Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.01.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989 23 ifyrir- ftiunar Þórður sagði ennfremur að ef lit- ið væri á tekjuhliðina á mælikvarða landsframleiðslunnar væru fyrir- tækin einnig bjartsýnni en Þjóð- hagsstofnun. Ef að þessar kaup- máttarforsendur fyrirtækjanna væru settar inn í líkan Þjóðhags- stofnunar yrði niðurstaðan miklu meiri samdráttur í landsframleiðslu og meiri samdráttur í efnahagsleg- um umsvifum á landinu. Þá byggju fyrirtækin væntanlega við lakara eftirspumarástand og minni sðlu en þau gerðu ráð fyrir. Gróa Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri keppninnar. Leit að fegurðar- drottningnm hafín: Kepptí öllum landshlutum UNDIRBÚNINGUR er í full- um gangi fyrir keppnina Feg- urðardrottning íslands 1989, sem fram fer í vor. Dagsetn- ingar hafa verið ákveðnar fyrir keppni i einstökum landshlutum. Vel hefur geng- ið að fá stúlkur til þátttöku, að sögn Gróu Ásgeirsdóttur, sem annast framkvæmd keppninnar, en ennþá er tími til að koma með ábendingar um stúlkur. Dagsetningar í einstökum landshlutum eru sem hér segir: 2. marz, Sjallinn Akureyri, Fegurðardrottning Norðurlands. 4. marz, Keflavík, Fegurðar- drottning Suðumesja. 9. marz, Reykjavík, Fegurðar- drottning Reykjavíkur. 11. marz, Hótel Örk Hvera- gerði, Fegurðardrottning Suður- lands. 18. marz, Hótel Stykkishólm- ur, fegurðardrottning Vestur- lands. 1. apríl, Egilsbúð Neskaups- stað, Fegurðardrottning Austur- lands. Ekki hefur verið gengið frá því hvenær val fer fram á Feg- urðardrottningu Vestfyarða, en keppnin er áformuð á ísafiði. Að sögn Gróu Ásgeirsdóttur hefur gengið óvenju vel að fá stúlkur til keppninnar að þessu sinni. „Öllum er í fersku minni sigur Lindu Pétursdóttur í keppninni Ungfrú heimur. Stúlk- umar sjá hvað sigur í keppninni hér heima opnar mikla mögu- leika úti í heimi. Við sem að keppninni stöndum höfum fengið mjög góðar viðtökur alls staðar. Við getum enn bætt við stúlkum í keppnina og vil ég hvetja fólk til þess að koma með ábendingar til mín hingað á Hótel Borg, þar sem ég hef skrifstofu," sagði Gróa. Keppnin um titilinn Fegurðar- drottning íslands 1989 fer fram , á Hótel Islandi 15. maí. Teikning af íþróttahúsi íþróttafélags fatlaðra við Hátún. íþróttafélag fatlaðra: Lokíð verður víð annan áfttnga íþróttahússins á þessu ári ANNAR áfangi byggingar íþróttahúss íþróttafélags fatlaðra verður boðinn út næstkomandi mánudag, en áætlað er að hefja framkvæmd- ir við hann í byijun april. Að sögn Arnórs Péturssonar formanns bygginganefndaríþróttahúss fatlaðra er stefiit að því að þessum áfanga byggingarinnar verði lokið í desember á þessu ári, en í honum felst að reisa húsið tilbúið undir málningu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Arnór Pétursson, formaður bygginganefndar íþróttahúss fatlaðra, Leifur Gíslason og Gísli Halldórsson, arkitektar íþróttahússins. íþróttafélag fatlaðra verður 15 ára 30. maí í vor, og eru félags- menn nú um 600 talsins. Félagið fékk samþykkta byggingu íþrótta- húss árið 1982, og var lokið við grunn þess árið 1984. Framreiknað til dagsins í dag er áætlað að heild- arkostnaður við hann sé um 4 millj- ónir króna. Byggingasjóður íþróttafélagsins hefur að sögn Arnórs Péturssonar rúmlega 19 milljónir króna til ráð- stöfunar á þessu ári. Í fjáröflun sem Rás 2 gekkst fyrir meðal almenn- ings í landinu 28. október síðastlið- inn söfnuðust áheit fyrir rúmlega 6 milljónum króna, og hafa 5,7 millj- ónir af þeim skilað sér. Síðan hefur félaginu borist 1,5 milljón króna að gjöf, en þar af gaf Morgun- blaðið 1 milljón. íþróttafélag fatl- aðra fær 5 milljónir af aukafjárveit- ingu sem ríkisstjórnin veitti Iþrótta- sambandi fatlaðra í tilefni árangurs íslensku keppendanna á Olympíu- leikum fatlaðra í Seoul, og borgar- ráð Reykjavíkur hefur veitt loforð fyrir 5 milljón króna framlagi á fjár- hagsáætlun fyrir 1989. Þá hefur félagið sjálft aflað 2,5 milljóna króna. Öryggisþjónustan Vari hefur í tilefni af 20 ára afmæli fyrirtækis- ins afhent íþróttafélagi fatlaðra gjafabréf fyrir brunaviðvörunar- kerfi í íþróttahúsið. Við afhendingu gjafabréfsins sagðist Ásbjörn Björgvinsson frá Vara vonast til að þessi gjöf yrði öðrum fyrirtækjum hvatning til þess að styrkja íþrótta- félag fatlaðra varðandi byggingu íþróttahússins. íþróttahús fatlaðra verður 1,256 fermetrar að flatarmáli. Þar af er íþróttasalurinn 576 fermetrar, en hann er 18x32 metrar að stærð með 7 metra lofthæð. I húsinu verð- ur salur fyrir þrekþjálfun og lyfting- ar, rúmgóð búningsherbergi með tilheyrandi böðum, tvö kennaraher- bergi, hvíldarherbergi, herbergi umsjónarmanns, fundarherbergi og rúmgóður forsalur. í tengslum við forsalinn verður lítill veitingasalur með tilheyrandi afgreiðslu og eld- húsi þar sem hægt er að framreiða léttar veitingar. Er reiknað með að þennan sal geti félagsmenn notað meðan þeir b?ða eftir æfingatíma og til almennra félagsstarfa. í veit- ingasalnum er hægt að sitja við nokkra glugga er vita inn í íþrótta- salinn og fylgjast með æfingum hjá þeim sem þar eru. Að sögn Arnórs Péturssonar standa vonir til þess að hægt verði að ráðast í þriðja og síðasta áfanga byggingar íþróttahússins að ári liðnu, en í þeim áfanga felst frá- gangur á gólfi, loftræstikerfi, smíði innréttinga og allur lokafrágangur hússins. íþróttahús íþróttafélags fatlaðra verður fyrsta sérhannaða íþrótta- hús fyrir fatlaða á Norðurlöndum, en ekkert íþróttahús hefur verið byggt þar sérstaklega af félagi eða félagasamtökum fatlaðra. Danir hafa þegar teiknað íþróttahús fyrir fatlaða, en ekki séð sér fært að hefja framkvæmdir vegna íjár- hagsörðugleika. Væntanlegar hækkanir á búvörum, síma og rafinagni: Framfærsluvísitalan um 1,5% lánskjaravísitalan um 1,2% Hækkar skuldir fólks við Húsnæðisstoftmn um rúmar 200 milljónir króna HÆKKUN rafinagnsverðs um 30%, 4% hækkun á gjaldskrá Pósts og síma og 15—20% hækk- un á búvörum á þessu ári mun leiða af sér tæplega 1,5% hækk- un framfærsluvísitölu og um */'2% hækkun lánskjaravisitölu. Stjórnendur Landsvirkjunar hafa ekki viljað gefa upp hvað gjaldskrá fyrirtækisins þurfi að hækka eftir 1. mars þegar verð- stöðvun lýkur en Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra sagði á stjórnmálafundi á Hvolsvelli fyr- ir skömmu að Landsvirkjun hefði sótt um 30% hækkun, samkvæmt frétt Tímans af fundinum. Kristján Jónsson rafmagnsstjóri hefur sagt að Rafmagnsveitur ríkisins muni fara fram á 11—12% hækkun gjaldskrár sinnar 1. mars til við- bótar nauðsynlegri hækkun vegna hækkununar á heildsöluverði Landsvirkjunar. Ef Landsvirkjun fær 30% hækkun þarf RARIK samkværht þessu að hækka sína gjaldskrá um 29—30%. Ef 30% almenn hækkun verður á rafmagni til lýsingar og húshitunar veldur það um 0,05% hækkun fram- færsluvísitölunnar en ef hitaveit- urnar fá sömu hækkun hækkar framfærsluvísitalan um 0,1% vegna hækkunar á húshitun og lýsingu. I grein Þorsteins Pálssonar for- manns Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu síðastliðinn laug- ardag kemur fram að Þjóðhags- stofnun telur að 220 milljónir kr. vanti í fjárlög þessa árs til þess að niðurgreiðslur búvara haldi raungildi sínu miðað við síðast ár. í því felist að mati Þjóðhagsstofn- unar að búvörur þurfi að hækka um nálægt því 1,5% umfram verð- lagsbreytingar til þess að mæta þessari lækkun niðurgreiðslna. 1,5% hækkun búvara leiðir til um 0,12% hækkunar framfærsluvísi- tölu. Miðað við forsendur fjárlaga er búist við að þær búvörur sem eru niðurgreiddar hækki um 15—20% á þessu ári en slík hækk- un búvara gæti leitt til um 1,3% hækkunar framfærsluvísitölunn- ar. Fram hefur komið að Áburðar- verksmiðjan telur sig þurfa 32% hækkun áburðarverðs í vetur. Sú hækkun eins og sér myndi leiða til um 4—5% hækkunar á verði kindakjöts og mjólkur og hafa í för með sér 0,3—0,4% hækkun á framfærsluvísitölu. Fram hefur komið að 5% hækk- un á gjaldskrá Pósts og síma 1. apríl muni leiða til 0,09% hækkun- ar á framfærsluvísitölu. 30% hækkun á rafmagnsverði, hækkun á gjaldskrá Pósts og síma og 15—20% hækkun á búvörum á þessu ári mun samkvæmt ofan- greindu til tæplega 1,5% hækkun- ar framfærsluvísitölu og um Vz% hækkunar lánskjaravísitölu. Við það hækka skuldir lántakenda hjá Húsnæðisstofnun ríkisins um rúm- ar 200 milljónir kr. Eftirstöðvar hæsta iáns Húsnæðisstofnuar, sem nú er 3.368 þúsund krónur, myndu hækka við þetta um tæpar 17 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.