Morgunblaðið - 27.01.1989, Qupperneq 11
11
; MORGUNBL.AÐIÐ FÖS.TUDAGUR 27. JANÚAR 1989
Bragð er að þá
bamið fínnur
eftir Egil Jónsson
„Ég tel að Alþýðuflokkurinn
hafi ráðið of miklu í stjóm efna-
hagsmála í síðustu ríkisstjórn og
ég óttast að hann ráði of miklu
enn.“
Þriðjudaginn 17. þ.m. hefur DV
þessi ummæli eftir Guðmundi G.
Þórarinssyni alþingismanns Fram-
sóknarflokksins. Þessi yfirlýsing
þingmannsins er athyglisverð og
mikilvæg vegna þess að hún er
laukrétt. Það er svo annað mál
að hér gildir sem endranær að of
seint er að iðrast eftir dauðann.
Guðmundur G. Þórarinsson tal-
ar um að fyrrverandi ríkisstjórn
hafí fylgt fastgengisstefnu um of.
I því sambandi vil ég þó minna
sérstaklega á að verðhækkun er-
lendra gjaldmiðla á síðasta ári nam
nálega tvöfaldri þeirri verðlækkun
sem varð á erlendum mörkuðum
á helstu sjávarafurðum okkar á
sama tíma.
Annað mál er að meira þurfti
til svo að eðlilegur rekstrargrund-
völlur fyrir útflutningsgreinamar
yrði tryggður. Sú leið, sem Fram-
sóknarflokkurinn valdi til að
treysta þann grundvöll, á ekki að
vefjast fyrir Guðmundi G. Þórar-
inssyni fremur en neinum öðrum
sem til þessara mála þekkja.
Um miðjan ágúst sl. höfðu for-
menn Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks komist að niðurstöðu um
að slíta bæri samstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn og fylgjast að við
myndun nýrrar ríkisstjórnar. Þetta
var leiðin sem Framsóknarflokkur-
inn valdi og hún gekk eftir.
Yfirlýsingar hins orðvara for-
sætisráðherra í upphafi ferils nú-
verandi ríkisstjórnar eru öllum Is-
lendingum í fersku minni. Þar var
sérstaklega boðað að rekstrar-
grundvöllur útflutningsgreina yrði
treystur svo að hjól atvinnulífsins
gætu snúist á fullri ferð. Um þess-
ar mundir er búið að stjóma á
grundvelli þessara fyrirheita í
tæpa fjóra mánuði og reynslan er
fengin.
Hjól atvinnulífsins hafa ekki
snúist hraðar en áður var, þvert á
móti. Þau hægja stöðugt á sér.
Verðmæti framleiðslunnar dregst
saman og þeirri óheillaþróun er
mætt með meiri skattahækkun en
áður em dæmi um, versnandi
lífskjör blasa því við.
Egill Jónsson
„í ljósi þessarar þróun-
ar hefur einn þing-
manna Framsóknar-
flokksins sýnt það þrek
að viðurkenna með
óbeinum hætti þau mis-
tök sem leitt hafa af
myndun núverandi
ríkisstjórnar og verk-
um hennar. Það er
þakkarvert o g breytir
þar engu um þótt sann-
mæli sé að bragð er að
þá barnið finnur.“
í ljósi þessarar þróunar hefur
einn þingmanna Framsóknar-
flokksins sýnt það þrek að viður-
kenna með óbeinum hætti þau
mistök sem leitt hafa af myndun
núverandi ríkisstjórnar og verkum
hennar. Það er þakkarvert og
breytir þar engu um þótt sann-
mæli sé að bragð er að þá barnið
finnur.
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokks fyrir Austurlands-
kjördæmi.
Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands;
Afleiðingar Mari-
ane-strandsins
Náttúruvemdarfélagið fer skoð-
unarferð laugardaginn 28. janúar
kl. 13.30 frá Oddsbúð, björgunar-
skýli austan við höfnina í Grindavík.
Gengið verður út Hópsnesið og inn
með Þorkötlustaðanesinu og til
baka að Oddsbúð. Hugað verður
að, undir leiðsögn náttúmfræðinga
og staðfóðra manna, botnþömng-
um, botndýmm, fjörafískum, fisk-
seiðum og vetrarfuglum (staðfuglar
og vetrargestir) og náttúm og
mannvistarsögu svæðisins og bent
á örnefni. Þá verður kannað hvem-
ig gasolían úr fragtskipinu Mariane
Danielsen dreifist. í Sjómannastof-
unni Vör hefjast stuttar umræður
kl. 16.00. Þar verður fjallað um það
sem fyrir augu bar í vettvangs-
ferðinni og svarað spumingum. Þá
verður kynnt sú hugmynd að gmnn-
skólaböm í Grindavík fylgist með
hverjar afleiðingar Mariane-
strandsins verða fyrir lífríkið og
hvemig verði hægt að aðstoða þau
við að framkvæma hana. Að lokum
verður rætt hvað er til ráða til að
forðast megi mengun frá skips-
ströndum og öðmm stórslysum sem
valdið gæti alvarlegri röskun á
lífríkinu.
Bessastaðanes
Á sunnudagsmorgun 29. janúar
kl. 10.00 fer Náttúraverndarfélagið
í gönguferð umhverfís Bessastaða-
nes. Lagt verður af stað frá Bessa-
staðakirkju og gengið út á Skans-
inn, með Seilunni 'og austur með
ströndinni til baka að Bessastaða-
kirkju. Takið bömin með. Tilgangur
ferðarinnar er að kynna skemmti-
lega gönguleið með óvenjulegu út-
sýni. En auk fróðleiks um Bessa-
staðanes munu þátttakendur njóta
hressandi útivem og ánægjulegrar
samvem. Venjulega taka vett-
vangsferðirnar og stuttu göngu-
ferðirnar um einn og hálfan tíma.
Öllum er heimil þátttaka í ferðum
félagsins. Þátttökugjald er ekkert
í ofangreindum ferðum.
' (frá NVSV)
— VÍKURHUGBÚNAÐUR —
Sterkur leikur í stöðunni
Á nýju ári er rétt að taka .. föstum tökum. Örtölvutækni
kynnti nýlega hollenskar I ULIr tölvur sem eru í senn nettar
og hraðvirkan Þessar tölvur bjóðast nú á einstöku kynningar-
verði með RÁÐ-hugbúnaði.
r
Sérstök SYNING á NET-
tengdum TULIP tölvum með
RÁÐ-hugbúnaði verður að
Ármúla 38 og er hún opin sem
hér segir:
Fimmtudagur 26. jan.: 10-17
Föstudagur 27. jan.: 10-18
Laugardagur 28. jan.: 10-15
Við hvetjum þig til að líta inn og kynnast nýjum, sterkum valkosti
í tölvuvæðingu fyrirtækisins.
Við bjóðum lægra verð og betri þjónustu.
Einnig IBM og Hewlett Packard tölvur á góðu verði.
Örtölvutækni - leiðandi á sínu sviði
■ IH ÖRTÖLVUTÆKNI ........................
Tölvukaup hf., Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími 687220, Fax 687260