Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 15 stöfunum til þess að auka þjóðar- tekjur. Ríkisstjórnin hefur svikið alla þessa þijá þætti en aftur á móti farið út í mikla skattheimtu með sköttum ofan á skatta, sem valda samdrætti í atvinnulífinu, sem síðan veldur atvinnuleysi og- þar af leiðandi þverrandi getu til þjóðarframieiðslu. Af þessu leið- ir að þjóðartekjurnar minnka að sama skapi, en þær eru einmitt forsendan fyrir velsæld og mögu- leika til þess að borga skuldina. Hjólin hætta smám saman að snú- ast og hlutur hvers og eins í þjóðar- tekjum minnkar. — Meiri skattar þýða minna í hvem vasa. Meiri skattar skerða kaupgetu almennings og minni kaupgeta þýð- ir minnkandi eftirspum eftir vömm og þjónustu. Þannig hraða skattar samdrættinum í efnahagslífinu og þessvegna fara allar vestrænar þjóðir eftir hárvissum reglum þegar þær beita skattlagningu, þveröfugt við iðju íslensku ríkisstjomarinnar. Spumingin er: er einhver annar- legur tilgangur með þessari þungu skattlagningu? Það er þegar komin Jámtjaldslykt" af umhverfinu, sem við búum í. Við skulum hafa efst í huga, að hér em vinstri flokkar á ferðinni og er hugsanlegt, að stefnt sé hér að Skandinavíu-fyrirmynd með ríkisforsjá? Sem dæmi um það hve rangt er að farið má tilnefna Vestur-Þjóð- veija sem vom að skera niður skatta um 14 milljarða marka 1988 og aftur 1989 til þess að hleypa auknu lífi í atvinnulífið og skapa hagvöxt og aukningu þjóðarfram- leiðslu um 2-4%. Ef litið er afturábak á okkar hörmulega veg ber kunnáttumönn- um saman um, að strax í byijun árs 1987 átti að leiðrétta gengi krónunnar og aftur í október 1988 til þess að lægja gervi-þensluna í hagkerfinu. Ekkert var aðhafst og nú emm við komin úr öskunni í eldinn með þeirri einu „skreytingu" að alþýðubandalagsmenn em komnir inn í stjómina í stað sjálf- stæðismanna. Stjómin fer sannarlega hvergi eftir hefðbundnum aðferðum við efnahagsmálin, heldur notar býsna nýustárlega tilburði. Ef hægt er að beita „handafli" og þumalfingur- reglu við efnahagsvandann í stað reyndra fræðilegra leiða þá getum við stofnað hér frægustu háskóla- deild heimsins í „nýhagfræði". A þessari stundu sitjum við á sí-stækkandi verðbólgublöðm með- an verðstöðvun er í viðjum laga, sem springur út í stjómlausri verð- bólgu-skriðu um leið og lögunum er aflétt, eins og verður að gerast mjög bráðlega. Hvaða „stríðsmenn" verða þá fyrstir til þess að yfirgefa völlinn? Ríkisstjómin hefur hingað til hamlað á móti gengisfeilingu, sem áður fyrr hefði þótt sjálfsögð til þess að rétta við bágstaddan sjávar- útveg og styrkja með þvi markaði okkar undirstöðuatvinnuvegs. Allan tímann hefur Halldór Ás- grímsson talað fagurlega og já- kvætt við útvegsmenn og þá er útveginn stunda. Núna þegar út- vegurinn er kominn á hnén vendir stjómin kvæði sínu skyndilega í kross og bætir gráu ofan á svart með því að koma fram með nýja áætlun, sem gjörbreytir allri stöðu sjávarútvegs á íslandi. RÍKIÐ ÆTLAR AÐ EIGNAST POLLINN kringum landið og selja í hann veiði- leyfi eins og veiðirétt í laxám lands- ins. Eini munurinn hér á er sá, að laxámar em í einkaeign en sjórinn í eigu ríkisins. Að lokum valdatafls Ef einstakir atburðir síðastliðins árs em nánar skoðaðir koma upp þær getgátur hvort ríkisstjómin sé að reyna að slæva, tfmabundið, starfsemi Hæstaréttar og Seðla- banka. Á sama tíma er skyndilega reynt að stýra veikburða útveginum inn á „ný mið“ veiðileyfa. Ein spuming rís nú upp. Hve lengi sitja verkalýðsfélögin og ASÍ aðgerðalaus í hækkandi verðlagi undír verðlagsfrystingu með lögum? Höfiindur er forstjóri VíSlfellshf. Tískufatnaður • vinnufatnaður • barna- og ungl- ingafatnaður • sængur, koddar • sængurvera- sett • fóðraðir og ófóðraðir jogginggallar • barnaúlpur • skíðasamfestingar • fata- og gardínuefni • snyrti- vörur • skartgripir • gjafavara • garn og prjónavörur • gallabuxur • skór • og margt margt fleira. Fjöldi góðra fyrirtækja á aðild að Risaútsölumarkaðnum. Eingöngu vandaðar vörur í boði, á stór- lækkuðu verði. Nú er tækifæri, sem seint býðst aftur, til að gera góð kaup. Allt á að seljast! Við höfum opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12:00 til 18:00 og á laugardögum frá 10:00 til 16:00. h Allt að 80% afsláttur RISAUTSÖLUMARKAÐURIMN Bíldshöfða 10 (þessi með stjörnunni) ALLT AÐ 90% AFSLÁTTUR ó hundruðum bókatitla i takmörkuðu upplagi í 14 DAGAFRÁ 21.JAN-4.FEB Komdu við á bókamarkaðinum í Síðumúla 1 1 og bættu gullvægum bókum í safnið. ÖRN OG ORLYGUR StÐUMÚLA 11 - SÍMI 84866 P&Ó/SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.