Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
18
VIÐBRÖGÐ VIÐ EFNAHAGSRAÐSTOFUNUM RIKISSTJORNARINNAR
Ljóst er að aðgerðimar
eru ekki nægjanlegar
- segir Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra
Þeir Ólafiir Ragnar
Grímsson, Qármálaráð-
herra, Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráð-
herra og Svavar Gests-
son, menntamálaráð-
herra hlýða á ræðu Þor-
steins Pálssonar, á fundi
Sameinaðs þings í gær.
STJÓRNARLIÐAR virðast yfirleitt sáttir við þær efhahagsráðstafan-
ir sem Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra kynnti í ræðu
sinni á Alþingi í gær, en foringjar stjórnarandstöðunnar telja að þær
séu engan veginn nægjanlegar. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra telur jafnframt að ekki hafi verið gengið nógu langt í gengis-
fellingu, til þess að rétta af hag fyrirtækja í sjávarútvegi, en segir
þetta spor í rétta átt.
„Þessar efnahagsráðstafanir eru
rökrétt framhald af fyrstu aðgerð-
um ríkisstjómarinnar, verðstöðvun,
lækkun verðbólgu og vaxta,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins og utanríkisráð-
herra er hann var spurður hvort
þessar ráðstafanir væra fullnægj-
andi að hans mati. „Með þessum
aðgerðum markar ríkisstjómin
stefnu í gengismálum og í peninga-
og vaxtamálum og málefnum fjár-
magnsmarkaðarins. Ríkisstjómin
hefur nú svarað kröfum gengisfell-
ingarkórsins innan og utan Sjálf-
stæðisflokksins skýrt og skilmerki-
lega. Það verður engin gengiskoll-
steypa. Það skiptir mjög miklu
máli."
„Ætlum að lækka
rauugengið enn frekar“
„Með fyrstu aðgerðum sínum
tókst ríkisstjóminni að lækka raun-
gengið um 15% á mælikvarða
launakostnaðar og rúmlega 10% á
mælikvarða verðlags. Þannig að
raungengið er nú lítið hærra en það
hefur verið að meðaltali á undan-
fömum áram. Með gengisbreyting-
unni í uphafi árs og því skrefí sem ,
stigið var núna, ásamt með heimild
til Seðlabankans um frekari breyt-
ingar í litlum mæli, er þessi stefna
mörkuð. Við ætlum okkur að lækka
raungengið enn frekar á næstunni,
forðast kollsteypur, og eram þar
með að lýsa því yfir að við stefnum
að tiltölulega lágri verðbólgu og
stöðugleika framundan.
Að því er varðar afkomu sjávar-
útvegs og útflutningsgreina, þá er
það rétt að það er alvarlegur halli,
sérstaklega á bátaútgerðinni. Menn
verða hins vegar að átta sig á því
að gengiskollsteypa læknar ekki
þann hlut. Það var búið að lækka
gengið um 26% frá því að ríkis-
stjóm Þorsteins Pálssonar tók við
völdum og það hefur ekki dugað
til þess að leysa vanda sjávarút-
vegsins og útflutningsgreina. Stöð-
ugleikinn, lækkandi raungengi,
lækkun raunvaxta, lækkun nafn-
vaxta, hóflegir kjarasamningar, til
að vemda kaupmátt, er sú leið sem
ríkisstjómin boðar. Þar með er ver-
ið að draga úr gengislækkunarþörf,
en það er einnig gert með ýmsum
öðram ráðstöfunum sem boðaðar
era varðandi sjávarútveginn. Það
verður hvorki hlustað á kröfugerð
um 20% gengisfellingu, né heldur
á t.d. kröfugerð BHMR um 20%
kaupmáttaraukningu."
— Jón Baldvin var spurður hvort
hann væri með þessu að segja, að
ríkisstjómin hygðist grípa inn í
kjarasamaninga:
„Nei. Eg er að segja að ríkis-
stjómin semur um kaup og kjör við
opinbera starfsmenn og mun ekki
semja um 20% kaupmáttaraukn-
ingu. Við höfum átt viðræður við
fjölmarga af forystumönnum laun-
þegahreyfmgarinnar og munu taka
þær upp á ný nú, þegar ríkisstjóm-
in hefur með þessum hætti markað
sína stefnu. Ég minni á ályktun
Verkamannasambandsins og við-
ræður okkar við forystumenn þess.
Aðalatriðið sem þeir höfðu fram að
færa og óskuðu eftir vora að lækka
verðbólgu og lækka vexti og fjár-
magnskostnað, auk þess sem þeir
leggja áherslu á að lífskjör í landinu
verði jöfnuð. Þeirri stefnu viljum
við fylgja."
„Ég lít svo á að sumt af því sem
forsætisráðherra kynnti þama sé
með þeim hætti að við getum sætt
okkur við það,“ sagði Júlíus Sólnes,
formaður Borgaraflokksins. „Ann-
að hefðum við viljað hafa eitthvað
öðra vísi og gera kannski meira,
en við eram t.d. sáttir við það að
það verði að hafa mjög strangt
verðlagsaðhald og við getum fallist
á það, að það þurfi að hafa eftirlit
með orkufyrirtækjum um að þeirra
taxtar rjúki ekki upp úr öllu valdi,
og svo framvegis. Við getum vel
sætt okkur við að það verði um sinn
að stjóma hér mjög strangt pen-
inga- og vaxtamálum, þó að við
séum í sjálfu sér fylgjandi því að
það ríki frjálsræði á þessu sviði.
Eins og stendur, þá er ekki um það
að tala.“
„Seðlabankinn fær vald til
þess að framkvæma stefnu
ríkisstjórnarinnar"
„Það era tvö atriði sem era aðal-
kjaminn í þessum ráðstöfunum,"
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins og
fjármálaráðherra. „Það fyrra er að
ríkisstjómin telur nauðsynlegt að
haldið sé áfram með endurskipu-
lagningu útflutningsfyrirtækjanna,
bæði á sviði rekstrar og eins hvað
snertir fjármagnskostnað, en ríkis-
stjómin hafnar þeirri kenningu
Sjálfstæðisflokksins og annarra að
stórfelld gengisfelling sé lækning-
artæki fyrir útflutningsatvinnuveg-
ina. Að þessu leyti era þessar að-
gerðir staðfesting á því að við telj-
um vanda íslensks atvinnulífs fyrst
og fremst vera skipulagsvanda, en
ekki gengisvanda. Hitt meginatriðið
í þessum efnahagsaðgerðum era
umfangsmiklar breytingar á pen-
ingakerfinu, vaxtamálum og
bankastofnunum. Þessar breyting-
ar era líklega þær víðtækustu sem
gerðar hafa verið hér á landi um
margra ára skeið. í samskiptum
Seðlabanka við viðskiptabankana
og í ákveðnum bindingum á verð-
bréfafyrirtækjunum á þessum svo-
kallaða „gráa markaði" verði raun-
vaxtastigið hér í landinu fært niður
í u.þ.b. 5%, eins og það er í helstu
nágrannalöndum okkar. í þessu
skyni verður lögunum um Seðla-
bankann breytt og Seðlabankanum
fært nýtt vald til þess að fram-
kvæma þessa stefnu ríkisstjómar-
innar. í öðra lagi verður lögunum
um viðskiptabanka breytt á þann
veg að bankaráðin fá miklu víðtæk-
ari skyldur og heimildir til þess að
‘ákveða vexti og ýms gjöld í starf-
semi bankanna."
Ólafur Ragnar sagði ríkisstjóm-
ina telja að þessar aðgerðir myndu
ná íslensku atvinnulífi inn á nýtt
stöðugleikatímabil. , Þær myndu
vissulega taka tíma og þær fælu
ekki í sér neinn einn lykil sem
hægt væri að snúa á skömmum
tíma, og þá færi allt í lag.
Pjármálaráðherra sagði jafn-
framt: „Ég er mjög ánægður með
þessa niðurstöðu og um hana er
algjör samstaða í Alþýðubandalag-
inu. Hún felur einmitt þetta í sér,
að halda áfram að vinna að þessu
langtímaverkefni að vinna að skipu-
lagsbreytingum íslenskra útflutn-
ingsgreina og að vinna að breyting-
um á peninga- og fjármálakerfi því
sem hér er.“
„Sundlaði ekki
af nýungxmum"
„Mann sundlaði ekki af nýungun-
um,“ sagði Málmfríður Sigurðar-
dóttir, þingmaður Samtaka um
kvennalista, er hún var spurð álits
á fyrirhuguðum efnahagsráðstöf-
unum ríkisstjómarinnar. „Mér
fínnst þær ákaflega máttleysislegar
og fátt nýtt koma þama fram. Mér
fínnst þó frekar gott að heyra, að
það hafi hvarflað að stjóminni að
lækka raforkuverðið. En við heyrð-
um hins vegar lítið um það hvemig
ríkisstjómin hyggst framkvæma
þetta.
Það slæma við þetta er það, að
þama er ekki tekið almennilega á
vanda sjávarútvegsins. Það er ekki
reynt að koma málinu á heilbrgiðan
grann. Þetta er bara einhver fram-
lenging - löng henging. Maður sér
ekki hvað á að verða um þennan
atvinnuveg, því hans staða batnar
svo lítið við þetta, að hann nær sér
ekki upp.
Ég veitti því sérstaka athygli
þegar forsætisráðherra sagði í ræðu
sinni að hugsanlegt væri að tala
um einhveija lækkun á matvælum
í sambandi við kjarasamningana.
Það á sem sagt að verzla með
matarskattinn í kjarasamningum
og yfír slíku finnst mér nú ekki
vera mikil reisn. Sýnilega er þá
ríkisstjómin tilbúin til þess að grípa
inn í kjarasamninga, sem einnig er
alvarlegur hlutur."
Gengisfellingin hefði
þurft að vera 10-12%
- segir Arnar Sigurmundsson formað-
ur Sambands fiskvinnslustöðvanna
ARNAR Sigurmundsson formaður Sambands fiskvinnslustöðv-
anna segir að frystingin verði áfram rekin með tapi, þrátt fyrir
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, og þá haldi áfram 15 mán-
aða taprekstur. Hann segir að þurft hefði 10-12% gengisfellingu,
svo vinnslan gæti skilað hagnaði.
Samkvæmt útreikningum Þjóð- veiðanna er hins vegar talin nei-
hagsstofnunar er rekstrarstaða
botnfískveiða og vinnslu neikvæð
um 4%. Staða fískvinnslunnar á
núlli, þar af saltfiskvinnslunnar
jákvæð um 4'/2% en frystingar
neikvæð um 2’/2%. Rekstrarstaða
kvæð um 7%.
Amar sagði að tap frystingar-
innar væri minna en oft áður,
bæði fyrir þessar aðgerðir og eft-
ir þær, en stöðvamar væra með
uppsafnað tap, sem gerði dæmið
mun erfiðara.
„Þessar efnahagsaðgerðir
valda okkur miklum vonbrigðum.
Við gerðum okkur vonir um, að
núna yrði gripið til efnahagsað-
gerða sem tryggðu að frysting
og söltun kæmist í hagnað.
10-12% gengisfelling ásamt hlið-
arráðstöfunum hefði hugsanlega
gert frystingunni kleyft að vinna
. upp þetta gamla tap á 2-3 árarn,"
sagði Amar. Hann bætti því við,
að fiskvinnslumenn myndu funda
á föstudaginn, um afkomumál.
Morgunblaðið/Sverrir
„Sjávarútvegoirinn
fór á hliðina“
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra hefur verið talsmaður
þess í ríkisstjórn að gengið yrði
fellt meir, en sem nemur þeim 2,5%
sem forsætisráðherra greindi frá í
gær. Hann var spurður hvort hann
teldi að ráðstafanir þær sem forsæt-
isráðherra boðaði í gær, gengju of
skammt til þess að koma sjávarút-
vegnum á réttan kjöl:
„Sannleikurinn er sá, að raun-
gengi krónunnar var orðið of hátt
skráð seinni hluta ársins 1987. Allt
árið 1988 var verið að fjalla um
það hversu mikið skyldi breyta
gengi krónunnar en á sama tíma
hækkað kostnaður veralega hér
innanlands. Á þessum tíma fór sjáv-
arútvegurinn á hliðina. Það hefur
legið fyrir að raungengið þyrfti að
lækka all mikið. Það hefur verið
lækkað veralega síðan þessi ríkis-
stjóm tók við og nú er það lækkað
enn um 2,5% og gefin heimild til
þess að breyta því um 2,25%. Eins
og staðan er í dag, samkvæmt út-
reikningum Þjóðhagsstofnunar, þá
er frystingin rekin hallalaus, miðað
við 6% ávöxtunarkröfu. Saltfísk-
verkunin er rekin með nokkram
hagnaði. Piskiskipaflotinn er rekinn
með veralegu tapi, en þó er það að
mestu leyti tap bátaflotans. Það era
ýmsar orsakir fyrir því. Svo virðist
sem launakostnaður hjá bátaflot-
naum hafí hækkað meira en annars
staðar í flotanum. Það er nú verið
að skoða sérstaklega. Það er að
mínu mati, alveg ljóst að þessar
ráðstafanir era ekki nægjanlegar
fyrir sjávarútveginn, en þær era í
áttina. Raungengið hefur lækkað
en þarf að lækka nokkuð meira.
Það sem skiptir mestu máli er að
kostnaðarhækkunum verði haldið í
skefjum og að frekar verði dregið
úr kostnaði, en hann hækki og fjár-
magnskostnaðurinn lækki allvera-
lega, eins og ég geri mér vonir um
í þessum ráðstöfunum. Þetta þýðir
einfaldlega það að það skiptir meg-
inmáli nú á næstunni, hvað gerist
á vinnumarkaðnum. Alveg eins og
það skipti sköpum fyrir sjávarút-
veginn á sl. vetri, þegar þar fór
allt úr böndum, þá mun það skipta
sköpum fyrir hann núna hvað ger-
'ist á næstunni. Það er því ekki
bara ríkisstjómin sem ræður því
hvert er raungengið, heldur jafn-
framt aðilar vinnumarkaðarins,"
sagði Halldór.