Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR 27. JANÚAR' 1089 Minning: Olafur Sigurðsson Fæddur 3. febrúar 1914 Dáinn 19. janúar 1989 I dag verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Ólafur Sigurðs- son fyrrverandi bátsmaður og síðar verkstjóri. Ólafur var fæddur í Reykjavík og var móðir hans Sigríður Bjarna- dóttir frá Björgum á Skagaströnd. Hann var tekinn í fóstur sem ungbam að Hausastöðum í Garða- hreppi ti! öndvegishjónanna Þor- gerðar og Eyjólfs, sem þar bjuggu og gengu þau honum í móður og föðurstað. Hann ólst þar upp og bjó hjá þeim ásamt fóstursystkinum sínum allt þar til hann gifti sig. Ólafur gekk í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og útskrifaðist gagn- fræðingur þaðan. Hugur hans stefndi alla tíð á sjó- inn og langaði hann til að ganga í sjómannaskóla, en tímamir vom erfiðir í þá daga og gat ekki af þeirri skólagöngu orðið. Ólafur fór ungur til sjós og stund- aði hann sjómennsku á togurum. Hann sigldi öll stríðsárin og tók þátt í björgun margra skipbrots- manna á þeim ámm. Ólafur var lengst af með Hann- esi Pálssyni skipstjóra og Hallgrími Guðmundssyni stýrimanni og skip- stjóra, sem síðar varð forstjóri Tog- araafgreiðslunnar. Einnig var hann örfá ár hjá Skipaútgerð ríkisins á ms. Herðubreið. Eftir 30 ára sjómennsku fór hann í land og gerðist verkstjóri hjá tog- araafgreiðslunni. Þar starfaði hann í 20 ár. Ólafur starfaði í Sjómannafélagi Reykjavíkur og var fulltrúi þess í Sjómannadagsráði frá 1959 til 1985 er hann lét af störfum. Þann 6. október 1934 giftist Ólafur Kristjönu Þorsteinsdóttur frá ísafirði, þá tvítugur að aldri, og þurfti hann konungsbréf til, sem hann oft síðar henti gaman að. Þau hjónin eignuðust 4 börn, Gerði Ólafíu og á hún 3 böm, Re- bekku, sem á 6 böm, Björn Sævar, sem lést 22. janúar 1967 þá 27 ára að aldri, og Sigríði, en hún á 5 börn. Alls em svo bamabarnabörn- in orðin 19. Sumarið 1986 fluttu þau hjónin Ólafur og Kristjana að Hrafnistu í Hafnarfirði og var það vel við hæfi fyrir gamlan 'Sjómann. Þar leið þeim vel frá fyrsta degi og var mjög vel að þeim búið þar. Ólafi þótti vænt um að geta horft yfir sjóinn og æskustöðvarnar frá nýja heimilinu þeirra. Fyrir rúmlega 23 ámm giftist ég yngstu dóttur Ólafs og Krist- jönu. Hjá þeim á Brúnavegi 12 bjuggum við fyrstu búskaparár okkar, og má segja að við séum varla flutt frá þeim enn, enda höfum við ávallt verið mjög samrýnd. Við Ólafur vomm alla tíð góðir vinir og fór alltaf mjög vel á með okkur. Við höfum átt sameiginlegan sælureit hlið við hlið í sumarbústöð- um okkar að Hraunborgum í Grímsnesi og verið þar saman. Þar hafa bömin okkar einnig notið sam- skipta við afa og ömmu og mun afa verða sárt saknað úr horninu sínu þar. Minningar mínar um hann em mér hjartfólgnar. Hann var allt- af rólegur, glettinn, gamansamur og góður félagi. Fyrir um það bil einu ári kenndi hann sér meins, sem að lokum dró hann til dauða. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm hélt hann sinni léttu lund og rósemi allt til his síðasta. Að lokum vil ég þakka fyrir þessa góðu samvem og bið guð að blessa minningu hans og hugga alla þá, sem um sárt eiga að binda við frá- fall hans. Bjarni Þ. Bjarnason Hver fógur dyggð í fari manns, er fyrst af rótum kærleikans. Af kærleik sprottin auðmýkt er, við aðra vægð og góðvild hver og friðsemd hrein og hógvært geð og hjartaprýði stilling með- (Kingó-Sb. 1886 H. Hálfd.) I dag kveðjum við ástkæran afa okkar, sem lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði að kvöldi þess 19. janúar sl. Hann háði einvígi við sjúkdóm þann, sem hefur bundið enda á marga ævina. Með örfáum fátæklegum orðum vil ég reyna að þakka honum þann hlýhug og þá velvild sem hann og elskuleg amma mín, Kristjana Þor- steinsdóttir, hafa sýnt og veitt mér í gegnum árin. Heimili þeirra stóð okkur ætíð opið og ekki vantaði að vel og höfðinglega væri tekið á móti öllum, sem litu inn í þeirra hlýlega og fallega heimili. Hvort sem það var nú á Laugateignum, þar sem nokkur okkar fæddumst, eða á Brúnaveginum, þar sem þau bjuggu fram til þess að þau flutt- ust að Hrafnistu í Hafnarfirði í júní 1986. Eg þekkti nú best til á Brúnaveg- inum, enda átti ég þar hjá afa mínum og ömmu heimili hlýtt um tíma. Þar var oft margt um mann- inn enda alltaf gaman að koma þangað. Afi sat svo oft með pípuna sína í ruggustólnum sínum, og mik- ið var gott að tylla sér hjá honum og spjalla um heima og geima. Hann afí átti alltaf tíma til að spjalla við okkur og hlusta. Hann hafði líka gaman af að fá heimsókn- ir, þá ekki hvað síst frá dætrunum sínum þremur, barnabömunum, og öllum langafabömunum sem nú em orðin 19 talsins. Hinsta kveðjustundin er nú mnn- in upp og þar em svo margar góð- ar minningar í huganum, en erfitt að tjá þær með penna. Ég kveð nú elskulegan afa minn með söknuð í hjarta, og þakka hon- um allt. Minningin mun lifa áfram. Fari hann í friði. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfír mér. (Hallgr. Pétursson) Góður Guð gefi ömmu okkar, Kristjönu Þorjjelsdóttur, styrk í hennar mikla trega og söknuði. Svo og dætmnum Gerði, Rebekku og Sigríði og aðstandendum öllum votta ég einlæga samúð mína. Guð geymi ykkur öll. Elín Birna Að kvöldi 19. janúar sl. andaðist að Hrafnistu í Hafnarfirði Ólafur Sigurðsson áður til heimilis að Brúnavegi 12 Reykjavík, heiðurs- félagi í Sjómannafélagi Reykjavík- ur. Ólafur fæddist í Reykjavík 3. febrúar 1914, móðir hans Sigríður Bjarnadóttir fór frá Björgum við Skagafjörð og kom Ólafi fyrir í fóst- ur 3ja vikna gömlum hjá þeim hjón- um Þorgerði Halldórsdóttur og Eyj- ólfi Eyjólfssyni útvegsbónda, en þau Ljuggu á Hausastöðum í Garða- hverfí sunnan Hafnarfjarðar. Þar ólst Ólafur upp ásamt tveimur fóst- ursystkinum sínum, stundaði nám í Flensborgarskóla og fór ungur að stunda sjómennsku á sumrin. Fjór- tán ára gamall réðst Ólafur til t AGNES SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Öldugötu 34, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 30. janúar. Vandamenn. síldveiða og síðar hófst langur fer- ill togarasjómennskunnar m.a. á bv. Sindra, Snorra goða og Skal- lagrími. 1947 til BÚR á b.v. Ingólf Amarson, Þorstein Ingólfsson og Þorkel mána. Þá um nokkurra ára tímabil á strandferðaskipum Ríkis- skips. 1960 hóf Ólafur störf í landi sem verkstjóri hjá togaraafgreiðsl- unni og síðar hjá Eimskip, til 1984 að hann hætti störfum fyrir aldurs- sakir. Ólafur var um langt árabil í trúnaðarmannaráði Sjómannafé- lagsins og í stjóm félagsins frá 1955 til 1962. Hann var fulltrúi félagsins á ijölda þinga ASÍ og Sjó- mannasambandsins, var í Sjó- mannadagsráði frá 1959 til 1986. Ólafur varð að heiðursfélaga Sjó- mannafélags Reykjavíkur á 70 ára afmæli félagsins árið 1985. Ólafur kvæntist Kristjönu Þor- steinsdóttur frá ísafirði í október 1934. Þau eignuðust fjögur böm, þijár dætur og son sem er látinn fyrir 22 ámm. Dætumar em kvæntar og em bamabörnin 14 og barnabarnabömin 19. Þessum_ orðum fylgir mynd af kirkju Óháða safnaðarins í Reykjavík, en hún er eina kirkjan sem mér er kunnugt um að Gunnar Hansson hafi teiknað og á komandi vori em liðin 30 ár frá vígslu henn- ar. Hún er einnig eina kirkjan sem Gunnar Thoroddsen, þáverandi borgarstjóri, lagði homstein að, og nú em þessir góðu drengir báðir gengnir fyrir ættemisstapa. Kirkja Öháða safnaðarins var einnig eina kirkjubyggingin meðal 11 bygg- inga, sem nefnd arkitekta, skipuð af Fegmnarfélagi Reykjavíkur, verðlaunaði á 11 alda afmæli ís- landsbyggðar árið 1974 fyrir hrein- an stíl og hagkvæmt notagildi. Gunnar Hansson var ekki í Óháða söfnuðinum og eingöngu ráðinn til að teikna kirkjuna vegna þess að fyrri verk hans lofuðu þá þegar meistarann, og gera mátti ráð fyrir að listræn vinnubrögð hans og nútímaleg viðhorf fengju þar með að njóta sín. Hvomgt brást heldur og ber kirkjan því órækt í stuttu máli er þetta langur fer- ill launamanns sem í svita síns erfið- is sótti gjöful íslandsmið, þjóðfélag- inu, sér og sínum til lífsviðurværis. Fyrir langt og óeigingjamt starf í þágu íslenskrar sjómannastéttar og Sjómannafélags Reylq'avíkur er Ólafi Sigurðssyni þakkað. Útförin fer fram frá Fossvogs- kirkju kl. 15.00 í dag 27.1. Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur Ólafur Sigurðsson, fyrmrn sjó- maður og verkstjóri, síðast vistmað- ur á Hrafnistu í Hafnarfirði, er kvaddur hinstu kveðju í dag, en hann lést 19. þ.m. Hann var fædd- ur 3. febrúar 1914 i Reykjavík. Einstæð móðir hans, Sigríður Bjamaddóttir, kom honum til fóst- urs 3ja vikna gömlum til sæmdar- hjónanna Þorgerðar Halldórsdóttur og Eyjólfs Eyjólfssonar, sem bjuggu á Hausastöðum í Garðahreppi á Alftanesi. Þar ólst Ólafur upp og átti heimili allt til tvítugs er hann stofnaði eigið heimili. Hugsaði hann ætíð hlýlega til æskuheimilisins og æskustöðvanna og það var honum mikil ánægja þegar hann flutti á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir nokkr- um ámm að hafa gott útsýni yfir Álftanesið og geta rifjað upp gamla oggóða daga. Á kveðjustundu rifjast upp marg- ar minningar frá áratuga kynnum. Ólafur var kvæntur móðursystur minni, Kristjönu Þorsteinsdóttur, og sem drengur var ég tíður gestur á heimili þeirra og á þaðan margar góðar minningar. Þangað kom ég ekki síst til að hitta góðan vin og frænda, Björn, son þeirra Kristjönu og Ólafs, en við áttum margar góð- ar stundir saman. Ólafur var þá sjómaður og bar ég mikla lotningu frir þessum hraustlega en hægláta manni, sem stundum gaf sér tíma til að huga að leikjum okkar. Ólaf- ur flíkaði ekki tilfinningum sínum, vitni svo lengi sem hún stendur. Hún er borgarprýði í látleysi sínu og hreinleika hið ytra og hlýjar um hjartaræturnar hið innra, gleður sjón og heym og vekur trúártilfinn- ingu, andar friði og birtu. Tónlistar- flutningur nýtur sín t.d. naumast nokkurs staðar betur. Með einu handtaki má opna inn í safnaðar- heimilið Kirkjubæ og stækka þar með kirkjusalinn ef svo mætti segja. Hádegissólin skín óhindrað inn um háa og víða suðurglugga inn í sal- inn, og aftansólin inn um óslitna gluggaröð efst á vesturgaflinum og flæðir inn með þakinu, alla leið inn á vegginn yfir altarinu og hina stór- fenglegu þrískiptu altaristöflu meistara Jóhanns Briem. Ritara þessara kveðjuorða stend- ur næst að minnast samstarfsins við Gunnar Hansson að byggingu kirkju Óháða safnaðarins þar sem ég var bæði formaður kirkjubygg- ingamefndar og framkvæmdastjóri við þá byggingu og hafði því mest saman við hann að sælda. Listræn- en þeir, sem þekktu hann, vissu að hann var tilfinningaríkur og hafði ákveðnar skoðanir á þeim málum, sem hann lét sig varða. Hann hafði ekki síst áhuga á málefnum sjó- mannastéttarinnar og gat látið dug- lega til sín heyra þegar hann ræddi þau. Hann var lengi virkur þátttak- andi í starfi Sjómannafélags Reykjavíkur og um árabil var hann fulltrúi þess í Sjómannadagsráði, sem mjög hefur unnið að velferðar- málum sjómanna. Heimili þeirra Kristjönu og Ólafs var í raun lengi miðstöð mjög stór- ar fjölskyldu. Þau voru fyrst í sam- býli við foreldra Kristjönu, Rebekku Bjarnadóttur og Þorstein Ásgeirs- son, sem voru nýflutt frá ísafírði, og eftir lát Þorsteins var Rebekka lengi á heimili þeirra. Böm þeirra Rebekku og Þorsteins voru 10 tals- ins og var því oft gestkvæmt á heimilinu. Öllum var þar ávallt tek- ið fagnandi og af mikilli gestrisni og heimilið var sérstaklega hlýlegt og fallegt. Er víst að margir með- limir þessarar stóru fjölskyldu áttu þar ótal glaðar stundir og minnast Ólafs i dag með söknuði og þakk- læti. Hann var trúr og sannur vinur. Ég hef hér áður nefnt son Ólafs og Kristjönu, Bjöm, en hann fædd- ist 1939. Sem ungur drengur veikt- ist hann af ólæknandi sjúkdómi og lést af hans völdum 27 ára gamall. Veikindi hans og fráfall urðu for- eldrum hans og systrum skiljanlega mikið áfall, sem og okkur öllum, ættingjum hans og vinum, enda var hann einstaklega tápmikill og skemmtilegur drengur. Dætur þeirra hjóna eru þijár: Gerður, fædd 1934, gift Magna Ingólfssyni; Re- bekka, fædd 1937, gift Valdimar Sveinssyni og Sigríður, fædd 1946, gift Bjama Bjamasyni. Ég lýk þessum fátæklegu kveðju- orðum með því að senda Kristjönu, dætmm, tengdasonum og barna- bömum innilegar samúðarkveðjur. Megi minning um góðan dreng verða þeim huggun í sorg sinni. Haraldur Henrysson ar kröfur hans og hagsýni við út- færslu allra vinnuteikninga eru efst í huga mér, enda varð kirkjan jafn ódýr í byggingu og hún er frábær að allri gerð. Ef nokkuð var þurfti stundum að ganga eftir að ekki stæði á neinum teikningum, sem bæði stafaði af því hve hann vand- aði öll vinnubrögð og hafði mörg járn í eldinum samtímis sem eftir- sóttur arkitekt. En engu að síður mátti segja að kirkjan risi á mettíma og nafn hans geymist í hornsteini hennar og í hverri línu. Byggingin hófst síðsumars 1956, safnaðarheimilið var vigt haustið 1957 og kirkjuvígslan fór fram á sumardaginn fyrsta 1959, virkum degi, þeim degi sem þjóðin hefir þráð heitast í skammdegi aldanna. Mér er til efs að önnur kirkja hér á landi hafi verið vigð á sumardag- inn fyrsta og þannig helguð bæði heimsljósinu og himinljósinu. Það var táknrænt. Arkitektinn bauð öllu ljósi umfram allt inn og kvaddi þennan heim með hækkandi sól. Þökk sé góðum dreng og lista- manni fyrir samfylgd og samstarf sem var alltof stutt. En merkið stendur þótt maðurinn falli. Með einlægri samúðarkveðju. Emil Björnsson fv. prestur Óháða safnaðarins « ___u:__ct. Gunnar Hansson arkitekt—Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.