Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 22
P<J ~ " ' ■ CS?f>r 5Í AftHHŒT^r .? írar>AftUÍ.fníí<J fÍTUA ISVÍÍTÍWW
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
Skrifstofutækninám
Tölvuskóli fslands
Símar: 67-14-66
67-14-82
^ Bjórinn ^
nálgast!
Sénnerkjum
bjórkollur
og bjórglös.
Leitið upplýsinga.
JiJl^_
Höfdabakka 9
Sími685411
Leitið til okkar:
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Brasilía:
Atján fang-
ar kafna í
fangaklefa
^ Sao Paulo. Reuter.
ÁTJÁN fangar köfnuðu í miklum
þrengingnm í fangaklefa á lög-
reglustöð í Sao Paulo eftir að til
ryskinga kom þar á sunnudag.
Fangar saka lögreglu um að hafa
fleygt táragassprengju inn í
fangaklefa sem rúmar 18 manns
en 50 föngum hafði verið komið
fyrir í.
Að sögn lögreglu var ekki um
apnað að ræða en setja fangana í
þennan klefa því þeir höfðu eyðilagt
aðra klefa í átökunum. Átökin hóf-
ust þegar nokkrir fangar brutust
út úr fangaklefa.
• Fangamir sögðu við fréttamenn
að lögreglan hefði fleygt táragas-
sprengjum inn í fangaklefann. Lög-
reglan vildi ekki svara þeim ásökun-
um.
Reuter
Áhorfendur fagna er Boeing-þota með Alfredo Stroessner, fyrrum
forseta Paraguay, innanborðs hefúr sig á loft frá alþjóðaflugvellin-
um í Asuncion á sunnudag.
Alfredo Stroessner heldur 1 útlegð til Brasilíu:
Þing- og forsetakosn-
ingar fara fram 1. maí
Asuncion, Brasilíu. Reuter.
ALMENNIN GUR í Praguay
fagnaði ákaft á sunnudag er
Alfredo Stroes3ner, fyrrum for-
seti landsins, sté um borð í þotu
á alþjóðaflugvellinum í höfúð-
borginni, Asuncion, og hélt i út-
legð til Brasilíu. Sama dag var
frá því skýrt að Andres Rodriqu-
ez, herforingi sem steypti Stro-
essner af stóli í blóðugri byltingu
á föstudag í síðustu viku, hefði
Evrópuráð-
ið samþykk-
ir aðild
Finnlands
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
EVRÓPURÁÐIÐ hefúr í reynd
samþykkt aðild Finnlands að ráð-
inu. Þingmannafúndur ráðsins
komst að þeirri niðurstöðu i
gær, einróma, að landið uppfyllti
settar kröfúr en Finnar verða
að líkindum að gera ýmsar und-
anþágur varðandi mannréttinda-
samþykktir ráðsins við inn-
gönguna.
Evrópuráðið á 40 ára afmæli í
maí næstkomandi og er ljóst að
Finnland verður tekið inn í ráðið í
sambandi við hátíðarhöld af því til-
efni.
Verulegur ágreiningur mun vart
koma upp í sambandi við inn-
gönguna í finnska þinginu. Hins
vegar mun það taka nokkur ár að
breyta lögum varðandi ýmis mann-
réttindi svo að landið geti undirritað
mannréttindasáttmála Evrópuráðs-
ins. Sem dæmi má nefna lög er
kveða á um rétt fínnsku lögreglunn-
ar til að handtaka fólk sem grunað
er um lögbrot en lögin stangast á
við sáttmálann. í Finnlandi má lög-
reglan halda grunuðum einstaklingi
í varðhaldi allt að eina viku án þess
að hann sé dreginn fyrir rétt.
Einnig er talið að lög um réttindi
útlendinga í landinu geti orðið
viðkæmt mál í þessu samhengi. Á
næstunni verður reynt að færa þessi
mál í betra horf og er m.a. gert ráð
fyrir að tekið verði við fleiri flótta-
mönnum en áður.
afráðið að boða til lýðræðislegra
kosninga í landinu innan 90 daga.
Rodriquez, sem tekið hefúr við
forsetaembættinu, hafði áður
heitið því að lýðræði yrði komið
á í Paraguay og mannréttindi
virt. í gær var síðan tilkynnt að
þing- og forsetakosningar færu
fram þann 1. maí næstkomandi.
Utanríkisráðuneyti Brasilíu birti
stutta tilkynningu þar sem sagði
að sljómvöld hefðu ákveðið að taka
við Stroessner í samræmi við al-
þjóðlegar reglur um landvistarleyfí
á pólitískum forsendum.
Hundruð manna fylgdust með
því er Stroessner sté um borð í
Boeing-þotu í eigu ríkisflugfélags
Paraguay ásamt aðstoðarmönnum
sínum og ættmennum. Fólkið gerði
hróp að forsetanum fyrrverandi,
sem er 76 ára að aldri, og sagði
hann „harðstjóra" og „morðingja".
Mikil fagnaðarlæti brutust út er
þotan brunaði eftir flugbrautinni
og hóf sig til flugs.
Talsmaður brasilíska utanríkis-
ráðuneytisins sagði flugvél Stro-
essners hafa lent í Campinas um
80 kflómetra norður af Sao Paulo.
Þaðan hefðu hann og ættingjar
hans haldið með herflugvél til bæj-
arins Itumbiara inni í miðju landi.
Óstaðfestar fréttir hermdu að það-
an hefði Stroessner verið ekið til
Uberaba, sem er eitt ftjósamasta
Ifllomabad. Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
sagði í gær, að fyrsti fúndur
kínverskra og sovéskra leiðtoga
í 30 ár myndi koma samskiptum
ríkjanna í eðlilegt horf. Þeir
Deng Xiaoping og Míkhaíl Gorb-
atsjov munu hittast í Peking dag-
ana 15.-18. maí.
Shevardnadze sagði á fundi með
fréttamönnum í Islamabad í Pakist-
an, að unnið væri að sameiginlegri
yfírlýsingu, sem leiðtogarnir undir-
rituðu síðan á Pekingfundinum.
Kvað hann nú þegar hafa tekist
samkomulag um málefni Kambódíu
landbúnaðarhérað Brasilíu. Þar á
Stroessner búgarð en hann á eignir
víða í Brasilíu.
Sendiherra Paraguay í Brasilíu
sagði að synir og tengdadætur Stro-
essners hefðu fylgt honum í útlegð-
ina ásamt bömum þeirra. Alfredo,
sonur Stroessners, er kvæntur dótt-
ur Andres Rodriquez, sem fór fyrir
byltingarmönnunum.
Luis Maria Argana, utanríkisráð-
herra Paraguay, skýrði frá því á
sunudag að Rodriquez forseti hefði
ákveðið að efna til kosninga í
landinu innan 90 daga en tiltók
ekki dagsetninguna. „Kosningamar
verða fijálsar og lýðræðislegar og
öllum verður tryggður jafn réttur,“
sagði ráðherrann. Heimildarmenn
Reuters-fréttastofunnar sögðu
spuminguna vera þá hvort stjómar-
andstöðuflokkum yrði leyft að
starfa og reka baráttu fyrir kosn-
ingamar. Stroessner ríkti í 34 ár í
Paraguay og var síðast endurkjör-
inn forseti snemma árs 1988 en
flokkar stjómarandstæðinga vom í
raun útilokaðir frá þátttöku með
ýmsum lagaboðum. Sömu heimild-
armenn sögðust sannfærðir um að
stjómarflokkurinn, Colorado-flokk-
urinn, færi með sigur af hólmi í
kosningunum þar eð landsmenn
hefðu ekki kynnst öðmm stjórn-
málaöflum á undanfömum 30
ámm.
en vildi ekki skýra nánar frá því.
Fréttastofan Nýja Kína sagði hins
vegar, að ríkin væm sammála um
hvemig fylgst skyldi með brott-
flutningi víetnamska hersins frá
landinu.
Víetnamska hemámið í
Kambódíu hefur staðið í vegi fyrir
bættum samskiptum Sovétmanna
og Kínveija en Víetnamar hafa nú
heitið að ljúka brottflutningnum í
september á þessu ári. Sagði She-
vardnadze, að í sameiginlegri yfir-
lýsingu leiðtoganna kæmi fram
áhugi Sovétmanna á að binda enda
á svæðisbundin átök eins og til
dæmis stríðið í Afganistan.
Kínversk-sovéskur leiðtogafundur:
Batnandi samskipti