslu, en
aðra fræðilega menntun en stúd-
entspróf, eiga þó kost á inngöngu
og verða slík tilvik metin hveiju
sinni. Nemendur verða um 15 I
' hveijum árgangi.
Jón Þórðarson, sjávarútvegs-
fræðingur, er sérlegur ráðunautur
Háskólans á Akureyri um sjávarút-
vegsmál og hefur unnið að undir-
búningi deildarinnar. Hann sagði
að nefnd um kennslu á háskólastigi
á Akureyri, sem skilaði áliti 1985,
hefði Iagt til að skólinn skapaði sér
sérstöðu með því að kenna fög sem
ekki eru kennd við Háskóla íslands.
„Við stefnum að þverfaglegu námi
í sjávarútvegsfræðum, sem byggir
á flestum grundvallargreinum sjáv-
arútvegs," sagði Jón. „Það verða
nokkrar grunnnámsgreinar, svo sem
stærðfræði, efnafræði, tölfræði og
tölvufræði. Námið skiptist síðan í
Jón Þórðarson.
næringarfræði, þar sem til dæmis
er farið í lífefnafræði, örverufræði
og efnafræði fiska, auðlindafræði,
þar sem meðal annars er farið í
fiskalíffræði og stór hluti námsins
er tæknilegur og skiptist í veiðar-
færatækni, skipatækni og fram-
Ekkí opnaðar sér-
stakar bjórstofíir
Veitmgamenn á Akureyri eru nú að undirbúa sig fyrir 1.
marz þegar bjórsala verður leyfð. Enginn hefur þó sótt um
leyfí til að opna sérstaka bjórstofu af þessu tilefhi. Morgun-
blaðið hafði samband við nokkra veitingamenn til að inna þá
firegna af undirbúningi.
Inga Hafsteinsdóttir, sem sér
um rekstur Sjallans við Geisla-
götu, sagði að vínstofunni í kjall-
aranum yrði lítillega breytt.
„Kjallarinn var opnaður fyrir um
sex árum og þá voru keyptar en-
skar innréttingar í bjórkrárstíl,"
sagði Inga. „Þessar innréttingar
eru nokkuð famar að láta á sjá
og þær verða væntanlega lag-
færðar. Kjallarinn tekur um 120
manns og ég reikna með mikilli
aðsókn, einkum fyrst eftir að bjór-
inn kemur. Við ætlum okkur líka,
hér eftir sem hingað til, að bjóða
upp á ýmsa smárétti með bjóm-
um.
Af Sjallanum sjálfum er það
að segja að ég á ekki von á mikl-
um breytingum á honum. Ég á
líka bágt með að ímynda mér að
nokkur veitingamaður verði ríkur
af því að vera með bjórkrár ein-
göngu, því að hluti veitingamanns
af bjórverði er lítill." Inga sagði
að ekki hefðu verið pöntuð borð
f kjallaranum 1. marz, en komið
hefiir fram í fréttum að nokkuð
sé um slíkt í Reykjavík.
Þráinn Lárusson, veitingamað-
ur í Uppanum við Ráðhústorg,
sagði að hann væri nú að stækka
staðinn um helming. „Það hefur
lengi staðið til,“ sagði hann, „en
breytingarnar eru ekki vegna
bjórsins. Ég reyni ekki að herma
eftir erlendum bjórkrárstíl og inn-
réttingamar eru að mestu fengnar
hér á landi. Uppinn er fyrst og
fremst matsölustaður og ég fóma
ekki þeim hluta rekstarins fyrir
bjórdryklqufólk. Það verður eng-
inn ríkur af að selja bjórinn."
Þráinn sagði að Uppinn tæki
eftir breytingar um 150 manns.
„Fólk hefur hringt og óskað eftir
því að ég tæki frá borð 1. marz,
en ég hef ekki orðið við því enn.
Eftir helgina ætla ég hins vegar
að gera það og reikna með að öll
borð verði frátekin."
„Bleiki fíllinn er fyrst og fremst
dansstaður og verður það áfram,"
sagði Fanney Jónasdóttir, sem
rekur veitingastaðinn við Hafnar-
stræti ásamt þeim Antonio
Mellado, Sigurði Jónssyni og Sól-
veigu Sigurjónsdóttur. „Ég efast
um að bjórinn breyti miklu og
efast líka um að það borgi sig að
breyta fyrir bjórinn," sagði hún.
„Á neðstu hæð hússins er ekki
dansgólf og þar höfum við hugsað
okkur að hafa opið daglega og
bjóða þar upp á smárétti, auk
bjórsins. Þá geta gestir gripið í
billjarð. Húsið, sem er á þremur
hæðum, tekur 5-600 gesti. Við
höfum aldrei tekið frá borð fyrir
gesti og 1. mars verður engin
undantekriing að því leyti."
Bjórþyrstir Akureyringar geta
einnig nálgast sopann sinn á Hót-
el Stefaníu við Hafnarstræti, þar
sem iðnaðarmenn vinna nú við að
innrétta bjórstofu.
leiðslutækni. Loks er svo til að nefna
hagfræði og farið er yfir skipulags-
og stjómunarmál sjávarútvegs."
Jón sagði að þó svo að námið
væri á háskólastigi væri stúdents-
próf ekki sett sem skilyrði fyrir inn-
göngu. „Það er þó algert skilyrði
að menn hafi stundað störf í sjávar-
útvegi í eitt ár hið minnsta," sagði
hann. „Og það er rétt að benda á
að námið byggir mikið á stærðfræði
og kennslugögn eru að stórum hluta
á ensku eða einhveiju Norðurlanda-
málanna, svo fólk verður að afla sér
grunnmenntunar í þessum fögum
áður en lengra er haldið. Mér finnst
starfsreynslan hins vegar nauðsyn-
legust og í raun er hún svo dýrmæt
að það ætti að setja hana sem skil-
yrði fyrir inngöngu í allar greinar
háskóla og banna fólki að setjast
inn í háskóla strax að loknu stúents-
prófi."
Nám í sjávarútvegsfræðum tekur
4- 5 ár og reiknað er með að útskrif-
aðir sjávarútvegsfræðingar leiti í
stjómunar- og rannsóknastörf innan
sjávarútvegsfyrirtælqa og opinberra
stofnana sem hafa með sjávarútveg
að gera. „Það er greinilegt að fjöldi
fólks hefur mikinn áhuga á þessu
námi,“ sagði Jón. „Flestir sem haft
hafa samband við Háskólann á
Akureyri eru frá Austfjörðum, Vest-
flörðum, Vestmannaeyjum og
Reykjanesi. Þetta fólk er yfirleitt
með stúdentspróf og hefur starfað
5- 10 ár við sjávarútveg. Hingað til
hefur enginn frá Reykjavík eða
Akureyri látið í sér heyra. Miðað
við þann hóp sem ég hef talað við
þykir mér líklegt að meðalaldur í
sjávarútvegsdeildinni verði um 30
ár. Mér líst vel á að fá fólk með
góða starfsreynslu í deildina strax
í upphafi, því það getur lagt mat á
námið jafn óðum og auðveldað okk-
ur að þróa kennsluna svo hún verði
markvissari. Deildin mun hafa góð
tensgl við allar greinar sjávarútvegs
og við miðum að því að halda suma
kúrsana annars staðar en hér á
Akureyri. Til dæmis er líklegt að
hluti veiðitækninnar yrði kenndur á
ísafirði, þar sem merkilegar tilraun-
ir hafa verið gerðar með veiðar-
færi,“ sagði Jón Þórðarson, sjávar-
útvegsfræðingur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Lífog fjör ísnjónum
Krakkarnir hafa óspart notað snjóinn að undanförnu og vel kunn-
að að meta hann. Tilfinngar fullorðna fólksins hafa hins vegar
verið blendnar.
Iþróttaskemman:
Gershwin-afmælistónleikar
Kammerhljómsveit Akur-
eyrar efiiir til Gershwin-tón-
leika sunnudaginn 5. febrúar
kl. 20.30 í íþróttaskemmunni,
en á þessu ári verða 90 ár liðin
frá fæðingu Georg Gershwin.
Sextíu manns taka þátt í tónleik-
unum og hefúr hljómsveitin
aldrei verið Qölmennari.
Danskur jassleikari, Erik
Tschentscher, stjómar hljómsveit-
inni af þessu tilefni. Flutt verða
tónverkin Rhapsody in Blue ásamt
sönglögum og dúettum úr söng-
léiknum Porgy and Bess. Einnig
verða flutt létt lög útsett fyrir sin-
fóníska hljómsveit og rafmagns-
hljóðfæri.
Einleikari á píanó verður Krist-
inn Öm Kristinsson, sem er starf-
andi tónlistarmaður á Akureyri,
og er þetta í fyrsta sinn sem hann
kemur fram sem einleikari með
Kammerhljómsveitinni. Þá fær
hljómsveitin til liðs við sig unga
söngvara frá Reykjavík, þau Jó-
hönnu Linnet og Michael Levine.
Keppt í Svarta Pétri
Vistheimilinu Sólborg á Akureyri hefúr borist bréf frá Sól-
heimum í Grímsnesi, þar sem tilkynnt er um íslandsmeistara-
mót í Svarta Pétri, sem haldið verður á Sólheimum þann 25.
febrúar. Mótið er fyrst og fremst hugsað fyrir þroskahefta,
en er öllum opið.
Skilyrði fyrir þátttöku er að
viðkomandi kunni og geti spilað
Svarta Pétur, eins og hann er
spilaður á sérstök Svarta Péturs
spil. Keppnin er útsláttarkeppni
og er veglegur farandbikar í verð-
laun, auk aukaverðlauna. Stefnt
er að því að keppnin verði árlegur
viðburður. Þátttaka er ókeypis og
allir þátttakendur fá viðurkenn-
ingarskjal. Frestur til skráningar
er til mánudagsins 20. febrúar.
Ekki er ljóst hvort vistmenn
Sólborgar geta sótt keppnina.